Fréttir - Eyjafréttir - 11.09.2008, Page 7
Frcttir / Fimmtudagur 11. september 2008
7
FAGNAÐARFUNDIR Ástþór, Sigurgeir Scheving, Fríða Sigurðardóttir og Ruth Zholen.
Maddid bæði skemmti-
legt og nútímalegt
Skoðun
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
Gudbjorg @ eyjafrettir. is
Leikritið Maddid eftir Maddid
Theater Company var sýnt í
Bæjarleikhúsinu 27. og 28. ágúst.
Eyjamaðurinn Ástþór Ágústsson
leikstýrir verkinu en hann lærði
leiklist í London og býr þar.
Eyjamenn nutu tengslanna og
fengu tækifæri til að sjá þetta
skemmtilega og nútímalega
ieikrit sem ungt leikhúsfólk sten-
dur að.
Vala Omarsdóttir, einn höfunda
verksins, fer með hlutverk Madd-
idar sem reynir, eins og segir í
leikskrá, „að finna leiðir til að tjá
hugsanir sínar og tilfinningar, en
á sama tíma er hún verk í vinnslu
og er ráðvillt og pirruð yfir að
vera ófullgerð,....“
Völu tekst að túlka þessa ófull-
gerðu persónu afar vel, með svip-
brigðum og látbragði og ekki síst
með líkamlegan styrk því líkami
Maddidar lætur ekki alltaf af
stjórn enda er persónan ófull-
gerð.
Vala nær vel til áhorfenda, sem
voru alltof fáir. Það fer auðvitað
eftir túlkun hvers og eins hvað
hann sér út úr verkinu en Madd-
id getur verið persóna í sam-
félagi sem sker sig úr, er ekki eins
og allir aðrir, eða persóna í
leikverki eða sögu sem höfundur
leitast við að skapa. Leikritið
hreifir við áhorfendum og upp
kemur spurning hvort persóna á
yfir höfuð að leitast við að vera
fullkomin.
Búningur leikkonunnar eftir
Sian - Estelle Petty er skcmmti-
lega útfærður og sviðið einfalt en
úthugsað. Kubbar á sviðinu til að
raða saman undirstrika hvernig
persónan glímir við að raða
brotunum saman.
Steindór Ingi Snorrason sá um
tónlistina sem féll vel að gangi
verksins.
Leikritið er því vel heppnað og
útkoman góð. Vonandi fá bæjar-
búar að sjá fleiri verk eftir
hópinn enda ekki á hverjum degi
sem þeir fá tækifæri til að sjá það
nýjasta og ferskasta í leikhús-
lífinu.
Breytingar á bílauamferð í miðbænum:
Misjafnar undirtektir kaupmanna
Talsverðar breytingar eru fyrir-
hugaðar á skipulagi miðbæjar Vest-
mannaeyja meðal annars með tilliti
til aksturs ökutækja. Stærsta breyt-
ingin í umræddu ferli er sú, að gön-
gustíg, sem nú liggur frá Strandvegi
upp að og yfir Miðstræti og áfram
upp á Vesturveg, verður breytt í ein-
stefnuakstursgötu til norðurs fyrir
bflaumferð.
Á síðasta fundi umhverfis- og
skipulagsráðs lagði skipulags- og
byggingarfulltrúi fram drög að
breytingu á deiliskipulagi miðbæjar-
ins. Breytingin felst í því, auk þess
sem áður var getið, að Bárustígur
verður gerður að einstefnugötu að
OPNA á fyrir bfla frá Strandvegi
upp á Skólaveg
Strandvegi.
Þá fellur lóð við Hvítingaveg 7 út,
byggingarreitur við Safnahús verður
stækkaður til vesturs og settur er inn
byggingarreitur fyrir bílgeymslur á
lóðinni að Hilmisgötu 2-10. Um-
hverfis- og skipulagsráð samþykkti
að auglýsa umrædda tillögu í sam-
ræmi við skipulags- og byggingar-
lög.
Fréttir höfðu samband við nokkra
kaupmenn sem reka verslanir við
Bárustíg og voru undirtektir þeirra
við umræddum breytingum á um-
ferð um Bárustíg misjafnar.
Selfossvöllur líka á undanþágu
Knattspyrnulið Selfoss hefur á
þessu keppnistímabili leikið heima-
leiki sína í fyrstu deild á undanþágu
frá leyfanefnd KSÍ, en liðið kom
upp úr annari deild í fyrrahaust.
