Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 28
FÓLK|TÍSKA Hildur Ársæls-dóttir hefur stefnt að því leynt og ljóst í fjölda- mörg ár að starfa innan snyrtivöru- geirans. Hún stundaði nám við snyrtiskól- ann Art of Style í Danmörku, nám í snyrtivörufram- leiðslu hjá FIDM í Los Angeles og lýkur brátt fjarnámi í við- skiptafræði með áherslu á markaðssamskipti frá Háskólanum á Bifröst. Nýlega náði hún merkum áfanga á ferlinum þegar hún var ráðin til snyrti- vörurisans L‘Oréal. „Mig hefur dreymt um að vinna hjá L’Oréal síðan ég var lítil,“ segir Hildur sem er afar kát með nýju stöðuna. En í hverju felst starfið? „Ég er í þjálfun núna í markaðsdeildinni fyrir stöðu „junior product manager“ sem mér verður veitt þegar ég lýk námi mínu í haust,“ svarar Hildur og heldur áfram: „L´Oréal skiptir vörumerkjum sínum niður í fjórar deildir sem eru „Lux- ury product divison“ þar sem merki eins og Helena Rubin- stein, Lancome og YSL eiga heima, „Consumer product division“ þar sem vörumerki eins og Maybelline og Gar- nier eru, „Active cosmetics“ þar sem „apóteks“-merkin eru og svo „Professional product division“ sem ég sit í en þar eru vörumerkin fyrir hárgreiðslu- stofurnar,“ segir Hildur sem er í þriggja manna markaðsteymi sem sér um amerísku vörumerkin Red- ken, Matrix og Pureology. „Starfið felst í því að sjá algjörlega um rekst- urinn á þessum vörumerkjum,“ lýsir Hildur en hennar deild hefur umsjón með Danmörku, Íslandi og Færeyjum. Ljóst er að ekki er hlaupið að því að fá starf hjá L‘Oréal. Hvernig atvik- aðist að Hildur hreppti stöðuna? „Það er reyndar mjög skemmtilegt hvernig þetta gerðist. Eftir að ég lauk námi í Bandaríkjunum síðastliðið vor vildi ég komast aftur til Evrópu. Ég flutti til Parísar, borgar snyrtiiðnaðar- ins, tilbúin að gleypa heiminn. Ég fékk strax viðtal hjá Estée Lauder, þau flugu mig yfir til Kaupmannahafnar í seinna viðtalið og ég var alveg viss um að ég væri með starfið í vasanum, en svo var ekki. Ég var að sjálfsögðu alveg miður mín en lét það ekki á mig fá heldur byrjaði að hanna og þróa mína eigin snyrtivörulínu í samstarfi við snyrti- vöruframleiðanda í París,“ segir Hildur. Fljótlega fékk hún símtal frá „talent sourcing director“ hjá L’Oréal í París sem hafði fundið ferilskrá Hildar, fannst hún áhugaverð og spurði hvort hún væri til í að vinna annars staðar en í París sem Hildur játti. Ekkert heyrðist nú í tvo mánuði og Hildur hafði gefið hugmyndina upp á bátinn þegar hún fékk tölvupóst frá mannauðsstjóra L‘Oréal á Norðurlöndunum. Ákveðið var að senda Hildi í viðtal fyrir starf í Danmörku. „Þeir vildu tryggja að ég gæti talað og skrifað dönsku áður en ég yrði send áfram í næsta viðtal sem yrði þá á dönsku. Ég lofaði því, án þess að vera búin að tala dönsku í þrjú ár enda fann ég hvað ég var orðin spennt fyrir þessu þar sem L’Oréal er stærsta snyrtivörufyrirtæki í heiminum. Við- talið átti ekki að vera fyrr en hálfum mánuði síðar svo ég var viss um að fá nógan tíma til að æfa mig og undirbúa. Hálftíma eftir var hringt aftur og spurt hvort ég gæti ekki farið í tvö viðtöl í há- deginu daginn eftir sem ég samþykkti þó ég væri í algjöru panikki hinu megin á línunni,“ lýsir Hildur kímin. „Það þarf ekki að taka það fram að restina af deginum og kvöldinu var talað, sungið og skrifað á dönsku og svo sofnað yfir danskri mynd,“ segir Hildur en svo fór að viðtölin gengur glimrandi vel. „Fyrir mér var það ekki spurning um að taka þessu boði þótt það þýddi að ég þurfti að flytja frá París og setja verkefni mitt á bið enda alveg ómetanleg reynsla sem ég mun öðlast og get lagt í reynslu- bankann.“ Hildur hefur nú verið hjá L‘Oréal í mánuð og starfið leggst vel í hana. „Mér finnst ég bara vera komin heim. Ég er ánægð að vera aftur í Danmörku og vera nær fjölskyldunni á Íslandi.“ Innt eftir því hvort þetta sé drauma- starfið segir Hildur það ekki eiga við. „En ég er allavega á réttum stað til að komast í draumastarfið. Ég er einungis 24 ára gömul og það er alveg frábært að vera komin með fótinn inn fyrir dyrnar. Draumastarfið er klárlega innan þessara dyra og nú er bara spurning hve lengi það mun taka mig að vinna mig upp í það.“ ■ solveig@365.is FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir | Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 ÓMETANLEG REYNSLA Fyrir mér var það ekki spurning um að taka þessu boði þótt það þýddi að ég þurfti að flytja frá París og setja verkefni mitt á bið enda alveg ómetan leg reynsla sem ég mun öðl- ast og get lagt í reynslubankann. Í VINNU HJÁ L‘ORÉAL SNYRTIVÖRUIÐNAÐURINN Hildur Ársælsdóttir er einu skrefi nær draumastarfinu en hún var nýlega ráðin til snyrtivörurisans L‘Oréal. Af því tilefni flytur hún frá París til Kaupmannahafnar. HILDUR ÁRSÆLSDÓTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.