Fréttablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 36
FÓLK|| FÓ K | TÍSKA4
■ HÖNNUN
Tískuhönnuðurinn Paul Smith hefur
tekið höndum saman við góðvin sinn,
söngvarann David Bowie. Smith mun
framleiða opinberan stutterma bol
sem kemur í verslanir samhliða nýjum
hljómdiski Bowies, The Next Day, sem
verður gefinn út 11. mars. Myndin á bolnum
er innblásin af umslagi plötunnar Heroes frá
1977. David Bowie hefur oft klæðst fötum
Paul Smith í gegnum tíðina. Þeir félagar ætla
sér að starfa meira saman á árinu.
PAUL SMITH FYRIR BOWIE
Sýningin sem ber heitið; The Fashion World
of Jean Paul Gaultier: From The Sidewalk
To The Catwalk, spannar fjörutíu ára feril
Gaultiers sem tískuhönnuður. Sýningin var
fyrst opnuð í Bandaríkjunum 2011 og hefur
síðan verið sett upp í Kanada og víða
í Evrópu. Nú er komið að Lundúnum,
nánar tiltekið Barbican þar sem sýningin
verður sett upp í apríl á næsta ári.
Á sýningunni gefur að líta margar
frægar flíkur. Helst ber að nefna heims-
þekkt lífstykki Madonnu með keilulaga
skálunum sem hún klæddist á tónleikaferð
sinni Blonde Ambition árið 1990. Þá verða
þrír aðrir búningar á sýningunni sem
Gaultier hannaði sérstaklega fyrir söng-
konuna. Þá má einnig nefna fatnað sem
hönnuðurinn bjó til fyrir Kylie Minogue
og Dita Von Teese. Alls verða um 140
hátísku- og hvunndagsklæðnaðir til
sýnis en flest eru fötin úr einkaeigu
hönnuðar ins sjálfs.
HÖNNUN GAULTIERS
MADONNA Á sýningunni má meðal
annars líta lífstykki sem Gaultier hannaði
fyrir söngkonuna Madonnu.
Sýning sem tileinkuð er verkum Jean
Paul Gaultier verður opnuð í Barbican
í London á næsta ári.
GLÆSIKLÆÐNAÐUR
Sýningin spannar fjörutíu
ára feril Jean Paul Gaultier
sem tískuhönnuðar.
NORDICPHOTOS/GETTY
TVEIR
GÓÐIR
Paul Smith
og Bowie
eru góðir
vinir.
100% dúnsæng á fermingartilboði
Dúnmjúkur draumur
NORÐURKRILL
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Hressari á morgnana!
„Í heilsueflingu minni sem hófst í ágúst 2011 hef ég notað Norðurkrill
omega 3 gjafa og ég fann mjög fljótt mikinn mun á mér.
Ég hafði lengi átt við skammdegisþunglyndi að stríða, var kraftlaus,
síþreyttur og fann til í liðamótum. Eftir að ég byrjaði að taka inn
Norðurkrill er miklu auðveldara að vakna á morgnana, liðverkir eru
horfnir, lundin er léttari og ég finn gríðarlegan mun á heilsunni.
Þetta var eins og punkturinn yfir i-ið og ég ætla klárlega að halda
áfram að nota Norðurkrill í minni heilsueflingu.
Ég verð 40 ára á árinu og hef sjaldan verið í jafngóðu andlegu
og líkamlegu formi.“
Björn Ólason
Aðeins þarf 1-2 hylki á dag til að mæta dagsþörfinni og það er ekkert eftirbragð,
uppþemba eða magaólga sem oft fylgir inntöku á fiski- og jurtaolíum.
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
20%
afsláttu
r
1 – 15 ma
rs
OMEGA 3 getur gengt lykilhlutverki þegar kemur að því að efla stoðkerfið, huga-
og heilastarfsemi, hjarta og æðakerfi.
NORÐURKRILL ein öflugasta uppspretta af OMEGA 3 úr hafinu unnið úr krilli (ljósátulýsi)
NORÐURKRILL er fáanlegt í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna