Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Qupperneq 12
12
Fréttír / Fimmtudagur 3. júní 2010
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum - Grunnskóli Vestmannaeyja - St
Heiðarleiki og aftur heiðarleiki
-Verið heiðarleg í öllu sem þið takið ykkur fyrir hendur, stóru og smáu,
samskiptum og viðskiptum, sagði Ólafur H. Sigurjónsson þegar hann
ávarpaði útskriftarnemdur í skólaslitaræðu sinni
HVÍTU kollarnir settir upp.
FÍV - Starfið á vorönn:
Starfsreynsla
getur verið
lykill að námi
-Raunhæfismat vél-
stjóra - Merk nýjung
Við upphaf vorannar voru 287
nemendur skráðir til náms í
Framhaldsskólanum í Vest-
mannaeyjum. Við lok annar hafði
nemendum fækkað um 19 og
gengust 268 undir próf.
Þetta kom fram hjá Baldvini
Kristjánssyni, aðstoðarskóla-
meistara, við skólaslit FÍV.
„1 einingum talið þá voru nem-
endur í námi í 436.829 einingum
við upphaf annarinnar en það
jafngildir 250 fullgildum. Við
endi eða lok annar voru þeir í
404.697 eininga námi eða 231
fullgildum. Og örlítið meira af
tölum því 62 nemendur náðu því
marki að fá einingu fyrir mæt-
ingu. Eininguna fá þeir einir sem
eru með 90% raunmætingu eða
hærri. Reyndar voru 3 nemendur
með 100% raunmætingu," sagði
Baldvin.
Skipting nemenda á námsbraut-
ir var svipuð og verið hefur, fé-
lagsfræðibrautin var fjölmennust
með 81 nemanda, náttúrufræði-
braut með 55 nemendur og þá
almenn braut með um 30 nemen-
dur.
„Mikill vöxtur hljóp í skip-
stjórnarbraut skólans undir lok
mars þegar nemendum þar
Ijölgaði um 31. Það gerðist
þegar farið var af stað með nám
til skipstjórnarréttinda á smá-
skipum að 12 metrum. Um var að
ræða samstarfsverkefni Fram-
haldsskólans og Visku, fræðslu-
og símenntunarmiðstöðvar
Vestmannaeyja.
Nemendur á námskeiðinu komu
víða að af landinu en helmingur
nemenda var þó heimamenn. Af
sömu ástæðu varð síðan fjölgun á
vélstjórnarbrautum í lok apríl
þegar 11 nemendur hófu nám á
vélgæslunámskeiði, sem enn
stendur.“
Baldvin kom inn á athyglisvert
samstarfsverkefni Framhalds-
skólans og Visku, sem er raun-
færnimat fyrir vélsljóra. „Þarna
er ný nálgun, að evrópskri fyrir-
mynd, við að meta stöðu reynslu-
mikilla einstaklinga á einhverju
tilteknu sviði m.t.t. formlegs
náms á þessu tiltekna sviði,“
sagði Baldvin.
Tók hann sem dæmi vélstjóra
sem starfað hefur á undanþágu í
áraraðir og tileinkað sér heil-
mikla fæmi í faginu, sem raun-
fæmimatið leitast við að meta
honum til tekna og stytta honum
leiðina að formlegum réttindum.
Auk Framhaldsskólans og
Visku komu þarna að Fræðslu-
miðstöð atvinnulífsins og Iðan -
fræðslusetur.
Mannabreytingar frá því á
haustönn voru litlar. Karl Gauti,
sýslumaður, bættist í hóp kenn-
arara og kenndi skipstjómar-
efnum sjórétt. Guðný Bogadóttir,
hjúkrunarfræðingur, kom og inn
um áramót og kenndi sjúkraliða-
nemum ýmsar sérgreinar. Gunnar
Friðfinnsson fór í leyfi og í hans
stað komu hjónin Samúel Sveinn
og Elín Jóhannsdóttir.
Skólinn hélt uppteknum hætti
hvað varðar erlend samskipti og
fóm 20 nemendur okkar til
vikudvalar í Svíþjóð nú í apríl.
Dvölin þar varð litlu lengri en
upphaflega var ráð fyrir gert þar
sem aska úr Eyjafjallajökli tafði
heimför um tvo daga. Askan varð
og til þess að Svíar frestuðu
heimsókn sinni hingað til hausts.
