Fréttablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTIR NÝR DÓMARIFyrirsætan Heidi Klum hefur tekið að sér dómarastöðu í þættinum America‘s Got Talent. Aðrir dómarar í þætt- inum verða Howard Stern, grínistinn Howie Mantel og kryddpían fyrrverandi Melanie Brown. Þær Heidi og Melanie koma í stað Sharon Osbourne. LAMBABORGARI MEÐ BERNAISETEXASBORGARAR KYNNA Lambaborgari ðsteiktum laukhringj Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.www.mistyskor.is Hugsaðu vel um fæturna Sími 551 2070Opið mán.-fös. 10-18Opið laugardaga 10-14 Í hálfa öld hafa miljónir manna um allan heim notað BIRKENSTOCK sér til heilsubótar. Hvað um þig? Teg: „ Annapolis“ Fótlaga skór úr leðri með vönduðu innleggi. Stærðir: 36 - 42 Verð: 28.900.- Ný sending frá MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 24 SÉRBLAÐ Fólk Sími: 512 5000 7. mars 2013 56. tölublað 13. árgangur Þetta fólk fór þarna í góðri trú og fullkomnu trausti til að kaupa sér skjól í ellinni, og það endar með þessum hætti. Sigríður Kristinsdóttir lögmaður MENNING Ragnar Bragason breytir Gullregni í kvikmyndahandrit. Tökur gætu hafist á næsta ári. 62 SPORT Er Tottenham-maðurinn Gareth Bale í sama flokki og Lionel Messi og Cristiano Ronaldo? 58 ALÞINGI Atvinnuvegaráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, verður veitt heimild til að fjármagna upp- byggingu innviða í tengslum við stóriðjuverkefni á Bakka, verði frumvarp ráðherra þar að lútandi að lögum. Beinn kostnaður ríkis- sjóðs nemur 3,4 milljörðum. Samkvæmt frumvarpinu verð- ur ráðherra falið að semja um veg- tengingar á milli Húsavíkur hafnar og Bakka. Þá verður veitt víkjandi lán vegna hafnar framkvæmda fyrir allt að 819 milljónum. Ýmsar ívilnanir verða veittar, svo sem undanþága frá trygginga- gjaldi. Þá verður rekstraraðila veittur 237 milljóna króna styrkur til að þjálfa starfsfólk. Fjárlagaskrifstofa fjármála- og efnahagsráðuneytisins er gagn- rýnin á ívilnanirnar í umsögn um frumvarpið og veltir upp hvort þær skapi fordæmi gagnvart öðrum verkefnum. Einnig setur hún spurningarmerki við undanþágu frá tryggingagjaldi og telur hættu á að hún hafi áhrif á rétt starfs- manna til velferðar trygginga og þjónustu sem gjaldið fjármagnar. Skrifstofan telur að með frumvarp- inu sé horfið frá stefnu sem mörk- uð var í lögum frá 2010 um íviln- anir vegna nýfjárfestinga. Guðmundur Hörður Guðmunds- son, formaður Landverndar, tekur undir það. Langt sé gengið í að styðja við stóriðjuframkvæmdir, sem og einstaka fyrirtæki. „Í upp- siglingu er líklega stærsti kosn- ingavíxill sem nokkru sinni hefur verið gefinn út,“ segir hann. Bakki er í kjördæmi Stein- gríms, Norðausturkjördæmi, og Guðmundur segir að það virðist spila inn í. „Mér sýnist að þetta sé klárlega hluti af kosningabaráttu Vinstri grænna í kjördæminu.“ - kóp / sjá síðu 12 Steingrímur vill ívilna stóriðju Ráðherra fer fram á heimild til sérstakra ívilnana vegna stóriðju á Bakka. Starfsemin undanþegin trygginga- gjaldi, sem gæti haft áhrif á réttindi starfsmanna. Kostar ríkissjóð 3,4 milljarða og lægri skatttekjur að auki. Heildarkostnaður ríkissjóðs vegna vegtengingar milli Húsavíkur- hafnar og iðnaðarsvæðisins á Bakka er áætlaður 1,8 milljarðar króna. Um 1,8 km leið er að ræða. Gert er ráð fyrir að strax næsta ár fari 100 milljónir í rannsóknir og útboðsgögn. Boruð verða eins kílómetra löng göng í gegnum Húsavíkurhöfða, en Vegagerðin telur kostnað við þau svipaðan og við veg sem upp- fyllti allar kröfur iðnfyrirtækja. Til samanburðar eru Strákagöng við Siglufjörð tæplega 800 metrar. 