Fréttir - Eyjafréttir - 26.05.2011, Side 15
Fréttir / Fimmtudagur 26. maí 2011
15
Kristinn Skúlason, framkvæmdastjóri Krónunnar:
Stærri verslun og meira vöruúrval
Á dögunum opnaði Krónan nýja og
endurbætta verslun við Strandveg.
Verslunarrýmið var stækkað talsvert
og lagað, m.a. sett ný lýsing, nýir
kælar og nýtt gólfefni enda er
talsverður munur á búðinni. Þá var
Kristleifur Guðmundsson ráðinn nýr
verslunarstjóri Krónunnar í Eyjum.
Kristinn Skúlason, framkvæmda-
stjóri Krónunnar, var í Eyjum í
síðustu viku til að skoða búðina og
hann sagði í samtali við Fréttir að
breytingin væri gerð til að samræma
útlit hennar við verslanir Krónunnar
annars staðar.
„Markmiðið er að endumýja sem
flestar búðir sem em gamlar en í
notkun ennþá. Við erum með
ákveðið útlit í Krónuverslununum í
Reykjavík, bjart rými og ferskt útlit
og það er það sem við emm að sjá
hér. Þetta er svona okkar útlit. Auk
þess stækkuðum við verslunarrýmið
um 100 fermetra og okkur veitti
ekkert af því. Verslunin var full lítil
áður.“
Kristinn segir ennfremur að breyt-
ingamar séu ekki eingöngu á útliti,
heldur finni viðskiptavinir einnig
breytingu á vöraúrvali. „Við fjölg-
um vöruflokkum, gemm meira fyrir
ferskvömna þannig að ávextir og
grænmeti fá meira vægi, kjötdeildin
stækkar og mjólkurkælir er tvöfallt
stærri en áður. Síðan emm við að
auka lífrænar og vistvænar vörur.“
Krónan hefur rekið verslunina í
Eyjum í nokkur ár og Kristinn segir
að reksturinn hér sé ekki eins hag-
kvæmur og annars staðar. „Það hef-
ur ekki gengið sérstaklega vel
rekstrarlega því flutningskostnaður
er mikill en við emm með sama verð
hér og í öðmm Krónuverslunum.
Þannig að við emm að fá minna út
úr versluninni en annars staðar. Svo
var rýmið of lítið og óhagkvæmt en
við horfum talsvert á breyttar sam-
göngur og aukna umferð til Eyja í
sumar,“ sagði Kristinn en Krónan
rekur tólf verslanir, þar af átta á
höfuðborgarsvæðinu. „Auk þess
emm við með verslun á Akranesi,
Selfossi, Vestmannaeyjum og Reyð-
arfirði," sagði Kristinn og vildi að
lokum þakka Eyjamönnum fyrir
góðar móttökur.
KRISTINN: Það hefur ekki gengið sérstaklega vel rekstrarlega því flutningskostnaður er mikill en við erum
með sama verð hér og í öðrum Krónuverslunum. Kristleifur verslunarstjóri er með honum á myndinni.
Græðlingaklúbbur Kiwanisklubbsins Helgafells Vestmannaeyjum öðlast sjálfstæði:
Eldfell næststærsti klúbburinn í Reykjavík
STJÓRN ELDFELLS: Þeir félagar Eldfells sem komust til Eyja. Frá vinstri: Atli Heiðar Þórsson, Hilmar Adólfsson, Guðjón Magnússon, Jón
Óskar Þórhallsson, Ottó Björgvin Óskarsson, Vignir Eggertsson, Óskar Arason og Smári Guðsteinsson.
Á dögunum var nýr Kiwanisklúbb-
ur, Eldfell í Reykjavík, stofnaður
með formlegum hætti. Meðlimir
klúbbsins hafa í vetur verið í svo-
kölluðum græðlingaklúbbi Kiwanis-
klúbbsins Helgafells í Vestmanna-
eyjum en hafa nú náð lágmarks-
fjölda til að gerast sjálfstæður
klúbbur. Reyndar er fjöldi meðlima
svo mikill að Kiwanisklúbburinn
Eldfell er næststærsti Kiwanis-
klúbburinn í Reykjavík.
Þetta er í fyrsta sinn í sögu alþjóða
Kiwanishreyfingarinnar sem græð-
lingaklúbbur verður fullgildur
klúbbur og auðvitað koma Eyja-
menn við sögu þar.
Langstærsti hluti þeirra sem em
félagar í Eldfelli, em brottfluttir
Eyjamenn en forsprakkinn að stofn-
un klúbbsins er Jón Óskar Þórhalls-
son, sem áður var í Helgafelli. Jón
Óskar er einmitt fyrsti forseti hins
nýja klúbbs og tók formlega við
embættinu við hátíðlega athöfn í
Kiwanishúsinu í Eyjum á dögunum.
Umdæmisstjóri Kiwanishreyftngar-
innar á íslandi og í Færeyjum, Óskar
Guðjónsson, sá um athöfnina ásamt
svæðisstjóra Sögusvæðis, Gísla
Valtýssyni.
Jón Óskar segir að enn sé hægt að
bæta við meðlimum í Kiwanis-
klúbbinn Eldfell í Reykjavík en
þeim sem hafi áhuga er bent á að
hafa samband við Jón Óskar með
tölvupósti á jonoskar69@gmail.
com eða í síma 866-5755.
Stjóm Eldfells skipa Jón Óskar
Þórhallsson, forseti, Atli Heiðar
Þórsson, kjörforseti, Óskar Arason,
ritari, Birgir Stefánsson, féhirðir,
Baldvin Elíasson, meðstjórnandi,
Gísli Erlingsson, meðstjórnandi,
Valgeir Steindórsson, meðstjórn-
andi.
VINNSLUSTÖÐVARKAFFI Vinnslustöðin hefur í mörg ár boðið starfsfóiki og velunnurum til kaffisamsætis á vormánuðum. Þetta hefur mælst vel fyrir og hefur skapast sú venja að
veita eldri starfsmönnum viðurkenningu. Hér má sjá Þór f. Vilhjálmsson, starfsmannastjóra og Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson afhenda Óskari Valtýssyni og Ólafi Sigurvinssyni
viðurkenningar frá félaginu en þeir urðu sextugir á árinu. Óðinn, Guðjón, Eyjólfur, Ágústa og Hulda nutu góðra veitinga. Myndir: ísleifur Arnar.