Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Blaðsíða 9
Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2010 9 Ný bæjarstjórn er tekin við - Áfram stefnt að samstöðu: Minnihlutanum ekki ætlað aukið hlutverk við stjórn bæjarins -Við sjálfstæðismenn með skýrt umboð kjósenda til að stjórna bæjar- félaginu, segir Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs Hér byrjaði samvinna löngu fyrir hrun -Það hefur skilað árangri, segir Páll Scheving, V-lista „Það er rétt, niðurstaðan sýnir að bæjarbúar leggja áherslu á sömu vinnubrögð, telja það samfélaginu fyrir bestu,“ sagði Páll Scheving, oddviti Vestmannaeyjalistans, þegar hann var beðinn um að lesa í úrslit kosninganna. „Hvort minnihlutinn fái for- mennsku í nefndum ræðst af af- stöðu meirihlutans. Nú virðast víða sett upp hvít flögg í pólitík- inni og minnihluta boðið af meiri- hluta að leiða verkefni. Þetta eru táknrænar aðgerðir í kjölfar hugmyndafræði sem beðið hefur gjaldþrot. Leitað er samstarfs, sem er í mínum huga eina vitið og kannski er rétt að benda á það að hér í Vestmannaeyjum tóku bæjar- fulltrúar upp þessi vinnubrögð löngu fyrir hrun. Það hefur skilað árangri." Páll segir það alrangt að ekki fari fram skoðanaskipti og rökræða í ráðum og nefndum. „Mikil umræða fer fram um hin ýmsu mál, en án þess að verið sé að skylmast eða reynt að bregða fæti fyrir kjörna fulltrúa. Það skilar ekki góðum árangri. Betra er að fulltrúar taki móti öllum hugmyndum með opnum huga og þrói þær í sameiningu. Þannig vinnum við best fyrir okkar um- bjóðendur. Bæjarbúa." Þegar Páll var spurður að því hvort hann teldi að með auknu samstarfi milli D- og V-lista geti bæjarfulltrúar í meira mæli tekið afstöðu með og móti málum þvert á framboð, sagðist hann fagna því sérstaklega ef sú yrði raunin. „Reyndar er spumingin sérstök. Hvað er eðlilegra en að bæjarfull- trúar, hvar í flokki sem þeir standa, séu ekki í öllum tilfellum sammála niðurstöðu „flokks- bræðra“ sinna. Það bara gerist allt í kring um okkur, alls staðar í lífinu. Af hverju ætti það að vera á annan veg í íslenskri pólitfk? Það er mín von í kjölfar síðustu sveitarstjómarkosninga að kjörnir fulltrúar öðlist kjark, rífi af sér flokksklafana og fari að gera eitt- hvað af viti. Það er krafa þjóðar- innar. Hún hefur fengið sig full- sadda af ruglinu. Guði sé lof,“ sagði Páll. Þó ekki hafi verið haldinn bæjar- stjómarfundir hófst nýtt kjörtímabil bæjarstjórnar á þriðjudaginn, 15. júní. Niðurstaða kosninganna er m.a. sú að kjósendur kunna að meta það mikla samstarf sem hefur verið á milli meiri- og minnihluta á kjörtímabilinu sem nú er á enda runnið. Sjálfstæðismenn halda sínum fjórum og Vestmannaeyjalist- inn er með þrjá. En má reikna með frekara samstarfi og hugsanlega að minnihluti fari með formennsku í einhverjum nefndum og ráðum? Fréttir bám þessa spumingu fyrir Páleyju Borgþórsdóttur, formann bæjarráðs og annan mann á lista sjálfstæðismanna og Pál Scheving, oddvita minnihlutans. Bæði eru nokkuð sátt með samstarfið eins og það var á sfðasta kjörtímabili en ekki er að sjá að minnihlutanum sé ætlað meira hlutverk í stjórn bæjarins á nýbyrjuðu kjörtímabili. Samstarf skilaði miklum árangri „Samvinna meiri- og minnihluta á síðasta kjörtímabili skilaði miklum árangri og greinilegt, miðað við niðurstöðu kosninga, að bæjarbúar hafa verið ánægðir með það,“ sagði Páley. „Eftir kosningamar 2006 var það meðvituð ákvörðun okkar fjögurra sem skipum