Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Qupperneq 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2010
Úr blogghcimum:
Eyjamaður vikunnar:
Þorbjöm Víglundsson bloggar:
A makríl-
veiðum
Við strákarnir á
Júpiter erum enn
að eltast við nýj-
asta nytjafísk okkar
Islendinga,
makrílinn. Við
erum í þriðja túr
ársins og eru
veiðamar rétt að fara í gang. Við
höfum undanfarið verið að veiðum
í kringum Vestmannaeyjar og emm
við búnir að landa til vinnslu
tveimur förmum af makríl, hvor um
sig tæp 200 tonn.
Allur þessi fiskur fer til manneldis-
vinnslu svo að næg atvinna er að
skapast af veiðunum án aðkomu
Jóns Bjamasonar. Þetta hefði getað
orðið raunin síðasta sumar ef ekki
hefði verið fyrir ólympískar veiðar
á verðmætasta uppsjávarfiski á
Islandsmiðum.
En vindum kvæði okkar í kross og
tölum um eitthvað skemmtilegt. A
meðan þingheimur eyðileggur
kvölddagskránna á RÚV með eld-
húsdagsumræðum höldum við
strákarnir okkar striki og veiðum
makrílinn eftir bestu getu. Við emm
nú staddir suður af Meðallands-
bugtinni eða á 62°37’ N og 016°47’
V. Við höfðum verið að leita allt frá
Vestmannaeyjum og hingað í
gærkvöldi og síðustu nótt.
Um hádegisbilið urðum við varir
við einhver kvikindi á mælunum og
létum trollið renna ljúflega í hafið.
Eftir um 6 tíma tog var trollið híft
upp úr hafinu og leyndust um 80
tonn af fallegum makríl í pokanum.
Við létum auðvitað trollið húrra í
hafið á nýjan leik eftir dælingu og
emm við á toginu eins og er. Ekki
eru mörg skip sem eingöngu eltast
við makrílinn eins og er en Kap VE
og Sighvatur VE eru að tvflemba
hér með okkur en restin af
flotanum er við sfldveiðar hér aust-
ar og norðar. Ég get upplýst ykkur
um það að tvíburamir hífðu 100
tonn af makríl hér í kvöld. En þeir
geta lítið komið frá sér upplýsing-
um eins og er enda ekki búið að
nútímavæða skipin með inter-
netkúlu og við langt fyrir utan
þjónustusvæði símans.
Meira á:
http://tobbivilla. 123. is/
Þorkell Sigurjónsson bloggar:
Toppliðið ÍBV
Til hamingju ÍBV
með þennan vinnu-
sigur á Fylki, sem
mér skilst að fari
víst ekkert í sögu-
bækurnar eins og
spekingarnir segja
stundum. Aðal-
atriðið em þrjú stigin, því menn em
fljótir að gleyma nema því sem
máli skiptir, stigin þrjú.
Vonandi hefur Björn ívar frændi
minn verið mættur með ÍBV
fánann, sem ég fól honum að veifa
eins og vitlaus maður. Hrópin,
Áfram ÍBV, koma ábyggilega þegar
við förum að verma toppinn eins og
við gerum núna og vonandi gemm
áfram.
Ég verð að segja það eins og er, að
mér leið alveg hörmulega hérna í
höfuðborginni að fylgjast með
leiknum í gegnum mbl.is og geta á
engan hátt tekið þátt í leiknum. Ég
sendi öllum í Eyjum mínar bestu
óskir og áfram IBV, áfram ÍBV,
áfram IBV.
http://hector. blog. is
Spánn verður heimsmeistari
Eyjamaður vikunnar er Díana Helga Guðjónsdóttir.
Ungt knattspyrnufólk hefur oft
spilað sinn fyrsta landsleik í
Vestmannaeyjum. Bæði á Pæju- og
Shellmóti er valið í tvö lið,
Landslið og Pressulið í landsleik
mótanna beggja. Eins og gefur að
skilja er það mikill heiður fyrir
viðkomandi knattspyrnufólk að
taka þátt í leiknum og fjölmargir
áhorfendur fylgjast með leiknum. I
ár tók Eyjastelpan Díana Helga
Guðjónsdóttir þátt í landsleik
Pæjumótsins og stóð sig mjög vel.
