Fréttablaðið - 04.03.2013, Síða 4

Fréttablaðið - 04.03.2013, Síða 4
4. mars 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4 101 Er fj öldi þeirra jarða sem útlend- ingar eiga, að fullu eða hluta, hérlendis. Lang- fl estir eiga aðeins eina jörð. BANDARÍKIN, AP Leit að banda- rískum karlmanni sem hvarf ofan í vatnspytt á heimili sínu á laugardag hefur verið hætt. Jeff Bush lá sofandi í rúmi sínu í Flórída þegar herbergi hans hvarf ofan í jörðina. Björgunar- menn hafa átt erfitt með að athafna sig þar sem jarðsprung- an er enn að stækka og gerir björgunarstörf hættuleg. Óvíst er að líkið af Bush finnist nokk- urn tíma. Bróðir fórnarlambsins sagðist hafa heyrt miklar drunur frá herbergi Bush. Hann hafi reynt að grafa hann upp úr hol- unni án árangurs. Hús í nágrenn- inu hafa verið rýmd því hætta er á að jarðsprungan stækki enn frekar. - sm Björgunarmenn hætta leit: Maður hvarf ofan í jörðina HORFINN Jeff Bush lá sofandi í her- bergi sínu þegar það hvarf ofan í vatns- pytt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NÁTTÚRUFAR Hæsta tré landsins er sitka- greni sem vex á Kirkjubæjarklaustri, að því er fram kemur á vef Skógræktar ríkisins. Þegar skógarvörðurinn á Suðurlandi mældi þar tré nýverið reyndist eitt þeirra 25,2 metrar á hæð. „Er þetta að öllum líkindum fyrsta tré sem rýfur 25 metra hæðarmúrinn og það hæsta á landinu,“ segir í umfjöllun Skógræktar- innar. Fjölmörg tré í skóginum sem vex í brekkunum fyrir ofan byggðina á Kirkju- bæjarklaustri eru sögð hafa vaxið yfir tutt- ugu metra hæð og nokkur eru sögð rúmlega 24 metra há. Þá kemur fram að í skóginum sé eitt af rúmmálsmestu trjám landsins. Þannig er sverasta tréð sagt með um 65 sentímetra þvermál í brjósthæð og um 23,7 metrar á hæð. „Má áætla að trjábolurinn gæti náð þremur rúmmetrum viðar.“ Skógurinn á Kirkjubæjarklaustri er í einkaeigu en hefur verið í umsjá Skógræktar innar síðan 1964. „Trén á Klaustri eru enn í fullum vexti og verður spennandi að fylgjast með vexti þeirra, en þau gætu, miðað við núverandi vaxtarhraða, náð 30 metra hæð á næstu 10 til 15 árum,“ segir í umfjöllun Skógræktarinnar. - óká Hæsta tré landsins að finna í skóginum fyrir ofan byggðina á Kirkjubæjarklaustri: Sitkagreni á Klaustri rauf 25 metra múrinn KIRKJUBÆJARKLAUSTUR Sitkagreni hefur vaxið vel í Klausturskóginum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Veðurspá Miðvikudagur Stormur S-og V-til en 8-13 m/s NA-til. EKKERT ÚTIVISTARVEÐUR næstu daga. Hvassviðri eða stormur S- og V-lands á morgun og á miðvikudag. Snjókoma eða él N- og A-lands. Talsvert frost, að 14 stigum fyrir norðan. -8° 18 m/s -4° 19 m/s -3° 14 m/s 0° 12 m/s Á morgun 13-23 m/s S- og V-til, 8-15 m/s NA-til. Gildistími korta er um hádegi -3° -6° -4° -6° -7° Alicante Basel Berlín 15° 13° 7° Billund Frankfurt Friedrichshafen 6° 9° 9° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 4° 4° 21° London Mallorca New York 9° 18° 5° Orlando Ósló París 18° 1° 13° San Francisco Stokkhólmur 15° 1° -2° 6 m/s 3° 13 m/s -2° 10 m/s -5° 20 m/s -3° 12 m/s -5° 18 m/s 10° 11 m/s -7° -10 -5° -6° -6° Snjólaug Ólafsdóttir veðurfréttamaður 220,7364 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 123,97 124,57 186,43 187,33 161,65 162,55 21,678 21,804 21,544 21,67 19,262 19,374 1,3353 1,3431 186,98 188,1 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 01.03.2013 KÖNNUN Meirihluti landsmanna vill að stjórnvöld setji frekari hömlur en nú eru á rétt útlendinga til að kaupa land á Íslandi, sam- kvæmt niðurstöðu skoðanakönn- unar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var