Fréttablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 58
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
30
þúsund gestir sóttu
HönnunarMars í
fyrra samkvæmt
könnun Capacent.
500
manns sækir
fyrirlestrardag
HönnunarMars í
Þjóðleikhúsinu.
50
erlendir blaðamenn
sækja HönnunarMars
2013.
100
er fjöldi viðburða á
HönnunarMars.
300-400
hönnuðir sem taka
þátt í HönnunarMars.
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
GUÐRÚN BERGMANN rithöfundur og fyrirlesari kennir leiðir til að takast
á við þessa földu fíkn, sem hefur ótrúlega eyðileggjandi áhrif á
heilsuna og sýnir hvernig hægt að eiga „sætt“ líf án sykurs!
Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5,
kl. 18:30 - 21:00. Námsgögn með víðtækum
upplýsingum innifalin. Verð 4.900 kr.
Nánari upplýsingar og skráning á
ung@gudrunbergmann.is
og www.ungaollumaldri.is
Á námskeiðinu verður farið vandlega yfir:
• Hvernig sykurfíknin birtist og þau skaðlegu áhrif hún hefur á heilsuna.
• Hvernig hægt er að forðast sykur í mat með því að þekkja „dulnefni“
hans hjá framleiðendum matvæla.
• Mismunandi sykurstuðla fæðuflokka og hvaða sætuefni ber að nota.
• Hvernig frelsið frá fíkninni veitir þér aukna líkamlega orku,
heilbrigðari og stinnari húð, bætta meltingu og betra skap.
Fimmtudaginn 14. mars
Viltu takast á vi› sykurfíknina?
Vegna mikillar
eftirspurnar
höfum við bætt
við námskeiði!
VÍK PRJÓNSDÓTTIR
Þjóðmenningarhúsið, bókasalur
Vík Prjónsdóttir kynnir með stolti nýja útgáfu af Selshamnum í samstarfi við
bresk-japanska hönnunarteymið Eley Kishimoto. Frumsýndir eru einnig nýir
treflar og teppi. Opnun sýningarinnar er fimmtudaginn 14. mars kl. 16.
Vík Prjónsdóttir býður einnnig á opinn málfund föstudaginn 15. mars kl. 13 í
Bókasal Þjómenningarhússins þar sem fjallað verður um íslensku ullina, iðn-
aðinn og framtíðina. Fundarstjóri er Ari Trausti Guðmundsson.
Yfi r 100 viðburðir fara fram á HönnunarMars í ár
og dagskráin fj ölbreytt dagana 14-17.mars. Þessi
alls herjar hönnunarhelgi hefur fest sig í sessi hér á
landi enda mikil gróska í hönnunarsenunni. Frétta-
blaðið tók saman nokkra viðburði sem hönnunar-
unnendur mega ekki láta framhjá sér fara í næstu
viku. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vef-
síðunni honnunarmars.is.
HRINGRÁS
Mokka kaffi,
Skólavörðustíg
15 grafískir hönn-
uðir og myndskreytar
sýna á hinu forn-
fræga Mokka Kaffi
við Skólavörðustíg.
Fjallað er um hring-
rás í víðu ljósi og
hver hönnuður túlkar
hringrás á sinn hátt í
einu myndverki. Sýn-
ingin verður einnig
sett upp í TastyS-
pace í Las Vegas í
apríl. Þátttakendur
í sýningunni eru:
Þor leifur Gunnar
Gíslason, Bobby
Breiðholt, Signý Kol-
beinsdóttir, Elli Egils-
son, Siggi Odds, Hrefna Sigurðardóttir, Kristín Agnars-
dóttir, Dóri Andrésson, Kristjana S Williams, Hrafn
Gunnars, Sig Vicious, Jónas Valtýsson, Erla María
Árnadóttir, Alli Metall, Ragnar Freyr og Halldór Andri
Bjarnason.
VERÐLAUNA-OG UPPSKERUHÁTÍÐ FHI,
Félag húsgagna- og innanhúsarkitekta
Listasafn Reykjavíkur– Kjarvalsstaðir, Flókagötu
Verðlaunaafhending og opnunarhóf föstudaginn, 15. mars frá kl. 16-18
Verðlauna- og uppskeruhátíð Fhi fer fram í fyrsta sinn í Listasafni Reykja-
víkur, Kjarvalsstöðum, á HönnunarMars 2013. Hönnunarverðlaun Fhi eru
veitt fyrir framúrskarandi verkefni félagsmanna unnin á árunum 2007-2012.
Á sýningunni má sjá valin verkefni húsgagna- og innanhússarkitekta.
Markmið sýningarinnar er að auðga skilning og þekkingu almennings á því
sem býr að baki starfi innanhússarkitekta. Um leið örva upplifun og efla
vitund þeirra um gildi innanhússarkitektúrs sem er ein þeirra sjónlista sem
helst hefur mótandi áhrif á sjónrænt umhverfi okkar og daglegt líf.
