Fréttablaðið - 14.03.2013, Síða 10
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
ÓGEÐSLEGA FLOTTUR!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
7
0
8
1
KOMDU Í KAFFI OG REYNSLUAKSTUR
Renault átti metár í sölu á síðasta ári og var níunda söluhæsta tegundin á Íslandi til einstaklinga.
Nýr Renault Clio mun vafalítið fylgja þessum aukna áhuga eftir því hér er á ferðinni bíll sem er
fáanlegur með sparneytnum dísil- og bensínvélum auk þess sem hin vinsæla sparneytna „Dual
Clutch“ sjálfskipting verður fáanleg í Clio í vor.
EYÐSLA FRÁ 3,4 L/100* KM DÍSIL VERÐ FRÁ 2.390.000
P
FRÍTT Í
STÆÐI!
FRÍTT Í STÆÐI Á
MIÐBORGARSVÆÐINU
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílahúsið
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
421 8808
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
EuroNCAP útnefndi nýjan Clio öruggasta bílinn í sínum stærðarflokki.
Þýska blaðið AutoBild veitti honum Gullna stýrið sem áhugaverðasta bílnum í sínum flokki.
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
Aukinn viðbúnaður
1HOLLAND Hollensk stjórnvöld hafa lýst því yfir að meiri hætta sé nú á hryðjuverkum. Stjórnvöld hafa áhyggjur af því að hollenskir ríkisborgarar
hafa haldið til Sýrlands að berjast þar gegn stjórnarhernum. Hætta þykir á
að einhverjir þeirra snúi aftur og verði þá orðnir forhertari, róttækari og með
áfallastreitu, sem geri þá hættulegri en ella.
Grýttur til bana
2PAKISTAN Íbúar í Pakistan bundu hermann við bifreið og grýttu hann til bana í gær. Honum var gefið að sök að hafa átt í ástarsambandi við konu
frá svæðinu. Þetta gerðist í Parachinar, sem er höfuðstaður Kurram-héraðs,
einu af ættbálkahéruðunum í norðvesturhluta landsins sem eru að hluta
sjálfstjórnarhéruð. Fyrir þremur mánuðum var hann fluttur annað, eftir að
upp komst um samband hans við konuna. Hann sneri þó aftur fyrir nokkrum
dögum til að hitta konuna.
Dauður fiskur í þúsunda tali
3BRASILÍA Gríðarlegt magn af fiski drapst nýlega í vatni nálægt borginni Rio de Janeiro í Brasilíu. Orsakir fiskdauðans eru raktar til svipaðra að-
stæðna og í Kolgrafafirði nýlega, þar sem síld drapst vegna súrefnisskorts.
VÍSINDI Eitt sinn gæti hafi verið lífvænlegt á Mars,
miðað við niðurstöður tilraunaborana könnunar jeppans
Curiosity. Þetta er í fyrsta sinn sem sönnunar gögn hafa
fundist um að örverur gætu hafa þrifist á plánetunni
rauðu.
„Grundvallarmarkmið þessa leiðangurs var að svara
því hvort einhvern tíma gæti hafa verið líf vænlegt á
Mars, og miðað við það sem við vitum núna er svarið
já.“
Þetta sagði Michael Meyer, sem fer fyrir vísinda-
mannateyminu að baki Curiosity-leiðangrinum.
Greiningar tæki inni í jeppanum hafa grandskoðað
jarðvegssýni sem var tekið úr setlagi í botni gamals
stöðuvatns í Gale-gígnum og er niðurstaðan sú að þar
sé meðal annars að finna nitur, brennistein, vetni, súr-
efni, fosfór og kolefni, sem eru meðal þeirra efna sem
eru grundvöllur þess að líf geti þrifist.
Bendir nú flest til þess að á þessum stað hafi runnið
nokkuð ferskt vatn og að jarðvegurinn hafi verið nálægt
því hlutlaus að sýrustigi. Því er allt útlit fyrir að á ein-
hverjum tíma hafi örverur getað þrifist á Mars þótt þar
hafi enn sem komið er engin merki fundist um líf. - þj
Tímamótauppgötvun NASA eftir jarðborun könnunarjeppans Curiosity:
Eitt sinn var lífvænlegt á Mars
GRÁTT UNDIR YFIRBORÐINU Af borsýnum Mars jeppans
Curiosity má ráða að eitt sinn hafi verið lífvænlegt á
plánetunni rauðu. MYND/NASA
ARGENTÍNA Christina Fernandez,
forseti Argentínu, segir þjóðar-
atkvæðagreiðsluna á Falklands-
eyjum vera skrípaleik, sem svið-
settur var í þágu Breta.
Íbúar á Falklandseyjum efndu
til kosninga á sunnudag og mánu-
dag um það hvort þeir vilji til-
heyra áfram Bretlandi eða fara
undir yfirráð Argentínu, eins og
argentínsk stjórnvöld krefjast.
Einungis þrír kjósenda merktu
við argentínsk yfirráð, en 99,8
prósent vilja tilheyra Bretlandi
áfram. Þessi niðurstaða kom
reyndar engum á óvart, enda eru
íbúarnir flestir af breskum ættum
og leggja sig fram um að vera helst
breskari en íbúar Bretlands.
Fernandez segir kosninguna
sambærilega við það að hústöku-
fólk haldi fund til að „ákveða hvort
það ætli að búa áfram í húsinu eða
ekki.“
Alicia Castro, sendiherra
Argentínu í Bretlandi, tekur í
sama streng: „Þessi atkvæða-
greiðsla var skipulögð af Bretum
og fyrir Breta í þeim eina tilgangi
að láta þá segja að svæðið eigi að
vera áfram breskt.“
- gb
Forseti Argentínu tekur ekkert mark á atkvæðagreiðslu á Falklandseyjum:
Segir kosningarnar skrípaleik
BRESKI FÁNINN ÁBERANDI
Þjóðhátíðar stemning ríkti á Falklands-
eyjum þegar kosningin var haldin.
NORDICPHOTOS/AFP
HEIMURINN
1
2
3