Fréttablaðið - 21.02.2013, Síða 52
21. febrúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
„Það er hægt að búa til bleyjukökur úr hvernig bleyj-
um sem er. Oftast nota ég annaðhvort Libero eða
Pampers ef kaupandinn er ekki með neinar sérstakar
óskir. Það er líka hægt að nota allar stærðir af bleyj-
um, enda eru kökurnar mikið gefnar í gjafir eftir að
barnið er fætt,“ segir Bergþóra Björg, eigandi fyrir-
tækisins Gjafakörfunnar.
Bleyjukökurnar eru í flestum tilfellum búnar til
úr pappableyjum, en þær er einnig hægt að búa til úr
öðru, til dæmis taubleyjum eða þvottapokum. Bleyj-
unum er þá annaðhvort rúllað upp og raðað saman eða
raðað í hring og bundið um þær með borða. Bergþóra
setur yfirleitt bangsa á toppinn á sínum kökum. Stund-
um er miðjan tekin úr þeim til að koma fyrir gjöfum
þar. „Ég reyni líka að nota gjafirnar til að skreyta
kökurnar enn frekar. Einu sinni vildi kaupandinn
til dæmis láta hálsmen fylgja með svo ég setti það
utan um hálsinn á bangsanum,“ segir hún. Í Banda-
ríkjunum er algengt að skreyta kökurnar enn frek-
ar með smáhlutum sem barnið þarfnast, eins og
snuðum. „Þetta er svo skemmtileg, falleg og sniðug
gjöf og það er hægt að treysta því að hún komi til
með að nýtast barninu,“ segir Bergþóra Björg.
Bergþóra Björg hefur alltaf verið mikil föndurkona.
Hún er að læra til blómaskreytis í Garðyrkjuskólan-
um í Hveragerði og dreymir um að Gjafakarfan verði
í framtíðinni blóma- og gjafavöruverslun. Hún hefur
alltaf verið mikið fyrir bandarískar hefðir og árið 2009
byrjaði hún að leita sér upplýsinga og prófa sig áfram
í gerð bleyjukaka eftir að hafa séð þeim bregða fyrir í
ófáum bandarískum bíómyndum. „Þetta er það yndis-
legasta sem ég geri,“ segir hún.
Hún segist hafa tekið eftir því að það séu helst stelp-
ur á milli tvítugs og þrítugs sem kaupi kökurnar til að
gefa í svokölluð steypiboð (e. baby shower), svo hún
gerir ráð fyrir að það séu helst yngri stelpurnar sem
séu farnar að taka upp þá hefð. Kökurnar eru þó vin-
sælar í skírnargjafir eða sængurgjafir líka og kaup-
endurnir því á öllum aldri og alls staðar að. „Ég sendi
hvert á land sem er og hef meira að segja tvisvar sinn-
um sent kökur erlendis, til Bretlands og Noregs,“ segir
hún. tinnaros@frettabladid.is
Steypiboð eru boð af bandarískri hefð sem vinkonur eða skyldkonur
verðandi móður halda henni stuttu áður en hún eignast barn. Yfirleitt
er verðandi móðirin lokkuð í boðið á fölskum forsendum og það látið
koma henni á óvart.
Upphaflega voru boðin aðeins haldin þegar konur áttu von á sínu
fyrsta barni en á seinni árum hefur það breyst og þau nú yfirleitt
haldin við hverja óléttu. Það er þó vaninn að einungis konum sé
boðið að koma og þeim sem þegar eiga börn er gert að veita
þeirri óléttu heilræði varðandi móðurhlutverkið. Allir gestir færa
verðandi móðurinni, eða ófæddu barninu, einnig litla
gjöf. Vaninn er að þær gjafir séu hlutir sem barnið
þarfnast eftir að það fæðist, svo sem bleyjur, teppi,
pelar og föt.
