Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Blaðsíða 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2011
Á fundi sjálfstæðismanna, Hörður Óskarsson fundarstjóri, Bjarni og Ólöf. Róbert í ræðustól hjá Samfylkingu, Guðrún Erlingsdóttir fundarstjóri, Sigríður Ingibjörg og Oddný.
Sj^Jfstæðisflokkur og Samfylking funduðu í Eyjum - Misjöfn skilaboð um stjórn fískveiða:
Ovissa um afleiðingarnar
Pólitísk afskipti hafa alltaf skaðað Vestmannaeyjar - Strandveiðar verða óseðjandi hít
Það var athyglisvert að mæta á tvo
fundi um stjómmál í síðustu viku
þar sem virkilega var verið að fjalla
um fjöregg Vestmannaeyja, fyrir-
komulag á stjóm fiskveiða. Ástæðan
er að nú liggja fyrir Alþingi tvö
fmmvörp frá ríkisstjóminni þar sem
boðuð er algjör uppstokkun á kerf-
inu.
Fyrst vom það sjálfstæðismenn
sem blésu til fundar í Ásgarði á
miðvikudagskvöldið þar sem for-
maður, Bjarni Benediktsson og
varaformaður, Ólöf Nordal, vom
mætt til að segja frá sinni skoðun á
málinu. Þau vilja halda í kerfið og
féll það í góðan jarðveg hjá fund-
argestum.
Fundur Samfylkingarinnar hafði
verið boðaður með nokkmm fyrir-
vara þannig að hann tengdist því
ekki að fmmvörpin voru á leiðinni.
En þau lentu í háfnum, Róbert
Marshall, Oddný Harðardóttir, þing-
menn Samfylkingarinnar í Suður-
kjördæmi og Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, þingmaður í Reykjavík
suður sem mætti í .forföllum Björg-
vins G. Sigurðssonar. Var ljóst að
boðskapur þeirra átti ekki upp á
pallborðið hjá þorra fundarmanna
sem höfðu lítinn sem engan áhuga á
öðru en því er laut að stjórn
fiskveiða.
Vilja sem næst óbreytt kerfi
Gestir á fundinum í Ásgarði vom
um 60 og fengu að heyra það sem
þeir vildu, stuðning við núverandi
fyrirkomulag á stjóm fiskveiða, þ.e.
að kvótakerfið verði í meginatriðum
óbreytt. Það hafi skilað þjóðinni
þeirri hagræðingu sem ætlast var til
og hagnaðurinn rynni til þjóðarinnar
í formi skatta og aflagjalds.
Þessu vom fundarmenn nokkuð
sammála og töldu að leið stjómar-
innar skaðaði hagsmuni Vestmanna-
eyja. Bjarni vakti athygli á því
svartholi sem opnað hefði verið með
strandveiðunum. Þær væm óseðj-
andi hít því krafan um meiri kvóta
yrði alltaf til staðar og það gerðist
ekki öðm vísi en tekið væri af
öðrum þar sem Vestmannaeyjar
liggja vel við höggi.
Sama gildir um pólitísku pottana
og hærra aflagjald er beinn skattur á
verstöðina Vestmannaeyjar. Þessu
em sjálfstæðismenn tilbúnir að berj-
ast á móti. Það vom skilaboð for-
manns og varaformanns og í anda
flokksins að pólitísk afskipti séu
sem minnst.
Áttu á brattann að sækja
Um 40 mættu á fund Samfylking-
arinnar í Alþýðuhúsinu á fimmtu-
dagskvöldið. Það var á brattann að
sækja hjá Róbert, Oddnýju og
Sigríði Ingibjörgu. Róbert kom að
gerð frumvarpanna, minna og stærra
fmmvarpinu eins og þau em yfirleitt
kölluð.
Því minna er ætlað m.a. að festa
strandveiðar í sessi en í því stóra er
gert ráð fyrir að innkalla allar veiði-
heimildir og gera síðan nýtingar-
samninga við útgerðarmenn til
fimmtán ára. Þá er gert ráð fyrir að
ákveðinn hluti fari í potta eins og
byggðakvóta.
