Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.03.2013, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 04.03.2013, Qupperneq 54
4. mars 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 26 Andrés Þór Björnsson innanhúss- arkitekt frumsýnir stólinn Hug- leik á Hönnunarmars helgina 14. til 17. mars. Teikningar eftir lista- manninn Hugleik Dagsson prýða stólinn. Andrés Þór kveðst hafa feng- ið hugmyndina að stólnum fyrir rúmum áratug, þegar hann stund- aði nám í innanhússarkitektúr á Ítalíu. „Ég var á einhverri hönn- unarsýningu og sá þar stól sem var skreyttur teiknimyndum og varð mjög hrifinn af honum. Hugmyndin að stólnum hefur blundað í mér síðan þá,“ útskýrir hann. Andrés er mikill aðdáandi Hugleiks og ákvað því að leita til hans í von um samstarf. „Hann tók strax vel í hugmyndina og við erum báðir sannfærðir um að við séum með mjög söluvæna vöru í höndunum.“ Andrés og Hugleikur hittust nokkrum sinnum og ræddu hönn- un og útlit stólsins. Andrés fékk svo það vandasama verk að velja teikningar á stólinn. „Það var erf- itt að velja úr öllum teikningunum því þær voru allar svo fyndnar. Ég sleppti þessum grófustu því þær hefðu til dæmis ekki hentað inn á heimili þar sem eru börn.“ Andr- és útilokar ekki áframhaldandi samstarf við Hugleik og segir möguleika á stærri vörulínu í sama dúr, til dæmis púða og kolla. Aðspurður kveðst Hug- leikur hafa slegið til vegna þess að stólar eru húsgagn sem eru honum að skapi. „Ég sagði já af því þetta er stóll, sem er jákvætt fyrir- bæri í mínum huga, og ég hlakka mikið til að sjá útkomuna.“ Teikningar Hugleiks prýða nú stutterma- boli, húsgagn og lík- ama fólks, því ein- hverjir hafa látið húðflúra teikningar hans á sig. „Það verður forvitnilegt að sjá hvert hægt er að setja þær næst. Ég mundi allaveganna ekki vilja sjá þær allstaðar, ég vil ekki að þær séu eins og Coca-Cola.“ sara@frettabladid.is Stóllinn Hugleikur lítur dagsins ljós Andrés Þór Björnsson innanhússarkitekt hannaði stólinn Hugleik í samstarfi við listamanninn Hugleik Dagsson. Stóllinn verður frumsýndur á Hönnunarmars. Hönnuðurinn Sesselja Thorberg hefur búið til litakort fyrir Slipp- félagið með fjórtán litum. Einn þeirra heitir Hemmi Gunn. Hann er gulur og sækir innblástur sinn í leikmynd spjall- þáttarins Á tali hjá Hemma Gunn þar sem gulir og gráir tónar voru ríkjandi. „Svo er Hemmi svo mikið sólskin sjálfur,“ segir Sess- elja. „Ég hringdi í Hemma til að tékka á því hvernig hann myndi taka í þetta og hann hló eins og honum er einum lagið og fannst þetta æðislegt.“ Aðspurður segist Hemmi vera mjög lukkulegur með þetta allt saman. „Einhvern tímann fékk ég Heiðar Jónsson snyrti í þátt- inn til mín og þá sagði hann að ég ætti aldrei að vera í svörtu eða hvítu. Hann tók mig ekki beinlín- is í litgreiningu en sagði að gult og gulbrúnt væru mínir litir. Mér er svo minnistætt þegar Heiðar sagði að ég væri vordúlla,“ segir Hemmi og skellihlær. „Það er í eina skiptið sem ég hef heyrt það orð um mig, ég hef fengið að heyra flest annað. En þetta var eitthvað sem Sesselja var að tala um, að það væri bjart yfir mér,“ segir hann og er ánægður með gula litinn. „Maður sér sólina á hverjum einasta degi. Þetta er í fullu samræmi við líðan mína.“ Spurður hvort hann fái ekki ársbirgðir af málningu með litn- um segir hann: „Ég ætla rétt að vona að hún sjái til þess að mín íbúð verði máluð í gulu.“ - fb Gulur í höfuðið á Hemma Gunn Litur í nýju litakorti hönnuðarins Sesselju Thorberg innblásinn af sjónvarpsmanni. Í HÖFUÐIÐ Á HEMMA Litur í nýju litakorti hönnuðarins Sesselju Thor- berg heitir Hemmi Gunn. Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 HARÐFISKUR - barinn og óbarinn LAXAFLÖK - beinhreinsuð og flott „Ætli það væri ekki lagið Yellow með Coldplay því ég átti kanínu sem hét Stjarna og minnir mig óendanlega mikið á þetta lag. Annars á ég erfitt með að velja eitt lag með Coldplay þar sem sveitin er mín uppáhalds.