Fréttablaðið - 07.03.2013, Qupperneq 64
7. mars 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 56
visir.is
Allt um leiki
gærkvöldsins
ÚRSLIT
ALGARVE-BIKARINN
BANDARÍKIN - ÍSLAND 3-0
1-0 Rachel Buehler (48.), 2-0 Shannon Boxx (62.),
3-0 Abby Wambach (74.).
Lið Íslands: Þóra B. Helgadóttir– Dóra María
Lárusdóttir, Sif Atladóttir, Glódís Perla Viggós-
dóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir– Fanndís
Friðriksdóttir (46. Rakel Hönnudóttir), Sara Björk
Gunnarsdóttir (83. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir),
Katrín Ómarsdóttir (73. Edda Garðarsdóttir),
Hólmfríður Magnúsdóttir– Dagný Brynjarsdóttir
(78. Guðný Björk Óðinsdóttir)– Harpa Þorsteins-
dóttir (73. Elín Metta Jensen).
DOMINO‘S-DEILD KVENNA
KKÍ ákvað eftir samráð við lögregluna að fresta
öllum leikjum gærkvöldsins vegna veðurs.
MEISTARADEILD EVRÓPU
16-LIÐA ÚRSLIT
JUVENTUS - CELTIC 2-0
1-0 Alessandro Matri (24.), 2-0 Fabio Quagliarella
(65.).
Juventus komst áfram, 5-0 samanlagt.
PSG - VALENCIA 1-1
0-1 Jonas (55.), 1-1 Ezequiel Lavezzi (66.).
PSG komst áfram, 3-2 samanlagt.
SPORT
KÖRFUBOLTI Darri Hilmarsson
spilar ekki meira með liði Þórs
Þorlákshafnar í Domino‘s-deild-
inni á þessu tímabili, en einn allra
mikilvægasti íslenski leikmaður-
inn í deildinni varð fyrir slæmum
meiðslum í leik á móti Tindastól á
dögunum.
„Þetta var óheppni og bara
partur af því að spila körfubolta
því maður getur alltaf lent í svona
slysi. Auðvitað er hrikaleg tíma-
setning á þessu rétt fyrir úrslita-
keppnina, sem er ekki nógu gott.
Það er svekkjandi og gerir þetta
mjög erfitt fyrir okkur,“ segir
Darri, en leikstjórnandinn Baldur
Þór Ragnarsson þurfti að fara í
aðgerð vegna kviðslits.
„Þegar ég lendi í þessum
árekstri heyri ég mikið brak
og fæ mikinn verk. Þá vissi ég
strax að þetta væri ekki eitt-
hvað sem maður myndi harka af
sér. Maður hefur verið heppinn
með meiðsli og aldrei lent í neinu
svona alvarlegu. Það hefur alltaf
verið eitthvert smá hnjask á manni
en ekki eitthvað alvarlegt. Maður
er hálf fatlaður og getur ekkert
notað hægri höndina almennilega.
Þá er erfitt að spila körfubolta,“
segir Darri. Hann meiddist í upp-
hafi leiksins á móti Tindastóli en
félögum hans tókst samt að landa
sigri.
„Við ætluðum okkur að enda
ofarlega í deildinni og reyna að
gera einhverja skemmtilega hluti
í úrslitakeppninni. Það var planið
nú er þetta aðeins erfiðara fyrir
okkur fyrst að við Baldur dettum
út,“ segir Darri, sem var ekki að
lenda í sínu fyrsta samstuði á ferl-
inum.
„Þetta var ekkert sérlega harð-
ur árekstur og maður hefur lent í
fullt af árekstrum og ekkert fund-
ið fyrir því. Þarna var ég með öxl-
ina á undan mér og var að teygja
mig í boltann. Ég lendi þá á Hreini
og finn strax eitthvert brak. Þetta
hefur verið einhver algjör óheppni
því áreksturinn var ekkert harð-
ur. Höggið var mjög skrítið,“ segir
Darri, sem þarf nú að hvetja liðið
frá hliðarlínunni.
„Það er mjög furðulegt að geta
ekki haft áhrif á leikinn og hjálp-
að til af einhverju viti heldur vera
að kalla inn á völlinn og reyna að
styðja strákana,“ sagði Darri.