fyrir helgi. Alls sögðust 55,6 prósent þeirra sem afstöðu tóku til spurningarinnar vilja að frekari hömlur yrðu settar á landakaup útlendinga, en 44,4 prósent töldu ekki þörf á því. Útlendingar eiga að fullu, eða hluta, 101 jörð hér á landi. Á síð- ustu sjö árum hafa útlendingar eignast 13 jarðir að fullu hér á landi. Konur eru frekar á þeirri skoð- un að auka verði hömlurnar, 61,3 prósent kvenna eru þeirrar skoð- unar samanborið við 50,1 pró- sent karla. Þá eru þeir sem eldri eru frekar á því að torvelda eigi útlendingum frekar að kaupa land. Alls eru 62,8 prósent fólks 50 ára og eldri þeirrar skoðunar, samanborið við 49,1 prósent fólks á aldrinum 18 til 49 ára. Stuðningsmenn Samfylkingar- innar eru síst á því að herða eigi reglur um landakaup útlendinga. Alls eru 42,9 prósent stuðnings- manna flokksins þeirrar skoðun- ar. Heldur hærra hlutfall stuðn- ingsmanna Sjálfstæðisflokksins, 47,9 prósent, deilir þeirri skoðun. Þeir sem styðja Framsóknar- flokkinn eru harðastir á þeirri skoðun að setja eigi frekari tak- markanir á landakaup útlend- inga, alls 66,3 prósent. Hlutfallið er svipað meðal stuðningsmanna Vinstri grænna, 62,5 prósent. Stuðningsmenn Bjartrar fram- tíðar, fimmta framboðsins sem myndi ná mönnum á þing sam- kvæmt sömu könnun, skiptast í tvo svipaða hópa. Um 51,6 pró- sent telja að setja eigi frekari hömlur á landakaup útlendinga, en 48,4 prósent vilja ekki frekari hömlur. Hringt var í 1.329 manns þar til náðist í 800 samkvæmt lag- skiptu úrtaki miðvikudaginn 27. janúar og fimmtudaginn 28. janúar. Þátttakendur voru vald- ir með slembiúrtaki úr þjóð- skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Vilt þú að settar verði frekari höml- ur á rétt útlendinga til að kaupa land á Íslandi? Alls tók 83,1 pró- sent afstöðu til spurningarinnar. brjann@frettabladid.is kolbeinn@frettabladid.is Meirihluti vill takmarka rétt útlendinga til að kaupa land Ríflega helmingur vill hömlur á rétt útlendinga til að kaupa land á Íslandi. Stuðningsmenn Framsóknarflokks og Vinstri grænna eru helst fylgjandi hömlum en stuðningsmenn Samfylkingar síst fylgjandi þeim. Jarðir að fullu í eigu útlendinga eru 28 talsins, eða 0,37 prósent allra jarða, og að auki eiga þeir hluta í 73 jörðum, eða 1,33 prósentum allra jarða. Samtals eiga þeir, að fullu eða hluta, 101 jörð. Þetta þarf þó ekki að vera tæmandi listi, þar sem útlendingar geta átt í eignarhaldsfélögum. Langflest þeirra eiga aðeins eina jörð. Magnús Leópoldsson fasteignasali segir örfá tilvik koma upp árlega þar sem útlend- ingar kaupi jarðir. Langoftast séu það menn sem séu mjög tengdir Íslandi, hafi komið árum saman til veiða, svo dæmi sé nefnt. Útlendingar eiga 0,37 prósent jarða Drengurinn sem lést í bíl- slysi í Skagafirði á föstudag hét Blængur Mikael Bogason. Hann var fæddur árið 2001 og var nýorðinn tólf ára gamall. Blængur var búsettur á Akur- eyri. Hann var farþegi í bíl sem valt skammt frá Kotá í Norð- urárdal í Skagafirði. Þrír slös- uðust í slysinu. Lést í bílslysi AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is AFSTAÐA TIL LANDAREIGNAR ÚTLENDINGA Á ÍSLANDI ■ Já Nei ■ HEIMILD: KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 DAGANA 27. OG 28. FEBRÚAR 2013 51,6% 48,4% 66,3% 33,7% 47,9% 52,1% 42,9% 57,1% 62,5% 37,5% 100% Spurt var: Vilt þú að settar verði frekari hömlur á rétt útlendinga til að kaupa land á Íslandi? ➜ Jarðir sem útlendingar eignuðust að fullu 2006 ■■■■■■ 2007 ■ 2008 ■ 2009 ■■■ 2010 2011 ■ 2012 ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.