Fréttablaðið - 04.03.2013, Page 12

Fréttablaðið - 04.03.2013, Page 12
4. mars 2013 MÁNUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Þórður Snær Júlíusson thordur@frettabladid.is Jan Mayen-samningarnir frá 1980 og 1981 eru með sterkustu samningum sem íslenska utanríkisþjónustan hefur gert. Þeir voru tær snilld. Af miklu hugviti náðu samningamenn okkar fram hagstæð- um reglum um hlutdeild í hugsanlegum olíulindum svæðisins. Þannig var afmark- að eins konar sameiginlegt nýtingarsvæði og á Ísland rétt á 25% þátttöku í olíustarf- semi á norska hluta svæðisins og Noregur á 25% þátttöku á íslenska hlutanum. Samkvæmt samkomulaginu njóta Íslendingar margvíslegs hagræðis umfram Norðmenn. Endanlegur samning- ur mælti svo fyrir að ætluðu Norðmenn að nýta rétt til fjórðungshlutdeildar í lindum Íslandsmegin, þar sem nú heitir Dreka- svæðið, yrðu þeir að tilkynna það eigi síðar en mánuði eftir úthlutun rannsókn- arleyfa. Þann rétt notfærði norska ríkis- olíufyrirtækið sér varðandi leyfin tvö sem var úthlutað á Drekanum sl. sumar. Þeir bera þannig frá upphafi fjórðung kostnað- ar við að koma svæðinu í vinnanlegt horf. Íslendingar geta hins vegar beðið með ákvörðun þangað til fyrir liggur að byrjað er að draga upp olíu eða gas Noregsmegin og líkur eru á að hún sé arðbær. Áhætta íslenska ríkisins af slíkri þátttöku er því nær engin. Utan um íslensku hlutina í olíulindum Norðmanna er hins vegar brýnt að stofna sérstakt ríkisolíufélag, líkt og Norðmenn gera í sama tilgangi. Fyrir því er raunar gert ráð í olíu lögunum sem ég lagði fram á sínum tíma. Með þessu fyrirkomulagi bera Íslendingar enga fjárhagslega áhættu. Olíusjóðurinn yrði hlutafélag, sem dregur enn úr áhættu ríkisins. Hagnaður þess gæti runnið í sér- stakan olíusjóð eða auðlindasjóð að for- dæmi Norðmanna. Þannig yrði tryggt að afrakstur lindanna kæmi núverandi kyn- slóðum aðeins til góða að litlu leyti en yrði ávaxtaður fyrir komandi kynslóðir, í krafti þeirrar fallegu röksemdar að hinir ófæddu eigi sinn skerf í endanlegum auð- lindum þjóðarinnar. Næsta skref er að stofna ríkisolíu- félag til að halda utan um hluti Íslands í olíulindum Norðmanna sem verða til á vinnslusvæðinu Noregsmegin miðlínunn- ar. Staða Íslands sem olíuríkis styrkist því fyrr sem það er gert. Ísland þarf ríkisolíufyrirtæki MEISTARATAKTAR Áhrifamikil frásögn af óþrjótandi ást, hugrekki og gæsku OLÍULEIT Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ➜ Næsta skref er að stofna ríkis- olíufélag til að halda utan um hluti Íslands í olíulindum Norðmanna sem verða til á vinnslusvæðinu Noregsmegin miðlínunnar. Bakkað í stjórnarskrármáli Nýr formaður Samfylkingarinnar, Árni Páll Árnason, kastaði sprengju inn í umræðuna á laugardag þegar hann sagði að ekki mundi nást að klára stjórnarskrármálið fyrir þinglok. Þarna er um algjöran viðsnúning á stefnu Samfylkingarinnar að ræða, en breytingar á stjórnarskrá voru eitt þeirra mála sem forveri Árna Páls, Jóhanna Sigurðardóttir, lagði hvað ríkasta áherslu á. Raunar er athyglisvert að það skuli vera Árni Páll sem talar fyrir slíkum hugmyndum, enda ljóst að þær eru ekki líklegar til vinsælda fyrir flokkinn. Hefði ekki verið betra fyrir flokkinn að Jóhanna sjálf hefði bakkað með málið? Hún hefur hins vegar ekkert tjáð sig um málið, sem bendir til þess að hún sé ekki sérstaklega sátt við mála- tilbúnaðinn. Samstaða, en þó ekki Árni Páll var kokhraustur þegar hann ræddi við Ríkisútvarpið um málið og sagði samstöðu innan flokks síns um þessa leið. Mikill skilningur væri á því að klára ætti málið í áföngum. Ekki virðist Lúðvík Geirsson, fulltrúi flokksins í stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd, hafa heyrt af þeirri samstöðu, því hann vill ljúka málinu öllu fyrir þinglok. Ótrúlegur vandræðagangur Það þarf hins vegar ekki að