Framsal varanlegra aflaheimilda
verður aflagt í áföngum næstu 15
árin og leiga á kvóta innan ársins
verður þrengd. Enn er ekki búið að
reikna út hver raunvemleg áhrif
verða.
Það verður að segjast eins og er að
það var fátt um svör hjá þeim
þremur þegar þau vom spurð um
áhrif breytinganna á t.d. Vestmanna-
eyjar. Róbert sagði að hægt væri að
toga og teygja pottana til og frá, allt
eftir því hvaða flokkar fæm með
stjóm landsins. Um strandveiðar
sagði hann að þær væm ekki til að
hafa áhyggjur af, enda ekki nema
þrjú prósent af heildarúthlutun í
bolfiski. Oddný, sem kemur úr
Garðinum, sagði að fmmvarpið full-
nægði sinni réttlætiskennd.
Samkeppnishæfni í hættu?
Meðal þess sem velt var upp á fund-
inum var að með því að rústa
núverandi kerfi í stjóm fiskveiða
væri verið að skaða samkeppnis-
hæfni íslands á mörkuðum og nú
biðu Norðmenn þess að komast inn
í gatið sem myndast við það.
Líka var bent á að aflaheimildir,
sem settar em inn í strandveiðar,
minnki atvinnu sjómanna í Vest-
mannaeyjum.
Ef hægt er að draga einhveija
ályktun af fundinum er að þá fara
fmmvörpin aldrei óbreytt í gegn.
Róbert kallaði eftir samræðu hags-
munaaðila og stjómvalda og sagði
að ekki mætti stilla þessu upp sem
átökum milli landsbyggðar og
höfuðborgar.
Sem er athyglisvert í ljósi þess að
gert er ráð fyrir að 30 prósent fimm
milljarða aflagjalds renni aftur til
sjávarbyggða. Þá em eftir 70 pró-
sent sem fara eitthvað annað.
Bent var á að aflagjaldið lækkaði
laun sjómanna og um leið skatta
þannig að þegar upp er staðið hefði
ríkið lítið upp úr krafsinu. Þetta
með samráðið fór fyrir lítið þegar
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
Binni í Vinnslustöðinni, sakaði
stjómvöld um óvönduð vinnubrögð.
Lagði hann fram tölur um áhrif
breytinganna á sjávarútveg og sagði
að það hvemig staðið er að gerð
laganna minnti um margt á það sem
gerðist fyrir hmnið 2008.
Róbert brást reiður við og sagði að
hvorki Binni eða LÍÚ komi til með
að setja lög í landinu. Barði í borðið
svo glumdi í. Binni sagði það auð-
vitað rétt, sjálfur fengi hann hundr-
að hugmyndir en sér dytti ekki í hug
að setja þær fram fyrr en hann væri
búinn að reikna út og skoða hvort
þær gengju upp eða ekki.
Felst vonin í Sjálfstæðis-
flokknum?
Þegar þessir tveir fundir em bomir
saman er ljóst að stefna Sjálfstæðis-
flokksins í stjórn fiskveiða fer
saman með hagsmunum Vestmanna-
eyja. Um það er ekki deilt að þjóðin
á fiskinn í sjónum en pólitísk af-
skipti af fiskveiðistjóm hafa aldrei
leitt til góðs fyrir Eyjamenn. Auð-
vitað var það grimm aðgerð þegar
fiskur var settur í kvóta og það vissu
allir sem vildu vita að einhver
sveitarfélög yrðu undir þegar sjáv-
arútvegi var ætlað að sjá sjálfur um
hagræðingu í greininni án styrkja og
ríkisafskipta.