„Það er mikilvægt fyrir okkur
að vera allavega inni á topp fjór-
um og fá heimavallarrétt í fyrstu
umferð. Það væri geggjað ef að við
myndum halda öðru sætinu,“ segir
Darri að lokum. - óój
Algjör óheppni því áreksturinn var ekki harður
Darri Hilmarsson missir af úrslitakeppninni með Þór Þorlákshöfn eft ir að hafa meiðst illa í síðasta leik.
MIKILVÆGUR Darri Hilmarsson er lykilmaður í bæði varnar- og sóknarleik Þórs.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Helgi Már Magnús-
son segir að það hafi reynst jafn-
vel erfiðara en hann átti von á að
vera spilandi þjálfari KR í Dom-
inos-deild karla. Frammistaða
liðsins hefur valdið vonbrigðum á
yfirstandandi tímabili og á mánu-
dag var skipt um aðstoðar þjálfara.
Gunnar Sverrisson var látinn fara
og Finnur Freyr Stefánsson, þjálf-
ari kvennaliðs KR, settur inn í
hans stað.
„Það var leiðinlegt að þetta hafi
bitnað á Gunnari en það þurfti
að gera breytingar og þetta er sú
ákvörðun sem stjórnin tók,“ sagði
Helgi Már við Fréttablaðið.
Helgi og Finnur munu sjá um
að setja upp æfingar liðsins í sam-
einingu en Finnur mun svo stýra
þeim, sem og leikjunum. Það er
gert svo að Helgi geti einbeitt sér
betur að hlutverki sínu sem leik-
maður.
„Ég hef kannski verið fullmikið
að skipta mér af og það tók aðeins
frá mér sem leikmaður. Við teljum
því betra að ég einbeiti mér að því
að vera leikmaður á æfingum og í
leikjum,“ segir Helgi.
Reynslan er ómetanleg
Hann segir að það sé ekki auðvelt
að blanda þessum tveimur hlut-
verkum saman. „Ég vissi að þetta
yrði krefjandi en þetta tekur svo-
lítið á. Það eru alls konar mál utan
körfuboltans sem maður þarf að
pæla í en þetta er engu að síður
búið að vera mjög skemmtilegt,
auk þess sem reynslan er ómetan-
leg.“
Helgi segist alltaf haft gaman að
því að vera hluti af leikmannahópi
í liðsíþrótt eins og körfubolta. En
hann er nú í annarri stöðu en aðrir
leikmenn.
„Ég hef alltaf haft mjög gaman
að því gríni og glensi sem ríkir inn
í klefanum. En maður hefur aðeins
þurft að halda aftur af sér og bíta í
tunguna. Það er kannski það helsta
sem ég sakna nú,“ segir Helgi.
„Það er stundum fín lína á milli
leikmanna og þjálfara en ég þarf
að vera báðum megin við hana. Ég
reyni bara að gera mitt besta.“
Tveir sigrar í sjö leikjum
KR er í sjötta sæti deildarinnar
með 20 stig, jafn mörg og Njarðvík
sem er í sjöunda sæti. KR endar
ekki neðar en í sjöunda sæti og
ólíklegt að það nái fimmta sæt-
inu úr þessu, enda aðeins þrjár
umferðir eftir af deildarkeppn-
inni.
KR hefur aðeins unnið tvo af
síðustu sjö leikjum sínum en Helgi
vonar að með breyttum áherslum í
þjálfuninni horfi nú til betri vegar.
„Á þessum tímapunkti ættu liðin
að vera að fínpússa sinn leik en við
erum kannski aðeins eftir á í því
ferli. Ég er samt vel gíraður fyrir
úrslitakeppnina og allt liðið líka.
Þetta verður ekki auðvelt en það
er ekkert annað í stöðunni en að
takast á við það.“
Þjálfarar sem ólu mig upp
Eins og staðan í efri hlutanum er
nú horfir beinast við að KR muni
mæta annaðhvort Þór Þorlákshöfn
eða Snæfelli, þó svo að það gæti
vissulega breyst. Þjálfarar þeirra
liða, Ingi Þór Steinþórsson og
Benedikt Guðmundsson, eru báðir
gamlir KR-ingar. „Og menn sem
ólu mig upp á körfuboltavellinum,“
segir Helgi í léttum dúr. „Bæði lið
eru vel þjálfuð og því ættu þetta
að vera ansi spennandi. Við erum
tilbúnir og ég tel að við verðum
öðrum liðum erfiðir í úrslitakeppn-
inni.“ eirikur@frettabladid.is
Þarf að bíta í tunguna
Helgi Már Magnússon, spilandi þjálfari KR, segir stundum erfi tt að vera báðum megin við línuna. Nýverið
voru gerðar breytingar á þjálfarateyminu og leikmanninum Helga gefi ð meira svigrúm í liði KR-inga.
