Fréttir - Eyjafréttir - 14.08.2008, Qupperneq 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 14. ágúst 2008
Blogghelmar
Eyjamaður vlkunnar:
Bloggheimar
Georg Eiður Arnarson:
Sóknarfæri í
Væri til í 18 með Tiger Woods
makrílnum
Nýjasta gullæðið í íslenskum
sjávarútvegi er
makríllinn og er
mjög ánægjulegt að
sjá hve vel gengur.
Þingmenn FF í
Suðurkjördæmi
hafa verið duglegir
síðustu árin að
benda á það, að
makríllinn sé sóknartækifæri okkar
og mér er sagt að hásetahluturinn á
Hugin í síðasta mánuði hafi losað
liðlega 4 milljónir, sel það ekki
dýrara en ég keypti. Það er mjög
ánægjulegt, ekki bara fyrir áhöfni-
na, heldur líka fyrir bæjarfélagið í
heild, því að eins og ég hef áður
skrifað, þá er útgerðin lífæð
Vestmannaeyja og að sjálfsögðu
eigum við Eyjamenn að vera í
forystuhlutverki varðandi nýtingu
makrílsins.
Nýlega var nefndur við mig sá
möguleiki að fara á minni bátum,
eins og gert er í Noregi, og veiða
með krókum makríl til manneldis
og hef ég mikinn áhuga á því.
Vandamálið er að sjálfsögðu að það
er dýrt að starta svoleiðis, en sem
betur fer eru svo stórar og sterkar
útgerðir í Eyjum, að þær munu ráða
vel við það. Við höfum hér allt sem
til þarf, bæði reynda sjómenn, nóg
af skipum og niðursuðuverksmiðju,
ef út í það er farið, en lykilatriðið
er að sjálfsögðu það að standa rétt
að málinu í upphafí, þ.e.a.s. kynna
sér betur veiðarfærin og aðferð-
imar, vinnsluna og markaðinn.
Þarna held ég að við eigum virki-
lega sóknartækifæri.
Hermann Kristjánsson á
Sjöfninni gerði tilraunir fyrir
tveimur til þremur árum til að veiða
makríl með krókum, en undirbún-
ingur var kannski ekki alveg réttur,
enda sagði hann það, að loksins
þegar hann hitti í torfu og byrjaði
að fiska, þá fór allt í flækju og er
gott dæmi um það, að menn þurfa
að kynna sér málið betur áður en af
stað er farið.
En öllu góðu fylgja einhverjir
gallar. Eitt af því sem fylgt hefur
þessum makríl sem flætt hefur á
Islandsmið. Bara núna í sumar er
ég búinn að verða var við makríl á
færi austur af Portlandi og vestur
fyrir Surt og nýlega veiddist
makríll á sjóstöng úti fyrir Vest-
fjörðum. Eg hef haft áhyggjur af
því, ásamt fleirum, að hugsanlega
sé þessi makríll að koma hingað til
að lifa á síli. Ef það er rétt, þá er
þar kominn ansi harður keppinautur
um sílið og skýrir þar af leiðandi,
t.d. hvers vegna lundinn hefur þurft
að fara Iangt eftir æti síðustu árin.
Ef þetta er rétt, þá er það enn
mikilvægara fyrir okkur að hefja
sem fyrst veiðar á makríl á heima-
miðum og langar að benda á, að ég
sá t.d. í Fréttablaðinu núna í
vikunni viðtal við kokk sem lýsti
því yfir, hversu góður makríllinn
væri á grillið.
Gísli Hjartarson
Jói listó með sýningu
Langar að benda
áhugasömum á að
síðasta föstudag
opnaði á
Thorvaldsen Bar
við Austurstræti -
Austurvöll í borg
ótta og myrkurs
sýning á verkum
eftir Jóa Listó. Sýnngin mun standa
til I9.september n.k.. Sýningin
gengur undir nafninu "Ryðland" og
þama eru tölvubreyttar myndir að
hætti meistara Listó - Hvet alla sem
eiga leið um kaupstað vom að kíkja
á þessa sýningu. Öll verkin á
sýningunni eru til sölu. Svo er bara
að sjá hvort karlinn verður ekki
með sýningu í Eyjum fljótlega.
