Fréttir - Eyjafréttir - 31.07.2008, Side 21
Frcttir / Fimmtudagur 31. júlí 2008
21
✓
Islandsmeistari kvenna 2008:
Helena spilar alltaf til vinnings
Helena Árnadóttir, íslandsmeist-
ari kvenna 2008, er ættuð frá
Akureyri og spilaði lengst af fyrir
Golfklúbb Akureyrar en hefur
síðustu fjögur ár verið í Golf-
klúbbi Reykjavíkur. Þetta er í
annað sinn sem hún hampar
þessum titli, fyrra skiptið var
fyrir tveimur árum þegar spilað
var á Oddfellowvellinum.
Henni gekk ekki vel fyrsta
daginn, var átta höggum á eftir
Eygló Myrru sem var í efsta sæti.
„Áuðvitað stefndi ég á fyrsta
sætið,“ segir Helena. „Eg spila
alltaf til vinnings. Og þetta var
erfitt í dag, ég neita því ekki. Ég
var orðin þreytt, bæði andlega og
líkamlega og svo var vindurinn
ekki til að auðvelda þetta. En
það er alveg æðislegt að spila
hérna, völlurinn er í toppstandi
og margar mjög krefjandi holur.
Þetta er mjög skemmtilegur
völlur.“
Helena var að Ijúka BA-námi í
sálfræði og segist ætla að halda
áfram að mennta sig á því sviði.
„Ég er aðallega með Bretland í
sigtinu núna, það virðist nokkuð
spennandi. Jú, auðvitað tek ég
kylfurnar með mér hvort sem ég
fer þangað eða eitthvað annað,“
sagði Helena Árnadóttir, ný-
krýndur Islandsmeistari kvenna
2008, að lokum.
AUÐVITAÐ stefndi ég á fyrsta
sætið,“ sagði Helena.
Engin
stórmál
komu upp
Yfirdómari mótsins var Þórður
Ingason, sem er alþjóðadómari
og aðstoðardómari var Aðal-
steinn Örnólfsson, landsdómari í
golfi. Þeim bar saman um að
mótið hefði gengið mjög vel fyrir
sig og engin stórmál hefðu komið
upp.
„Vindurinn hafði reyndar sín
áhrif en völlurinn er í góðu
ástandi og flatirnar héldu boltum
vel þótt stundum stæði það
reyndar tæpt í mestu hviðunum.
Þetta minnti um margt á British
Open í veðurfari,“ sögðu þeir.
Þeir sögðu að flest tilfelli, þar
sem þeir voru kallaðir til, hefðu
snúið að því að fá lausn frá
hindrunum, svo sem stígum og
köplum sjónvarpsmanna. „En
þessir keppendur þekkja regl-
urnar það vel, flestir hverjir, að
oftast er engin þörf á að kveðja
til dómara enda gekk þetta mót
mjög vel fyrir sig,“ sögðu þeir
Þórður og Aðalsteinn.
Almenn ánægja með
mótið
Það er verulegt verk að undirbúa og
halda utan um mót af þessari
stærðargráðu. Sex manna móts-
nefnd skipuðu þeir Hörður Þor-
steinsson og Gunnar Gunnarsson,
frá GSÍ, Þórður Ingason, dómari,
og Eyjamennirnir Helgi Bragason,
Gunnlaugur Grettisson og Jón
Pétursson.
„Við erum gríðarlega ánægðir
með hvemig til tókst,“ segir Gunn-
laugur Grettisson, einn nefndar-
manna. „Það var mikill fjöldi sjálf-
boðaliða úr GV sem kom að þessu,
líklega milli 40 og 50 manns sem
unnu lengur og skemur við mótið.
Sumir alveg frá morgni til kvölds
alla dagana. Við kunnum öllu
þessu fólki miklar þakkir fyrir. I
stuttu máli þá gekk þetta aíveg
hnökralaust fyrir sig. Við héldum
landsmótið 2003, fyrir fimm árum
og þetta vannst allt mun léttara
núna að mér fannst.
Kannski erum við reynslunni
ríkari eftir það mót. Það eina, sem
ekki stóðst, var tímasetningin á
lokahófinu. Það átti að hefjast kl.
20.30 á sunnudagskvöldið en varð
að fresta því um klukkutíma þar
FORSETINN fylgist með.
sem úrslit í karlaflokki teygðust
heldur betur á langinn og hleyptu
mikilli spennu í mótið. Enda voru
gestimir ánægðir, bæði með
framkvæmdina sem og völlinn.
Forseti GSI og aðrir sem tóku til
máls á lokahófmu lýstu mikilli
ánægju sinni með alla framkvæmd
mótsins og auðvitað getum við ekki
verið annað en ánægðir með það,“
sagði Gunnlaugur.
DÓMARARNIR Aðalsteinn og Þórður
SIGURÐUR: Ég var að slá ágætlega en vindurinn gerði mér erfitt
fyrir í stutta spilinu.
Völlur sem mann langar
til að spila
Sigurður Pétursson var í hópi elstu
keppenda á íslandsmótinu en hann
verður fimmtugur á næsla ári.
Hann hefur nokkrum sinnum orðið
Islandsmeistari og hefur margoft
keppl í Vestmannaeyjum, bæði á
Islandsmótum og öðrum mótum.
„Eg var að spila alveg þokkalega
en hefði viljað gera belur,“ sagði
Sigurður sem endaði í 24. sæti á
301 höggi. „Ég var að slá ágætlega
en vindurinn gerði mér erfitt fyrir í
stutta spilinu. En völlurinn er
glæsilegur og flatimar frábærar,
svipað rennsli á þeim öllum. Aftur
á móti voru holustaðsetningarnar
sums staðar nokkuð erfiðar og
sérstakar. Ég þekki þennan völl vel
enda oft búinn að spila hann. Það
er alltaf gaman að spila í Eyjum og
þetta er völlur sem mann langar
alltaf að spila.“
Og það voru fleiri úr fjölskyld-
unni að spila á Islandsmótinu.
Sonur Sigurðar og dóttir voru bæði
með sem og tengdadóttirin, Nína
Björk Geirsdóttir, sem vann titilinn
í fyrra og spilaði til úrslita núna.
Ekki munaði nema fimm höggum í
heildina á þeim feðgum í mótinu,
þar sem sonurinn hafði betur.
En Sigurður er með ákveðið
markmið í huga. Á næsta ári
verður hann gjaldgengur í
öldungamótaröð atvinnumanna í
Evrópu og hefur sett stefnuna á
þátttöku þar. „Ég er búinn að vera
að undirbúa mig fyrir það og er
ákveðinn í að prófa þetta,“ sagði
Sigurður Pétursson.
SIGURÐUR Pétursson hefur margoft keppt á mótum í Eyjum. Þessi
mynd var tekin árið 1981 þegar hann sigraði á Faxamótinu. Sigurður
er til hægri en til vinstri er annar landsþekktur kylfingur sem einnig
hefur oft keppt í Eyjum, Sigurður Hafsteinsson. Myndin er úr bókinni
Saga Golfklúbbs Vestmannaeyja í 70 ár.