Díana Helga er Eyjamaður vik-
unnar.
Nafn: Dfana Helga Guðjónsdóttir.
Fæðingardagur: 13. maí 1998.
Fæðingarstaður:
Vestmannaeyjum.
Fjölskylda: Mamma mín heitir
Ágústa og pabbi minn heitir
Guðjón. Kjartan, 18 ára og Laufey,
26 ára eru systkini mín.
Draumabíllinn: Ætli það sé ekki
bara Land Cruiser.
Uppáhaldsmatur: Pizza með osti,
skinku og beikoni.
Versti matur: Ég veit það ekki,
það er svo mikið sem er vont.
Uppáhalds vefsíða: www.ibv-
sport.is og fotbolti.net.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Öll tónlist nema róleg tónlist.
Aðaláhugamál: Fótbolti og píanó.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Cesc Fabregas.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: ÍBV og Kjartan
Guðjónsson.
Ertu hjátrúarfull: Bara svona með
happa og óhappa. Spila t.d. alltaf í
sama bolnum.
Stundar þú einhverja íþrótt:
Fótbolta og handbolta.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Two and
a half men og How I met your
mother.
Hvernig var að spila fyrsta lands-
leikinn: Það var bara gaman. Var
smá stressuð fyrir leik en það var
fljótt að fara úr mér þegar ég kom
inn á.
Ætlarðu að spila fleiri landsleiki í
framtíðinni: Já.
Ertu búin að æfa fótbolta lengi:
Já, í fimm eða sex ár.
Áttu þér uppáhaldslið á HM: Já,
held með Spáni.
Hverjir verða svo heimsmeist-
arar: Spánn.
Eitthvað að lokum: Áfram ÍBV!
Matgazðingur vikunnar:
„Garenteruð" grænmetissúpa
Matgœðingur vikunnar er Guðlaugdr Þórarinn Rúnarsson.
Heil og sœl. Ég vil byrja á að
þakka Forseta vorum, Helga Olafs-
syni, áskorunina og um leið óska
honum og bœjarbúum til hamingju
með að hinn margumtalaði réttur,
bjúgupastað, sé nú orðinn opinber
og öllum aðgengilegur. Forseti vor
var nú ekki þekktur fyrir elda-
mennsku hér á yngri árum, en svo
flutti hann í borgina og varð að
standa á eigin fótum og stendur
enn. Þannig að hann virðist hafa
náð góðum tökum á eldavélinni
enda kom þessi dýrindisréttur fram
í dagsljósið.
Varðandi mína hœfni í eldhúsinu þá
tel ég hana vera rétt fyrir ofan
meðalmennskuna, en því hef ég náð
með tilraunum ásamt því að hafa
bara nett gaman afþví að elda
mat. Hins vegar verð ég að taka
undir með Forsetanum að upp-
skriftir eru eitthvað sem ég nota
ekki mikið, þœr eru ágœtis viðmið
til að gefa manni hugmyndir svo
notar maður bara það sem manni
finnst gott og prófar sig áfram.
Hins vegar rakstfrúin mín kœr á
uppskrift að grœnmetissúpu (sem
hún lagaði svo til eftir okkar smekk
þar sem uppskriftir eru jú bara
viðmið) sem er alveg fáránlega góð
og er hún nú orðin fastur liður hjá
okkur þar sem við erum hrifin af
því að borða súpur. Þessi er svo
góð að jafnvel fólk, sem er illa við
grœnmeti, á eftir að borða hana
með bestu lyst, alveg garenterað,
svo ég sletti aðeins. Hér kemur
hún, gjörið svo vel.
Gratnmetissúpan
2 laukar
sveppir (hálfur til einn bakki eftir
smekk)
2 sellerístangir
6 hvítlauksrif
6 litlar, sætar kartöflur eða 2 dl
hýðisgrjón eftir hvað fólk vill
3 ltr vatn
6 grænmetisteningar
2 dósir niðursoðnir tómatar
6 msk. tómatpaste
1 blómkálshöfuð
brokkolí eftir smekk
matarolía til steikingar
salt og pipar
söxuð steinselja og rifinn parmesan
til að strá yftr súpuna áður en hún
er borðuð.
