Fréttablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 50
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42MENNING KOMIN Í KILJU! Bílgreinasambandið Kl. 14:00 – 15:30 Sérgreinafundir Almenn verkstæði Málningar- og réttingarverkstæði Sölusvið Kl. 15:30 – 15:45 Kaffihlé Kl. 15:45 – 16:00 Setning fundar: Sverrir Viðar Hauksson formaður BGS. Kl. 16:00 – 16:30 Erindi: Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra Kl. 16:30 – 17:00 Venjuleg aðalfundarstörf Dagskrá skv. 8. gr. laga BGS 1. Skýrsla stjórnar. 2. Reikningar skýrðir og bornir upp til samþykktar. 3. Kosning formanns. 4. Kosning stjórnar. 5. Önnur mál. Stjórn BGS Aðalfundur BGS 2013 Hótel Saga fimmtudaginn 21. mars kl. 14:00 „Það er mjög ánægjulegt að hafa fengið þessi verðlaun,“ segir Jón Ólafsson, prófessor við Háskólann á Bifröst, sem í gær hlaut verðlaun Hagþenkis fyrir bók sína Appels- ínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu, en Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt verðlaun fyrir fræðirit sem skara fram úr. Bókin byggir á áralöngum rann- sóknum Jóns á viðfangsefninu en Vera Hertzsch sem var barnsmóðir Benjamíns Eiríkssonar bankastjóra og hagfræðings var tekinn höndum í Moskvu ásamt dóttur þeirra Benja- míns vorið 1938. Jón fór upphaf- lega að grennslast fyrir um afdrif hennar fyrir ættingja Benjamíns. „Þeir höfðu fengið upplýsingar sem reyndust svo ekki réttar. En í fram- haldinu kannaði ég heimildir sem tengdust mæðgunum þegar ég var í Rússlandi og smám saman kviknaði sú hugmynd að segja sögu Veru. Ég hafði þó ekki áhuga á því að skrifa hefðbundna ævisögu heldur stefndi ég að því að nota sögu hennar til að varpa ljósi á lífið í gúlaginu og mek- Hugsar mest um gúlag og lýðræði Jón Ólafsson prófessor og rithöfundur hlaut verðlaun Hagþenkis í gær fyrir bókina Appelsínur frá Abkasíu. Vera Hertzsch, Halldór Laxness og hreinsanirnar miklu. Verðlaunin eru veitt fyrir besta fræðiritið ár hvert. VERÐLAUNIN VEITT Jón Ólafsson að lokinni verðlauna- afhendingu Hag- þenkis ásamt Ólafi K. Nielsen, náttúru- fræðingi og form- anni viðurkenninga- ráðsins. Verðlaunafé er ein milljón króna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Jón Ólafsson hefur auk bókarinnar Appelsínur frá Abkasíu samið ritið Kæru félagar. Íslenskir sósíalistar og Sovétríkin 1920 til 1960, og árið 2009 gaf hann út greinasafnið Andóf, ágreiningur og áróður. Jón gegnir stöðu prófessors við Háskólann á Bifröst og hefur verið aðstoðarrektor frá 2011. Hann stundaði nám í heimspeki í Moskvu og New York. ➜ Lærði í Moskvu og New York BÆKUR ★★★ ★★ Sumar án karlmanna Siri Hustvedt. Þýðing: Nanna Þórsdóttir VAKA HELGAFELL 2013 Siri Hustvedt er sennilega þekktust fyrir að vera eigin- kona bandaríska rithöfund- arins Paul Auster en hún er þó fínasti rithöfundur sjálf og hefur skrifað nokkrar merki- legar bækur. Sumar án karlmanna kom út árið 2011 og er í ýmsu frá- brugðin fyrri bókum hennar. Hér er slegið á léttari strengi og reynt að skoða gömlu söguna um kon- una sem eiginmaðurinn yfirgefur fyrir aðra yngri með nýjum gler- augum, blanda saman kómedíu í anda gamalla Hollywood-mynda, tilvitnunum í ýmis ljóðskáld, upp- talningum á ýmsum fáránlegum kenningum sem settar hafa verið fram í gegnum tíðina um muninn á körlum og konum og segja í leið- inni sögu af konum sem glíma við heiminn hver á sinn hátt. Söguþráðurinn er í stuttu máli sá að eftir að eiginmaðurinn yfir gefur aðal persónuna Miu fær hún tauga- áfall, er lögð á geðdeild og miss- ir gjörsamlega fót- anna í lífinu. Batn- ar þó furðu fljótt og heldur á æsku slóðir til að sinna aldr- aðri móður sinni og kenna ungum stúlk- um ljóðlist. Til- valin umgjörð til að segja sögur mismun- andi kvenna á öllum aldri. Vandamálið er bara að þær kvennasögur