Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2013, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 07.03.2013, Qupperneq 4
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Milljón flóttamenn 1SÝRLAND Fjöldi þeirra sem flúið hafa stríðsátökin í Sýrlandi er nú kominn yfir eina milljón. Þetta þýðir að um fimm prósent landsmanna eru flúin til nágrannaríkjanna, einkum til Líbanons, Jórdaníu, Tyrklands, Íraks og Egypta- lands. Milljónir manna eru að auki á flótta innan landamæranna og á hverjum degi forða þúsundir manna sér yfir landamærin. Átökin, sem nú hafa staðið yfir í tvö ár, hafa kostað meira en 70 þúsund manns lífið. Þingmenn gegn Walesa 2PÓLLAND Samkynhneigðir þingmenn í Póllandi hafa lagt undir sig sæti á fremsta bekk pólska þingsins til að mótmæla hvössum orðum Lechs Walesa í garð samkynhneigðra. Á föstudaginn sagði Walesa, fyrrverandi forseti og friðarverðlaunahafi Nóbels, að samkynhneigðir þingmenn ættu að sitja aftast í salnum, helst á bak við vegg. Venjulega sitja flokksleiðtogar í sætunum í fremstu röð. Microsoft sektað 3BELGÍA Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gert hugbúnaðar-risanum Microsoft að greiða 561 milljarð evra, um 92.000 milljarða króna, í sekt fyrir að hafa ekki gert notendum Windows-stýrikerfisins kleift að velja sér annan netvafra í stað Internet Explorer. Microsoft hefur þar með brotið samkomulag við ESB sem gert var árið 2009. Þetta er í fyrsta sinn sem framkvæmdastjórnin sektar fyrirtæki fyrir samkomulagsbrot. Dansari játar sýruárás 4RÚSSLAND Pavel Dmitritsjenkó, 29 ára dansari við Bolsjoi-ballettinn í Moskvu, hefur játað að hafa skipulagt sýruárás á Sergei Filin, stjórnanda ballettsins. Tveir aðrir menn hafa játað aðild að árásinni. Dmitritsjenkó segist þó ekki hafa ætlað sér að ganga jafn langt og raunin varð. Filin brenndist illa á augum og í andliti þegar brennisteinssýru var skvett framan í hann hinn 17. janúar. Lögreglan segist telja að persónuleg óvild byggð á listrænum ágreiningi búi að baki árásinni. DÓMSMÁL Lögmaður tveggja ein- staklinga sem hafa höfðað mál á hendur hjúkrunarheimilinu Eir telur að kröfuhöfum Eirar hafi verið mismunað þegar hjúkrunar- heimilið gerði upp við aðra lánar- d r o t t n a á sama tíma og búseturéttar- h a fa r sem höfðu skilað lyklum sínum voru látnir hanga í lausu lofti mánuð- u m sa ma n og fengu að lokum ekkert greitt. „Mér finnst óeðlilegt að menn greiði háar fjárhæðir í afborganir af lánum en greiði ekki þeim ein- staklingum sem höfðu skilað og lagt allt sitt sparifé í þessar íbúðir. Þetta fólk fór þarna í góðri trú og fullkomnu trausti til að kaupa sér skjól í ellinni, og það endar með þessum hætti,“ segir lögmaðurinn, Sigríður Kristinsdóttir. Eins og segir frá á forsíðu blaðs- ins er önnur manneskjan sem hefur höfðað mál hálfáttræð kona sem nær varla endum saman af því að hún þarf að borga háa leigu á öðru hjúkrunarheimili en hefur hins vegar ekki aðgang að spari- fénu sínu, sem er bundið hjá Eir. Hins vegar er um að ræða erf- ingja fyrrverandi íbúa sem þegar hefur greitt erfðafjárskatt af pen- ingunum sem hann hefur ekkert séð af. Alls eru ellefu manns í sam- bærilegri stöðu; eiga inni fé hjá Eir þrátt fyrir að lyklum að íbúð- unum hafi verið skilað fyrir löngu. Heildarkrafa þeirra nemur um 200 milljónum króna. Þar af eru kröf- ur fólksins sem hefur höfðað mál einna stærstar og hlaupa sem áður segir samtals á tugum milljóna. Þessar 200 milljónir eru lítill hluti af heildarskuldum Eirar, sem nema alls um átta milljörðum króna. Þessum ellefu einstaklingum var í fyrradag boðið að fá afhent skuldabréf í stað