koma á óvart að svo sé komið fyrir málinu. Stjórnlagaráð skilaði tillögum sínum í júlí 2011. Stjórnarmeirihlutanum tókst hins vegar ekki að búa svo um hnútana að hægt yrði að kjósa um þær tillögur óbreyttar, að viðbættum sex spurningum, samhliða forseta- kosningum tæpu ári síðar. Og nú er hann að brenna inni á tíma með mál sem átti að vera skrautfjöður í hans hatt. Það getur ekki verið gott fyrir stjórnarflokkana að bakka í málinu svo skömmu fyrir kosningar, því hvernig sem menn fóðra það þá er það nákvæmlega það sem þeir eru að gera. kolbeinn@frettabladid.is S taða Íbúðalánasjóðs (ÍLS) er með ólíkindum. Þeir sem til þekkja eru sammála um að viðskiptalíkan hans gangi ekki upp, að pólitískar ákvarðanir sem teknar voru í tengslum við starfsemi hans á síðasta áratug hafi verið galnar, að eignasafnið sé líkast til stórlega ofmetið og að með hverjum deginum sem líður án aðgerða muni kostnaður skattgreiðenda vegna sjóðsins aukast. Það er ekki við núverandi stjórnendur ÍLS að sakast. Þeir eru að takast á við vandamál sem búin voru til í fortíðinni af lélegum stjórnmálamönnum. Til að draga þá til ábyrgðar var sett á fót rannsóknarnefnd um ÍLS í september 2010. Hún átti að skila af sér síðasta sumar. Í síðustu viku sagði Fréttablaðið frá því að nefndin myndi ekki þó ljúka vinnu sinni fyrr en í apríllok. Skýrsla hennar mun því ekki birtast fyrr en í fyrsta lagi í maí, eftir kosningarnar 27. apríl. Það er hentugt fyrir þá stjórn- málaflokka sem bera ábyrgð á stöðu ÍLS, en forkastanlegt gagnvart kjósendum sem fá þá ekki tækifæri til að hafa niðurstöðuna til hliðsjónar í kjörklefanum. Kostnaður skattgreiðenda vegna ÍLS er nefnilega þegar orðinn gríðarlegur og verður líklega enn meiri. Í tveimur skömmtum er sitjandi ríkisstjórn búin að dæla 46 milljörðum króna inn í sjóðinn og flestir sérfræðingar eru sammála um að mun meira muni þurfa til. Þeir allra svartsýnustu tala um allt að 200 milljarða króna til viðbótar. ÍLS hefur ekki uppfyllt eiginfjármarkmið sitt, sem er fimm prósent, frá því um mitt ár 2008. Vandi hans eykst á hverjum degi, þar sem sjóðurinn má ekki nota fé sem hann fær vegna uppgreiddra lána til að borga niður verðtryggðu skuldabréfin sem hann gaf út til að fjármagna lánin. Árið 2012 lánaði ÍLS til að mynda út 15 milljarða en uppgreidd lán hjá sjóðnum námu 18 milljörðum. Þessi tilhneiging hefur haldið áfram á þessu ári. Í febrúar lækkaði Moody ś lánshæfismat sjóðsins svo niður í ruslflokk, vegna þess að eignasafn hans er talið veikara en áður hafði verið af látið. Skömmu seinna lét seðlabankastjóri hafa eftir sér að viðskiptalíkan ÍLS gengi ekki upp. Stjórnendur og stjórn hans tóku undir það og sögðu raunar að þeir hefðu „ekki farið í grafgötur með þá skoðun sína“. Samt hefur ekkert verið gert nema að setja nokkra tugi milljarða króna inn í sjóðinn. Það er eins og að gefa sjúklingi í hjartastoppi íbúfen og vona að hann taki við sér. Það sem ríkisstjórnin hefur gert vegna þessa vanda, fyrir utan að henda skattfé í hítina, er eftirfarandi: haustið 2011 var skipaður „vinnuhópur um framtíðarhlutverk“ ÍLS. Hann lauk störfum í fyrra og í kjölfar var ráðist í lagabreytingar sem tóku ekkert á kjarnavanda hans. Það er bersýnilegt því að í síðustu viku var birt frétt á heimasíðu sjóðsins sem bar fyrirsögnina „Engar ákvarðanir um framtíðarhlutverk Íbúðalánasjóðs“. Þá var skipaður starfshópur fyrr á þessu ári sem hefur það hlut- verk að greina „framtíðarhorfur og framtíðarhlutverk Íbúða- lánasjóðs“. Hann á að skila áfangaskýrslu fyrir lok marsmán- aðar en ekki liggur fyrir hvenær lokaútgáfa á að koma út. Það kæmi líklega engum á óvart ef það drægist fram yfir kosningar. Sem yrði forkastan legt. Uppgjöri og vanda ÍLS frestað fram yfir kosningar: Forkastanlegt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.