Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2008, Page 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 21. ágúst 2008
FJÖLMENNI var í fjörunni þegar skrifað var undir
Skrifað undir samning um gerð Landeyjahafnar:
Sannfæring mín að þessi
aðgerð eigi eftir að verða
íslendingum öllum til heilla
-sagði Kristján Möller, samgönguráðherra, við þetta tækifæri
Samantekt
Ómar Garðarsson
omar@ eyjafrettir.Ás
Það var mikið um dýrðir í
Bakkafjöru þegar skrifað var
undir samning við Suðurverk
um gerð hafnar í Landeyja-
sandi sem á að verða tilbúin
sumarið 2010. Undirskriftin
fór fram niður við fjöru þar
sem samankominn var hópur
fólks til að fagna tímamót-
unum. Þar var mættur sam-
gönguráðherra, fulltrúar
Rangárþings eystra og Vest-
mannaeyja, verktakans og
fleiri sem fannst áhugavert
að fylgjast með þessum
merku tímamótum í sögu
samgangna Vestmannaeyja
og Rangæinga. Fram-
kvæmdir hefjast í þessari
viku en gert er ráð fyrir að
grjót í hafnargarða verði
flutt á staðinn eftir áramót.
Samgönguráðherra upplýsti
að samningar við landeig-
endur væru að nást og því
þyrfti ekki að koma til
eignarnáms eins og stefndi í.
FRAMKVÆMDANEFND Sigurður Áss Grétarsson, Róbert Marshall, Elliði Vignisson, Hreinn Haraldsson
vegamálastjóri og Kristín Sigurbjörnsdóttir hjá Vegagerðinni.
Söguleg stund
„Þetta er söguleg stund,“ sagði
Kristján Möller í samtali við Fréttir
að lokinni undirskrift.
„Að tveimur árum liðnum eigum
við vonandi eftir að vígja hér höfn-
ina með móttöku á nýjum Herjólfi
sem kemur siglandi í sinni fyrstu
ferð frá Eyjum. Hér byggjum við
nýja höfn, Landeyjahöfn, og það er
sannfæring mín að þessi aðgerð
eigi eftir að verða íslendingum
öllum til heilla. Framkvæmdir hefj-
ast bráðlega og við förum nú yfir
tilboð sem við höfum fengið í
smíði nýrrar ferju og eigum von á
að því verði brátt lokið þannig að
hægt verði að hefjast handa. Það er
góð sigling á þessu verki, rétt eins
og verða mun með þessa nýju
samgönguleið milli lands og eyja.
Það verður góð sigling."
Kristján upplýsti við þetta tæki-
færi að samningur við landeigendur
væri nánast í höfn en um tíma leit
út fyrir að taka þyrfti land eignar-
námi en það heyrir undir Bakka í
Landeyjum.
Að verja heima-
lendurnar
Suðurverk átti lægsta tilboðið í
verkið og var tilboðsupphæðin
tæpir 1,9 milljarðar króna sem er
un 60% af kostnaðaráætlun sem
losaði 3 milljarða. Dofri Eysteins-
son, forstjóri Suðurverks, sagði að
kostnaðaráætlun væri bara eins og
Kristján upplýsti við þetta tækifæri að samningur við landeigendur
væri nánast í höfn en um tíma leit út fyrir að taka þyrfti land eignar-
námi en það heyrir undir Bakka í Landeyjum.
hver önnur tala. „Svo komum við
með okkar tölu þegar við buðum í
verkið," sagði Dofri þegar hann var
spurður út í mismuninn.
Hann sagðist líka mjög ánægður
með að hafa náð verkinu þvf með
því væri hann að verja heimalend-
urnar. Þama vísar hann til þess að
hann er upprunninn á svæðinu og
hann er ekki ókunnur framkvæmd-
um á Landeyjasandi. „Okkar fyrsta
verk var að grafa fyrir Vatnsveitu
Vestmannaeyja á árunum 1966 og
1967 frá uppsprettu og niður í fjöru
sem þótti stórt verk á þeirra tíma
mælikvarða. Þá kynntist maður
mörgum skemmtilegum Eyjamönn-
um en líka aðstæðum á sandinum."
Grjótið í hafnargarðana verður
flutt af Seljalandsheiði niður í fjöru
og hafa Suðurverksmenn fundið
styttri leið en upphaflega átti að
fara. „Já, þetta er önnur leið að
hluta og heldur styttri," sagði Dofri
en óttast hann ekki brimið þegar
framkvæmdir við hafnargerðina
byrja?
„Jú, það geri ég. Það mun sækja á
okkur einhvem daginn og þá er að
taka á því. Við höfum áður farið út
í sjó en það verður bara að reyna á
þetta,“ sagði Dofri að lokum.
Kostnaður við verkefnið í heild,
með ferjunni, er áætlaður hátt í sex
milljarðar kr. Suðurverk er þegar
byrjað að flytja vélar á svæðið til
að undirbúa framkvæmdina. Hafist
verður handa í næstu viku en
grjótið verður flutt í hafnargarðana
á næsta ári.