Fréttablaðið - 21.02.2013, Side 38

Fréttablaðið - 21.02.2013, Side 38
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU OG FLÓAHREPPI Bláskógabyggð, Grímsnes-og Grafningshreppi, Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynnt tillaga að lýsingu skipulags fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu: 1. Breyting á Aðalskipulagi Þingvallasveitar 2004-2016 í Bláskógabyggð, Brennimelslína 1. Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að breytingum á aðalskipulagi hér. 2. Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 á spildu úr landi Klausturhóla við Klausturhólaréttir. Frístundabyggð í stað landbúnaðarsvæðis. 3. Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 á spildu úr landi Öndverðarness. Frístundabyggð í stað opins svæðis til sérstakra nota. 4. Breyting á Aðalskipulagi Hraungerðishrepps 2003-2015 (Flóahreppi) á spildu úr landi Bitru. Svæði fyrir verslun-og þjónustu. Samkvæmt 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar lýsingar vegna deiliskipulags eftirfarandi verkefna. 5. Deiliskipulag nýrra lögbýla á spildum úr landi Einiholts í Bláskógabyggð. 6. Deiliskipulag og matslýsing fyrir fjallasel við Hlöðuvelli í Bláskógabyggð 7. Deiliskipulag og matslýsing fyrir skálasvæði við Hagavatn í Bláskógabyggð. 8. Deiliskipulag nýs lögbýlis (Reyrhagi) úr landi Gafls í Flóahreppi. Alifuglarækt. 9. Deiliskipulag fyrir 12,5 ha spildu úr landi Hnaus í Flóahreppi. Íbúðarhús og skemma. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum: 10. Deiliskipulag fyrir spildu úr landi lögbýlisins Lindatungu í Bláskógabyggð. Íbúðarhús og skemma. 11. Deiliskipulag fyrir starfsmannahús á jörðinni Götu í Hrunamannahreppi. 12. Breyting á deiliskipulagið við Hakið á Þingvöllum, Bláskógabyggð, ásamt umhverfisskýrslu. Nýtt starfsmannahús. 13. Breyting á deiliskipulagi Ásborga úr landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. Íbúðarhúsalóðir breytast í lóðir fyrir verslun- og þjónustu. Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu viðkomandi sveitarfélags og á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma frá 9-16. Að auki er hægt að nálgast nánari lýsingu á tillögunum og tillögurnar sjálfar á http://www.granni.is/uppsveitirogfloahr/auglysingar.htm. Skipulagstillögur nr. 1 til 9 eru í kynningu frá 21. febrúar til 4. mars 2013 en skipulagstillögur nr. 10 til 13 frá 21. febrúar til 5. apríl. Athugasemdir og ábendingar við tillögur nr. 1 til 9 þurfa að berast skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 4. mars 2013 en 5. apríl fyrir tillögur 10 til 13. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar. Pétur Ingi Haraldsson Skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps Snæfellsbær auglýsir eftir tilboðum í verkið Sundlaug Snæfellsbæjar, Ólafsvík - áfangi 1. Um er að ræða verk sem felur í sér uppbyggingu á útisvæði við sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík, ásamt því að búnaður í lagnakjallara sundlaugar verður allur endurnýjaður. Á útisvæð- inu verða heitir pottar, vaðlaug og lendingarlaug. Steyptur verður stoðveggur utan um útisvæðið og ofan á vegg sett gler- og timbur skjólgirðing. Núverandi hús verður stækkað um 45 m² og skipt verður um glugga í öllu húsinu. Helstu magntölur verksins er eftirfarandi: • Gröftur 1.400 m³ • Fylling 2.100 m³ • Steypubrot 80 m² • Mót 710 m² • Járnbending 12.500 kg • Steypa 140 m³ • Stálvirki 5.550 kg • Álgluggar og hurðir 155 m² • Slétt ál og undirkerfi 237 m² Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 19. júlí 2013 Útboðsgögn er hægt að fá í tölvupósti eða á geisladiski í Ráðhúsi Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ. Nánari upplýsingar veitir Smári Björnsson smari@snb.is, í síma 4336900. Tilboð verða opnuð 21.03.2013 kl 14:00 í Ráðhúsi Snæfellsbæjar, Klettsbúð 4, 360 Snæfellsbæ. Tæknideild Snæfellsbæjar Sundlaug Snæfellsbæjar, Ólafsvík - útboð Aðalfundur Blóðgjafafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar 2013 í K-byggingu Landspítalans. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Blóðgjöfum veittar viðurkenningar 3. Önnur mál 4. Fræðsluerindi Fundurinn er öllum opinn. Stjórn Blóðgjafafélags Íslands. Miðbær Selfoss – skipulagslýsing Samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að lýsingu deiliskipulags fyrir miðbæ Selfoss. Skipulagssvæðið afmarkast af Eyrarvegi og Austurvegi til norðurs og aðliggjandi íbúðarlóðum við Tryggvagötu til austurs, Sunnuveg til suðurs og Kirkjuveg til vesturs. Svæðið skiptist í fjóra hluta hvað sögu, núverandi landnotkun og skipulagsstöðu varðar; Sigtúnsreit, Kaupfélagsreit, Hafnarreit og bæjargarð. Skipulagslýsingin liggur frammi á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 67 Selfossi og í Ráðhúsi Árborgar að Austurvegi 2 Selfossi á skrifstofutíma frá kl. 8-15. Skriflegum ábendingum er hægt að koma á framfæri á sama stað og á netfangið bardur@arborg.is fyrir 11.mars 2013. Einnig er hægt að kynna sér lýsinguna á heimasíðu Sveitarfélagsins, http://www.arborg.is Selfossi 21. febrúar 2013 Bárður Guðmundsson Skipulags- og byggingarfulltrúi Árborgar Kísilmálmverksmiðja PCC á Bakka við Húsavík Mat á umhverfisáhrifum - athugun Skipulagsstofnunar Efla hf hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frum- matsskýrslu um kísilmálmverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík, Norðurþingi. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverf- isáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 22. febrúar 2013 til 5. apríl 2013 á eftirtöldum stöðum: Á bókasafni Húsavíkur og í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Eflu hf: www. efla.is. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 5. apríl 2013 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b. Skipulagsstofnun Reiðstígur á Selfossi - skipulagslýsing Samkvæmt 1.mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að lýsingu á aðalskipulagsbreytingu vegna reið- stígs á Selfossi. Fyrirhugað er að leggja reiðstíg frá hesthúsahverfinu á Selfossi í suðvestur að götunni Suðurhólum. Þar kemur hann til með að tengjast þegar skipulögðu kerfi reiðstíga, sem liggja annars vegar sunnan og meðfram Suðurhólum og hins vegar í suður frá Suðurhólum meðfram Lækjarmótavegi og að reiðstíg sem liggur með Votmúlavegi. Skipulagslýsingin liggur frammi á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa að Austurvegi 67 Selfossi og í Ráðhúsi Árborgar að Austurvegi 2 Selfossi á skrifstofutíma frá kl. 8-15. Skriflegum ábendingum er hægt að koma á framfæri á sama stað og á netfangið bardur@arborg.is fyrir 11.mars 2013. Einnig er hægt að kynna sér lýsinguna á heimasíðu Sveitar- félagsins, http://www.arborg.is Selfossi 21. Febrúar 2013 Bárður Guðmundsson Skipulags- og byggingarfulltrúi Árborgar. tilkynningar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.