Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2008, Page 13
Fréttir / Fimmtudagur 21. ágúst 2008
13
Formaður stjórnar Sparisjóðsins segir erfitt að spá í framtíðina
Mikið er að gerast í umhverfi
allra fjármálafyrirtækja í dag
-Það á ekki eingöngu við um sparisjóðina - Ekki liggur fyrir hver áhrifin
verða á stöðu sjóðsins - Á eignir að hluta í sömu félögum og SPM
f ljósi hörmunga Sparisjóðs Mýra-
manna vakna spurningar um stöðu
Sparisjóðs Vestmannaeyja. SPM
hefur tapað 4,6 milljörðum á þessu
ári. Tap sjóðsins má að mestu rekja
til lækkunar á gengi bréfa fjögurra
fjármálafélaga, sem fjárfest var í og
tengjast öll sparisjóðunum. Þessi
fyrirtæki eru Exista, Kista, VBS
fjárfestingarbanki og Icebank.
Fréttir leituðu til Helga Bragsonar,
stjórnarformanns Sparisjóðs Vest-
mannaeyja, um stöðu mála hjá
Sparisjóðnum í ljósi hræringa á fjár-
málamörkuðum. I árslok 2007 var
bókfært verð hlutabréfa í eigu
Sparisjóðsins tæplega 1,9 milljarðar
króna en var í upphafi ársins rúm-
lega 1,2 milljarðar króna. A árinu
jók Sparisjóðurinn hlut sinn í
Icebank hf. úr tæpum 4% í 5,3%,
aðrir stórir eignarhlutar Spari-
sjóðsins eru í VBS fjárfestingar-
banka hf. tæplega 4% og í SP fjár-
mögnun rúmlega 2%.
Um fimmtungur af hlutafjáreign
Sparisjóðsins er skráð í Kauphöll,
en rúmlega 60% eignarhlutar í
fyrrgreindum þremur félögum, sem
ekki eru í Kauphöll, eru undan-
skildir.
Þegar Helgi var spurður um hlut
Sparisjóðsins í krónum talið í
Icebank og VBS og hvort hann ætti
hlut í Exista, Spron og FL-Group og
Kaupþingi sagði Helgi að Sparisjóð-
urinn ætti ekki sjálfur eignarhluti í
Exista, Spron eða FL Group sem nú
hefur fengið nafnið Stoðir.
„Stærstur hluti af rúmlega 1,8
milljarða króna hlutafjáreign Spari-
sjóðsins um sl. áramót var í Ice-
bank, VBS fjárfestingarbanka, SP
fjármögnun og Kaupþingi," sagði
Helgi og vísaði til reikninga síðasta
I síðasta ári var samþykkt að auka
stofnfé um milljarð í heildina, en
fundur stofnfjáreigenda samþykkti
að nýta 350 milljónir króna undir
lok ársins 2007. Var hluti þessi nýtt-
ur síðasta haust. „Stjórn Spari-
sjóðsins hefur heimild stofnfjár-
eigendafundar til að auka stofnfé
sjóðsins enn frekar um 140 milljónir
króna. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun af stjóm um að nýta heim-
ildina,“ sagði Helgi þegar hann var
spurður um frekari aukningu stofn-
fjár.
Ekkert ákveðið um breytt
rekstrarform
En sér hann fyrir sér breytingar á
rekstarformi sjóðsins í náinni
framtfð? „Stjórn sparisjóðsins hefur
ekki tekið neina ákvörðun um að
leggja tillögu um breytt rekstrarform
fyrir stofnfjáreigendafund. Stjórnin
fylgist grannt með því sem er að
gerast í umhverfi sparisjóðanna og
leitar stöðugt leiða til að efla rekst-
urinn enn frekar, stofnfjáreigendum,
viðskiptavinum, starfsmönnum
sjóðsins og samfélaginu til góða.“
Nú eru SPRON, BYR og SPM
dottnir út úr samstarfi Sparisjóð-
anna, gætu verið fleiri. Lifa hinir
það af?