Um síðustu helgi fór fram Sveita-
keppni GSÍ í golfi en sú keppni er
haldin á hverju ári. Golfklúbbur
Vestmannaeyja féll í 2. deild í fyrra
og að þessu sinni fór keppni í 2.
deild fram á Jaðarsvelli á Akureyri
Átta golfklúbbar léku í 2. deild, í
tveimur riðlum og sigraði GV sinn
riðil og undanúrslitaleikinn við GÓ
og tryggði sér sæti í 1. deild á
næsta ári þar sem tvö efstu liðin
fara upp hverju sinni.
Sveit GV skipuðu þeir Gísli
Steinar Jónsson, Grétar Eyþórsson,
Gunnar Geir Gústafsson, Hall-
grímur Júlíusson yngri, Karl
Haraldsson, Júlíus Hallgrímsson,
Þorsteinn Hallgrímsson og Örlygur
Helgi Grímsson. Liðsstjóri var
Sigurður Bragason og aðstoðar-
maður Sigurjón Aðalsteinsson.
Gunnar Geir Gústafsson er
Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Gunnar Geir Gústafsson
Fæðingardagur: 17.11.1977.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: í sambúð með Freyju
Kristínu Rúnarsdóttur og á þrjá
stráka Ágúst Marel 9 ára Andra
Snæ 2 ára og Gústaf Loga 6
mánaða.
Sigurður Ragnarsson tók áskorun
mágs sins, Gísla Magnússonar sem
bauð upp á bjúgu í síðasta þætti.
Sigurður ætlar að bjóða upp á upp-
skrift af sjóbirtingi eða laxi með
spínati, kókos og sætri kartöflu
4 sjóbirtingssneiðar
1 sæt kartafla
Vi poki ferskt spínat
Vi dós kókosmjolk
1 tsk rautt karrímauk
1 msk fiskisósa
Saft úr 'A límónu
I tsk. Pálmasykur
Salt og pipar
Ólífuolía
Smyrjið botninn á ofnföstu fati með
ólífuolíu og setjið síðan allt
spínatið á fatið.
Raðið laxasneiðunum ofaná
spínatið. Saltið og piprið.
Skera kartöflurnar í strimla og
dreifa jafnt yfir réttinn.
Blanda saman í skál kókómjólk,
Gunnar Geir
er Eyjamaður vikunnar.
Draumabíllinn: Toyota Land
Cruiser.
Uppáhaldsmatur: Áramótanautið
hans pabba.
Versti matur: Súrmatur.
Uppáhalds vefsíða: Kylfingur.is.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Eg er alltaf í góðu skapi.
Aðaláhugamál: Golf.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
karrímauki, fiskisósu, límónusafa,
og pálmasykri. Hræra vel, hella yftr
réttinn og baka í 220 gr. h. Ofni í
25-30mín.
Meðlæti hrísgrjón og/eða salat.
Væri til í 18 holur með Tiger
Woods.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Ágúst Marel
Gunnarsson og IBV.
Ertu hjátrúarfullur: Nei.
Stundar þú einhverja aðra íþrótt:
Badminton.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Allar
íþróttir.
Hvenær byrjaðir þú að spila golf:
I kringum 1990 minnir mig.
Hvað var erfiðast við mótið: Að
spila 36 holur á dag og halda ein-
beitingu allan tímann tekur frá
manni hellings orku. Eg var
þreyttur í tvo daga eftir mótið.
Voruð þið ekki kátir þegar Ijóst
var að þið hefðuð sigrað undan-
úrslitin og þar með komnir upp í
1. deild: Við vorum virkilega
ánægðir ég held ég hafi meira að
segja séð gleðitár á vanga liðs-
stjórans. Við teljum okkur eiga fullt
erindi í fyrstu deild og bíðum
spenntir eftir næstu keppni.
Að lokum vil ég fá að þakka
strákunum fyrir frábæra helgi, þetta
var skemmtilegasta sveitakeppni
sem ég hef tekið þátt í.
Ég skora á Eyjólf Heiðar
Heiðmundsson mág minn og
frænda sem næsta matgæðing.
Hann er glúrinn í eldhúsinu.
GamLg
myndm
Myndin frá síðustu
viku, af brúðkaupi í
Hvítasunnukirkjunni,
hlaut góð viðbrögð
sem hér er þakkað
fyrir. Verið er að safna
saman nöfnunum og
standa vonir til að öll
komi þau í leitirnar.
Aðeins einu sinni
höfum við gengið
tómhent með beiðni til
lesenda Frétta. Það
var í þar síðasta blaði
er við auglýstum eftir
mynd af Axel
Einarssyni listmálara.