Eins og áður hefur verið bent á í
Fréttum máttu Vestmannaeyjar þola
m.a. fækkun íbúa, lækkun fasteigna-
verðs þegar störfum fækkaði um
400 til 500 í sjávarútvegi vegna hag-
ræðingar, tækninýjunga og stærri og
afkastameiri skipa. Þetta gerðist
þrátt fyrir að útgerðarmenn í Eyjum
vom sem næst einhuga í að halda
aflaheimildum í heimabyggð. Þá
hafði enginn stjómmálamaður
samúð með því sem hér var að
gerast, ekki frekar en þegar smærri
pláss fyrir vestan og austan urðu
fyrir þungum höggum þegar kvótinn
var seldur annað.
Ófyrirséðar afleiðingar fyrir
Vestmannaeyjar
Nú hefur ríkisstjómin ákveðið að
fara leið sem á eftir að hafa ófyrir-
séðar afleiðingar fyrir Vestmanna-
eyjar með því að taka héðan kvóta
og flytja annað. Bæjarstjóm er að
láta reikna út hver áhrifin verða
fyrir okkur hér, en ef héðan verða
teknar þúsundir tonna af bolfiski,
tugir þúsunda tonna í sfld, loðnu og
makrfl, veiðigjald fer í 5 milljarða
verður niðurstaðan færri störf til
sjós og í landi og lægri laun og lík-
lega fækkun íbúa. Því það er alveg
sama hvað hver segir, Vestmanna-
eyjar standa og falla með því sem
aflast og hvað fæst fyrir afla og
afurðir.
Alið á hatri gegn einni stétt
Frammi fyrir þessum staðreyndum
stöndum við og alvaran er slík að
hefja verður umræðuna yfir allt sem
heitir heitir pólitfk. Að sjálfsögðu
hljóta áherslur að vera misjafnar og
það á enginn að velkjast í vafa um
að við öll eigum fisldnn í sjónum.
Við eigum líka heita vatnið sem
Orkuveita Reykjavíkur nýtir til góðs
fyrir Reykvfldnga. Sama gildir um
heita vatnið sem fylgdi með í kaup-
unum þegar ríkisstjómin lét það
líðast að útlendingar keyptu HS-
orku.
Vandamálið er að það er búið að ala
MIKILL hiti var í mönnum á fundinum hjá Samfylkingunni.
á slflcu hatri í þjóðfélaginu á út-
gerðarmönnum og LIÚ og því
haldið fram að þeir einir séu á móti
breytingum á fiskveiðstjóminni. Þar
gengur forsætisráðherra fremst í
flokki og veifar því að meirihluti
þjóðarinnar sé henni sammála.
Reyndin er að allir í útgerð sem og
sjómenn, nema strandveiðimenn,
em á móti hugmyndum ríkisstjóm-
arinnar.
RÚV er í takt við rfldsstjómina og
hefur fundið sinn eðalsjómann, sem
stundar strandveiðar og heimtar
meiri kvóta, sennilega til að selja
eins og hann hefur gert áður fyrir
hundmð milljóna.
Eftir sitja sjómenn, sem hafa sjó-
mennsku að aðalstarfi, með sárt
ennið og lægri laun.
En von þeirra og annarra sem eiga
allt sitt undir sjávarútvegi er að ekki
einu sinni Samfylkingin hefur trú á
að fmmvörp sjávarútvegsráðherra
fari í gegn. I það minnsta óbreytt
eins og kom fram á fundi Samfylk-
ingarinnar.
Omar Garðarsson.
ÍSLENSKA
gAmafélagið
- ÍBÚAFUNDUR -
Breytingar á sorphirðu í Vestmannaeyjabæ
Fimmtudaginn 26. maí kl: 20:00
í Höllinni við Löngulág.
Efni fundarins:
Kynning á breytingum á sorphirðu í
Vestmannaeyjabæ þar sem markmiðið er
að auka endurvinnslu og þjónustu við
íbúa.
Www.flokkarinn.is—fræðslusíða um endurvinnslumál
Með kveðju frá Vestmannaeyjabæ og
íslenska Gámafélaginu
*Við hugsum áður en við
hendum...
1