Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 2
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 UTANRÍKISMÁL Íslenskur starfs- maður sendiráðs Íslands í Dan- mörku er nú kominn til Antalya í Tyrklandi þar sem Davíð Örn Bjarnason, 28 ára Íslendingur, hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því á föstudag grunaður um tilraun til smygls á fornmunum. Aðstoðarmaður ræðismanns Íslands í Ankara í Tyrklandi fékk að hitta Davíð í fangelsinu. Þá hefur lögmaður á hans vegum reynt að þrýsta á um að réttar- höldum í máli hans verði flýtt. Vonir standa til þess að Davíð verði látinn laus gegn tryggingu eftir að málið verður dómtekið. Dómurinn ákvað á föstudag að halda Davíð í varðhaldi þar sem miklar líkur voru taldar á því að hann hafi af yfirlögðu ráði ætlað að smygla steini sem fannst í farangri hans úr landi. Davíð var á leið frá Tyrklandi á föstudag ásamt Þóru Björgu Birgis dóttur sambýliskonu sinni þegar tollverðir fundu steininn, sem nú hefur verið staðfest að er fornmunur sem ólöglegt er að flytja úr landi. Davíð og Þóra segja að steinninn hafi verið keyptur í góðri trú sem minjagripur á ferða- mannamarkaði. Í þýddri lögregluskýrslu sem Fréttablaðið hefur fengið í hend- ur kemur fram að Davíð neiti því ekki að hafa verið með steininn í farangri sínum, en honum hafi ekki komið til hugar að ólöglegt væri að flytja hann úr landi. „Ef ég hefði vitað að þetta væri ólöglegt hefði ég aldrei keypt stein- inn,“ er haft eftir Davíð í skýrsl- unni. Þar kemur fram að hann hafi greitt 30 evrur fyrir stein- inn, sem er um 20 sentímetra hár marmara steinn með einhvers konar útskurði. Samkvæmt skýrslunni er Davíð ekki grunaður um aðra glæpi en tilraun til að smygla fornminjum. Við því liggur ýmist 8 til 24 milljón króna sekt eða þriggja til tíu ára fangelsisvist samkvæmt tyrknesk- um lögum. Sendiráðunautur við sendi- ráð Íslands í Danmörku flaug til Tyrklands í gærmorgun til að hitta Davíð. Pétur Ásgeirsson, sviðs- stjóri hjá utanríkis ráðuneytinu, segir að starfsmaðurinn muni að öllum líkindum heimsækja Davíð í fangelsið í dag. Til stóð að hann hitti lögmann sem unnið hefur fyrir Davíð í Antalya í gærkvöldi. Þá mun hann einnig eiga fund með fulltrúa saksóknara sem fer með málið til að fá upplýsingar um stöðu þess. brjann@frettabladid.is Ef ég hefði vitað að þetta væri ólöglegt hefði ég aldrei keypt steininn. Davíð Örn Bjarnason við skýrslutöku hjá lögreglu Vilja að réttarhöldum í Tyrklandi verði flýtt Vonast er til að Davíð Örn Bjarnason verði látinn laus úr tyrknesku fangelsi gegn tryggingu á næstunni. Íslenskur sendiráðsstarfsmaður er kominn til Tyrklands til að vinna í máli hans. Hann fær líklega að heimsækja Davíð í fangelsið í dag. Á GÓÐRI STUNDU Ferðalagið í Tyrklandi hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Davíð Örn og fjölskyldu hans. Hér er hann við rómverskar rústir í Tyrklandi ásamt Þóru Björgu Birgisdóttur, sambýliskonu sinni. Davíð Örn Bjarnason deilir klefa með tveimur þýskum föngum sem hafa hjálpað honum og gefið honum föt. Þetta kemur fram í svari Selim Sariibrahimoglu, ræðismanns Íslands í Ankara, við fyrirspurn Fréttablaðsins. Þar segir jafnframt að Davíð sé almennt heilsuhraustur en kvarti undan magaverkjum vegna matarins í fangelsinu. Hann óski þess heitt að fá að hringja í kærustu sína og þrjú börn, en til þess þurfi að útvega skjöl sem sanni að þau séu fjölskylda. Fær ekki að hringja í kærustuna Pétur, heldurðu að það sé hægt að laga fljótið? „Við yrðum þá að vera fljót.“ Lífríkið í Lagarfljóti er á vonarvöl vegna áhrifa af Kárahnjúkavirkjun. Pétur Elísson er formaður landeigenda við Lagarfljót. NÁTTÚRA „Þetta er alltaf gleðiefni. Við skulum bara vona að vorið sé að koma,“ segir Guðmundur A. Guðmundsson hjá Náttúrufræði- stofnun Íslands um þær fréttir að fyrsta lóa ársins hafi sést við Útskála í Garði í fyrrakvöld. „Þetta er með fyrra fallinu, það er nú oft um miðjan mars sem þær láta sjá sig,“ segir Guðmund- ur. Hann segir þó ekkert óhugs- andi að lóan sem sást í Garði hafi haft hér vetursetu. Alltaf sé eitt- hvað um að lóur sjáist hér á landi yfir háveturinn þótt það rati ekki endilega í fréttir. Samkvæmt Félagi áhugamanna um fugla á Hornafirði voru fyrstu farfuglar ársins tveir sílamávar, sem sáust á Bakka tjörn á Sel- tjarnarnesi þann 22. febrúar. Degi síðar bárust félaginu tilkynningar um annan sílamáf í Sandgerði og um skúm á Breiðamerkursandi. Í lok febrúar höfðu svo borist fregnir af fleiri álftum en höfðu verið í vetur auk þess sem dugg- endur, grágæsir og maríuerlur höfðu sést. - þeb Vorboðinn kemur venjulega seinna í mars, en aðrir farfuglar hafa einnig sést: Heiðlóan komin með fyrra fallinu FYRSTA LÓAN Sást við Útskála í Garði í fyrrakvöld. 