Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Blaðsíða 17
Fféttir / Fimmtudagur 17. júní 2010
17
-Þar eiga allir að geta látið sér líða vel - Líkamlega, andlega og félagslega
Nú liggur fyrir skýrsla stýrihóps og
hlutverk um starfsáætlun félags-
miðstöðvarinnar Rauðagerðis þar
sem nú er aðstaða fyrir nemendur úr
efstu bekkjum grunnskólans.
Rauðagerði er ætlað stærra hlutverk
og á að vera opið öllum án tillits til
aldurs eða aðstæðna og er þá horft
til barna, ungmenna og fólks sem á
á hættu að einangrast heima hjá sér,
t.d. öryrkja, aldraðra, geðfatlaðra,
einstæðra foreldra, fólks af erlend-
um uppruna og fleiri.
A fundi fjölskyldu- og tómstunda-
ráðs fyrr í vor var skýrslan kynnt en
í henni koma fram tillögur um starf-
semi í norðurhluta Rauðagerðis. Var
framkvæmdastjóra falið að reikna út
kostnað og útfæra hugmyndir sem
fram komu í skýrslunni.
Stýrihópinn skipuðu Sigþóra Guð-
mundsdóttir, forstöðumaður Rauða-
gerðis, Guðrún Jónsdóttir, yfir-
félagsráðgjafi Vestmannaeyjabæjar,
Guðrún Helga Bjarnadóttir, leik-
skólafulltrúi og Hrefna Óskarsdóttir,
ráðgjafi Starfsorku.
Virkni skapar eftirvæntingu
„Að vera heilbrigður er ekki bara
það ástand að vera laus við sjúk-
dóma og kvilla, heldur það að geta
notið sín og liðið vel líkamlega,
andlega og félagslega. Margar rann-
sóknir hafa verið gerðar sem sýna að
með þátttöku í virkni og tómstunda-
störfum fullnægjum við bæði
félagslegum og andlegum þörfum
og oftar en ekki hreyfiþörfum okkar.
Virkni skapar eftirvæntingu og gerir
fólki kleift að njóta samvista við
hvert annað,“ segir í skýrslunni og
þetta var það sem stýrihópurinn
hafði að leiðarljósi.
Þær segja mikilvægt að skapa
aðstæður á Rauðagerði þar sem
hægt verði að útrýma einmanaleika,
hjálparleysi og leiða. „Þar sem not-
endur fá tækifæri til þess að veita
aðstoð og umhyggju ekki síður en
að þiggja hana. Þetta er gert með því
að skapa aðstæður þar sem einstak-
lingurinn fær tækifæri til að vaxa og
dafna, þar sem áherslan er á félags-
skap og samveru og að hver ein-
staklingur hefur hlutverk. Flestir
hafa þörf á því að finna að þeir geri
gagn og að horft sé á styrkleika og
getu, í stað veikleika og skerðingar."
Ahersla er lögð á að umhverfið sé
styðjandi, heimilislegt og notalegt
og að fólk finni að það sé velkomið
og allir séu jafn mikilvægir. „Þannig
má skapa notalegt andrúmsloft,
samhug og hlýju. Skipulagðar tóm-
stundir hafa ákveðið forvarnagildi.
Með þátttöku er hægt að stuðla að
vellíðan, ánægju og tilgangsbundn-
unt athöfnum og jafnframt að koma
í veg fyrir ótal sjúkdóma og kvilla
sem fylgja félagslegri einangrun,"
segir í skýrslunni.
Efla á lífsgæði og vellíðan
Markmiðið með Rauðagerði er að
efla lífsgæði og vellíðan notenda og
þátttakenda með því að draga úr
félagslegri einangrun og að gefa
fólki tækifæri til að njóta samvista í
góðum félagaskap. „Þannig má auka
samfélagsþátttöku notenda sem og
samfélagslega ábyrgð íbúa. Mark-
miðið er að allir geti lagt sitt af
mörkum til að efla starfsemi Rauða-
gerðis sem á að vera staður þar sem
fólk getur komið saman og fengið
þjónustu, tekið þátt í tómstunda-
starfi sem ætlað er að auka reisn
þess og efla sjálfstæði, komið saman
og rofið vítahring einangrunar og
UNGA fólkið hefur haft aðstöðu í
einsemdar, fengið stuðning við þátt-
töku sína í því sem er að gerast í
samfélaginu og sinnt klúbba- og
hópastörfum og tekið þátt í nám-
skeiðum þar sem áhugamál tengja
fólk saman frekar en aldur.
Markhópurinn fólk sem á á
hættu að einangrast
Rauðagerði er ætlað öllum án tillits
til aldurs eða aðstæðna en sérstakir
markhópar eru böm og ungmenni,
fólk sem á á hættu að einangrast
heima, t.d. öryrkjar, aldraðir, geð-
fatlaðir, einstæðir foreldrar, einstak-
lingar af erlendum uppruna og fleiri.
„Dagskráin er þannig úr garði gerð
að reynt er að koma til móts við
þarfir sem flestra og að hún saman-
Rauðagerði en í framtíðinni verður
það opið öllum aldurshópum.
standi af tilboðum sem ná til líkam
legrar, andlegrar og félagslegrar
uppbyggingar," segir í skýrslunni en
það sem í boði verður er t.d. lestur á
bókum, blöðum og tímaritum, kaffi-
spjall, spil eins og bridge, félagsvist,
borðspil, skák og fleira. Líka lík-
amsrækt, sund, sundleikfimi,
gönguferðir, stafaganga, leikfimi,
boltaleikir og dans svo dæmi séu
tekin.