meirihluta að breyta verklagi við stjóm bæjarins og auka samvinnu og er einkar ánægjulegt hvemig til tókst. I nýrri bæjarstjórn sitja sömu aðilar áfram fyrir meiri- hluta og tveir af þremur hjá minni- hluta svo ég tel ágætis líkur fyrir því að þetta góða samstarf haldi áfram þar sem ég þekki hug þessara sex aðila. Með nýju fólki koma nýir siðir en það á eftir að koma í ljós hvort samstarfið fellur nýjum bæjar- fulltrúa í geð. Þrátt fyrir gott sam- starf fara sjálfstæðismenn með ferð- ina við stjórn bæjarins og á ég því ekki von á að minnihluta verði falin formennska í nefndum á vegum bæjarins enda höfum við sjálf- stæðismenn skýrt umboð kjósenda til að stjórna bæjarfélaginu með 56% greiddra atkvæða á bakvið okkur og munum ekki víkja okkur undan þeirri ábyrgð,“ sagði Páley. Kemur ekki veg fyrir rök- ræður Er ekki hcett við að bœjarbúar geti lítið fylgst með málum ef samið er um þau án þess að rökrœður fari fram í nefndum og ráðum bœjarins? „Góð samvinna í bæjarstjóm þýðir ekki að það fari ekki fram rökræður og vangaveltur í ráðum Vestmanna- eyjabæjar. Þvert á móti eiga sér oft stað miklar umræður og skoðana- skipti í hinum ýmsu málum en það sem síðasta bæjarstjóm bar gæfu til bæjarfulltrúa eins og alþingismenn að menn sitja í bæjarstjórn, bundnir af lögum og sinni eigin sann- færingu, engu öðru. Bæjarfulltrúar geta því ávallt tekið afstöðu í málum þvert á framboð, til þess hafa þeir fulla heimild. Við sem sitjum fyrir Sjálfstæðisflokkinn í bæjarstjórn emm flokksbundin af því að við er- um sömu skoðunar í grundvallar- atriðum um það hvert skuli stefna þó að ekki gildi það um einstaka mál. Við vinnum náið saman og tökum ákvarðanir á líkan hátt og samstarf meiri- og minnihluta fer fram, leit- umst við að komast að sameiginlegri niðurstöðu og það hefur alltaf tekist hjá okkur þó að oft sé tekist á. Ég tel að þegar jafn gott samstarf ríkir og allir bæjarfulltrúar koma að málum strax í ráðunum fækki þeim til- vikum þar sem menn fara gegn málum í bæjarstjórn, enda væri það skrýtið að styðja mál í upphafi en ekki alla leið. Það kann þó að vera erfiðara fyrir V-listann að leysa sín mál þar sem þeirra fulltrúar deila ekki sömu grundvallarskoðunum og koma úr ólíkum stjórnmálaflokkum, það kann að verða til þess að menn kjósi með eða á móti málum í and- stöðu við félaga sína. En eins og alltaf hefur gilt, hafa menn fulla heimild til þess,“ sagði Páley að lokum. Vinnings- hafar Dregið hefur verið í getraun sem efnt var til í fjölskyldugöngu Vestmannaeyjabæjar 24. maí sl. Alls bárust 37 svör, þar af reynd- ust 27 innihalda rétt lausnarorð, sem var „prestshempa". Dregnir voru út fjórir vinnings- hafar: 1. Anna Sigga Grímsdóttir: Ljósmyndabók Björns Rúriks- sonar: Vestmannaeyjar 2. Geir Jón Þórisson: Ljósmyndabók Björns Rúrikssonar: Vestmannaeyjar 3. Svava Gunnarsdóttir: Diskur Sönghóps AtVR: I æsku minnar spor. 4. Ragna Björg Björnsdóttir: Diskur Sönghóps ÁtVR: f æsku minnar spor. Öllum sem tóku þátt í göngunni og/eða leik þessum er þökkuð þátttakan. Haft verður samband við vinn- ingshafa. ÁTVR grillar Átthagafélag Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu býður fé- lagsmönnum og gestum að koma saman við Gufunesbæ í Grafar- vogi nk. laugardag 19. júní klukkan 16. Þar hefur ÍTR komið upp frábærri útivistar- araðstöðu og sal sem hentar vel ef veður leyfir ekki útiveru. Frábær leiktæki fyrir bömin, s.s. klifuraðstaða, blak ofl. Félagsmenn koma með á grill- ið, drykkjarföng og hið frábæra EYJASKAP. Félagið sér um grillið og borð- búnað. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna og taka gesti, börn og bamabörn með. Fréttatilkynning. var að leitast við að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Við stefnum enda að sameiginlegu markmiði og viljum öll vinna Vest- mannaeyjum gagn svo þær geti blómstrað. Bæjarbúar hafa góðan aðgang að öllum fun- dargerðum ráða og nefn- da í gegnum heimasíðu bæjarins, www.vestman- naeyjar.is, þar eru allar fundargerðir settar inn jafnóðum. Bæjarstjórnarfundir eru auk þess sendir beint út á FM 104 og eru öllum opnir svo ég tel bæjarbúa geta fylgst vel með hafi þeir áhuga á því. Ég tel endalausar bókanir á báða bóga í ráðum vegna einstakra mála, eins og var hér áður ekki vera Vestmannaeyjum til framdráttar og helst vera notað í pólitískum til- gangi. Góð samvinna hefur engin áhrif á það hversu mikið íbúar geti fylgst með málum, stjórnsýslan er öllum opin eftir sem áður.“ Bundnir af eigin sannfæringu Telur þú að með auknu samstarfi milli D- og V-lista geti bœjarfull- trúar í meira mœli tekið afstöðu með og móti málum þvert áframboð? „Það gildir það sama um kjörna DREGIÐ Ómar Garðarsson, dró út vinningshafa fyrir Helgu Hallbergsdóttur. List og leikur á gönguslóð: Miðbazr Vestmannaeyja vaknar til lífsins: Veitingar á hverju götuhorni Sjö tinda gangan - Lagt upp úr Herjólfsdal - Fylgd fyrir Pá sem vilja: Fjöldi tinda og hraði á valdi hvers og eins Það er ekki ofsögum sagt að mið- bærinn í Vestmannaeyjum hefur tekið miklum stakkaskiptum, veit- ingastöðum og verslunum hefur fjölgað og þeim fjölgar stöðunum þar sem hægt er að sötra kaffi og te og kannski eitthvað sterkara úti á gangstétt. Fyrir umhverfis- og skipulagsráði lá fyrir umsókn frá Kaffi Varmó um afnot af gangstétt vegna útiveitinga. Einnig er sótt um leyfi til að setja stóla og borð á grasflöt norðan við Miðstræti. Leyfið var veitt til til 15. september nk. Penninn-Eymundsson sótti um sams konar leyfi fyrir homið á Strandvegi og Bámstíg. Leyfið var veitt en leyfishafi skal ávallt tryggja að rúm sé fyrir gangandi umferð meðfram veitingasvæði. f þriðja skiptið verður efnt til svokallaðrar Sjö tinda göngu í Vestmannaeyjum þar sem þátttak- endum býðst að taka þátt í alvöru fjallgöngu eða bara vera með og labba á einn tind eða tvo. Og hraðann velur hver fyrir sig. Hafdís Kristjánsdóttir á hugmynd- ina sem hún hrinti af stað sumarið 2008 og var þátttaka mjög góð. „Þátttakan í fyrra var ekki eins mikil og árið á undan en við von- umst til að nú fjölmenni fólk. Við leggjum af stað upp úr Herjólfsdal klukkan níu á föstudagskvöldið. Fyrirkomulagið er það sama. Lagt verður á Dalfjall, þaðan gengið yfir Eggjar niður Hána, upp á Klif, Heimaklett, Eldfell, Helgafell og endað á Sæfjalli," sagði Hafdís en lagði áherslu á að engin skylda er að ganga á öll fjöllin. „Það fer bara hver og einn þar sem hann treystir sér til. Það er gott að hafa með sér nesti í góðum og þægilegum bakpoka. Göngutími fer eftir ásigkomulagi hvers og eins en áætlað er að gangan taki þrjá til fimm klukkutíma fyrir þá sem fara alla leið. Þátttökugjald er krónur 2000 sem renna óskiptar til Krabbavarnar Vm því öll þekkjum við einhvern sem berst við krab- bamein . Ég hlakka til að sjá sem flesta og vonandi verðum við hep- pin með veður eins og í hin skiptin," sagði Hafdís að lokum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.