1.800 milljónir í vegi og jarðgöng Opið til 21 í kvöld Allt fyrir ferm gunain OPIÐ TIL Í KVÖLD www.kaupumgull.is Græddu á gulli Upplýsingar og tímapantanir: Sverrir s. 661-7000 Kringlunni 3. hæð. Í uppsiglingu er líklega stærsti kosninga- víxill sem nokkru sinni hefur verið gefinn út. Guðmundur Hörður Guðmundsson formaður Landverndar Bolungarvík -2° A 14 Akureyri -2° A 8 Egilsstaðir -2° A 10 Kirkjubæjarkl. 0° A 16 Reykjavík 0° A 17 STORMUR SYÐST Í dag verða víða 10-18 m/s en 18-23 m/s syðst. Él en úrkomulítið N-til. Frost 0-5 stig en frostlaust við S-ströndina. 4 SKOÐUN Eygló Ingadóttir skrifar um skaðleg áhrif niðurskurðar á Land- spítala. 24 DÓMSMÁL Hálfáttræð kona á erf- itt með að ná endum saman af því að allt sparifé hennar situr fast inni á hjúkrunarheimilinu Eir vegna fjárhagsvandræða stofn- unarinnar. Á sama tíma þarf hún að greiða háa leigu í hverjum mánuði á öðru hjúkrunarheimili. „Þetta er mjög alvarleg staða,“ segir Sigríður Kristinsdóttir, lög- maður hennar. Konan er önnur tveggja ein- staklinga sem hafa höfðað mál á hendur Eir til að fá afhentan svo- kallaðan búseturétt upp á sam- tals tugi milljóna króna. Sam- kvæmt samningi áttu þau að fá hann greiddan út eftir að lyklum að íbúðunum á Eir var skilað. „Kröfurnar voru gjaldfallnar fyrir mitt síðasta ár. Þessi búsetu- réttur hefur ekki verið greiddur þrátt fyrir áskoranir þar um og þess vegna var Eir stefnt inn til greiðslu,“ segir Sigríður, sem er lögmaður beggja aðila. Hinn skjólstæðingur hennar er hálfsjötugur maður, erfingi fyrr- verandi íbúa á Eir. Hann hefur þegar greitt milljónir í erfðafjár- skatt af búseturéttargreiðslunni, þrátt fyrir að hann hafi enn ekki séð krónu af fénu. Alls eru ellefu manns í þessari stöðu og skuld Eirar við þá nemur 200 milljónum króna. Sigríður telur að Eir hafi brotið á jafnræði kröfuhafa með því að gera upp við lánardrottna sína á meðan fólkið fékk ekkert greitt. - sh / sjá síðu 4 Eldri kona er með allt sparifé sitt fast hjá Eir og nær varla endum saman: Skjólstæðingar Eirar höfða mál Ný vantrauststillaga Liðsmenn stjórnarflokkanna og Bjartrar framtíðar vilja ræða stjórnarskrármál frekar en vantraust. Vantrauststillagan gæti beðið til morguns. 2 Vanræksla og ofbeldi Allt að fjögur þúsund börn búa við heimilisofbeldi, segir í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 6 Tafir á rannsókn Landlæknis- embættinu hefur enn ekki borist greinargerð frá Sjúkrahúsinu á Akur- eyri um sjálfsvíg sjúklings. 8 Óvissa vegna andláts Töluverð óvissa ríkir í Venesúela eftir andlát Hugo Chavez forseta landsins. Kosið verður innan 30 daga. 10 ÖNGÞVEITI Í ÓVEÐRINU Mjög mikið var um umferðaróhöpp í ófærðinni á höfuðborgarsvæðinu í gær. Á myndinni má sjá tuttugu bíla árekstur við Kópavogslæk undir hádegi. Þrátt fyrir fannfergi gærdagsins er reiknað með því að skólar á höfuðborgarsvæðinu verði opnir í dag. Lögreglan og almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins ítreka þó að fólk skuli fylgjast vel með upplýsingum um færð og veður í fj ölmiðlum. Sjá síðu 16 FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.