2012 20. mars 2011 24. febrúar 2010 25. mars 2009 9. mars 2008 26. mars 2007 27. mars 2006 24. mars 2005 20. mars Lóukomur undanfarin ár SKIPULAGSMÁL Valsmenn hf. skoða nú hvort byggja megi 192 námsmannaíbúðir á gamla keppnisvelli Vals og nágrenni á Hlíðarenda. Forvarsmenn Valsmanna hf. segjast í bréfi til skipulagsráðs hafa verið í nánu sambandi við forráðamenn Háskólans í Reykjavík um upp- byggingu námsmannaíbúða í nágrenni skólans. „Rektor og hans fólk sýndu því mikinn áhuga og fram kom til dæmis brýn þörf þeirra fyrir íbúðir í námunda við háskólasvæðið, ekki síst fyrir þá fjölmörgu skiptinema sem sækja HR,“ segir í bréfi sem undirritað er af Brynjari Harðar syni, framkvæmdastjóra Valsmanna hf., og Herði Gunnarssyni, formanni Knattspyrnu- félagsins Vals. Valsmenn hf. eiga margar lóðir á svæðinu en það er hins vegar knattspyrnufélagið sem á umrædda lóð. Þó að háskólamenn séu áhuga- samir segir Hörður lóðina fyrst og fremst ætl- aða undir yfirbyggðan grasvöll en menn hafi reyndar íbúðir í huga einnig. Knattspyrnudeildin á því byggingarréttinn og honum fylgja miklir hagsmunir. „En fyrst og fremst göngum við erinda íþróttahagsmuna á svæðinu, það er knatthúsið og þörf þess sem ræður öllu öðru. „Nú erum við bara að finna út úr því hversu stórt þetta hús á að vera og þar með hversu mikill afgangur verður fyrir aðra starfsemi á lóðinni,“ segir Hörður Gunnars- son, formaður Vals. - gar Gamli Valsvöllurinn ætlaður undir fótboltahöll en gæti rúmað fleiri byggingar: Vilja heimild fyrir 192 námsmannaíbúðir HLÍÐARENDI Valsmenn vilja yfirbyggðan gervigrasvöll og námsmannaíbúðir á gamla keppnisvellinum. DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur gert þremur mönn- um að greiða dánarbúi grísks ferðamanns 400 þúsund krónur í miskabætur fyrir áverka sem hann hlaut af líkamsárás í maí 2010. Mennirnir þrír réðust á hann í Bankastræti og gengu hrottalega í skrokk á honum. Einn þeirra hlaut í febrúar í fyrra hálfs árs fangelsisdóm fyrir árásina, annar eins árs dóm og sá þriðji, Guðni Guillermo Gorozpe, rauf reynslulausn og hlaut þriggja ára dóm. Gríski ferðamaðurinn svipti sig lífi áður en málið var tekið til dóms. Farið var fram á rúmlega 1,2 milljónir í bætur en dómur- inn telur hins vegar ósannað að árásin hafi valdið honum óvenju- lega mikilli andlegri áþján. - sh Börðu grískan ferðamann: Gert að greiða dánarbúi bætur fyrir líkamsárás ÞARF AÐ BORGA Guðni Gorozpe hylur hér andlit sitt við aðalmeðferð málsins í héraðsdómi. FJÖLMIÐLAR Gunnar Þorsteinsson, sem áður var kenndur við Kross- inn, hefur krafist miskabóta frá vefmiðlin- um Pressunni og tals konum kvenna sem sökuðu hann um kynferðisofbeldi árið 2010. Þetta kom fram á Vísi í gær. Hann krefst þess jafnframt að hann verði beðinn afsökunar vegna ummæla sem talskonurn- ar létu falla um hann í viðtali við Pressuna. Gunnar lét af starfi forstöðu- manns Krossins fljótlega eftir að málið komst í hámæli. Lögregla rannsakaði ásakanirnar en lét málið síðan niður falla. - sh Telur hafa verið að sér vegið: Gunnar krefst miskabóta GUNNAR ÞORSTEINSSON SKOÐANAKÖNNUN Framsóknar- flokkurinn bætir enn við sig fylgi, samkvæmt nýjustu skoðana könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokkanna. Fram- sókn mælist nú með 25,9% en stóð í 23,8% í síðustu mælingu. Sjálfstæðisflokkurinn tapar enn fylgi og mælist með 27,2% nú en 28,5% í síðustu könnun. Samfylkingin mælist með 12,4% fylgi, Vinstri græn með 9,6% og Björt framtíð með 15,2% fylgi. Önnur framboð mælast öll vel innan við fimm prósent. Ríkisstjórn nýtur því stuðnings 26,5% kjósenda, sam- kvæmt könnuninni. Samtals gáfu 79,9% aðspurðra upp afstöðu sína, óákveðnir voru 7,7%, sama hlutfall sagðist skila auðu en 3,1% vildi ekki gefa upp afstöðu sína. - shá Ríkisstjórnin með 26,5%: Framsókn enn að auka fylgið SKIPULAGSMÁL Speglaveggur óafgreiddur Byggingarfulltrúi frestaði í vikunni fullnaðarafgreiðslu byggingarleyfis vegna byggingar glerveggs á húsi Menntaskólans í Reykjavík við Þingholtsstræti. Nágrönnum þótti brotið á friðhelgi einkalífs síns vegna speglunar í veggnum sem þegar hefur verið byggður. Afgreiðslunni var frestað vegna athugasemda eldvarnareftirlits. SPURNING DAGSINS Alveg mátulegur Heimilis GRJÓNAGRAUTUR H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.