„Spron og Byr hafa ekki verið í
samstarfi með sparisjóðunum í
markaðs- og vöruþróunarmálum, en
starfað með sparisjóðunum að öðru
leyti m.a. í rekstri tölvufyrirtækisins
Teris. Mikið er að gerast í um-
hverfi allra fjármálafyrirtækja í dag,
ekki eingöngu sparisjóðanna og því
erfitt að segja til um hvað framtíðin
ber í skauti sér,“ sagði Helgi að
lokum.
Danskir sýna gerð Landeyjahafnar áhuga
Danir sýna gerð Landeyjahafnar áhuga og í vikunni var hér hópur manna sem kynnti sér aðstæður í
Bakkafjöru og í Vestmannaeyjum. Danirnir skoðuðu aðstæður í Bakkafjöru á mánudag og funduðu með
fulltrúum hafnar og bæjar á þriðjudag. Þá fengu þeir tækifæri til að fara í siglingu, skoða Isfélag
Vestmannaeyja og Pompei norðursins og voru að vonum ánægðir með móttökurnar.
Erik Clausen, hafnarstjóri í Hvide Sande Havn í Danmörku var einn gestanna en höfnin er byggð í sand-
fjöru rétt eins og fleiri hafnir í Danmörku. Erik hefur unnið um árabil sem hafnarstjóri og bindur miklar
vonir við að Danir geti nýtt sér þá hugmynda- og aðferðafræði sem beitt verður við hafnargerðina í
Bakkfjöru. Hann hefur því fulla trú á Landeyjahöfn.
Maríulaxinn
Grétar Þorgils fór í laxveiði
með pabba sínum, Grétari um
síðustu helgi. Fóru þeir í
Kaldá á Mýrum og fengu fjóra
laxa.
Grétar Þorgils fékk þarna sinn
fyrsta lax, Maríulaxinn og var
hann að vonum stoltur. Hér er
hann með laxinn góða og einn
sem pabbinn veiddi.
Fjögur
þjófn-
aðarmál
Lögreglan hafði ekki í mörgu að
snúast í vikunni sem leið og hafa
helstu verkefni lögreglu verið í
vikunni, eins og reyndar í vik-
unni á undan, að taka á móti
fyrirspurnum fólks sem var á
þjóðhátíð og týndi munum eða
varð fyrir því að munum var
stolið frá því.
Fjögur þjófnaðarmál voru
tilkynnt til lögreglunnar í vik-
unni sem leið og eru tvö þeirra
tengd þjóðhátíðinni. Annars
vegar er um að ræða þjófnað á
farsíma og hins vegar þjófnað á
fatnaði sem hékk á snúru við
Bessahraun 1 lb. Mun sá þjófn-
aður hafa átt sér stað mánu-
daginn 4. ágúst sl.
Þá var tilkynnt um að fram-
gjörð hafi verið stolið af reið-
hjóli sem stóð við Heiðarveg 9b
aðfaranótt 13. ágúst sl.
Fjórði þjófnaðurinn mun hafa
átt sér stað á tímabilinu 8. ágúst
til 15. ágúst sl. en um er að ræða
þjófnað á IBM-fartölvu sem var
að Strandvegi 73a.
Ekki er vitað hver eða hverjir
stóðu að þessum þjófnuðum en
þeir sem einhverjar upplýsingar
hafa um gerendur eru vinsam-
legast beðnir um að hafa sam-
band við lögreglu.
Jarðvegs-
framkvæmd-
ir að hefjast
Jarðvegsframkvæmdir vegna
knattspyrnuhússins eru að hefjast
en í dag var byrjað girða svæðið
af. Aætlað er að verkinu verði
lokið fyrir 20. september sam-
kvæmt samningi við Vestmanna-
eyjabæ en það er Islenska
Gámafélagið sem vinnur verkið.
Hafþór Snorrason, verkstjóri,
segir að farið verði hægt í
sakirnar til að byrja með en
áætlað sé að sprengja þurfi
klettana í sundur.
„Við erum svona að undirbúa
verkið og munum á næstu
dögum búa til nýjan veg að
framkvæmdasvæðinu. Við
förum niður hjá Þórsheimilinu til
að skemma ekki vegaklæðning-
una hjá Týsheimilinu. En þetta
er hörkuframkvæmd og við
komum til með að sprengja
þarna,“ sagði Hafþór.