Fréttablaðið - 07.03.2013, Side 12

Fréttablaðið - 07.03.2013, Side 12
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is 2012 ÁRGERÐ - LÍTIÐ EKNIR! NISSAN PATHFINDER SE DÍSIL 6 stk til sölu Erum að losa lager og því eru til sölu með frábærum afslætti síðustu eintökin okkar af lítið eknum Nissan Pathfi nder árgerð 2012. Nissan Pathfi nder er afar rúmgóður jeppi með öfl ugri dísilvél, mjög öfl ugu drifkerfi , mjúkri fjöðrun og er hlaðinn staðalbúnaði. Bílarnir eru til reynsluaksturs og sölu hjá Bílalandi Kletthálsi 11 og Breiðhöfða. Komdu strax í dag og gerðu frábær kaup! NISSAN PATHFINDER SE SJÁLFSKIPTUR NÝSKRÁÐUR 05/2012, ek. 23 þ.km VERÐ ÁÐUR KR. 7.690.000 TILBOÐSVERÐ! 6.990 þús. WWW.FACEBOOK.COM/BILALAND.IS ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR TÖKUM NOTAÐA BÍLA UPP Í Í þágu heimilanna Lækkum vöruverð Markvissar og raunhæfar aðgerðir í þágu heimilanna sem má koma í framkvæmd án tafar. › Lækkum virðisaukaskatt › Einföldum og lækkum vörugjöld og afnemum þau að lokum ALÞINGI Steingrímur J. Sigfús- son, atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðherra, fær heimild til að skuld- binda ríkissjóð til útgjalda upp á 3,4 milljarða króna í tengslum við uppbygg- ingu stóriðju á Bakka, verði frumvarp um það að lögum. Að auki er farið fram á heim- ild til að veita ýmsar ívilnan- ir í tengslum við verkefnið, meiri en kveðið er á um í lögum um ívilnanir vegna fjárfestinga. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að tekjuskattur rekstrarfélags kísil vers á Bakka, PCC Bakki- Silicon hf., verði fimmtán pró- sent, en ekki tuttugu prósent eins og lög gera ráð fyrir að megi semja um. Þá verði félagið algjör- lega undanþegið tryggingar- gjaldi, en heimild er í lögum að semja um að félög greiði tutt- ugu prósent gjaldsins. Þá er gert ráð fyrir að félagið greiði engin stimpilgjöld af skjölum sem það gefur út og njóti 50 prósenta afsláttar af fasteignagjöldum. Heimild er til að semja um 30 pró- senta afslátt af fasteignagjöldum. Loks er gert ráð fyrir því að þau skattafrávik gildi í fjórtán ár. „Áætlað er að þær ívilnanir sem ríkið veitir til verkefnis- ins vegna frávika frá sköttum og gjöldum, það er lægra tekju- skattshlutfall og undanþága frá almennu tryggingagjaldi og stimpilgjaldi, geti verið um 100– 150 m.kr. á ári eða um 1–1,5 mia. kr. á 10 ára tímabili frá því að starfsemin hefst,“ segir í frum- varpinu. Það þýðir 1 til 1,5 millj- arða króna tekjumissi fyrir ríkið á tímabilinu, sem bætist við þau útgjöld sem fyrr var um getið. Í umsögn fjármálaskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytis- ins um frumvarpið er því velt upp hvort verið sé að setja fordæmi fyrir þá sem sækja um sams konar fjárfestingarverkefni. Ríkisstjórnin fól á föstudag fjármálaráðherra að ræða við aðila í Reykjanesbæ vegna fram- kvæmda við Helguvík. kolbeinn@frettabladid.is Skattaívilnanir og milljarða framlög Atvinnuvegaráðherra fær heimild til að semja um framkvæmdir í tengslum við uppbyggingu á Bakka fyrir 3,4 milljarða króna. Ríkið veitir ívilnanir vegna verk- efnisins umfram þær sem lög kveða á um. Umtalsverður skattaafsláttur gefinn. 2013 2014 2015 2016 2017 Samtals Rannsóknir og útboð v. vegtenginga 100 0 0 0 0 100 Vegtenging frá höfn að Bakka 0 850 850 0 0 1.700 Hafnarframkv. við Húsavíkurhöfn 0 348 238 233 0 819 Vegna frumvarps um uppb. innviða 100 1.198 1.088 233 0 2.619 Lóðaframkv. v. iðnaðarlóðar á Bakka 0 279 279 0 0 559 Þjálfunarstyrkur 0 0 26 105 105 237 Vegna frumvarp um samn. v. kísilvers 0 279 306 105 105 796 Samtals kostnaður ríkissjóðs 100 1.477 1.394 338 105 3.415 *Í milljónum króna Beinn kostnaður ríkissjóðs* STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.