Fréttablaðið - 04.03.2013, Side 15
Samsýning fjögurra hönnuða á HönnunarMars mun marka upp-haf endurnýjaðra lífdaga eins
elsta hússins í Grjótaþorpinu í Reykja-
vík, Vaktarbæjarins svokallaða, að
Garðastræti 23. Húsið verður opnað al-
menningi með nýjum innréttingum og
innanstokksmunum eftir þau Gulleik
Lövskar húsgagnahönnuð, Guðbjörgu
Kristínu Ingvarsdóttur skartgripahönn-
uð og Ingibjörgu Helgu Ágústsdóttur
og Ásdísi Birgisdóttur textílhönnuði.
„Mér var falið að vinna munstur
fyrir húsið,“ segir Ásdís, en hún vinnur
upp úr gömlum munstrum frá því um
aldamótin 1800. „Þetta eru vefnaðar-
munstur sem ég vinn upp úr Sjónabók
sem Heimilisiðnaðarfélagið gaf út.
Ég yfirfæri munstrið á filmur innan á
glugga, í gluggatjöld og einnig í voðir
og púða,“ bætir hún við. Í eldhús-
skápum hússins verður að finna bolla-
stell eftir Guðbjörgu Kristínu Ingvars-
dóttur skartgripahönnuð en munstrið
á stellinu er unnið út frá úr skartgripa-
línu hennar í samvinnu við finnska
hönnunarteymið Elinno. Stellið kom út
fyrir þremur árum en Guðbjörg hefur
bætt við það munum sem kynntir
verða við opnun hússins.
Eldhúsborð og stólar, sófi og svefn-
bekkur í húsinu eru eftir húsgagna-
hönnuðinn Gulleik Lövskar. „Hönnun
mín þykir tímalaus í útliti og fellur því
vel þarna inn,“ segir Gulleik. Þá verða á
veggjum myndir eftir Ingibjörgu Helgu
Ágústsdóttur, en við gerð þeirra tók
hún mið af sögu hússins.
SÖGULEGT HÚS
HÖNNUNARMARS Vaktarabærinn hefur verið endurgerður af Minjavernd.
Á HönnunarMars verður bærinn opnaður með samsýningu fjögurra hönnuða
sem hafa hannað muni sérstaklega fyrir húsið.
ÍSLENSK HÖNNUN
Þau Gulleik Lövskar,
Guðbjörg Ingvarsdóttir
og Ásdís Birgisdóttir
hönnuðu muni inn í
Vaktarabæinn en bærinn
verður opnaður almenn-
ingi á HönnunarMars.
MYND/VILHELM
ENDURNÝTT HRÁEFNI
Hollenski hönnuðurinn Joost Gehem hefur
hannað kolla úr heilu búslóðunum sem
fallið hafa til eftir dauða, skilnaði og gjald-
þrot. Hann hefur þannig búið til hráefni úr
stólum, teppum og ýmsu fleiru en frá þessu
greinir vefsíðan www.dezeen.com.