Verkefnin sem taka þátt í Hönnunarverðlaunum Fhi eru flokkuð í fjóra yfir-
flokka. Dómnefnd velur vinningshafa fyrir hvern flokk sem og þau verkefni
sem til sýnis verða.
SAMSUÐA
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið
Harpa
Opnunarhóf fimmtudaginn 14. mars
kl. 20.
Félag Vöru- og iðnhönnuða státar
af rúmlega 100 félagsmönnum sem
vinna á mjög ólíkum sviðum. Á sam-
sýningu þeirra í ár frumsýna 18
hönnuðir ólík verk, frá húsgögnum
til upplifunarhönnunar, kertum til
gervilima.
Þátttakendur: Björg í bú, IHANNA
HOME– Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir
og Halla Björk Kristjánsdóttir, Stefán
Pétur Sólveigarson, RIM– Ragnheið-
ur I. Margeirsdóttir, Össur-Sindri Páll
Kjartansson, Krukka– Linda Mjöll
Sigmundsson og Daníel Hjörtur
Sigmunds son, Hamskipti– Anna Þór-
unn Hauksdóttir og Ingibjörg Hanna
Bjarnadóttir, Inga Sól Ingibjargar-
dóttir, Klettur– Hildur Steinþórs-
dóttir og Rúna Thors, María Sjöfn
Dupuis Davíðsdóttir, Oddný Magnea
Arnbjörns dóttir, Hanna Jóns dóttir,
Berg-Þórunn Árnadóttir, Gulleik
Lövskar, María Manda og Ratdesign–
Ragnheiður Tryggvadóttir.
Fjölbreyttur
HönnunarMars
fram undan
?Við erum hjón á fertugsaldri. Vandamálið hjá honum er
það að tólin eru bara orðin eitt-
hvað þreytt. Hann er nýfarinn
að finna fyrir því að hann á erf-
itt með að halda stinningu allan
tímann meðan við stundum sam-
farir og svo ef hann fær full-
nægingu þá er það bara eitthvað
slef. Þar af leiðandi hefur áhug-
inn hjá honum minnkað. Kyn-
lífið hefur alltaf verið mjög gott
og fjölbreytt hjá okkur svo þetta
er algjört sjokk. Ekki þykir mér
hann nú gamall svo ég vil ekki
kenna aldrinum um. Er mögu-
leiki á að þetta geti verið eitthvað
tímabundið? Hvað er til ráða?
SVAR Kynlíf breytist og þróast
eftir því sem við eldumst.
Líkam inn breytist og slíkt
getur haft áhrif á getu, löng-
un og stundum smekk. Það er
alltaf erfitt að ætla fara greina
slíkt í bréfaskrifum og því lítið
annað í stöðunni en að kíkja til
þvagfæra læknis og mögulega í
framhaldinu, í ráðgjöf hjá kyn-
fræðingi. Læknisskoðun mun
geta skorið út um hvort vanda-
málið sé líffræðilegs eðlis og þá
gefið ykkur viðeigandi ráðlegg-
ingar, jafnvel lyf. Rannsóknir
benda til þess að karlmenn veigri
sér við læknisskoðun og því gæti
stuðningur þinn skipt sköpum í
að bæta úr þessu vandamáli.
Kynfræðingur mun spjalla
við ykkur um kynlífið ykkar og
spyrjast fyrir um ýmislegt líkt
og forleik og hversu lengi sam-
farir standa yfir. Það erfitt að
tala um einn mælikvarða um
hvað sé ásættanleg tímalengd
samfara þar sem það fer oft eftir
parinu og væntingum þeirra.
Ein þýsk rannsókn leiddi í ljós
að meðallengd samfara væri um
þrjár mínútur en að konur upp-
lifðu það sem fimm mínútur.
Þessi niðurstaða segir hvorki til
um gæði samfaranna né unað
kvennanna og því takmarkað
hægt að nýta sér niðurstöðurn-
ar sem mælikvarða. Því er gott
að ræða þetta og kanna fleiri
en eina hlið kynlífsins. Oftar en
ekki glíma pör við misræmi í
væntingum til kynlífs, en einnig
til löngunar og upplifunar og því
getur spjall við sérfræðing verið
mjög hjálplegt.
Kynlíf getur haft mikil áhrif á
lífsgæði sem og gæði sambands,
sérstaklega ef þið glímið við
vandkvæði sem tengjast því. Ég
hvet ykkur því til að leita til fyrr-
greindra sérfræðinga og munið,
ekki gera ekki neitt. Gangi ykkur
vel.
Kynlífi ð breytist eft ir því
sem aldurinn færist yfi r