greiðslunnar. Þeim sem enn búa á Eir var kynnt sams konar tillaga fyrir síðustu helgi. Hún felur í sér að í stað pen- ingagreiðslu þegar fólk flytji út fái það afhent skuldabréf til 25 ára, að frádregnum þeim árum sem fólk myndi búa í íbúðunum til viðbótar. „Nú erum við bara að skoða það tilboð og óska eftir gögnum frá Eir til þess að geta tekið afstöðu til þess hvort það sé hagkvæmt að taka því eða að hafna því og Eir fari þá bara í greiðslustöðvun, nauðasamninga eða þrot,“ segir Sigríður. stigur@frettabladid.is 222,2761 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 124,71 125,31 188,08 189 162,45 163,35 21,785 21,913 21,868 21,996 19,544 19,658 1,3345 1,3423 187,98 189,1 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 06.03.2013 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is ER KALT ÚTI? VIÐ ÞEKKJUM TILFINNINGUNA Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur 10-18 m/s syðra, annars hægari. BATNANDI FÆRÐ Það ættu vonandi flestir að komast til vinnu og skóla en betra er að hlusta á tilkynningar og fréttir um færð í fjölmiðlum áður en lagt er af stað. Veður skánar mikið næstu daga en það verður áfram hvasst við suðurströndina. -2° 14 m/s 0° 15 m/s 0° 17 m/s 3° 23 m/s Á morgun Víða 10-18 m/s en allt að 23 syðst. Gildistími korta er um hádegi 3° 0° 2° 0° 0° Alicante Basel Berlín 18° 9° 8° Billund Frankfurt Friedrichshafen 4° 13° 11° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 3° 3° 23° London Mallorca New York 11° 18° 4° Orlando Ósló París 20° 1° 13° San Francisco Stokkhólmur 11° -1° 0° 16 m/s 1° 12 m/s -2° 10 m/s 0° 13 m/s -3° 8 m/s -1° 15 m/s -4° 15 m/s 2° 0° 3° 0° -1° DANMÖRK Mikil óöld hefur ríkt í undirheimum Kaupmannahafnar þar sem glæpaklíkur tak- ast á. Frá áramótum hafa tveir verið drepnir og margir hafa særst í fjölmörgum hnífa- og skotárásum. Þetta eru mikil umskipti frá síðasta ári þegar klíkuátök voru í lágmarki, en vöxturinn er rakinn til þess að nokkrar minni klíkur í Kaupmannahöfn sameinuðust undir merkjum Loyal to Familia (LTF). Þeir hafa síðan troðið illsakir við Værebros Hårde Kerne (VHK) sem er tengd Vítisenglum, en þess utan hefur geis- að stríð milli Black Cobras og Bandidos. Stofnun LTF er rakin til þess að maður sem áður var í fararbroddi klíku einnar slapp úr fangelsi í nóvember og tók til við að sameina minni hópa gegn VHK. Það varð úr og nú telur LTF hátt í eitt hundrað meðlimi. Flestir þeirra eru af erlendu bergi brotnir en þó eru nokkrir af dönskum ættum þar á meðal. Þessi vargöld síðustu mánuði hefur þó haft þau áhrif að ungir menn hafa flúið klíkurnar af ótta um að verða fórnarlömb í næstu árásum. - þj Margir hafa særst og tveir látist í átökum glæpahópa í Kaupmannahöfn frá áramótum: Vargöld ríkir í undirheimum Danmerkur ÚTKALL Mikið annríki hefur verið frá áramótum hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn þar sem glæpaklíkur hafa borist á banaspjótum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Í mál við Eir vegna innlyksa sparifjár Maður og kona sem eiga inni tugi milljóna hjá hjúkrunarheimilinu Eir telja kröfu- höfum hafa verið mismunað. Eir greiddi niður lán á meðan fólk sem átti inni bú- seturéttargreiðslur fékk ekkert. 11 manns eiga þegar að hafa fengið 200 milljónir. MIKILL STYR Hjúkrunarheimilið Eir hefur verið í brennidepli frá því fyrir jól vegna fjárhagsvændraða þess. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SIGRÍÐUR KRISTINSDÓTTIR 200 milljónir króna skuldar Eir ellefu manns sem hafa fyrir löngu skilað lyklunum að íbúðum á heimilinu. HEIMURINN 1 23 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.