Léttsteikið lauk og hvítlauk, bætið
síðan rest af grænmeti út í og
steikið í 2-3 mín. Bætið síðan vatni,
teningum, tómötum í dós og tómat-
paste út í. Hrærið vel og kryddið
með salti og pipar. Næst bætið þið
kartöflum eða grjónum út í og látið
sjóða í ca. 20 mín (gæti tekið lengri
tíma ef notuð eru hýðisgrjón).
Stráið steinselju og parmesan yfir
áður en borið er fram.
Þetta er afskaplega holl, góð og
bragðmikil súpa, en til að fá smá
óhollustu setjum við eina ístertu
með.
Súkkulaðiísterta með
Maltesers
3 pk. Twix (6 stykki)
20 g smjör, brætt
4 eggjarauður
3 msk. sykur
3,5 - 4 dl rjómi, þeyttur
1 tsk. vanilludropar
1 pk. Maltesers kúlur, 175 g eða 3
pk. 59 g hver
Saxið Twix smátt og blandið smjöri
saman við. Setjið smjörpappír í
botninn á hringlaga formi. Breiðið
úr Twix blöndunni í botninn.
Þeytið eggjarauður og sykur saman
þar til blandan verður ljós og
loftkennd, blandið henni síðan
saman við þeyttan rjóma ásamt
vanilludropum. Setjið Maltesers
kúlur í plastpoka og myljið gróft,
t.d. með kökukefli. Bætið Maltesers
mulningnum út í rjómaísblönduna
og hellið í formið. Frystið.
Tilvalið að eiga eina svona í
frystinum fyrir gesti og gangandi.
Þar sem enn er nóg eftir af með-
limum brœðrafélagsins skora ég á
vin minn og bróður, Gretti Jóhann-
esson. Hann er maður margra
hœfileika og er ég þess fullviss að
hann víki sér ekki undan og muni
komafram sigri hrósandi með Ijúf-
fengati rétt handa öllum.
Kirkjur bazjarins:
Landakirkja
Finimtudagur 17. júní
Lýðveldishátíðin
Kl. 10. Mömmumorgun fellur
niður. Gleðilega hátíð!
Föstudagur 18. júní
Kl. 11 - 12. Viðtalstímar prestanna
í nýja Safnaðarheimilinu alla virka
daga. Vaktsími 488 1508.
Laugardagur 19. júní
Kl. 11. Útför Jóhönnu Jensdóttur.
Kl. 16. Hjónavígsla.
Sunnudagur 20. júní
Kl. 11. Messa með altarisgöngu.
Árgangshópar sérstaklega velkomn-
ir (55) Kór Landakirkju. Organisti
Gíslína. Prestur sr. Kristján.
Kaffisopi í Safnaðarheimilinu eftir
messu.
Mánudagur 21. júní
Sumarsólstöður
Kl. 11 - 12. Viðtalstímar presta og
starfsmanna alla virka daga.
Miðvikudagur 23. júní
Jónsmessunótt
Kl. 11. Helgistund á Hraunbúðum.
Gestaprestur.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 17. júní
Kl. 20:00 Brauðsbrotning.
Laugardagur 19. júní
Kl. 16:00 Krakkafjör með
Sigurljóninu og félögum, söngur og
gleði.
Sunnudagur 20. júní
Kl. 13:00 Samkoma. Vitnisburðir
og fl. Allir hjartanlega velkomnir.
Aðventkirkjan
Laugardaginn 12. júní
Kl. 11.00 Samkoman hefst með
Biblíufræðslu fyrir börn og full-
orðna. Bama og ungmennastarf í
höndum Ericu Do Carmo. Einnig
verður Biblíu lexía fyrir fullorðna.
Efnið er aðgengilegt öllum á vef
kirkjunnar á www.adventistar.is
undir fræðsluefni/Biblíulexia.
Kl. 12.00 Guðsþjónusta. Bein
útsending frá kirkju aðventista í
Reykjavík. Manfred Lemke
prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir. Sími
hjá safnaðarpresti er 866-2800, net-
fang thora@adventistar.is.