Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Qupperneq 4
4
Fréííir / himmtudagur 26. maí 2U11
Úr bloggheimum:
Jói Listó bloggar um Löngulág:
Vondar
hugmyndir!
Það virðist í alvöru
búið að ákveða að
leggja niður malar-
völlinn í Löngulág.
Þótt fyrr hefði
verið segi ég nú
bara.
Það að.völlur-
inn, hverfið og svæðið sé skipulagt
upp á nýtt, opnast ótal möguleikar
til að bæta og laga en ekkert af því
birtist í skelfilegum tillögum sem
ég var að sjá áðan inni á
eyjafrettir.is .
T.d. á ekkert að taka á bflastæða-
vanda við kirkjuna. Það á ekkert að
taka niður norðurenda malarvallar
og hitaveitulagnir sem þrengja sér
eins og þrálátar bólgur inn á
Kirkjuveginn. í þessum dæmalausu
tillögum em teiknaðar óútskýrðar
viðbyggingar við Höllina sem líta
út eins og illkynja æxli (eins og
bíslagið í Krisnihaldi undir jökli).
Það er gott og sjálfsagt að fram
komi sem fjölbreytilegastar
hugmyndir um þetta svæði, en að
það verði 'reynt að vanda til verka
við úrvinnsluna.
Ekki bjóða upp á 4x sama
hryllinginn.
http://listo. 123.is/home/
Valmundur Valmundsson bloggar
um sjóinn:
Kominn heim
Jæja þá er maður
kominn heim úr
„sumarfríinu". Var
á Benidorm með
minni spúsu í góðu
yfirlæti í hálfan
mánuð. Konan
bauð í tilefni
fimmtugsafmælis míns og við
höfðum það mjög gott.
En að öðru, nú er dimmt um að
litast á Fróni. Hér í Eyjum er
öskufjúk og sólin nær varla að
gægjast í gegn. Allir á sjó nema
Brynjólfur og Gullberg sem lönd-
uðu í morgun. Varla hægt að landa
fyrir öskunni sem smýgur alls
staðar og m.a. í fiskikörin. En
almennt er ágætis fiskirí að sögn
kunnugra.
http://www. valmundur. blog. is
Ægir Óskar Hallgrímsson bloggar
um skuldir Bandarík jamanna:
Geta sjálfum
sér um kennt!
:
•V * Jé
Ég hef enga samúð
með Bandaríkja-
mönnum. Þetta
stórveldi viðskipta-
heimsins, er ger-
samlega búið að
spila botninn úr
buxunum. Bandaríkin voru fyrir 40
árum eitt mesta iðnveldi heimsins,
bflaiðnaðurinn, fjármálamarkaður-
inn og svo mætti lengi telja. En
hvað svo. Svo kemur græðgin en
heimskan einnig. Ákveða að flytja
mörg góð fyrirtæki frá Banda-
ríkjunum í þeirri von að hagnaður
fyrirtækisins muni glæðast, sem
hann hefur gert, ekki spuming en
eftir situr bandarískur almenningur.
Alltaf fleiri og fleiri án vinnu.
Svona hefur þetta gengið og efna-
hagur landsins átti að hanga á fjár-
málamarkaði. Heilu borgimar em
að leggjast í eyði og eina ráðið að
mínu viti er að efla framleiðslu-
fyrirtæki og þannig myndu hjól
efnahagslífsins snarbatna.
En þessar tölur em ekkert að
koma upp núna. Þetta er búið að
vera svona viðvarandi í mörg ár,
vextir þeir lægstu, í þeirri von um
að efnahagur landsins skáni. En
„no cigar“.
http.V/nautabaninn. blog. is
Eyjamaðar vikunnar:
Ekki missa af tveimur
megaheitum spila á flautu
Á 100 ára afmælistónleikum Kórs
Landakirkju komu fram nokkrir
tónlistarmenn í Eyjum. Einn
þeirra, Herdfs Gunnarsdóttir lék
afskaplega vel á þverflautu en hún
hefur leikið á það ágæta hljóðfæri í
um 11 ár. Herdís er Eyjamaður
vikunnar.
Nafn: Herdís Gunnarsdóttir.
Fæðingardagur: 4. september
1991.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Gunnar Darri og Svava
em faðir minn og móðir. Svo á ég
tvo bræður þá Sæþór og Darra, eina
gelgjusystur sem heitir Jóhanna
Svava og hund sem heitir Eyja.
Draumabfllinn: Verð að segja
Honda héma, annars hlýt ég verra
af frá föður mínum. Finnst Honda
Accord og Civic Typer flottastir.
