Fréttablaðið - 04.03.2013, Side 2
4. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FRAMKVÆMDIR „Viturlegri ráðstöf-
un, ef yfirleitt á að halda þessari
höfn við, væri að flytja Markar-
fljót til vesturs,“ segir Haraldur
Sigurðsson eldfjallafræðingur um
þau áform að beina Markarfljóti
2,5 kílómetra til austurs til að
minnka sandburð í Landeyjahöfn.
Haraldur ræðir tillögu Dönsku
straumfræðistofnunarinnar um
tilfærslu Markarfljóts á bloggi
sínu. „Það er ljóst að sandrifið
sem myndast vegna aurburðar
frá Markarfljóti til hafs er fyrst
og fremst fyrir vestan Landeyja-
höfn,“ segir Haraldur á vulkan.
blog.is. „Ríkjandi straumar og til-
færsla efnis eru hér frá austri til
vesturs, alla jafna, og þessi hreyf-
ing efnis heldur sandrifinu við
fyrir sunnan og vestan Landeyja-
höfn.“
Þá segir Haraldur flutning
mynnis Markarfljóts til aust-
urs aðeins munu seinka fyllingu
hafnar innar. „Það dregur mikið úr
straumhraða þar sem Markarfljót
breiðist út yfir áreyrar og mætir
hafinu. Staðsetning hafnar á slík-
um stað er því sennilega ekki gott
ráð. Vonandi fáum við að heyra
frekar um niðurstöður Dana varð-
andi strauma og set á þessu svæði
áður en frekari ákvarðanir verða
teknar um að kasta krónum í sjó-
inn hér,“ segir Haraldur.
Þá bendir Haraldur á að árlegur
framburður Markarfljóts sé um
100 þúsund rúmmetrar af sandi
og aur. „Þetta er og verður allt-
af vandræðamál, enda var höfnin
upprunalega staðstett með aðeins
einu markmiði: að fá styttstu sigl-
ingaleið til Vestmannaeyja,“ skrif-
ar hann. Á ákveðnu svæði fyrir
framan Landeyjahöfn detti öldu-
hæð alveg niður vegna skjóls frá
Vestmannaeyjum.
„Þetta er svæðið þar sem dreg-
ur úr hreyfingu sets og þar sem
set fellur á botninn og myndar rif
og setlög. Þessi öldugangsskuggi
hefur meðal annars myndað og
haldið við sandrifinu sem liggur
beint fyrir framan Landeyjahöfn,“
segir eldfjallafræðingurinn Har-
aldur Sigurðsson á bloggi sínu.
gar@frettabladid.is
Telur Markarfljóti
stefnt í þveröfuga átt
Eldfjallafræðingur segir stefnt með Markarfljót í öfuga átt með tillögu Dönsku straum-
fræðistofnunarinnar um að færa það í austur til að minnka sandburð í Landeyjahöfn.
Vonandi skoðist málið betur áður en menn ákveði að „kasta krónum í sjóinn“.
Vonandi fáum við að
heyra frekar um niður-
stöður Dana varðandi
strauma og set á þessu svæði
áður en frekari ákvarðanir
verða teknar um að kasta
krónum í sjóinn hér.
Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur
LANDEYJAHÖFN OG MARKARFLJÓT Hér má sjá hvernig Markarfljót ber með sér aur til sjávar og bætir við sandinn sem haf-
aldan velkir inn í Landeyjahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NORÐUR-KÓREA, AP Kim Jong-un, leiðtogi
Norður-Kóreu, vill að Barack Obama Banda-
ríkjaforseti hringi í hann. Þetta segir fyrr-
verandi körfuboltamaðurinn Dennis Rodman,
sem heimsótti Norður-Kóreu í síðustu viku.
„Hann elskar körfubolta. Ég sagði honum
að Obama elskaði körfubolta. Byrjum þar,“
sagði Rodman í samtali við ABC-fréttastof-
una. Rodman segir Kim einnig hafa sagt við
sig að hann hefði engan áhuga á stríðsrekstri.
Bandarísk yfirvöld gagnrýndu Norður-
Kóreu í síðustu viku fyrir að borga mat
og drykk fyrir Rodman á meðan norður-
kóreska þjóðin sylti. Rodman sagði í viðtal-
inu við ABC að hann vissi um mannréttinda-
brot Norður-Kóreu, og að hann ætlaði ekki
að afsaka Kim. „Hann er góður maður fyrir
mér. Sem manneskja við manneskju, þá er
hann vinur minn. Ég samþykki ekki það sem
hann gerir.“
Rodman segist ætla að fara aftur til ríkis-
ins á næstunni til þess að kynnast því betur
hvað raunverulega eigi sér þar stað. - þeb
Kim Jong-un, leiðtogi N-Kóreu, gæti rætt um körfubolta við kollegann:
Vill símtal frá Bandaríkjaforseta
Á GÓÐRI STUNDU Kim Jong-un og Dennis Rodman horfðu saman á
körfuboltaleik fyrir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNSÝSLA Alþingi hélt þing-
mannaveislu á Hótel Sögu á laugar-
dardagskvöld. Þangað var boðið
þingmönnum og varaþingmönnum
og mökum auk forseta Íslands og
nokkurra embættismanna.
Fyrir hrun voru þingmanna-
veislur árlegur viðburður en
Helgi Bernódusson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, segir veisluna nú
þá fyrstu á kjörtímabilinu. Um 130
manns hafi mætt. Áætlaður kostn-
aður með veitingum og skemmtiat-
riðum sé um tvær milljónir króna.
