Fréttablaðið - 04.03.2013, Síða 46
MENNING 4. mars 2013 MÁNUDAGUR
Grillaður
kjúklingur
+ 2 l Pepsi*
1280tvennankr.
* Þú velur Pepsi eða Pepsi Max
FYRSTA SÆTI Í FLOKKI
MATVÖRUVERSLANA 2012
SÆTI
1.
MATVÖRUVERSLANIR
ÍSLENSKA ÁNÆGJUVOGIN
LEIKHÚS ★★★ ★★
Karma fyrir fugla
Leikstjóri: Kristín Jóhannesdóttir
KASSINN
„Maður verður alla helgina að
jafna sig á þessu,“ var komið fram
á varirnar á mér eftir frumsýn-
inguna á Karma fyrir fugla eftir
Kristínu Eiríksdóttur og Kari
Ósk Grétudóttur. En um leið og
hugsun in hafði runnið í gegnum
hugann vonaði ég að hún væri mis-
skilningur. Vonandi tekur miklu
lengri tíma en eina helgi að jafna
sig á þessari sýningu, vonandi
eimir eftir af henni varanlega.
Karma fyrir fugla er pólitískt
leikhús. Það er leikrit sem tekst
á við samfélagsmein, leikrit með
markmið, innlegg í yfirstandandi
umræðu um stöðu konunnar á
heimsvísu. Sögunni á sviðinu vind-
ur fram á Íslandi en nokkur atriði
eru aðeins öðruvísi en við eigum
að venjast hér á landi. Þannig er
það sett í samhengi hvað hlutir
eins og mansal eru sammannlegt
vandamál, ekki bara eitthvað úti í
heimi sem einhver annar þarf að
velta fyrir sér. Verkið er í dæmi-
sagnastíl, svo boðskapurinn á
sviðinu vegur nokkuð þyngra en
sagan.
Karma fyrir fugla er fremur
brotakennt stykki og helst þyrfti
annað áhorf til þess að fá almenni-
legan botn í það allt saman. En
flest þurfum við að láta okkur
duga að sjá brotin falla smám
saman í rammann, ekki fyllilega,
ekki þannig að allt skiljist, en þó
þannig að heildarmyndin verður
smám saman stærri en ramminn
sjálfur.
Það mæðir mikið á Þórunni
Örnu Kristjánsdóttir, sem er á
sviðinu svo til allan tímann í hlut-
verki Elsu, aðalpersónu verks-
ins, en hún veldur því af næmni.
Maríanna Clara Lúthersdóttir fór
einnig vel með hlutverk móður-
innar, fulltrúa þeirra kvenna sem
gangast inn á gildandi kerfi og
taka þátt í að viðhalda því af því
það er þægilegast.
Einnig verður að nefna
Krist björgu Kjeld, sem var
mögnuð í hlutverki sögu manns.
Örvæntingar fullur hlátur aldr-
aðrar gleðikonu hljómar lengi í
eyrum áhorfenda.
Hilmir Jensson var verulega
óhugnanlegur í hlutverki ungu
karlmannanna. Þorsteinn Bach-
mann, sem faðir Elsu, gerði smá-
borgarann hættulegan. Er þá
ótalin Ólafía Hrönn Jónsdóttir í
hlutverki útlifaðrar vændiskonu:
Augu hennar voru dauð. Herdís
Þorvaldsdóttir birtist svo í lok
sýningar í litlu en mikilvægu hlut-
verki sem hún sinnti af alúð eins
og vænta mátti.
L eik mynd Önnu Rúna r
Tryggvadóttur var heillandi,
næstum því líkamleg, og þjón-
aði verkinu vel. Lýsing Halldórs
Arnar Óskarssonar var svo listi-
leg að hún virtist nánast hluti
leikmyndarinnar. Búningar voru
sömuleiðis vel hugsaðir.
Leikstjórinn Kristín Jóhanns-
dóttir hefur ekki fengið auðvelt
verkefni með þessu leikverki, en
hún leysir það vel af hendi. Svið-
setningin er kraftmikil, grípandi
og áleitin, með sterku myndmáli.
Lokamynd verksins var sérstak-
lega óhugnanleg, yfirþyrmandi og
ljót, þar sem sýnd var tímabundin
huggun í botnlausu vonleysi.
Þetta er ekkert þægileg sýning.
Þeir sem vilja fara í leikhús til að
hlæja, skemmta sér og gleyma
ættu sennilega ekkert að eltast við
hana. En það var engin tilviljun að
allir frumsýningargestir Kass-
ans risu á fætur við sýningarlok
á föstudaginn. Það er svo magnað
að fara í leikhús og finna þar eitt-
hvað sem skiptir máli.
Niðurstaða: Áleitin sýning þar
sem ótal hliðar sama vanda eru
skoðaðar, vel leikin og kraftmikil.
Ardís Þórarinsdóttir
Óhugnaður í Kassanum
KARMA FYRIR FUGLA „Hún verður að vera góð ef hún á að fá að vaða uppi.“