Fréttablaðið - 14.03.2013, Page 4
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
VIÐ ÞEKKJUM
TILFINNINGUNA
224,5365
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,25 126,85
189,02 189,94
164,27 165,19
22,026 22,154
22,054 22,184
19,809 19,925
1,3172 1,325
189,65 190,79
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
13.03.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
ÁRÉTTING
Fyrir mistök birtist mynd sem tekin var
í verslun Pylsumeistarans með frétt um
hættuna sem stafar af of mikilli neyslu
unninna kjötvara. Eigandi verslunar-
innar segir engin viðbætt efni önnur en
krydd í pylsum verslunarinnar.
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Laugardagur
3-8 m/s.
LÉTTIR TIL Víða snjókoma eða slydda með köflum á landinu í einkum vestantil.
Dregur úr úrkomu á morgun og léttir smám saman til. Yfirleitt hæg norðlæg átt og
bjartviðri um helgina.
0°
12
m/s
2°
7
m/s
2°
3
m/s
4°
4
m/s
Á morgun
5-10 m/s, hvassara við SA-ströndina.
Gildistími korta er um hádegi
-2°
-3°
-3
-5°
-6°
Alicante
Basel
Berlín
15°
2°
0°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
0°
3°
3°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
0°
0°
21°
London
Mallorca
New York
5°
16°
3°
Orlando
Ósló
París
18°
-4°
5°
San Francisco
Stokkhólmur
19°
-5°
3°
5
m/s
2°
9
m/s
-2°
6
m/s
0°
7
m/s
-2°
5
m/s
1°
8
m/s
-3°
3
m/s
0°
-3°
0°
-4°
-4°
HEILBRIGÐISMÁL Tollgæslan lagði
á fyrstu tveimur mánuðum ársins
hald á rúmlega tvöfalt meira magn
stera en allt síðasta ár. Kári Gunn-
laugsson, yfirtollvörður í Leifsstöð,
segist óttast að aukningin endur-
spegli meiri notkun efnanna í sam-
félaginu.
„Við teljum að þetta sé vaxandi
vandamál og við sjáum ýmsar vís-
bendingar sem benda til þess.
Okkur hefur fundist vera stígandi
í þessu frá seinni hluta síðasta árs,“
segir Kári.
Sterarnir berast að sögn Kára til
landsins eftir hefðbundnum smygl-
leiðum. Efnin séu ýmist send með
pósti eða vörusendingum. Einnig sé
þekkt að þau séu falin í ferðatöskum
eða fólk hafi þau innan klæða.
„Það getur verið að efnin séu flutt
í vörugámum og skipum líka en við
höfum þá ekki verið að ná þeim.
Okkur grunar að það sé ekki verið
að fara neinar óhefðbundnar leið-
ir. Þetta kemur bara eins og annað
smygl til landsins,“ segir Kári.
Til þess að bregðast við þessari
aukningu segir Kári tollayfirvöld
sífellt leita leiða til að stemma stigu
við innflutningi efna. „Við erum
stöðugt að skoða okkar vinnubrögð
og við leggjum mikla áherslu núna
á að ná þessari tegund efna,“ segir
hann.
Valgerður Rúnarsdóttir, læknir á
Vogi, segir sífellt fleiri á Vogi hafa
misnotað stera. Steranotkun sé yfir-
leitt tengd neyslu örvandi fíkniefna.
„Þessir ungu menn sem nota örv-
andi efni eru líka á sterum og því
koma þeir ekki hingað eingöngu út
af þeim. Fólk þarf ekki að leggjast
inn á sjúkrahús og fara í afeitrun út
af sterunum,“ segir hún.
Að sögn Valgerðar misnotar fólk
ekki stera því þeir séu líkamlega
ávanabindandi. Oft sé neyslan part-
ur af útlitsdýrkun. Sjálfstraust auk-
ist til muna.
„Sterar eru allt öðruvísi efni en
ávanabindandi fíkniefni. Það er
engin fíkn sem fylgir sterum, held-
ur notar fólk þetta til þess að verða
stærra og tilfinningin er sú að því
finnst það verða öflugra og fá meira
sjálfstraust. En aðalástæðan fyrir
því að fólk notar þetta er til þess að
stækka og þá er það bara að hugsa
um útlitið. Þetta er bara útlits-
dýrkun. Fólk vill fá vöðva og það á
sem stystum tíma,“ segir Valgerður
Rúnarsdóttir. hanna@frettabladid.is
Vaxandi steraneysla
fólks sem fer á Vog
Læknir á Vogi segir steranotkun oft vera samhliða annarri fíkniefnaneyslu. Sífellt
fleiri sjúklingar á Vogi noti stera. Neyslan sé tengd útlitsdýrkun. Yfirtollvörður
segir sterainnflutning vaxandi. Hann óttist að það endurspegli aukna steraneyslu.
STERAR Tollgæslan lagði á fyrstu tveimur mánuðum ársins hald á rúmlega tvöfalt
meira magn stera en allt síðasta ár.
STJÓRNMÁL Þrjátíu ár voru liðin
í gær, 13. mars, frá stofnun Sam-
taka um kvennalista. Þann dag
árið 1983 bauð listinn fyrst fram í
þremur kjördæmum við Alþingis-
kosningar og komust þrjár konur
á þing. Þetta er fyrsti og eini
stjórnmálaflokkurinn hér á landi
sem hefur alfarið verið skipaður
konum.
Kvennalistinn hlaut 5,5 prósent
atkvæða árið 1983, rúm 10 prósent
árið 1987 og tæp fimm prósent síð-
asta árið sem hann bauð fram, árið
1995.
Yfirlýst stefna flokksins var
meðal annars kvenfrelsi, jafnrétti,
að berjast gegn ofbeldi, verja rétt-
indi samkynhneigðra og fleira.
- sv
Eina kvennaframboðið:
Kvennalistinn
30 ára í gær
KVENNALISTAKONUR VERSLA
Kvennalistinn kom sex konum á þing
árið 1987 en hann bauð fram í öllum
kosningum fram til ársins 1995.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sterar eru
allt öðruvísi
en ávana-
bindandi
fíkniefni. Það
er engin fíkn
sem fylgir
sterum, heldur notar fólk
þetta til að verða stærra
og tilfinningin er sú að því
finnst það verða öflugra og
fá meira sjálfstraust.
Valgerður Rúnarsdóttir
læknir á Vogi
UMHVERFISMÁL „Ég tel að þetta
hafi verið rétt niðurstaða,“ segir
Siv Friðleifsdóttir um þá ákvörðun
sína sem umhverfisráðherra árið
2001 að ógilda synjun Skipulags-
stofnunar sem lagðist gegn Kára-
hnjúkavirkjun.
„Í heildina má segja að fram-
kvæmdin hafi verið mjög jákvæð,
að mínu mati. Það urðu auð vitað
einhver neikvæð umhverfis áhrif,
eins og er af öllum framkvæmdum.
Svo er hægt að deila um hvað þau
eru mikil. Svo hafa orðið gríðarlega
jákvæð félagsleg
áhrif á Austur-
landi,“ segir Siv.
Um 750 verðmæt
störf hafi orðið til
í álveri á Reyðar-
firði og í kring-
um þá starfsemi.
„Þessi fram-
kvæmd var rétt-
mæt á sínum
tíma. Ég tel að ef hún hefði komið
inn á borð í dag hefði niðurstaðan
orðið sú sama,“ segir Siv.
Hún rifjar upp að ákveðið hafi
verið að ógilda synjun Skipulags-
stofnunar en setja 20 skilyrði til að
minnka umhverfisáhrif á ýmsum
sviðum. Eitt af þeim skilyrðum
hafi lotið að mótvægisaðgerðum
við Lagarfljótsvirkjun vegna auk-
ins rennslis og aurs í Lagarfljót.
„Það vissu allir að það yrðu
neikvæð áhrif á rennslið, að það
myndi aukast, en við töldum þau
ekki það mikil að þau kollvörpuðu
okkar niðurstöðu,“ segir Siv.
- bj
Siv Friðleifsdóttir heimilaði Kárahnjúkavirkjun sem umhverfisráðherra:
Framkvæmdin var mjög jákvæð
SIV
FRIÐLEIFSDÓTTIR
FUNDUR Stefán Eiríksson, lög-
reglustjóri á höfuðborgar-
svæðinu, flytur erindi um
rannsóknar-
heimildir lög-
reglu á hádegis-
fundi Varðbergs
klukkan tólf í
dag.
Meðal þess
sem verður til
umræðu, að
því er segir
í tilkynn-
ingu frá Varðbergi, er frum-
varp Ögmundar Jónassonar
innanríkis ráðherra um sím-
hleranir, sem legið hefur á þingi
í allan vetur án þess að hljóta
afgreiðslu. Þá verður einnig
rætt um vinnu við frumvarp um
forvirkar rannsóknarheimildir
og fleira.
- sh
Lögreglustjóri á fundi:
Rætt um rann-
sóknarheimildir
STEFÁN
EIRÍKSSON
ALÞINGI Alþingi mun sjálft fá
milljónir af framlögum Íslands
til þróunarsamvinnu til að nota
til eftirlits á þessu sviði, sam-
kvæmt niðurstöðu utanríkismála-
nefndar.
Alþingi mun samkvæmt því fá
0,2 prósent af heildarframlögum
Íslands til þróunarsamvinnu. Á
næsta ári fara nærri fimm millj-
arðar króna í þróunarsamvinnu
og af því fær Alþingi sjálft 9,9
milljónir.
Verja á fénu til eftirlits með
verkefnum á sviði þróunar-
samvinnu og til úttekta og rýni
óháðra aðila á ákveðnum þáttum
íslenskrar þróunarsamvinnu.
- bj
Framlög til þróunarmála:
Alþingi fær fé
til eftirlitsstarfs
NÝJA-SJÁLAND, AP Þjóðþingið á
Nýja-Sjálandi samþykkti í gær
með yfirgnæfandi meirihluta að
samkynhneigðir fái að ganga í
hjónabönd.
Þriðja umræða er að vísu eftir
en hún er nánast formsatriði því
oftast er það önnur umræðan sem
skiptir mestu máli um afstöðu
þingmanna þar í landi. Mörg
kirkjufélög á Nýja-Sjálandi eru
andvíg þessu frumvarpi en skoð-
anakannanir sýna að um tveir
þriðju almennings styðja það. - gb
Hjónabönd samkynhneigðra:
Þingið á Nýja-
Sjálandi leyfir