Um hafi verið að ræða eins konar
skilnaðarveislu í lok kjörtímabils.
„Forseta Alþings fannst rétt að
bjóða þingmönnum og varaþing-
mönnum til kvöldverðar rétt fyrir
þinglok,“ segir Helgi. - gar
Tveggja milljóna árshátíð:
Fyrsta veislan
eftir hrunið
FORSETI ALÞINGIS Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir kveður þingmenn með
kvöldverði.
TÆKNI Bandarískur lögfræð-
ingur í sifjarétti segir að nú sé
ekki nóg að fólk gangi aðeins
frá málum eins og skiptingu
eigna í kjölfar dauðsfalls heldur
þurfi einnig að huga að sýndar-
lífinu. James Lamm mælir með
nokkrum einföldum skrefum í
þeim efnum, þar á meðal að fólk
geymi afrit af ljósmyndum á
USB-lykli eða hörðum diski.
Lamm mælir einnig með að
fólk haldi lista yfir öll forritin
sem það notar, þar á meðal sam-
skiptaforrit, netföng og heima-
banka. Einnig þurfi að halda
lykilorðum og notendanöfnum
til haga. Lamm segir best að láta
slíka lista í erfðaskrá sína og
láta lögfræðing um að ganga frá
slíkum málum. - sm
Notendanöfn í erfðaskrána:
Huga þarf að
sýndarlífinu
Gunnar, er slegist um að
berjast við Pyle?
„Ég Pyle ekki í því.“
Gunnar Nelson keppir við Mike Pyle á
stærsta sviði UFC-bardagaheimsins í Las
Vegas hinn 25. maí. Pyle er þrettándi á
heimslistanum í veltivigt og sterkasti and-
stæðingur Gunnars hingað til.
STJÓRNMÁL Áhyggjur bænda
af því að Ísland sé á hraðri leið
inn í Evrópusambandið eru
óþarfar. Þetta sagði Steingrím-
ur J. Sigfússon
atvinnuvega-
ráðherra í ræðu
sinni á búnaðar-
þingi, sem hófst
í gær.
Steingrímur
ræddi um
útflutning á
landbúnaðar-
vörum til
Evrópu sambandsins. Hann sagði
ljóst að markaður væri fyrir
íslenskar vörur og viðræður væru
í gangi um að fá stækkaða útflutn-
ingskvóta fyrir smjör og skyr.
„Það komst góður skriður á málin
eftir fundi sem ég átti í Brussel
með toppunum þar í byrjun síð-
asta árs,“ sagði Steingrímur. - þeb
Atvinnuvegaráðherra:
Áhyggjur af
ESB óþarfar
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
LONDON Elísabet II. Bretlands-
drottning var lögð inn á sjúkra-
hús í Lundúnum í gær. Drottn-
ingin þjáist af magapest og
gekkst undir læknisrannsókn á
King Edward VII spítalanum í
gær.
Að sögn talsmanns konungs-
fjölskyldunnar er búið að aflýsa
eða fresta öllum fundum drottn-
ingarinnar út vikuna. Drottning-
in er 86 ára gömul og hefur sjald-
an látið veikindi koma í veg fyrir
að hún sinni starfi sínu. - sm
Elísabet II. lögð inn á spítala:
Drottningin
þjáist af pest
STJÓRNMÁL „Maður heyrir á mörgum
að þeim finnst þeir vera landlausir
eftir þetta,“ segir Benedikt Jóhannes-
son, sem kveður Evrópusinna innan
Sjálfstæðisflokksins afar ósátta við
ályktanir landsfundar flokksins um
að hætta eigi viðræðum um að aðild
að Evrópusambandinu.
Benedikt gagnrýnir að í ályktun
landsfundarinnar hafi fyrra orða-
lag um gera eigi hlé á aðildarviræð-
um verið breytt í að stöðva eigi við-
ræðurnar.
„Þarna er í raun málamiðlun og
samkomulag sem er rofið. Auðvitað er
þetta mjög bagalegt því að flestu öðru
leyti eiga menn ágæta samleið,“ segir
Benedikt, sem nefnir einnig það sem
hann kallar „kjánalegan“ kafla um
íhlutun sendiherra Evrópusambands-
ins og að það eigi að loka upplýsinga-
skrifstofu Evrópusambandsins.
„Þetta er nú eiginlega bara fáheyrt
að Sjálfstæðisflokkurinn sé kominn
út í ritskoðun. Þetta er svona eins og
smáflokkar samþykktu fyrir fjöru-
tíu árum; Fylkingin eða kommúnista-
samtökin samþykktu eitthvað svona
um Menningarstofnun Bandaríkj-
anna. En að Sjálfstæðisflokkurinn,
sem verið hefur stærsti flokkurinn, sé
að samþykkja þetta um sendiráð vina-
þjóða finnst mér flokknum til mikillar
skammar,“ segir Benedikt.
Sjálfstæðir Evrópusinnar þar sem
Benedikt gegnir formennsku munu
funda síðdegis í dag. Hann segir að
þangað muni mæta til viðræðna tveir
frambjóðendur flokksins sem hlynntir
séu því að ljúka aðildarviðræðunum;
þeir Brynjar Níelsson og Vilhjálmur
Bjarnason. - gar
Evrópusinnar í Sjálfstæðisflokknum segja sátt hafa verið rofna á landsfundi og fordæma ritskoðun:
Segjast landlausir eftir „kjánalega“ ályktun
BENEDIKT JÓHANNESSON For-
maður Sjálfstæðra Evrópusinna
segir ályktun landsfundar vera
Sjálfstæðisflokknum til skammar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SPURNING DAGSINS