„Á því skólaári sem nú lýkur, hafa
ytri aðstæður verið talsvert erfiðari
en undanfarin ár. Skólinn fór af
stað í haust í skugga yfnvofandi
heimsfaraldurs svínaflensu og efna-
hagskreppu með tilheyrandi verð-
bólgu og atvinnuleysi og skólaárinu
lýkur í skugga öflugs eldgoss með
öskufalli og tilheyrandi áhyggjum
af því öllu saman. Sem betur fór
varð ekkert úr flensunni og teikn
eru um að kreppunni fari að linna,
en við förum inn í sumarið, í óvissu
um hegðun nágrannans, Eyjafjalla-
jökuls,“ sagði Ólafur H. Sigurjóns-
son, skólameistari FIV, í upphafi
skólaslitaræðu sinnar.
Og það kom fram hjá honum að
vegna niðurskurðar á fjárveitingum
hafi framboð námsáfanga ekki ver-
ið eins fjölbreytt og skólinn hefði
kosið. „Það kemur líka fram í því
að margir hópar verða fjölmennari
en æskilegt er. Námsárangur hefur,
þrátt fyrir allt þetta, verið nokkuð
góður og vorönn skilaði alveg því
sem stefnt var að hjá flestum.
Nemendur virtust vera orðnir
þreyttir þegar kom að vorprófum en
fyrstu niðurstöður úr samantekt
okkar, benda til að meðaleinkunn
úr öllum prófum í vor sé eilítið
hærri en á síðustu tveimur önnum.
Brottfall virðist þó vera aðeins
meira en var á síðustu vorönn."
Fer verr út út niðurskurði
en aðrir framhaldsskólar
Ólafur sagði útlit fyrir að skólinn
þurfi að búa við skert rekstrarfé
eitthvað áfram og það sé áhyggju-
efni. „I ræðu minni í lok haustannar
nefndi ég það, að skólinn okkar
hefur farið verr út úr niðurskurði
rekstrarfjár en flestir aðrir fram-
haldsskólar. Ég vil halda því til
haga að meginástæðan er sú, að
síðan 2008 hefur nemendum hjá
okkur verið að fjölga, en viðmið-
unartala nemenda í fjárlögum var
fryst, og eftir á uppgjör, sem á að
bæta umframnemendur, var stór-
lega skert. Á árunum 2008 og 2009
vorum við með 17 ársnema umfram
fjárlög á hvoru ári og hefðum átt að
fá rúmar 29 milljónir í viðbótar-
rekstrarfé, á þessum tveimur árum,
ef miðað er við núverandi verðgildi
á ársnemanum. Reyndin varð sú að
við fengum 11 milljónir og halli á
rekstri þessara ára varð því 19,5
milljónir."
I lok annar voru lagðar nokkrar
spurningar fyrir nemendur, sem
hluti af stöðugu sjálfsmati skólans.
Sagði Ólafur að fyrstu niðurstöður
sýni að nemendur eru upp til hópa
ánægðir með skólann sinn, 76% eru
ánægð, 5% óánægð og 19% hvorki
ánægð eða óánægð.
„Annars er spurt um fjölmarga
þætti og í flestum tilfellum stað-
festa svörin það, að við erum á
réttri leið í skólastarfinu. Einnig
koma fram ábendingar um þætti
sem við þurfum að huga betur að,
enda til þess leikurinn gerður. í
vetur hefur verið unnið að nám-
skrárgerð sem felst í því að endur-
skoða námsáfanga og námsbrautir.
Upphaflega stóð til að þessari
vinnu yrði lokið 2011 þegar nýju
framhaldskólalögin áttu að taka
gildi að fullu. Því hefur nú verið
frestað til 2015 þannig að eitthvað
hægir á þessari vinnu.“
Nýr samningur við
ráðuneytið
Ólafur sagði að endurskoðun
skólanámskrár um markmið og
áherslur í skólastarfinu sé lokið og
nýr skólasamningur við ráðuneyti
menntamála verði undirritaður á
næstu dögum. „Ný framsetning
markmiða í skólastarfmu, byggist á
tveimur meginmarkmiðum sem
síðan eru brotin upp í lýsandi
áherslur sem tengjast sjáfsmati
skólans, þar sem hinir ýmsu þættir
markmiðanna eru gerðir mælanleg-
ir. Meginmarkmiðin tvö eru eins
konar leiðarljós fyrir starfíð og eru
því nokkuð opin. Þau eru þannig,
að í fyrsta lagi er markmið sem
snýr út á við: Framhaldsskólinn í
Vestmannaeyjum vill bjóða fjöl-
breytt og gott nám, sem mætir kröf-
um nemenda og nærsamfélagsins á
hverjum tíma. Og í öðru lagi mark-
mið sem snýr að innra starfmu:
Framhaldsskólinn í Vestmanna-
eyjum vill að starfsmönnum og
nemendum líði vel í skólanum og
að þeir fái tækifæri til að þroska
samskipti, byggð á gagnkvæmri
virðingu og skilningi," sagði Ólafur
en nánari útfærslur eru á heimasíðu
FÍV.