Er það virkilega svo
að enginn á lengur
mynd af þeim góða
listamanni? Ef einhver
lumar á mynd af
honum eða þekkti
hann þætti mér vænt
um að heyra frá við-
komandi.
Að þessu sinni birtum við mynd af fimleikastúlkum í tilefni Ólympíuleikanna. Sumar stúlknanna
þekkjast, að því sagt er, en aðrar ekki. Því er nú leitað til lesenda að þeir skeri úr um nöfnin svo við
getum lokið skráningu þessarar myndar og snúið okkur að þeirri næstu. Sem fyrr er síminn á
Bókasafninu 481 1184 eða ef tími gefst er hjartanlega velkomið að líta til okkar og kannske líta á
aðrar myndir í leiðinni! í sumar eða haust standa vonir til að heimaslóð, eingetið afkvæmi Frosta
Gíslasonar, birti myndirnar úr safni Kjartans smám saman og þá væri stórfenglegt að sem allra flest
andlit væru nefndir einstaklingar.
Matgozðingur vikunnar:
Sjóbirtingur með spínati og kókos
Sigurður Ragnarsson er matgœðingur vikunnar.
Búkolla baular:
Rándýrir
skemmti-
kraftar
Rándýrir skemmtikraftar voru
svona og svona á
Þjóðhátíð. Það var
svo sem enginn sem
var dapur að mínu
áliti, en sumir
kóngar voru hrein-
lega í fýlu þær
tuttugu mínútur sem
þeir komu fram.
Alveg sama þótt að Brekkan syngi
öll með lögunum og kóngurinn
sjálfur stæði á sviði í öllu sínu egói.
Þeir sem stóðu upp úr voru Ný
dönsk;Geðveikir. Raggi Bjama:
Hann er kóngur. Jónsi í svörtum
fötum: Freddy Mercury Islands á
sviði.Rúsínan í ylsuendanum.PÁLL
ÓSKAR HJÁLMTÝSSON.
Gleðigjafi og sannur listamaður þar
á ferð. Mestu vonbrigðin:Bubbi
Morthens.í það minnsta er ég hætt
við að kaupa nýjasta diskinn hans
sem mér fannst lofa svo góðu.
Aðalsteinn Baldursson:
Meiriháttar
Ég gæti notað mörg lýsingarorð
yfír Brekkuna en þetta er það fyrsta
sem mér datt í hug.
Þrátt fyrir þéttan
úða, og þar með
nokkra bleytu í
Dalnum, þá var
kvöldið aiveg
dásamlegt. Eg fór
beint í Brekkuna og
hlustaði á strákana í
Á.M.S. taka nokkur lög.
Síðan kom sigurvegarinn í
Bandinu hans Bubba (man því
miður ekki hvað hann heitir),
Logar, Páll Óskar og Bubbi. Að
þessu loknu var kveikt í varðeld-
inum og Árni Johnsen stjórnaði
brekkusöngnum eins og honum
einum er lagið.
Lokalagið hjá honum var að sjálf-
sögðu þjóðsöngurinn okkar, og ég
fæ alltaf gæsahúð að standa upp í
Brekku og syngja hann með mörg
þúsund manns. Að söngnum lokn-
um var kveikt á blysunum og þar á
eftir flugeldasýning.
Þetta var síðan toppað með því að
flestir tónlistamennirnir sem komu
fram í kvöldvökunni fluttu saman
Lífið er yndislegt.
Sem sagt MEIRIHÁTTAR kvöld.
Eftir þetta allt saman tók við
hefðbundið rölt á milli tjalda. Að
venju byrjaði ég í tjaldinu hjá
Grími og Eygló, en þar er alltaf
borið fram tequila eftir
brekkusönginn.
Páll Magnús Guðjóns:
Tuðra rakst á
sandrif
Túðra rakst með mótor á sandrif...
Hvað þá með far-
þegaskipið nýja???
Erum við að tala
um að smáturða rak
mótor niður í sand-
rif með þeim
afleiðingum að það
drapst á henni og
menn lentu í
sjónum. Hvað verður þá með stórt
farþegaskip sem á að sigla þama í
öllum veðrum árið um kmg með
fullt fullt af fólki og farmi. Ef tuðra
rekur niður þama þá gerir ný ferja
það líka með skelfilegri
afleiðingum en þetta dæmi þarna á
mánudaginn.Góða ferð í
Bakkafjöru þeir sem ætla með skip-
inu þanngað.