“ Karen Kjartansdóttir, móttökustjóri á Park Inn og verðandi móðir. Mánudagslagið „Ég kynnist honum þegar Skálm- öld spilaði á G! festival árið 2011 og hann var að mynda. Hann er líka mikill víkingur og hefur lánað okkur vopn og annað í mynda- tökur. Hann hefur líka brugðið sér í hlutverk fyrirsætu og er á mörgum „prómó“ myndum fyrir Skálmöld. Hann óð til dæmis út í Rauðavatn í ágúst þegar við vorum að mynda fyrir nýju plötuna. Hann hikaði ekki við að vaða út í vatnið og fara á bólakaf fyrir eina mynd. Við höfum því átt góða tíma saman og við skuldum honum,“ segir Þráinn Árni Baldvinsson, gítar- leikari hljómsveitarinnar Skálm- aldar, um ljósmyndarann Ingólf Júlíusson. Meðlimir Skálmaldar gátu ekki komið fram á tónleikum sem haldnir voru á fimmtudag til styrktar Ingólfi og baráttu hans gegn hvítblæði. Þeir brugðu þess í stað á það ráð að hanna sérstaka boli til styrktar vini sínum og fjöl- skyldu hans. Mynd af Ingólfi í fullum víkinga klæðum og Skálmaldar- lógóið prýða umrædda stutterma- boli sem fást á vefsíðunni www. blekholt.is. Allur ágóði af sölu þeirra rennur óskiptur til Ingólfs. „Við vonum að sjálfsögðu að sem flestir sjái sér fært að styrkja Ing- ólf með hvaða hætti sem er, og ef það er með bolakaupum þá er það bara frábært. Hann á allt gott skil- ið þessi drengur og við erum virki- lega ánægðir með að geta aðstoð- að hann á þennan hátt því við vorum mjög leiðir yfir að missa af styrktar tónleikunum.“ - sm Skálmöld styrkir vin með sölu á bolum Meðlimir Skálmaldar eru ánægðir með að geta lagt Ingólfi Júlíussyni ljósmyndara lið í veikindunum. STYRKJA VIN SINN Hljómsveitin Skálmöld hefur látið framleiða sérstaka boli til styrktar Ingólfi Júlíussyni ljósmyndara. Þráinn Árni Baldvinsson segir Ingólf eiga allt gott skilið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „MK er sérstakur skóli því hér er stór meirihluti nemenda karlkyns. Okkur fannst því kjörið að nýta jafnréttisvikuna þetta árið í að skoða jafnrétti kynjanna og þá sérstaklega út frá sjónarhorni strák- anna. Það er svo mikilvægt að þeir upplifi mikil- vægi jafnréttis í samfélaginu, þrátt fyrir að þeirra kyn eigi ekki jafn mikið á brattann að sækja,“ segir Reynir Þór Eggertsson, kennari við Menntaskólann í Kópavogi. Í dag hefst árleg jafnréttisvika í skólanum og verður kynjajafnrétti þemað að þessu sinni. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir nemendur alla vikuna og málefninu velt upp með þeim með fyrirlestrum og kvikmyndasýningum. „Við fáum frábæra gesti í heimsókn til að tala við krakkana og svara spurningum þeirra,“ segir Reynir, en meðal fyrirlesara eru Páll Óskar, Hildur Lilliendahl og Sóley Tómasdóttir. Þær Sóley og Hildur hafa farið mikinn í baráttunni fyrir réttindum kvenna og aðspurður segir Reynir suma unglingana tví- stígandi yfir því að mæta á fyrirlestur hjá þeim. „Sumir dæsa þegar þeir heyra minnst á þær og finnst þær létt bilaðar, eins og vill gerast þegar um svona skoðana sterkt og kraftmikið fólk er að ræða, en báðar eru þær sterkar og skemmtilegar konur sem gaman er að hlusta á. Krakkarnir þurfa ekkert endilega að vera sammála öllu sem þær segja enda viljum við vekja þau til umhugsunar og sjálfstæðra skoðana í stað þess að lepja upp skoðanir annara,“ segir hann. - trs Fjallað um kynjajafnrétti í MK Hvetja nemendur til sjálfstæðra skoðana frekar en að lepja þær upp eft ir öðrum. MEÐAL FYRIRLESARA Sóley Tómasdóttir er á meðal þeirra sem heimsækja MK í Jafnréttisvikunni. Að sögn Andrésar er stóllinn Hug- leikur svokallaður „lounge“-stóll. „Sögurnar og teikningarnar hans Hugleiks eru mjög einfaldar og mér fannst að stóllinn ætti að vera það líka,“ segir hann. Einfaldur eins og teikningar Hugleiks HANNAÐI HUGLEIK Innanhúsarkitektinn Andrés Þór Björns- son hannaði stólinn Hugleik sem skreyttur er teikningum eftir Hugleik Dagsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.