Hefðina má finna víðs vegar um heiminn þó
hún sé mismunandi eftir heimshlutum. Í Kína
er boðið til að mynda yfirleitt haldið um mánuði
eftir að barnið fæðist. Sums staðar tíðkast það
líka að föðurnum séu haldin sérstök boð
en þau eru yfirleitt af öðrum toga. Í Bret-
landi er föðurnum til að mynda haldið
sérstakt boð rétt eftir fæðingu barnsins
þar sem félagarnir fara með hann á barinn
og drekka nýfædda barninu skál.
Hvað er steypiboð?
Karen Kjartansdóttir er 24 ára
gömul og á von á sínu fyrsta barni
þann 28. apríl næstkomandi með
kærastanum sínum, Jun De Luna.
Vinkonur Karenar komu henni
heldur betur á óvart um síðustu
helgi þegar þær slógu upp steypi-
boði fyrir hana. „Stelpurnar
skipulögðu þetta þannig að þær
létu mig halda að ég væri á leið-
inni í afmæli til einnar í hópnum.
Svo þegar ég kom inn var búið að
skreyta alla íbúðina með barna-
dóti eins og samfellum og barna-
skóm. Ég skildi í fyrstu ekkert
hvað var í gangi,“ segir Karen.
Hún er önnur vinkonan í hópn-
um til að eignast barn en þetta
var þó í fyrsta skipti sem svona
boð er haldið. „Við ætluðum að
halda steypiboð fyrir vinkonu
okkar þegar hún var ólétt en það
klúðraðist því hún átti fyrir tím-
ann svo við náðum því ekki,“ rifj-
ar hún upp.
Hún segir þær vinkonurnar
allar hafa skemmt sér mjög vel í
boðinu. Það hafi byrjað á því að
allar fengu stelpurnar sér for-
drykk, sem var að sjálfsögðu
óáfengur. Þær gæddu sér svo á
girnilegum kökum og kræsingum
og fóru í leiki. „Stelpurnar voru til
dæmis búnar að smyrja súkkulaði
í þrjár bleyjur og ég átti að þefa af
þeim og giska á hvaða súkkulaði
væri í hvaða bleyju. Ég fékk svo
pakka fyrir hvert rétt svar og þar
sem ég náði þeim öllum rétt fékk
ég þrjár rosa flottar gjafir. Ætli
þær séu þá ekki orðnar stikkfrí
að gefa mér sængurgjafir þegar
barnið kemur,“ segir Karen og
hlær.
Hélt að hún væri að
fara í afmæli
FÉKK ÓVÆNT STEYPIBOÐ Karen segist ekki hafa skilið neitt í því hvað var í gangi
þegar hún gekk inn í íbúðina sem var öll skreytt með barnadóti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bleyjukökur vinsælar
í steypiboðunum
Svokölluð baby shower, eða steypiboð á góðri íslensku, hafa verið að færast í aukana hérlendis
á undanförnum árum. Um er að ræða bandaríska hefð þar sem vinkonur verðandi móður
halda óvænt boð fyrir hana áður en barnið kemur í heiminn. Bleyjukökur eru vinsælasta
gjöfi n í slíkum veislum vestanhafs, en þær eru einnig fáanlegar hérlendis.
ÞRJÁR
HÆÐIR AF
BLEYJUM
Bleyjukökurnar
geta verið allt
frá einni hæð
og upp úr, en
þriggja hæða
kökurnar eru
vinsælar. MYND/
BERGÞÓRA BJÖRG
www.or.isHreint vatn - hraust fólk
Málþing um
vatnsvernd
Orkuveita Reykjavíkur stendur fyrir málþingi um vatns vernd
laugardaginn 23. febrúar á Hótel Natura,
Nauthólsvegi 52, klukkan 13:00-15:00.
Fulltrúar atvinnulífsins, hagsmunaaðila, stjórnvalda og Orkuveitunnar
munu fjalla opinskátt um þetta mikilvæga málefni og svara spurningum
fundarmanna.
Fundarstjóri er Þóra Arnórsdóttir.
Enginn aðgangseyrir en vinsamlegast skráið þátttöku á:
http://www.or.is/UmOR/Hreintvatnmalthing/
Hreint vatn – ómetanleg lífsgæði