Uppáhaldsmatur: Bleikar fiski-
bollur í dós og píta.
Versti matur: Fiskur, get hann
ekki.
Uppáhalds vefsíða: Fótbolti.net og
svo auðvitað facebook.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Hlusta mest á Muse,
Rihanna, Dikta, Hurts, Coldplay,
Radiohead, Black Eyed Peace og
Florence and the Machine annars
hlusta ég á nánast allt.
Aðaláhugamál: Ferðast, tónlist,
fótbolti og ræktin.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Uff, engan sérstakan, bara einhvem
heitan fola.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Á íslandi er það klárlega
Eyjamaður vikunnar er Herdís
Gunnarsdóttir.
Vestmannaeyjar, sérstaklega yfir
sumartímann. Svo þegar ég var í
Indlandi sá ég marga mjög fallega
staði. Einnig var mjög fallegt að
horfa á sólsetrið við Viktoríuvatn
úti í Afríku.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: ÍBV. Ég á engan
sérstakan uppáhalds íþróttamann,
en af því að ég sagði að systir mín
væri gelgja héma rétt fyrir ofan þá
ætla ég að sleikja hana upp með því
að segja að hún, Jóhanna Svava
Gunnarsdóttir sé uppáhalds íþrótta-
maðurinn minn.
Ertu hjátrúarfull: Já, ég get verið
það.
Stundar þú einhverja íþrótt: Ég
var í fótbolta en er núna bara í
ræktinni að æfa sjálf. En aldrei að
vita nema maður byrji aftur í
boltanum í haust ef ég flyt í bæinn.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Desperate Housewives, 90210, the
Vampire Diaries og Friends.
Hvenær byrjaðir þú að spila á
þverflautu: Ég byrjaði árið 2000,
9 ára gömul.
Af hverju valdir þú þverflaut-
una: Mig langaði svo rosalega
mikið til þess að æfa á eitthvert
hljóðfæri og mömmu þótti og þykir
þverflautur svo heillandi og langaði
að æfa sjálf. Pabbi gaf henni því
flautu í afmælisgjöf sem hún svo
spilaði aldrei á. Þannig fékk ég
flautuna og byrjaði að æfa á hana
og nota ég sömu flautu í dag.
Spilar þú á önnur hljóðfæri: Nei,
get samt glamrað eitthvað á píanó,
en mig dreymir um að læra á gítar.
Stefnir þú á frekara nám í tón-
listinni: Ég gæti vel hugsað mér
það, já. Væri ekki leiðinlegt að fara
út að læra meira í stórum tónlistar-
skóla.
Er gaman að vera í Lúðrasveit
yestmannaeyja: Já mjög gaman.
Ásamt því að spila er ég mikið í
því að siða þær Sóley, Omu Hlín
og Jóhönnu Svövu til. Finnst að ég
ætti að fá laun fyrir það!
Eitthvað að lokum: Langar að
koma því á framfæri að við Védís
ætlum að halda flotta tónleika
saman núna á næstunni. Eitthvað
sem fólk ætti ekki að láta framhjá
sér fara, tvær megaheitar að spila á
flautu. Auglýsum það betur síðar :)
Matgazðingur vikunnar:
Saltfiskrénur ffyrir Brynjólf
Það var aldeilis gaman aðfá þessa
útnefningu frá Brynjólfi syni okkar.
Sem bamfékk hann gjarnan
skyndilega magakveisu þegar von
var á saltfiski í matinn og í tilefni
af því viljum við birta þessa
dýrindis saltfiskuppskrift sem við
fengum frá góðri konu í Þorláks-
höfn. Þar á eftir kemur döðlu-
brauðið hans Sœvars sem er vin-
sœlt ífjölskylduntii þó það hafi að
vísu ekki náð sömu hœðum hjá
barnabörnunum og „afasósan",
sem enn um sinn verður fjölskyldu-
leyndarmál. Við Ijúkum svo
máltíðinni með yndislegri Pavlovu
sem hentar vel við öll tœkifœri.
Saltfiskréttcir
Ca. 1200 g útvatnaður saltfiskur
soðinn
10 stk. soðnar kartöflur
2 laukar
2 öskjur hvítlauksostur
2 ds. tómatpurre
6 hvítlauksgeirar
rifinn ostur
nokkrar olífur
smá tómatsósa
smá olía
Saltfiskurinn og laukurinn steikt í
olíu, kryddað með hvítlaukskryddi.
Sett í eldfast mót. Kartöfumar
brytjaðar og settar ofan.