Liðið á góða möguleika á að komast
upp í úrvalsdeild að þessu kepp-
nistímabili loknu og segir Hermann
Ólafsson, formaður knattspyrnu-
deildar Selfoss, að liðið muni þá að
öllum líkindum nýta sér undanþágu
næsta keppnistímabil einnig.
Á Selfossi er verið að endurbyggja
knattspymuvöllinn frá grunni og á
hann að verða tilbúinn síðla næsta
sumars. Hann verður án stúku,
þannig að Selfossliðið verður að
reiða sig á undanþágu frá KSÍ
áfram, hvort sem það leikur í fyrstu
deild eða úrvalsdeild.
Hermann sagði að knattspyrnu-
áhugamenn vonuðu að stúka yrði
reist á vellinum á næstu árum. Engin
staðfesting þess efnis hefði fengist
frá bæjaryfirvöldum, en hafa bæri í
huga að bæjaryfirvöld stæðu í strön-
gu við undirbúning Landsmóts
UMFÍ árið 2012 og á áætlun væri
bæði frjálsíþróttavöllur og sundlau-
garmannvirki. Hermann kvað
knattspyrnuforystuna á Selfossi hafa
fundað stíft að undanförnu með
bæjaryfirvöldum um málið og
fyrirhugaðir væru fundir með
Knattspymusambandi fslands.
SELFOSSVÖLLUR Á Selfossi
er verið að endurbyggja
knattspyrnuvöllinn frá grunni.
Mynd Sunnlenska.
LUNDABALL 2008
í HÖLLINNI 27. SEPTEMPER
Glæsilegt villibráðarhlaðborð,
skemmtiatriði og dansað til morguns!!!
Skráning er hafin.
Bjargveiðimenn bóka sig í sína eyju
hjá eftirfarandi aðilum:
Álsey- Diddi Leifs 869-0751
Bjarnarey - Pétur Steingríms 898-4299
Brandur - Óli Guðmunds 892-0283
Elliðaey - ívar Atla 840-5535
Hellisey - Sindri Ólafs 858-3551
Suðurey- Þorsteinn 892-0284
Ystiklettur - Halldór 690-3427
Aðrir gestir bóka sig hjá
Sigga Braga í síma 844-3026.
ATH! ALLIR VELKOMNIR!!!
REKSTRARSTJÓRI
UESTIYIANNAEVJA
íslenska Gámafélagið óskar eftir að ráða til starfa
starfsmann til að stjórna rekstri félagsins í Vestmannaeyjum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði tækni og/eða viðskipta.
• Frumkvæöi og metnaður.
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum.
• Víðtæk reynsla af stjórnun nauðsynleg.
• Reynsla af tilboðs- og samningagerð æskileg.
Rekstrarstjóri hefur yfirumsjón með
eftirfarandi þáttum:
• Daglegum rekstri í sorpeyðingarstöð.
• Sorphiröu, verktakastarfsemi og hjá gröfufyrirtæki.
• Áætlanagerð og stefnumótun.
• Öll mannaforráð og stjórnun starfsmannamála.
• Upplýsingaflæði og samstarf við yfirmenn
í höfuðstöðvum fyrirtækisins.
Umsóknir óskast sendar til framkvæmdastjóra
starfsmannasviðs, Helgu Fjólu Sæmundsdóttur, helga@igf.is
fyrir 25. september. Nánari upplýsingar um starfið gefur
Gísli Guðlausson í Vestmannaeyjum í síma: 840-5811
Um fyrirtækið
íslenska Gámafélagið er ört vaxandi fyrirtæki sem er leiðandi afl
í umhverfismálum og veitir heildarlausnir í: sorphirðu, götusópun,
umhverfishreinsun, hálkueyðingu og snjómokstri á sérhæfðum
tækjum, tækjaleigu og verktakavinnu. Hjá fyrirtækinu starfa 240
starfsmenn í fjölmörgum deildum um land allt.
UIYIHUERFIÐ
ER NTT HVERFI
577 57 57
*
ISLENSKA
GÁMAFÉLAGIÐ
íslenska Gámafélagið • Gufunesi 112 Reykjavik
T (+354) 577 5757 • F (+354) 577 5758 • www.igf.is