Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 2
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Sara, áttirðu von á að verða útnefnd leikkona ársnis? „Ég ólst upp rétt hjá Árnesi, kannski hefur það eitthvað með það að gera.“ Sara Dögg Ásgeirsdóttir, útnefnd leikkona ársins í aðalhlutverki á Edduhátíðinni, er annar tveggja verðlaunahafa sem fengu Eddustyttu með misrituninni „ársnis“ í stað ársins. DÓMSMÁL Skiptastjóri þrotabús Milestone hefur höfðað mál á hendur embætti Sér- staks saksóknara í því skyni að fá afhent gögn úr rannsóknum tengdum félaginu. Saksóknari hefur neitað að afhenda gögnin, sem skiptastjórinn telur að geti nýst honum við eigin málarekstur. Skiptastjórinn, Grím- ur Sigurðsson, hefur staðið í margvíslegum málaferlum gegn fyrr- verandi stjórnendum Milestone og félögum þeim tengdum. Hann hefur höfðað um tug mála, meðal annars gegn Wernersbörnunum Karli, Steingrími og Ingunni, til að freista þess að fá hinum og þessum gerningum og greiðslum rift. Í þeim málum eru milljarðar króna undir. Til að liðka fyrir sér í rekstri málanna og undirbyggja þau betur fór Grímur fram á það við sérstakan saksóknara að hann fengi afhent öll gögn úr sakamála- rannsóknum sem tengdust Milestone – ekki bara þau sem lagt var hald á í hús- leitum hjá Milestone og þegar hafa verið afhent, heldur einnig afrit af skýrslu- tökum, tölvupóst, samantektir rannsak- enda og hvaðeina annað sem aflað hefur verið við rannsóknirnar. Hann vísaði í 82. grein gjaldþrotalaga, sem kveður meðal annars á um að opin- berum stofnunum sé „skylt að veita skipta- stjóra þær upplýsingar og láta honum í té þau gögn um málefni búsins sem hann krefst“. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak- sóknari, segir að ágreiningurinn standi um það hversu vítt beri að túlka þetta ákvæði. „Við höfum litið svo á að þetta ákvæði í gjaldþrotalögunum eigi ekki við um gögn sakamála,“ segir hann. „Ég held að það sé ágætt að menn fái hreinar línur í þetta og að réttar óvissunni verði eytt, sérstaklega eftir málið sem kom upp varðandi mennina sem voru kærðir hér,“ bætir Ólafur við, með vísan til máls Jóns Óttars Ólafssonar og Guð- mundar Hauks Gunnarssonar, sem voru kærðir fyrir að selja til þrotabús Mile- stone upplýsingar sem þeir öfluðu sér í störfum sínum hjá Sérstökum sak- sóknara. Málið var látið niður falla. Að sögn Ólafs snýr beiðni Gríms að gögnum úr svokölluðu Vafningsmáli, gegn Lárusi Weld- ing og Guðmundi Hjaltasyni, en einnig öðrum málum sem kunna að tengjast Milestone. „Þetta er býsna víðtæk beiðni,“ segir hann. Grímur vill ekki tjá sig um málið. „Það verður bara afgreitt fyrir dómstólum,“ segir hann. stigur@frettabladid.is Skiptastjóri Milestone í mál við saksóknara Sérstakur saksóknari neitar að afhenda skiptastjóra Milestone öll rannsóknargögn sem tengjast fyrirtækinu. Skiptastjórinn telur að þau geti nýst honum í málaferlum gegn Wernersbörnum og öðrum. Hann hefur því stefnt saksóknara fyrir dóm. GRÍMUR SIGURÐSSON Drjúgur hluti málsvarnarinnar í Vafningsmálinu snerist um að Milestone hafi staðið mjög höllum fæti í ársbyrjun 2008 og hafi nauðsynlega þurft tíu milljarða lán frá Glitni til að mæta gjalddaga láns og forðast gjaldþrot. Þetta kom meðal annars fram í vitnis- burði fyrrverandi starfsmanna og stjórnenda félagsins. Helsta röksemd Gríms skiptastjóra í riftunarmálunum er einmitt sú að Milestone hafi verið orðið ógjaldfært í árslok 2007 og ætla má að vitnisburður stjórnenda félagsins og önnur gögn í svipaða veru gætu styrkt málstað hans. Mikilvægir vitnisburðir INDLAND Á Indlandi er ekki óalgeng sjón að sjá fíla úti á götum innan um strætisvagna og aðrar bifreiðar. Tamdir fílar gegna þar margs konar hlutverki, allt frá því að vera notaðir í skrautsýningar til þess að bera þungar byrðar á götum stór- borganna. Auk þúsunda taminna fíla eru nærri 30 þúsund villtir fílar á Ind- landi. Stöðugt er reyndar þrengt að búsvæði þeirra viltu og ólögleg veiði ógnar jafnframt stofninum. Á hinn bóginn ógna villtu fílarnir einnig íbúum í smærri þorpum og dreifbýli. Þeir fara stundum óðir um í hópum og eyðileggja uppskeru og eignir. - gb Tamdir fílar gegna margs konar hlutverki á Indlandi: Kraftmiklir í umferðinni FÍLL Á FERÐ Tveir menn sinna erindum sínum á fílsbaki í höfuðborginni Nýju- Delhi. