Fréttablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 07.03.2013, Blaðsíða 16
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | ASKÝRING | 16 BLINDBYLUR SETTI BORGARLÍFIÐ ÚR SKORÐUM 13.30 Lögregla sendi út tilkynningu um að mat yrði komið til þeirra sem hefðu svöng börn í bílum sem fastir voru vegna ófærðar. Fólki sagt að tilkynna slík atvik til 112. 15.00 Foreldrum tjáð að þeim sé óhætt að sækja börn sín. 15.30 Strætó hefur að nýju akstur á stofn- æðum. 2.00-2.30 Byrjar að hvessa og snjóa. Veður versnar hratt til 4.00. 4.00 Snjóruðningstæki og bílar á höfuð- borgarsvæðinu hefj a störf og reyna að halda stofnbrautum og strætis- vagnaleiðum opnum. Eins til að reyna að tryggja greiðan aðgang á bílastæði við grunn- og leikskóla. 9.00 Starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingarsviðs Landhelgisgæslunnar kall- aðir til aðstoðar lögreglu og slökkviliði höfuðborgar- svæðisins vegna ófærðar. Ökutæki LHG fylgja neyðar- bílum í útköll og tryggja greiðari aðgang þeirra um höfuðborgarsvæðið. 8.15 Vesturlandsvegi lokað og sátu mörg hundruð bílar fastir. Þar við sat í um fi mm klukkustundir áður en tókst að losa úr fl ækjunni með aðstoð björg- unarsveita. 10.30 15 til 20 bíla árekstur á Hafnarfj arðarvegi við Kópavogslæk. Sjúkrabílar og tækja- bíll slökkviliðsins kallaðir á vettvang. Allar björgunarsveitir Landsbjargar á Suður- og Suðvesturlandi verið kallaðar út. Öllum ferðum Strætó afl ýst vegna ófærðar. Einnig hætti Ferðaþjónusta fatlaðra akstri. 2 4 6 8 10 12 14 16 18 ÓVEÐUR „Þetta var aðallega skemmtileg lífsreynsla,“ segir Haukur Ingi Hjaltalín, sem lenti í tveimur árekstrum á leið til vinnu í gær – í sitt hvorum bílnum. Haukur Ingi býr í Hafnarfirði og vinnur í Kópavogi. Um níuleytið í gærmorgun ók hann inn í blindbyl á Reykjanesbraut við Vífilsstaðaveg. „Það næsta sem ég sá var bíll þvert á veginum,“ segir Haukur. „Ég reyndi að komast framhjá og fór út í vegrið en klessti samt á hann. Ég var fjórði bíllinn í þeim árekstri. Það stóð maður á milli bílanna og þótt ég væri ekki nema á tuttugu kílómetra hraða þá sleikti bíllinn á honum rassinn svo honum rétt tókst að stökkva frá.“ Haukur segir manninn sem slapp svo naumlega hafa sagst vera með þriggja daga gamalt barn í bílnum svo greitt hafi verið fyrst úr hans málum. Sjálfur hafi hann sest inn í bíl frá Aðstoð & öryggi þegar fulltrúi fyrirtækisins mætti á stað- inn. „Þá kom pallbíll og keyrði á þann bíl og svo þriðji bílinn sem klessti á pallbílinn,“ segir Haukur, sem kveðst í fyrstu hafa verið mjög pirr- aður yfir atburðarásinni enda óljóst hver væri í rétti. Upplifunin hafi þó verið merkileg. „Það er óneitanlega dálítið sérstakt að lenda í árekstri með fimmtán mínútna millibili á sitt hvorum bílnum.“ Sindri Ásbjörnsson hjá Aðstoð & öryggi segir að um klukkan hálf- þrjú í gær hafi starfsmenn fyrir- tækisins verið búnir að sinna um þrjátíu árekstrum. „Þetta var stórkostlega erfiður dagur,“ sagði Sindri. - gar Tugir árekstra á nokkrum klukkutímum: Lenti í tveimur árekstrum á korteri HAUKUR INGI HJALTALÍN Komst loks í vinnuna í Turninum í Kópavogi eftir tvo árekstra á leið sinni úr Hafnar- firði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 11.00 Almannavarnir senda til kynningu til for- eldra á höfuðborgar- svæðinu og ráða þeim frá því að sækja börn sín í leik- og grunn skóla þar sem þau séu örugg. For- eldrum sagt að bíða til kynningar lögreglu 18.00 Lögreglan biður öku- menn sem skildu eft ir bíla sína vegna ófærð- ar og veðurs að sækja þá sem allra fyrst. Snjóruðningur að fara af stað af fullum kraft i og mikilvægt að fastir bílar tefj i ekki hreinsun gatna. Ófært SAMHJÁLP Margir þurftu að reiða sig á hjálp frá sam- borgurum sínum í gær þegar verst lét. YFIRGEFNIR Fjölmargir þurftu að skilja bíla sína eftir þegar veðrið var sem verst í gær. Yfirgefnir bílar töfðu mjög fyrir umferð sem og hreinsunarstarfi þegar líða tók að kvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ALLT STOPP Stórir sem smáir þurftu að játa sig sigraða þegar veðrið var sem verst. Strætó sat fastur á móts við Stórhöfða með brotinn öxul. Olli það miklum töfum á umferð frá Grafarvogi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Umferð í borginni lamaðist um hríð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.