Sameiginleg uppskeru-
hátíð
Þá sneri Ólafur máli sínu til
útskriftamema. „Þetta er okkar
sameiginlega uppskeruhátíð og ég
óska öllum þessum bráðefnilegu
nemendum til hamingju með
daginn og vona sannarlega að hér
hafi orðið til dálítið nesti í það
ferðalag sem lífið framundan vissu-
lega er. Eins og við Islendingar
erum nú að upplifa, þá skiptast á
skin og skúrir í þjóðfélaginu og það
er ekki nýtt. Það er auðvelt að vera
til þegar allt gengur vel, en það
reynir á ykkur þegar á móti blæs og
í slíku ástandi er gott að hafa stefnu
og þekkingu til að fylgja henni,"
sagði Ólafur og rifjaði upp að
útskriftardaginn var dánardagur
Sæmundar fróða, prests í Odda á
Rangárvöllum, sem sé líklega
þekktasti Sunnlendingur allra tíma.
„Ég geri nú ekki ráð fyrir að þið
þekkið hann persónulega, því að í
dag eru 877 ár frá andláti hans.
Hann var fyrstur Sunnlendinga til
að sækja sér framhaldsmenntun
erlendis og fékk hana í Svarta-
skóla, þar sem hann dvaldi líklega í
mörg ár. Nemendur kvarta stundum
undan stífum reglum um mætingu,
en ættu að þakka fyrir að við höf-
um ekki tekið upp reglur Svarta-
skóla. Þar þurfti að vita nákvæman
tíma þegar þú mættir í skólann og
ári seinna á sama tíma máttir þú
fara en ef menn klikkuðu á því,
urðu þeir að bíða í heilt ár og til að
kóróna þetta höfðu nemendur ekki
klukku, en máttu hafa með sér
stundaglas. Þegar útskrifað var, þá
gengu menn út í þeirri röð sem þeir
höfðu komið inn, og þá vildi gjarn-
an svo til að sá er síðastur fór hvarf
og spurðist ekki til hans meir.
Þannig var nú brottfallið hjá þeim.
Sæmundur fróði lærði greinilega
ýmsa siði í þessum skóla, sem
landlægir hafa orðið á Islandi, til
dæmis að hafa rangt við og plata
skólameistarann, sem sumir sögðu
reyndar að væri Kölski sjálfur.
Þekkt er sagan af útskrift Sæ-
mundar, þegar hann gekk síðastur
út og hafði kápu sína lausa yfir
axlir og þegar krumla skólameist-
arans ætlaði að góma hann, þá varð
bara kápan eftir, en Sæmundur
slapp. Sæmundur var einnig upp-
hafsmaður skattlagningar eða tí-
undar eins og það var nefnt á
elleftu öld, ásamt biskupi og
lögsögumanni.
Hann stofnsetti líka fyrsta skól-
ann á Suðurlandi og ritaði heil-
margt, en það eru ekki til neinar
heimildir um hvað kennt var í
skólanum og öll rit Sæmundar eru
týnd, sem er skrýtið. Mig grunar að
hann hafi kennt þau fræði sem
einna verst hafa reynst okkur
Islendingum í 800 ár. Nefnilega
svik og pretti ásamt því að yfirvöld
skyldu stöðugt sækja fé í vasa al-
mennings.
Nýjasta dæmið er um útrásarvík-
inga og bankaeigendur, sem fóru
mikinn í svindli og prettum, en
þegar til átti að taka höfðu þeir
kápuna lausa á herðunum og nú
borgar almenningur sem aldrei fyrr.