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Tveir Íslendingar voru í vikunni úrskurðaðir í gæslu- varðhald í Kaupmannahöfn eftir að fimm og hálft kíló af amfeta- míni fundust í geymslurými á aðal- brautarstöð borgarinnar. Alls eru nú tólf Íslendingar í haldi ytra vegna þriggja fíkniefnamála, auk eins Pól- verja sem er búsettur hér á landi. Mennirnir tveir eru á þrítugs- og fimmtugsaldri og eru báðir kunn- ugir lögreglu. Sá eldri er búsettur á Íslandi en sá yngri í Danmörku. Lögregla útilokar ekki að fíkniefnin hafi verið á leið til Íslands. Níu a ð r i r Íslendingar eru í varðhaldi þar ytra vegna smygls á samtals 61 kílói af amfetamíni til Danmerkur og Íslendingur og Pólverji að auki vegna smygls á 40 þúsund e-töflum sem talið er að hafi verið á leið til Íslands. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, sem hefur komið að öllum rannsóknun- um, segir ástandið mjög óvenju- legt. „Íslendingar virðast hafa rekið mjög umfangsmikla brotastarfsemi í gegnum Kaupmannahöfn og við höfum lagt mikið á okkur við að höggva skörð í hana,“ segir hann. Það sé nú að skila árangri. - sh Tólf Íslendingar eru í varðhaldi í Kaupmannahöfn eftir enn eitt smyglmálið: Tveir Íslendingar í viðbót í haldi KARL STEINAR VALSSON LÖGREGLUMÁL Þrír karlar og ein kona milli tvítugs og þrítugs voru handtekin í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina grunuð um akstur undir áhrifum fíkni- efna. Lögregla gerði leit á heimili eins mannsins, en þar voru ummerki um fíkniefnaneyslu. Gerð var upptæk loftskammbyssa. Sýnatökur á lögreglustöð leiddu í ljós að fólkið hafði neytt kanna- bisefna og einn ökumaðurinn kókaíns að auki. - óká Loftskammbyssa upptæk: Óku bíl undir áhrifum efna STJÓRNMÁL Björn Valur Gísla- son þingmaður hyggst bjóða sig fram til varaformanns Vinstri grænna á landsfundi hreyfing- arinnar, sem hefst á morgun og stendur fram á sunnudag. „Allar forsendur eru fyrir því að Vinstri græn nái góðum árangri í komandi kosningum og vil ég leggja mitt að mörkum til þess að svo verði,“ segir í yfir- lýsingu hans frá í gær. Björn Valur lenti í sjöunda sæti í forvali flokksins í Norð- austurkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. - gb Landsfundur um helgina: Björn Valur býður sig fram SAMFÉLAGSMÁL Lokadrög að samningi um ætt- leiðingar milli Íslands og Rússlands hafa verið send til rússneskra yfirvalda. Íslensk ættleiðing gerir því ráð fyrir því að á næstu vikum verði samningur inn undirritaður og ættleiðingar hingað til lands geti hafist. Unnið hefur verið að ættleiðingarsambandi við Rússland í rúm þrjú ár, en þá óskaði stjórn Íslenskrar ættleiðingar eftir því við íslensk stjórn- völd að þau sendu formlega beiðni til Rússa um ættleiðingasamband. Í lok árs 2011 funduðu Sergei Lavrov og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráð- herrar ríkjanna, og þá sagði Lavrov að Rússar væru reiðubúnir til að gera samning. „Mikil vinna hefur verið lögð í það í ráðuneytum innanríkis- og utanríkis á Íslandi að rita samning sem fer vel að lögum beggja landanna,“ segir í frétt á síðu Íslenskrar ættleiðingar, en Elín Henrik sen hefur séð um samninginn fyrir hönd félagsins. Unnið hefur verið að þýðingu og endurritun á samningsdrögum undanfarið og síðastliðinn föstudag voru þau send til Rússlands. „Við höfum ástæðu til að ætla að á næstu vikum fáum við fulltrúa rússneska ríkisins í heimsókn til landsins til að undirrita samninginn.“ - þeb Lokadrög að ættleiðingasamningi voru send til Rússlands fyrir helgina: Ættleitt frá Rússlandi á næstunni BARN Stutt er í að samningur milli Íslands og Rússlands um ættleiðingar verði undirritaður. NORDICPHOTOS/GETTY DANMÖRK Yfirlæknir á geðsjúkra- húsinu Sikringen í Nykøbing á Sjálandi hefur bannað of þungum sjúklingum að borða skyndibita- fæði. Margir sjúklinganna eru of þungir, oft vegna auka verkana lyfja. Yfirlæknirinn Susanne Møller-Madsen segir sjúklingana þyngjast um 10 kg á ári. Á vef Kristilega dagblaðsins er haft eftir fyrrverandi formanni vinnuhóps siðaráðsins um geðsjúk- dóma, Lotte Hvas, að vilji menn banna skyndibitafæði eigi bannið að gilda fyrir alla, ekki bara fyrir þá sem eru of þungir. -ibs Geðsjúkrahús í Danmörku: Of þungir fá ekki skyndibita SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.