Þá er gert ráð fyrir handiðn, prjóni,
saumaskap, hekli, málun, teiknun,
taumálun, silkimálun, postulíns-
málun, bútasaumi, perlusaumi,
smíðum, útskurði, kortagerð, þæf-
ingu, leirmótun, glerlist og hvers
konar framleiðslu sem flokkast
undir handiðn. Möguleiki er á að
nota Grunnskóla Vestmannaeyja í
STÝRIHÓPURINN, Hrefna, Guðrún, Guðrún Helga og Sigþóra.
smíðar og leir- og glervinnslu og
möguleiki á samstarfi við Visku um
námskeið.
Annað sem lagt er til er fjölmiðlun
og menning, svo sem leikhús, tón-
leikar og listsýningar, leshópar,
lestur leikrita, ritun, leiklistamám-
skeið, grúsk og skriftir, sagnahópar.
Önnur tómstundaiðja eins og klúbb-
ar, ferðalög, garðrækt, hópstarf,
kennsla í handverki, sjálfboðastörf
og starfsemi í ákveðnum hags-
munahópum á að vera í boði. Þá er
ætlunin að bjóða upp á fræðslu og
ráðgjöf, ýmis námskeið og endur-
menntun, uppeldisnámskeið, fjár-
málanámskeið, fræðslufundi og
fyrirlestra, ráðgjöf sérfræðinga eins
og félagsráðgjafa, iðjuþjálfa, sál-
fræðinga, þroskaþjálfa, presta,
hjúkrunarfræðinga, grunnskóla-
kennara ásamt aðstoð við heima-
nám, aukatíma og námsaðstoð í
ýmsum fögum.
Létt kaffispjall í boði
Til að gera þetta meira aðlaðandi
verður kaffi á könnunni en gert er
ráð fyrir að fólk komi sjálft með
meðlæti með kaffinu. Þá er varpað
fram hugmyndum um matarklúbb
eða matreiðslunámskeið í hádeginu.
Fastir punktar yrðu létt kaffispjall
yfir blöðunum, spilavist og kaffi,
bingó, prjónakaffi, leshringir og
fleira. Opin námskeið sem notendur
sjá sjálfir um, eins og þæfing,
prjónaskapur, hekl, bútasaumur, list-
saumur og trésmíðar og svo fram-
vegis.
Nefnd eru ýmis lokuð námskeið,
hópastörf og sjálfshjálparhópar og
opin námskeið, t.a.m. á vegum
Visku. Fljótt á litið virðist þetta ansi
viðamikil dagskrá og setja á upp
stundaskrá fyrir vikuna þannig að
fólk, sama á hvaða aldri það er, á að
geta fundið hvenær eitthvað er í
boði sem hentar hverjum og einum.
Ljóst er samkvæmt skýrslunni að
fara verður út í viðamiklar breyt-
ingar á Rauðagerði og gert er ráð
fyrir að Vestmannaeyjabær leggi til
húsnæði og þá ráðgjafa sem heyra
undir sveitarfélagið, svo sem félags-
ráðgjafa og kennara. Til að létta
undir með bænum leggur stýri-
hópurinn til að leitað verði til sam-
starfsaðila, bæði um tæki og búnað
og starfsmann.
„Stýrihópurinn tekur ekki afstöðu
til þess hvort viðkomandi starfs-
maður verður starfsmaður sveitar-
félagsins eða einhvers af samstarfs-
aðilumen leggur áherslu á að hann
verði með háskólamenntun á sviði
félagsvísinda-, menntunar- og upp-
eldisfræða, tómstundafræða eða
sambærilegt nám. Stýrihópurinn
telur nauðsynlegt að stöðugildi og
vinnutími starfsmanns taki mið af
opnunartíma í norðurhluta hússins."
Lokaorð - Aukin ábyrgð
I lokaorðum segir að félagsleg
einangrun sé vaxandi vandamál og
sé fylgni á milli félagslegrar ein-
angrunar, lítillar þátttöku í tóm-
stundastarfi og verra heilsufars. Og
að rannsóknir sýni að þeir sem orðið
hafa fyrir áföllum eigi oft erfiðara
með að mynda og viðhalda félags-
legum tengslum.
„Kjörorð Vestmannaeyjabæjar í
forvörnum eru aukin ábyrgð, sam-
vinna, fjölbreytni, vellíðan og
árangur. Þessi kjörorð eru grund-
völlur góðra lífskjara og falla vel að
hugmyndum stýrihópsins um starf-
semi Rauðagerðis. Stýrihópurinn
vill ennfremur benda á að árið 2010
er Evrópuár, tileinkað fátækt og
félagslegri einangrun og er þátttaka
í daglegum athöfnum og tómstund-
um lykilatriði í því að efla mannauð
og rjúfa félagslega einangrun,"
segja þær stöllur og leggja til að
starfsemin í báðum hlutum hússins
verði hugsuð sem ein samfelld heild
þar sem tómstundir og áhugamál
tengja fólk saman, óháð aldri,
menntun, kyni eða kynþætti.
Að síðustu eru nefndir mögulegir
samstarfsaðilar Vestmannaeyjabæjar
um starfsemi Rauðagerðis: Meðal
þeirra eru, Framhaldsskólinn, Viska,
Starfsorka og Rauði krossinn. Þá er
bent á að sjálfboðaliðar geti haft
mikið að segja í starfseminni.
Fjölskyldu- og tómstundaráð - Stýrihópur leggur fram starfsáætlun Rauðagerðis:
Verður opið öllum án tillits
til aldurs eða aðstæðna