Það liggur við að maður haldi að
sagan af útskrift Sæmundar og
heimför á baki kölska séu öfug-
mæli, það hafi verið kölski sem
kom en Sæmundur ekki og forfeður
okkar hafi verið í námi hjá skóla-
meistara Svartaskóla,“ sagði Ólafur
en að því mæltu óskaði hann
nemendum alls hins besta í
framtíðinni
„Ég vonast til að þið verðið góðir
fulltrúar skólans okkar. Ég hef
gjaman við þetta tækifæri nefnt
ýmsar dyggðir sem gott er að til-
einka sér, en nú legg ég bara
áherslu á eitt atriði, mikla áherslu.
Það er heiðarleiki og aftur heiðar-
leiki. Verið heiðarleg í öllu sem þið
takið ykkur fyrir hendur, stóru og
smáu, samskiptum og viðskiptum,"
sagði Ólafur sem að lokum þakkaði
Sísi, Ingibjörgu Ólafsdóttur
Bjartmars, sem var að láta af störf-
um, fyrir vel unnin störf.
Viðurkenningar og útskriftarnemar á vorönn
Viðurkenningar fyrir mjög góða
skólasókn, 100% raunmætingu:
María Rós Sigurbjömsdóttir, Matt-
hías Páll Harðarson og Sigurður
Einar Gíslason.
Viðurkenningar í dönsku - frá
danska sendiráðinu: Guðrún
Svanlaug Gunnarsdóttir, Rakel Ýr
Leifsdóttir, Selma Jónsdóttir og
Sigríður Lára Garðarsdóttir.
Viðurkenningar til húsasmiða frá
Steina og OHa ehf. fyrir mjög
góðan árangur á bóklegu sveins-
prófi: Magnús Ingi Eggertsson.
Fyrir mjög góðan árangur á
verklegu sveinsprófi: Oðinn
Sæbjömsson.
Viðurkenningar tii nýstúdenta:
Fyrir besta heildarárangur í ís-
lensku á stúdentsprófi, gefin af
Sparisjóði Vestmannaeyja: Herdís
Gunnarsdóttir.
Fyrir besta árangur í íslenskum
bókmenntum á stúdentsprófi,
Bylgja Dögg Sigmarsdóttir og
Thelma Rut Grímsdóttir.
Fyrir störf að félagsmálum
nemenda: Hjalti Enok Pálsson.
Fyrir mjög góðan árangur í
stærðfræði og raungreinum:
Elísa Viðarsdóttir.
Fyrir mjög góðan árangur í sam-
félagsgreinum, gefið af Drífanda
stéttarfélagi: Alexandra Evudóttir.
Fyrir mjög góðan heildarárangur á
stúdentsprófi: Alexandra Evudóttir,
Bylgja Dögg Sigmarsdóttir, Elísa
Viðarsdóttir og Þórhildur Ólafs-
dóttir.
Fyrir miklar framfarir og mjög
góðan árangur á stúdentsprófi og í
lokaprófum húsasmiða: Ragnar
Smári Ragnarsson.
Útskriftarnemar
Húsasmiðir: Garðar Öm Sigmars-
son, Gunnar Þór Guðjónsson,
Magnús Ingi Eggertsson, Óðinn
Sæbjörnsson, Páll Sigurðsson,
Ragnar Smári Ragnarsson, Ragnar
Örn Ragnarsson og Regin Jacob-
sen.
Vélstjórn 2. stig: Sindri Georgs-
son.
Stúdentar af félagsfræðibraut: Al-
exandra Evudóttir, Andrea Kára-
dóttir, Anna María Halldórsdóttir,
Björg Þórðardóttir, Ema Valtýs-
dóttir, Guðlaug Sigríður Gunnars-
dóttir, Hjalti Enok Pálsson,
Sæbjörg Helgadóttir, Þuríður Kr.
Kristleifsdóttir og Auður Ósk
Hlynsdóttir.
Náttúrufræðibraut: Bylgja Dögg
Sigmarsdóttir, Elísa Viðarsdóttir,
Herdís Gunnarsdóttir, Kristín Ema
Sigurlásdóttir, Thelma Rut Gríms-
dóttir og Þórhildur Ólafsdóttir.
Viðbótarnám til stúdentsprófs af
starfsnámsbrautum: Páll Magnús
Guðjónsson og Ragnar Smári
Ragnarsson.