Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 21.02.2013, Blaðsíða 12
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 12 HYUNDAI SANTA FE II LUX 7m Nýskr. 01/08, ekinn 65 þús. km. dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 3.980 þús. Rnr.151261. Frábært úrval af nýlegum, lítið eknum bílum á frábæru verði! Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is / SUBARU FORESTER PLUS Nýskr. 10/09, ekinn 77 þús km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 3.580 þús. Rnr.151241. LAND ROVER DISCOVERY 3 HSE Nýskr. 10/08, ekinn 116 þús. km. dísil, sjálfskiptur. Rnr.201081 NISSAN QASHQAI SE Nýskr. 05/12, ekinn 27 þús km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.790 þús. Rnr.130383. SAAB 9-5 ARC Nýskr. 04/08, ekinn 50 þús. km. bensín, sjálfskiptur. VERÐ kr. 2.790 þús. Rnr.141444 HYUNDAI i30 CLASSIC Nýskr. 07/12, ekinn 6 þús. km. dísil, beinskiptur. Verð kr. 3.220 þús. Rnr.201134. HYUNDAI GETZ GLS Nýskr. 10/09, ekinn 41 þús. km. bensín, beinskiptur. VERÐ kr. 1.750 þús. Rnr.120134. VERÐ kr. 6.990 þús. Gerðu frábær kauphjá Bílalandi BL Gott úrval af 4x4 bílum Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði! Lítil breyting hefur orðið á leiguverði á höfuðborgarsvæðinu síðustu mánuði eftir miklar hækkanir framan af ári. Þjóðskrá birti í gær gildi vísitölu leiguverðs fyrir janúarmánuð og er það óbreytt frá því sem var í ágúst síðastliðnum. Þjóðskrá hóf að birta vísitölu leigu- verðs á höfuðborgarsvæðinu í byrjun árs 2011 og tók vísitalan þá gildið 100. Á árinu 2011 hækkaði hún um 11% og fyrstu átta mánuði þessa árs hækkaði hún um 7% til viðbótar. Í ágúst stóð vísi- talan því í gildinu 118,7 stig. Síðan hefur lítil breyting orðið á vísi- tölunni sem lækkaði í október og desem- ber en hækkaði í nóvember og núna í janúar þegar hún tók sama gildi og í ágúst eða 118,7 stig. - mþl Litlar breytingar á vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu síðustu mánuði: Leiguverð staðið í stað um hríð Straumur fjárfestingabanki hagn- aðist um 203 milljónir króna eftir skatta á árinu 2012. Eiginfjárhlut- fall hans er 35 prósent og tekjur á síðasta ári námu 1,3 milljörðum króna. Þetta kemur fram í árs- reikningi Straums sem samþykkt- ur var á stjórnarfundi bankans 12. febrúar síðastliðinn. Straumur er í 70 prósent eigu ALMC, sem var stofnað eftir nauðasamning gamla Straums, og lykilstjórnenda bankans. ALMC er síðan í eigu Thingvilir, hollensks félags sem er í vörslu Deutsche Bank. Eigendur þess voru upp- runalega samningakröfuhafar gamla Straums, en þar sem heim- ildarskírteini í Thingvilir ganga kaupum og sölum veit enginn hverjir eigendur þess eru í dag. Heimildir Fréttablaðsins herma þó að á meðal þeirra sé bandaríski vogunarsjóðurinn Davidson Kemp- ner, sem hefur verið afar umsvifa- mikill á Íslandi eftir hrun. Straumur fékk fjárfestingar- bankaleyfi í byrjun nóvember 2011. Því var árið í fyrra fyrsta heila árið sem bankinn starfaði. Síðan þá hefur hann verið mjög áber- andi og ráðið til sín fjölda manns til að geta boðið upp á sem víðtæk- asta fyrirtækjaþjónustu og miðlun. Þetta hefur skilað því að hlutdeild Straums í veltu með skuldabréf er um 11 prósent og hlutdeild hans í hlutabréfaveltu er níu prósent. Þá hefur Straumur einnig haft umsjón með hlutafjárútboði Eimskips, því stærsta sem ráðist hefur verið í hérlendis frá hruni. Bankinn sér auk þess um vörslu og umsýslu á öllum eignum SPBhf, sem áður hét Sparisjóðabankinn, og um ýmsar eignir móðurfélags síns ALMC. Heildartekjur bankans á síðasta ári voru rúmlega 1,3 milljarðar króna og um 85 prósent þeirra voru hreinar þóknanatekjur. Arðsemi eiginfjár Straums var 18 prósent í fyrra. Í ársreikningi kemur fram að meira en 80 prósent tekna Straums komu frá ótengdum aðilum. Eignir bankans jukust um sex milljarða króna á milli ára og stóðu í um 15 milljörðum króna um síðustu ára- mót. Eigið fé hans er 1,3 prósent. Rekstrarkostnaður var um 1,1 milljarður króna. Þar af var launa- kostnaður 776 milljónir króna, 33 störfuðu hjá bankanum að meðal- tali. Meðalmánaðarlaun hvers starfsmanns voru því tæpar tvær milljónir króna á mánuði. Launin skiptust þó mismunandi á milli starfsmanna. Forstjórinn, Pétur Einarsson, var til að mynda með um 3,5 milljónir króna á mánuði. Þá eignuðust Pétur og nokkrir aðrir lykilstarfsmenn samtals 30 prósenta hlut í Straumi á síðasta ári. Á meðal þeirra sem eignuðust einnig hlut voru fjármálastjórinn Jakob Már Ásmundsson og Har- aldur I. Þórðarson, forstöðumaður markaðsviðskipta hjá bankanum. thordur@frettabladid.is Straumur hagnaðist um 200 milljónir Tekjur Straums fjárfestingarbanka á fyrsta heila starfsári bankans námu 1,3 milljörðum króna. Meiri vöxtur en lagt var upp með, segir Pétur Einarsson, for- stjóri bankans. Starfsmenn eignuðust 30 prósent í bankanum á síðasta ári. Pétur Einarsson, forstjóri Straums, segir uppgjörið í takt við þær áætlanir sem lagt var upp með. „Tekjur eru reyndar hærri en við gerðum ráð fyrir en kostnaðurinn er það líka. Hagnaðurinn var ívið lægri en okkar björtustu væntingar stóðu til, en í heildina litið er þetta í takt við okkar væntingar og við erum mjög ánægð með uppgjörið.“ Hann segir vöxt bankans hafa verið hraðari en upphaflega stóð til. „Við byrjuðum í raun á núlli árið 2011 og náðum yfir 1.300 milljónum króna í tekjur á fyrsta starfsári. Það er alveg magnað. Við sjáum líka frekari vaxta- tækifæri, til dæmis í hlutabréfamarkaðnum. Þá eru alltaf meiri og sterkari teikn á lofti um að höftunum verði aflétt. Aflétting mun auka fjárfestingu inn í landið og við sjáum því mikil tækifæri þegar það gerist.“ Vöxturinn hraðari en lagt var upp með ÁNÆGÐUR Straumur fékk fjárfestingarbankaleyfi í nóvember 2011. Tekjur bankans voru 1,3 milljarðar króna í fyrra og þar af voru 85 prósent hreinar þóknanatekjur. Pétur Einarsson er forstjóri Straums. VÍSITALA LEIGUVERÐS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU 120 116 112 108 104 100 1. jan. 2011 1. jún. 2011 1. nóv. 2011 1. apr. 2012 1. sep. 2012 1. jan. 2013 HEIMILD: ÞJÓÐSKRÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.