Hvítlauksosturinn bræddur í potti
ásamt tómatpurre og góðri skvettu
af tómatsósu og því svo hellt yfir
fiskinn. Hvítlaukurinn og ólífumar
saxaðar og stráð yfir ásamt rifna
ostinum. Að endingu er smá skvetta
af góðri olíu. Látið malla í ofninum
við ca 200° þangað til osturinn er
orðinn vel bráðinn.
Döðlubrauð Sarvars
3 dl. volgt vatn (ca. 37°)
1 dl döðlur (smátt saxaðar)
3 dl haframjöl
7 dl hveiti
1 msk. þurrger
1 1/2 tsk. salt
1/2-1 stk. banani, saxaður
Við emm svo heppin að eiga
brauðvél og látum hana um að
hnoða deigið. Síðan er það tekið úr,
sett á bökunarplötu, mótað brauð
og látið hefa sig í 30 mín. Ef
brauðvélinni er ekki fyrir að fara er
ekki um annað að ræða en bretta
upp ermar og hnoða. Brauðið
bakað við 180°C í 45 mín. Upplagt
er að stinga banönum sem em
famir að dökkna í frystinn og
geyma þangað til næst er bakað.
Pavlova sem getur ekki
klikkað
3 eggjahvítur
150 gr. flórsykur
1 tsk. edik
1 tsk vanilludropar (má sleppa)
ávextir og rjómi
Stífþeytið eggjahvítumar og bætið
sykrinum smátt og smátt út í og
ediki síðast. Flottast er að teikna
hring á smjörpappír og smyrja
deiginu á hann og gera holu í
miðjuna. Hita ofninn í 220°setja
plötuna inn í hann og minnka
hitann um leið niður í 140°. Bakað
í 1 1/2 klst. Kakan kæld alveg áður
en ávextir og rjómi em settir í hol-
una. Jarðarber em mjög góð og
niðursoðnar apríkósur em vinsæl-
astar heima hjá okkur.
Eftir mikla yfirlegu ákváðum við að
gefa boltann aftur á ungviðið og
skora á fjölskylduvininn Þórlind
Kjartansson, en við höfum heyrt af
kraftaverkum hans í eldhúsinu.
Hann á náttúrulega ekki langt að
sœkja slíktfrá foreldrum sínum
séra Kjartani Emi og Katrínu. Við
biðjum að lokum að heilsa öllum
góðu vinum okkar í Eyjum.
Kirkjur bazjarins:
Landakirkja
Fimmtudagur 26. maí
Kl. 10.00. Foreldramorgunn. Kaffi
og spjall.
Laugardagur 28. maí
Kl. 14.00. Útför Heimis
Guðmundssonar.
Sunnudagur 29. maí
Fimmti sunnudagur eftir páska
Kl. 11.00. Guðsþjónusta á fimmta
sunnudegi eftir páska. Kór
Flensborgarskólans í Hafnarfirði
syngur undir stjóm Hrafnhildar
Blomsterberg. Sr. Guðmundur Öm
prédikar og þjónar fyrir altari.
Kaffisopi í Safnaðarheimilinu eftir
guðsþjónustuna.
Kl. 20.00. Fundur hjá æskulýðs-
félaginu.
Miðvikudagur 1. júní
Kl. 20.00. Fundur hjá Aglow í
Safnaðarheimilinu.
Ath! Fimmtudaginn 2. júní, upp-
stigningardag, er dagur eldri borg-
ara í kirkjunni, þá er guðsþjónusta
kl. 14.00 þar sem Kór Félags eldri
borgara í Vestmannaeyjum sér um
sönginn, og kaffi í boði Kvenfélags
Landakirkju eftir guðsþjónustu.
Viðtalstímar prestanna eru
mánudaga til föstudaga milli 11.00
og 12.00.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 26. maí
Kl. 20:00 Bænastund, biðjum og
lofum Guð.
Sunnudagur 29. maí
Kl. 13:00 Samkoma, ræðumaður
Daníel Steingrímsson.
Verið hjartanlega velkomin.
Aðventkirkjan
Laugardaginn 28. maí
Kl. 11:00 Samkoman hefst með
Biblíufræðslu fyrir böm og fullorð-
na. Bama og ungmennastarf í
höndum Ericu Do Carmo. Einnig
verður biblíufræðsla fyrir fullorðna.
Efnið er aðgengilegt öllum á vef
kirkjunnar á www.adventistar.is
undir fræðsluefni/Biblíulexia.
Guðsþjónusta kl. 12.00. Jens og
Sonja Danielsen prédika. Allir
hjartanlega velkomnir.
Sími hjá safnaðarpresti er 8662800,
netfang thora@adventistar.is