ÞJÁLFARINN Í ELDLÍNUNNI Helgi Már Magnússon er í lykilhlutverki hjá KR sem leikmaður en hann er einnig þjálfari liðsins.
FRÉTTABLAÐI/VILHELM
FÓTBOLTI Ísland tapaði fyrsta leik
sínum í Algarve-keppninni í ár en
liðið mætti Ólympíumeisturum
Bandaríkjanna. Eftir marka-
lausan fyrri hálfleik lauk
leiknum með 3-0 sigri
Bandaríkjanna.
Tvö markanna komu með
skalla eftir hornspyrnu og það síðasta
eftir að sóknarmaður Bandaríkjanna
komst inn í sendingu aftur til Þóru B.
Helgadóttur í íslenska markinu.
Það var þó jafnræði með liðunum
fyrsta hálftímann en eftir það fór
að draga í sundur. Besta færi Íslands
fékk varamaðurinn Sandra María
Jessen sem komst í gegn eftir send-
ingu Rakelar Hönnudóttur. Sandra
komst framhjá bandaríska markverð-
inum en skaut framhjá markinu.
Fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir hvíldi
í leiknum í gær og bar Sara Björk
Gunnarsdóttir fyrirliðabandið í
hennar fjarveru. Edda Garðarsdóttir
lék á miðjunni og þar með sinn 98.
landsleik frá upphafi. Aðeins Katrín
hefur spilað fleiri leiki.
Ísland leikur í B-riðli á mótinu en í
hinum leik riðilsins gerðu Svíþjóð og
Kína 1-1 jafntefli. Ísland mætir Svíum
á föstudaginn og verður leikurinn
sýndur beint á Eurosport. - esá
Tap fyrir Bandaríkjunum á Algarve
3-0 SIGUR Leikmenn Bandaríkjanna
fagna en fremst er hin sautján ára
Glódís Perla Viggósdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓTBOLTI Brynjar Björn Gunnarsson fékk í gær félagaskipti yfir
í KR og er því orðinn löglegur með félaginu. Brynjar kemur til
félagsins frá Reading, þar sem hann hefur verið síðan árið
2005. Hann gerði tveggja ára samning við KR.
Brynjar er uppalinn KR-ingur en hleypti heimdrag-
anum árið 1998 er hann gekk í raðir norska félags-
ins Vålerenga. Á löngum atvinnumannaferli
hefur hann einnig leikið með Moss, Örgryte,
Stoke, Nottingham Forest og Watford.
Þessi fyrrverandi landsliðsmaður er
orðinn 37 ára gamall. Til stóð að hann
kæmi heim síðasta sumar en við
það var hætt er Reading vildi
framlengja samning við hann.
Brynjar Björn lék 74 A-lands-
leiki á sínum tíma. - hbg
Brynjar Björn kominn til KR
FÓTBOLTI Manchester United
verður mögulega refsað fyrir að
fara ekki að reglum eftir leik liðs-
ins gegn Real Madrid í Meistara-
deild Evrópu á þriðjudagskvöldið.
Real Madrid vann leikinn, 2-1, en
hvorki knattspyrnustjóri United,
Alex Ferguson, né leikmenn liðs-
ins mættu í viðtöl eftir leik.
United-menn voru ósáttir við
rauða spjaldið sem Nani fékk
í leiknum fyrir brot á Alvaro
Arbeloa. Aganefnd UEFA tekur
nú málið fyrir og ákveður hvort
Nani fái meira en eins leiks bann,
sem er lágmarksrefsing fyrir
rautt spjald.
Mike Phelan, aðstoðarstjóri
Ferguson, mætti á blaðamanna-
fund eftir leikinn og sagði Fergu-
son og leikmenn United niður-
brotna eftir leikinn. Madrídingar
unnu rimmuna samanlagt, 3-2, og
komast þar með í fjórðungsúrslit
keppninnar. - esá
United tekið
fyrir hjá UEFA
FÉKK RAUTT United-menn voru afar
ósáttir við rauða spjaldið sem Nani fékk
gegn Real Madrid. NORDICPHOTOS/GETTY
Munurinn á framlagsstuðli
Helga Más í sigurleikjum
(19,3) og tapleikjum (8,4) KR.
+10,9