Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Side 11

Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Side 11
Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2011 11 Ungur grænmetissölumaður við landamæri Zimbabwe og Mosambique. BÖRN að leik við Malavívatn. BÚDDISTI í Katmandu, höfuðborg Nepai, stillir sér upp fyrir nokkrar rúpíur. STEINÞYRPINGIN „Devil’s Marbels“ í miðri Ástralíu er helgur staður fyrir innfædda og ágætur náttstaður fyrir ferðalanga. „Eftirminnilegast er líklega að vera ferðamaður í Yemen þegar allt var á suðupunkti í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum. Það kostaði líka mikla þrautseigju að komast þangað, því dagana á undan var mér vísað frá, bæði Eþíópíu og Djibouti og á annan sólarhring bjó ég á gólfinu á flugstöðinni í Addis Ababa, meðan vegabréfið mitt var týnt í kerfinu. Það var einnig eftirminnilegt að koma til Tíbet, eftir að hafa verið þar fimm árum fyrr, og sjá hversu miklar breyting- ar hafa orðið og hversu her og lögregla er áberandi á annars friðsælum götum þar.“ Var einhver staður sem þér fannst skemmtilegri en annar? Var einhver sem var t.d. hættu- legri en annar? Lentir þú í háska eða í aðstæðum sem þér fannst ekki 100% öruggar eða var þetta nokkuð örugg ferð? „Eg veit ekki hvort skemmtilegt er rétta orðið. Margar borgir og staðir í Afríku eru sérstaklega hættulegir og í raun ekkert vit að vera þar á ferðinni. Og staðir eins og Pakist- an og Yemen em ekkert lamb að leika sér við þegar hiti hleypur í menn, en það hefur kannski ákveðið skemmtanagildi að verða vitni að slíkum hlutum. Það má lágmarka áhættu stórkostlega með því að vera skynsamur og fylgja ákveðnum grunnreglum. Eg gerði það í hvívetna. Það hitnaði aðeins undir mér í Malaví, þegar ég vakn- aði um miðja nótt við að lítill hópur manna gerði sig tilbúnn að koma inn á hótelherbergi til mín, en fældust þegar ég öskraði á þá gegnum hurðina. Það var líka vel heitt í Lahore í Pakistan, þar sem fánar vestrænna þjóða voru brennd- ir á götum, en ég var svo „heppinn" að vera með niðurgang, læsti mig því inni á hótelherbergi og flúði svo yfir til Indands um leið og það sljákkaði í mannskapnum." Býsna geðveikur heimur Sighvatur segir að foreldramir hafi tekið þessu brölti hans af æðruleysi enda hafi það verið þeim að „kenna“ að hann hafi leiðst út í svona vitleysu, eins og hann orðar það sjálfur. „En á móti kemur að ég hét því að fara varlega, auk þess er mikill munur hvort maður er á þrítugs- eða fertugsaldri í slíkri ferð. Eg myndi ekki hrópa húrra fyrir því að mjög ungir menn færu í svona ferð.“ Varstu ekkert þreyttur á þessu ferðalagí? „Það komu jú tímar sem ég var orðinn nokkuð framlágur en heilt á litið leið þetta nokkuð vel. Það vann í raun á að hafa nóg fyrir stafni í video- og söfnunarmálum og tíminn leið hratt og örugglega. Ég passaði mig sérstaklega á að horfa passlega langt fram í tímann og taka þetta í jrrepum, hver heims- álfa fyrir sig. Á endanum var ég sæll og þreyttur, tilbúinn að halda heim, en ekki aðframkominn." Eins og gefur að skilja var umhverfið ansi frábrugðið því sem Sighvatur þekkir hér á Islandi. „Það er efni í mikla doðranta að fara yfir menningarmun landa. Ferðin lá að stórum hluta í gegnum lönd þriðja heimsins og fátæktin víða um heim er gríðarlega mikil. Ég hef lýst þessu þannig að ég telji að sú pólitíska, réttsýna hugs- un að „fólk sé fólk“, sé í raun tál- sýn og það eina sem sameini stóran hluta mannkyns sé í raun erfða- efnið. Hugarheimur vestrænna og austrænna er í grunninn gjörólíkur og í raun fátt sem sameinar, nema sameiginlegir viðskiptalegir hags- munir. Heimurinn getur frómt frá sagt verið býsna geðveikur.“ Skemmtilegast að kynn- ast heiminum Hvað myndir þú segja að hefði verið erfiðast við ferðalagið? „Að halda dampi í því að halda prógramminu gangandi, þ.e. að vera í sífellu að taka upp mynd- bönd en á sama tíma að skipuleggja næstu skref, þ.e. hvert á að fara, hvar á að sofa og sjá í raun aldrei meira en sólarhring fram í tímann í þeim efnum. Ætli óvissan sé ekki andlega erfiðust, en auðvelt hjá að komast að mestu með öguðum vinnubrögðum og réttu hugarfari." En auðveldast og skemmtilegast? „Auðveldust voru ferðalögin sjálf. Dögum saman hafði ég ekkert annað að gera en að sitja í lestum og rútum, stundum dögum saman, sem gat verið hin besta afslöppun og í rauninni þrælauðvelt. Skemmtilegast var að kynnast heiminum í hnotskum og finna hvernig hver hugmyndamúrinn á fætur öðrum féll í valinn fyrir raun- vörulegri reynslu. Videogerðin var einnig mjög skemmtileg, þrátt fyrir að vera krefjandi." Sumarhúsið verður byggt Sighvatur segir að ekki liggi fyrir hversu mikið fé hafi safnast í ferð- inni, símafyrirtækin eigi enn eftir að taka það saman en hann hafi þó upplýsingar að upphæðin hlaupi á einhveijum milljónum króna. Umhyggja kemur til með að njóta góðs af söfnuninni en Sighvatur segist hafa fundið fyrir miklum áhuga fyrir ferðinni og málefninu á ferðalagi sfnu. „Mjög svo. Ég fylgdist vel með áhorfstölum, sem fóm langt fram úr væntingum. Það er augljóst að margir höfðu áhuga bæði fyrir verkefninu og málefninu. Margir spyrja út í ferðina og allir vilja heyra að minnsta kosti eina krassandi sögu.“ Verður hægt að byggja sumarhús fyrir langveik börn eins og stefnt var að? „Já, það verður hægt. Stjóm Um- hyggju hefur upplýst mig um að fyrstu skrefm séu framundan og að verkefnið muni fara af stað fljót- lega,“ sagði Sighvatur að lokum. Júlíus Ingason. HENGIRÚMASAMFÉLAG um borð í fljótabáti er siglir niður Amazon. Kannski eitthvað sem ætti að taka upp um borð í Herjólfi? JAMEN leiðsögumaður í Sana, höfuðborg Jemen, segir farir sínar ekki sléttar eftir að lætin hófust í heims- hlutanum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.