Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 16
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 16
Hækkuð leiga á bankahólfum,
hækkað verð á matvælum, hunda-
mat, barnaskóm og smurolíu eru
meðal fjölmargra ábendinga frá
neytendum um verðhækkanir á vef
ASÍ í tengslum við átakið Vertu á
verði sem hófst þann 26. febrúar síð-
astliðinn. Ábendingar um verðlækk-
anir eru miklu færri, en til dæmis
er bent á gott verð á rúnnstykkjum
í bakaríi og afslátt á grænmeti og
ávöxtum í matvöruverslun.
Markmiðið með átakinu Vertu á
verði er að veita verslunar- og þjón-
ustuaðilum aðhald, hvetja þá til að
sýna ábyrgð og stöðva verðhækk-
anir. Markmiðið er einnig að brýna
fyrir almenningi að vera á verði og
fylgjast vel með þróun verðlags.
Henný Hinz, hagfræðingur hjá
ASÍ, segir fulltrúa nokkurra versl-
ana hafa haft samband og gefið
skýringar vegna ábendinga neyt-
enda. „Einhverjir hafa talið að hlut-
irnir séu öðruvísi en neytendur
upplifa þá og sumir eru ósáttir við
vettvanginn. Það að fyrirtæki séu
pínulítið ósátt segir okkur að þetta
hefur áhrif.“
Búið er að koma upp athuga-
semdakerfi á vefnum, að því
er Henný greinir frá. „Nú geta
bæði neytendur komið með sínar
athugasemdir og kaupmenn gefið
skýringar vegna ábendinganna ef
þeir vilja.“
Haraldur Guðni Eiðsson, for-
stöðumaður samskiptasviðs Arion
banka, segir í viðtali við Frétta-
blaðið að það sé rétt að ársleiga á
bankahólfi hafi hækkað á undan-
förnum árum. „Ástæðan er ein-
faldlega sú að ársleigan hafði hald-
ist nær óbreytt um nokkurt skeið
og var svo komið að tekjur vegna
leigunnar dekkuðu ekki kostn-
að vegna þjónustunnar. Því hefur
reynst nauðsynlegt að hækka leig-
una. Ég held nú að þrátt fyrir þessa
hækkun sé verðið sanngjarnt, sjö
til tíu þúsund krónur fyrir ársleigu,
eftir stærð hólfsins. Viðskiptavinir
sem eru í vildarþjónustu bankans
greiða aðeins fjögur til sjö þúsund
krónur.“
Í einni af ábendingunum á vefn-
um kveðst neytandi hafa keypt
ýsu í raspi í Krónunni en í ljós hafi
komið að ýsan hafi verið karfi í
dulargervi. Ólafur Júlíusson, inn-
kaupastjóri ferskvöru hjá Kaupás,
segir þetta ekki rétt. „Í raspi er
litar efni sem litar yfirborðið á
ýsunni og gerir það rauðleitt. Þar
af leiðandi getur viðskiptavinurinn
ruglast vegna litarins en bragðið
og útlitið á karfa er allt annað en á
ýsu.“ ibs@frettabladid.is
Neytendur eru á verði og
benda á góð kjör og slæm
ASÍ hefur efnt til átaks á netinu þar sem fólk er hvatt til að veita fyrirtækjum aðhald í verðlagsmálum. Fjöldi
ábendinga hefur borist um verðhækkanir en fólk lætur líka vita hvar hægt er að gera góð kaup.
MATARINNKAUP Neytendur fylgjast vel með þróun verðlags. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hagkaup.
Litlir
plastpokar,
íslenska
gerðin, var
að lækka úr
159 kr. niður
í 139 kr.
Litlir plastpokar
370%
VERÐMUNUR
Verkjalyf
Bónus-salat. Fann þessa líka fínu
bónussalatbakka í matarávaxtagrind-
inni hjá þeim. 50 kr. pakkinn – 100
kr. venjulegt verð er 498 kr. bakkinn.
Mæli með því að fólk skoði í þessa
körfu, finn oft gersemar þar.
Salatbakkar
Bananar og ís í
mötuneyti LSH:
Banani 1 stk. í mötu-
neyti LSH, 120 kr.
Mötuneyti
Bónus. Egils Kristall sítrónu,
12.02.2013: 198 krónur.
12.03.2003: 228 krónur.
Egils Kristall sítrónu
Bareminerals púðurfarði hjá snyrti-
stofunni guinot mc.
Keypti þetta púður fyrir 6.900 kr.