sem hér eru sagðar eru orðnar nokkuð útjaskaðar og hafa komið fyrir í óteljandi banda- rískum kvikmyndum og kvenna- bókum. Gömlu konurnar sem fyrst fengu tækifæri til að lifa sínu lífi eftir að eiginmennirnir kvöddu eða dóu og unglingsstelpnaklíkan sem leggur eina stelpu í einelti eru ekki sérlega frumlegur vinkill á lífssögur kvenna. Þegar við bætist að aðalsöguhetjan hefur í raun ekki áhuga á að setja sig inn í líf þess- ara kvenna sem hún er að reyna að lýsa heldur hugsar stöðugt um eiginmanninn svikula, sem hafði slegið þann varnagla áður en hann fór að hann þyrfti bara pásu frá hjónabandinu, er ekki von á góðu. Karlmannslausa sumarið er undir- lagt af eiginmanninum þótt hann sé fjarverandi og konurnar eru aukapersónur. Niðurstaðan enn ein klisjan; kona sem ekki er elskuð er ekki hamingjusöm. Það sem bjargar sögunni frá því að verða bara enn ein amer- íska vellusagan er hvað Hustvedt er lipur penni, greind og víðlesin. Manni leiðist aldrei við lesturinn, glottir jafnvel út í annað við og við en hér er varla að finna nokkra hugmynd sem ekki hefur verið þaulnotuð áður né er nýju ljósi varpað á nokkurn hlut. Sem vissu- lega eru gríðarleg vonbrigði þegar höfundur eins og Hustvedt á í hlut. Þýðing Nönnu Þórsdóttur er í alla staði prýðileg, rennur vel og ber engan keim af ensku frum- textans. Hún hefur lagt sig í líma við að finna íslenskar sam svaranir svolítið sérviskulegs málfars höfundar ins og tekist það ótrúlega vel. Virkilega vel unnin þýðing. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Vel og skemmtilega skrifuð saga um útjaskað efni. Yfirgefna konan finnur sig – eða ekki anisma valdsins í Sovétríkjunum á dögum Stalíns,“ segir Jón, sem fann gögn um dvöl Veru í gúlaginu en studdist einnig við heimildir um líf kvenna sem dvöldust í sömu búðum og Vera og höfðu þannig hugsanlega kynni af henni. „Þetta er að mörgu leyti lesenda- væn aðferð, að nálgast söguna út frá einstaklingum, og ég hef að mestu leyti fengið mjög jákvæð viðbrögð fyrir þó að ritdómarar hafi að sjálf- sögðu líka gagnrýnt bókina. Það er bara gott að fólk sé ekki sammála um það hvernig vinna á hlutina eða hvaða aðferð er best til að segja sögu. En þetta er mín leið og ég vona bara að sem flestir kynni sér hana.“ Þrátt fyrir að verkinu um Veru sé lokið hefur Jón haldið áfram vinnu sinni við rannsóknir á fangabúð- um Sovétmanna, gúlaginu. „Það er mikil gróska í rannsóknum í gúlag- inu og hlutverki þess og fyrirferð í Sovétríkjunum. Eftir að skjalasöfn í Rússlandi opnuðust varð fræði- mönnum kleift að rannsaka gúlagið ítarlegar. En ef gúlagrannsóknir eru bornar saman við rannsóknir á fangabúðum nasista er ólíku saman að jafna. Enn hefur svo miklu meira verið skrifað um þýskar fanga- búðir.“ Gúlagið er þó ekki það eina sem á hug Jóns um þessar mundir, hann vinnur líka að rannsóknum um lýð- ræði. „Það má segja að þetta séu aðaláhugamálin þessa dagana: gúlag og lýðræði,“ segir hann að lokum. sigridur@frettabladid.is Endurmenntun Háskóla Íslands og Stórsveit Reykja- víkur standa að námskeiði sem er í höndum Sigurðar Flosasonar. Þar verður farið í gegnum sögu stór- sveita í djasstónlist frá miðjum þriðja áratug síðustu aldar til nútímans. Þróun formsins verður rakin og fjallað um helstu stíla, hljómsveitir og mikilvæga ein- staklinga. Kennt verður tvö kvöld, 18. og 25. mars, að Dunhaga 7. Skráningarfrestur er til 11. mars. Námskeiðinu lýkur með tónleikum Stórsveitar Reykjavíkur í Hörpu laugardaginn 30. mars. Efnis- skráin verður vörðuð gullmolum sögunnar. Tónleika- miði er innifalinn í námskeiðsgjaldi. - gun Saga stórsveita Námskeiði sem haldið verður um sígildar stórsveitir sögunnar lýkur með tónleikum Stórsveitarinnar. SIGURÐUR FLOSASON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.