Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Blaðsíða 10
10 Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2010 Á ÆSKUSLÓÐUM Emilía er fædd og uppalin í Eyjum. Hér er hún á gamalkunnugum slóðum með fjölskyidu sinni, eiginmanninum Karli Guðmundssyni og strákunum Inga Snæ sem er sjö ára og Bóasi fimm ára og nú er þriðja barnið væntanlegt í kringum þjóðhátíðina. Surtsey innblástur að stól sem vakið hefur mikla athygli -Emilía Borgþórsdóttir, iðnhönnuður, stendur í stórræðum - Var meðal tíu sem valin var úr 600 manna hópi til að taka þátt í bandarískri hönnunarsýningu - Fjölskyldan þurfti að yfírgefa Bandaríkin með viku fyrirvara - Bíða eftir að fá atvinnuleyfi á ný - Þriðja barnið á leiðinni Viðtal Guðbjörg Sigurgeirsdóttir gudbjorg @ eyjafrettir. is Emilía Borgþórsdóttir og Karl Guðmundsson hafa búið, ásamt tveimur sonum sínum, í Banda- ríkjunum í fjögur ár. Karl vann hjá Össuri áður en hann flutti sig yfir í amerískt stoðtækjafyrirtæki og Emilía, sem er sjúkraþjálfari, settist aftur á skólabekk og lærði hönnun. Hún var valin úr stórum hópi ungra hönnuða og sýndi á hönnunarsýn- ingunni Internalional Contemp- orary Furniture Fair í New York í maímánuði. Hægindastóllinn sem hún hannaði fékk umfjöllun í fjöl- mörgum veftímaritum sem fjalla um hönnun og lífstíl. Fjölskyldan hefur dvalið í Vestmannaeyjum undanfarna mánuði vegna þess að dvalarleyfi þeirra í Bandaríkjunum rann út og þau urðu að yfirgefa landið með stuttum fyrirvara. Emilía var tilbúin í spjall um þessar óvenjulegu aðstæður hjá fjölskyld- unni, hönnunamámið, stólinn og sýninguna. Biðu eftir græna kortinu „Við þurftum að fá framlengingu á atvinnuleyfi og það var verið að sækja um græna kortið fyrir okkur þannig að við héldum að allt væri í himnalagi. Ég kom hingað heim til að vera í afmælinu hennar Páleyjar systur minnar þann 6. febrúar, ætlaði að vera í tíu daga og fékk svo hringingu frá Kalla. „Þú ert ekkert að koma út, við erum að koma heim,“ sagði hann og þeir voru mættir til Éyja, hann og strákarnir, nokkrum dögum seinna. Og við höfum verið hér síðan,“ sagði Emilía en vonaðist til að fjöl- skyldan kæmist út aftur um miðjan mánuðinn en unt það ríkir enn óvissa. Fjölskyldan getur því allt eins þurft að bíða enn um sinn. „Umsóknin um græna kortið var í ferli en handvömm hjá lögfræðingi okkar varð til þess að henni var hafnað. Bandaríkjamenn hafa hert túlkun á öllum reglum, sérstaklega þar sem þar er um 10% atvinnu- leysi rétt eins og hér á landi. Við sóttum um tvær tegundir atvinnu- leyfa og fengum samþykki fyrir atvinnuleyfí frá 1. október næst- komandi en vonumst til að fá leyfi sem tekur gildi strax.“ sagði Emilía og nú lá beinast við að spyrja hana hvers vegna þau hjónin ákváðu að freista gæfunnar úti í hinni stóru Ameríku. Dúxaði í hönnunarnámi „Kalli vann hjá Össuri og við ákváðum að flytja út þegar honum bauðst að starfa á vegum fyrir- tækisins í Suður-Kalifomíu. Við bjuggum í Orange County í þrjú ár en sl. haust fluttum við til New Jersey en þá bauðst honum að vinna fyrir amerfskt fyrirtæki og þá sem yfirmaður þróunardeildar með spelkur. Við sáum ákveðin tækifæri í því að flytja okkur um set og kynnast þannig ólíkum menningarheimum vestur- og aust- urstrandarinnar. Mig hafði alltaf langað að vera nálægt New York sem er Mekka hönnunar og tísku og bærinn sem við búum í er í 30 til 50 mínútna fjarlægð frá borg- inni.“ Þú notaðir tímann í Orange County ogfórst í hönnunarnám? „Já, ég fór í iðnhönnunarnám. Ég er sjúkraþjálfari og starfaði sem slíkur í nokkur ár en mig langaði alltaf til að taka master í vinnuvist- fræðilegri hönnun. Það var hins vegar ekki í boði og það endaði með því að ég fór í BS nám í iðn- hönnun. Ég sé ekki eftir því, það er mikilvægt að fara alveg í grunn- inn.“ sagði Emilía og bætir því við að hún hafi ekki einu sinni kunnað að teikna Óla prik þegar hún byrj- aði. „Það skiptir miklu að hafa undirstöðuna því þú þarft ákveðna þekkingu til að koma þinni hug- mynd alla leið,“ bætti hún við og vinnan skilaði sér sannarlega því Emilía dúxaði þegar hún út- skrifaðist sem iðnhönnuður í júní 2009 frá Art Institute of Orange County, Califomia. Þótti skrýtið að nota roð Fjölskyldan flutti á austurströndina um það leyti sem Emilía hafði lokið náminu og það tók ákveðinn tíma að koma sér fyrir en hjónin eiga tvo stráka, Inga Snæ sem er sjö ára og Bóas fimm ára og nú er þriðja barnið væntanlegt í kringum þjóðhátíðina.. „Við keyptum okkur hús og ég hef verið að koma okkur fyrir og laga húsið aðeins til. Ég hef líka unnið smáverkefni fyrir veitinga- staðinn Happ sem verður opnaður í Reykjavík á næstunni og svo er ég með í hönnunarsýningu sem ber yfirskriftina Ur hafi til hönnunar, og stendur yfir í Hönnunarsafni Islands. Þar sýni ég barnaburðar- poka úr roði en það var eitt af þeim verkefnpm sem ég vann í skól- anum. Ég lét senda mér roð frá Islandi en yfirmanni mínum fannst skrýtið að setja barn í roð. Ég spurði hvað hafi verið gert frá örófi alda og konan sem kenndi námskeiðið var aftur á móti hrifin. Nú eru Dior og fleiri þekkt fyrirtæki í tískubransanum að taka inn roð enda umhverfisvænt efni. „Umsóknin um græna kortið var í ferli en handvömm hjá lögfræðingi okkar varð til þess að henni var hafnað.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.