í desember 2012. Í dag, 8. mars,
kostaði það 9.700 kr.
Púðurfarði
Síðastliðið ár
kostaði það
3.000 kr. að
leigja geymslu-
hólf hjá Arion
banka, núna var
ég að fá rukkun
fyrir sama hólf
og hljóðar sá
reikningur upp
á 7.000 krónur.
Bankahólf
Reykjavíkurborg. Bláa blaðatunnan
lækkaði í verði hjá mér. Var 7.400
árið 2012 en er 6.500 árið 2013.
Bláa blaðatunnan
2012 2013
7.400 kr
6.500 kr
Í Bónus 0,495 kg á
132 kr. (3 stk.)
Kjörís súkkulaðitoppur í mötuneyti
LSH, 1 stk. 450 kr. Í Hagkaup 3 stk. í
kassa 598 kr. (ca 200 kr. stk.)
Sótti Parkódín
í Lyf og heilsu,
Firði í Hafnar-
firði, borgaði
fyrir 30 töflur
2.644 krónur.
Sama pakkning
af sama lyfi
kostar í Apótek-
inu í Setbergi
977 krónur.
2.644
977
159
139
6.900 kr
9.700 kr
198 kr
228 kr
IKEA hyggst stofna nýja hótelkeðju
í Evrópu ásamt bandarísku hótel-
samsteypunni Marriott. Kaupa á
fasteignir sem hægt verður að breyta
í lággjaldahótel fyrir ungt fólk undir
nafninu Moxy Hotel. Gert er ráð
fyrir að fyrsta hótelið verði opnað í
Mílanó í byrjun næsta árs. Ætlunin
er að stofna 150 hótel í tíu Evrópu-
löndum næstu tíu árin.
Samkvæmt frétt á vef Sydsvenska
Dagbladet hefur ekki fengist staðfest
hvort hótelherbergin verði búin hús-
gögnum frá IKEA.
IKEA STOFNAR
HÓTELKEÐJU
Ný reglugerð um snyrtivörur, sem byggir á reglugerð Evrópu-
sambandsins, tekur gildi 11. júlí næstkomandi. Hertar kröfur verða
gerðar til framleiðenda og innflytjenda. Í frétt á vef Umhverfis-
stofnunar segir að breytingarnar muni að mestu leyti snerta fram-
leiðendur snyrtivara og innflytjendur óskráðra snyrtivara frá löndum
utan Evrópska efnahagssvæðisins sem munu þurfa að taka saman
ítarlegri gögn um vörur sínar.
Með breytingunum er ætlunin að stuðla að öruggari snyrtivörum á
markaði, auka rekjanleika snyrtivara og einfalda stjórnsýslu.
Stuðlað að öruggari
snyrtivörum
Umboðsmaður telur að atvinnuvega-
ráðuneytinu hafi borið að úthluta
innflutningskvóta fyrir egg.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Samtökum verslunar og
þjónustu, SVÞ, þar sem fjallað er um
álit umboðsmanns.
SVÞ höfðu kvartað undan því
að sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneyti, nú atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneyti, virti ekki
skyldu sína til að auglýsa tollkvóta
vegna lambakjöts og matareggja.
Um er að ræða skuldbindingar
samkvæmt samningi um stofnun
Alþjóða viðskiptastofnunarinnar.
Bentu samtökin á að lögum sam-
kvæmt væri íslenska ríkinu skylt að
leyfa umræddan innflutning.
SVÞ segja álit umboðsmanns enn
einn áfellisdóminn varðandi fram-
kvæmd og stjórnsýslu stjórnvalda
vegna tollkvóta á landbúnaðarvörum.
ÚTHLUTA ÁTTI
KVÓTA VEGNA EGGJA
Neytendasamtökin fundu 105
mismunandi þvottavélar í fjórtán
verslunum þegar þau gerðu markaðs-
könnun á þvottavélum í lok janúar
síðastliðins.
Mikill verðmunur reyndist vera
á vélunum en sú ódýrasta kostaði
59.900 krónur en sú dýrasta
349.900 krónur. Það gerir tæplega
þrjú hundruð þúsund króna mun á
dýrustu og ódýrustu vélinni.
DÝRASTA VÉLIN
KOSTAR 350.000
Virðing
RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Hægt verður að kjósa til kl. 12.00 á hádegi 15. mars nk.
Láttu þig málið varða og hafðu áhrif.
Nánari upplýsingar finnur þú á www.vr.is
Lokadagur
kosningana
er 15.mars
AF VEFNUM VERTU Á VERÐI