Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Blaðsíða 18
18 Fréttir / Fimmtudagur 17.júní2010 IPæjumót ÍBV og TM 2010: TIL ÚKSíltA, 1 -i(i lireiOaúliks og FH léku til úrslita á Piejumótinu 2010 þar sem Breióublik hafði betur 4:1. > ' ¥i Glæsilegt Pæjumót ÍBV og TM í Vestmarmaeyjum um helgina: Mót sem stækkar ár frá ári Einu stærsta Pæjumóti ÍBV og TM síðari ára lauk með pompi og prakt í íþróttahúsinu um miðjan dag á laugardaginn. Alls voru um 550 þátttakendur í mótinu, sem er fjölgun um 130 frá því í fyrra. Einu sinni sem oftar var Breiða- blik áberandi í hópi verðlauna- hafa en Breiðablik sigraði í A-, B- og C-flokki en Valur í D-flokki. Veðrið hefur ávallt mikið um það að segja hvernig mótshaldið tekst en ekki verður annað sagt en að veður- guðirnir hafí verið hliðhollir Eyjamönnum. Smávæta var fyrsta morguninn en eftir það skein sól í heiði og veður var allt hið besta. Undir lok mótsins fór svo að rigna, það slapp fyrir hom en það kom vissulega niður á aðsókn á sjálfan úrslitaleikinn enda hafa áhorfendur oft verið fleiri á lokaleik mótsins. Dagskrá mótsins var einnig þétt- skipuð. Fyrir utan alla fótboltaleik- ina var boðið upp á kvöldvöku á setningu mótsins en þar var m.a. hvert félag með eitt atriði í hæfi- leikakeppni mótsins og augljóst að sumar stelpumar höfðu lagt á sig mikla vinnu við undirbúning keppninnar. Jónsi í hljómsveitinni Svörtum fötum hélt uppi stuðinu og var í dómnefnd keppninnar ásamt þeim Ölmu Eðvaldsdóttur og Silju Elsabetu Brynjarsdóttur. Spilað frá morgni til kvölds Á föstudagskvöldið var svo lands- leikur þar sem Landsliðið spilaði á móti Pressuliðinu. Leiknum lauk með stórmeistarajafntefli, 2:2 en eftir landsleikinn var boðið upp á grillveislu og síðan diskósund í sundlauginni. Urslitaleikirnir fóru svo fram á laugardeginum en byrjað var alla dagana að spila klukkan átta um morguninn og var spilað fram á kvöld. í mótslok var svo glæsileg verðlaunaafhending og lokahóf í íþróttahúsinu. Æsispennandi úrslitaleikir Eins og áður sagði var Breiðablik áberandi meðal sigurvegara í mót- inu. I úrslitaleik D-liða spiluðu Fylkir og Valur en Valsstúlkur höfðu betur í æsispennandi leik, 2:0. Hjá C-liðum vom það Breiðablik og Fylkir sem mættust og höfðu Blikastúlkur betur, 3:0. Blikastúlk- ur höfðu líka betur í flokki B-liða þar sem þær léku gegn Val en úrslit leiksins urðu 2:1 eftir hörku- viðureign. Sjálfur úrslitaleikur mótsins, í flokki A-liða var á milli Breiðabliks og FH. Breiðablik hafði nokkra yfirburði í fyrri hálfleik og var 2:0 yfir í hálfleik. Blikastúlkur bættu þriðja markinu við í upphafi síðari hálfleiks en þá tóku FH-ingar við sér, minnkuðu muninn í 3:1 og hleyptu smá spennu í leikinn. En Blikastúlkur sýndu yfirburði sína í mótinu, bættu við fjórða markinu og vora vel að sigrinum komnar. Úrslitaleikinn dæmdi Guðrún Fema Ólafsdóttir, ungur og efni- legur kvendómari, sem hefur verið að dæma í úrvalsdeild kvenna en sjálf hafði hún aldrei áður komið á Pæjumótið í Eyjum. Guðrún Fema sagði í stuttu samtali við blaðamann að hún hefði gjarnan viljað vera lengur á mótinu. Einar Friðþjófsson, mótsstjóri sagði í síðustu viku að mótið væri að stækka og yrði enn stærra á næsta ári. Það er jákvætt enda hafa Eyjamenn upp á margt að bjóða fyrir ungar og upprennandi knatt- spymukonur. Auðveldari samgöng- ur á sjó ýta sjálfsagt undir áhugann þannig að vonandi munu bæði Pæjumótið og Shellmótið stækka á næstu ámm. Verðlaunahafar Pæjumótsins A-lið. 1. Breiðablik 2. FH 3. Fjölnir B-lið 1. Breiðablik 2. Valur 3. Fylkir C-lið 1. Breiðablik 2. Fylkir 3. Valur D-lið 1. Valur 2. Fylkir 3. Breiðablik Prúðasta liðið - Grindavík Efnilegasti leikmaður Pæju- móts IBV og TM - Selma Sól Magnúsdóttir, Breiðabliki. BLIKASTÚLKUR FÖGNUÐU vel og innilega þegar þær fengu bikarinn í hendurnar frá landsliðsþjálfaranum, Sigurði Ragnari. LANDSLIÐSKONAN Díana Helga Guðjónsdóttir úr ÍBV stóð sig vel í landsleik Pæjumótsins þar sem Landsliðið lék gegn Pressuliðinu. EFNILEGUST á Pæjumótinu Selma Sól Magnúsdóttir. VEL SKREYTTUR. Þjálfari Skallagríms var með naglalakk og litaðan koll á mótinu. GENGIIBV hefur oft verið betra á Pæjumótinu en í ár en stelpurnar fögnuðu sigrum sínum með Iéttum og skemmtiiegum dansi. FRÁBÆR STEMMNING. Jónsi úr Svörtum fötum fékk stelpurnar til að syngja og tralla á setningarhátíð Pæjumótsins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.