Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 18
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 18
VIÐSKIPTI Starfsmenn Landsbank-
ans munu eignast 1,9 prósenta hlut í
bankanum miðað við stöðu svokall-
aðs skilyrts skuldabréfs í bókum
hans. Miðað við innra virði hluta-
fjár Landsbankans er virði hlutar-
ins 4,3 milljarðar króna. Það hefur
farið stigvaxandi með auknum
hagnaði bankans, en hann nam 25,5
milljörðum króna á síðasta ári.
Komist erlendir sérfræðingar að
því að skuldabréfið sé meira virði
mun hlutur starfsmannanna hækka
upp í tvö prósent og verða 4,5 millj-
arða króna virði. Þetta má lesa út
úr nýbirtum ársreikningi Lands-
bankans.
Skilyrta skuldabréfið mun
verða gefið út í lok marsmánað-
ar og þá mun skýrast hversu stór-
an hluta starfsmenn fá að eignast.
Eftir útgáfu skuldabréfsins verður
Landsbankinn nánast að öllu leyti
í eigu íslenska ríkisins, utan þess
hlutar sem mun renna til starfs-
manna. Hann verður þá eina fyrir-
tæki landsins í opinberri eigu sem
umbunar starfsfólki sínu fyrir
árangur í starfi með því að gefa því
hlutafé.
Í desember 2009 var tilkynnt um
uppgjör milli nýja og gamla Lands-
bankans. Í því fólst meðal annars að
íslenska ríkið eignaðist 81,33 pró-
senta hlut í bankanum en þrotabúið
hélt eftir afganginum. Sú breyting
gat orðið á þeirri tilhögun að ef svo-
kallað skilyrt skuldabréf yrði metið
á 92 milljarða króna í lok árs 2012
myndi þrotabúið skila hlut sínum
gegn útgáfu skuldabréfsins.
Sá hlutur átti þó ekki að renna
Starfsfólk fær 4,3 milljarða
Starfsmenn Landsbankans hafa tryggt sér að minnsta kosti 1,9 prósenta hlut í bankanum sem er 4,3 milljarða
virði. Umbunina má rekja til árangurs við hámörkun á virði ákveðinna eigna. Einsdæmi meðal ríkisfyrirtækja.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans,
er með mun lægri laun en kollegar hans hjá Ís-
landsbanka og Arion banka. Í fyrra námu heildar-
laun hans 14,2 milljónum króna auk þess sem
2,4 milljónir króna voru greiddar í lífeyrissjóð
fyrir hann. Til viðbótar hefur stjórn Landsbank-
ans lagt til hliðar 47 milljónir króna sem nota á
til að leiðrétta laun Steinþórs komist kjararáð að
þeirri niðurstöðu að endurskoða eigi þau fyrir
árin 2011 og 2012. Stjórnin telur að ákvörðun
launa Steinþórs af kjararáði kunni að vera í
andstöðu við bæði samninginn um Evrópska
efnahagssvæðið og stjórnarskrá Íslands. Hún
hefur sent Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) erindi
vegna þessa. Kjararáð hefur enn sem komið er
ekki tekið ákvörðun um laun Steinþórs.
47
MILLJÓNIR
STEINÞÓR PÁLSSON Umbun starfsfólks Landsbankans má rekja til uppgjörsins
milli nýja og gamla Landsbankans frá 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
4,3
milljarðar
er virði hlutar starfsmanna í
skilyrtu skuldabréfi
að öllu leyti til ríkisins heldur var
samið um að starfsmenn Lands-
bankans myndu fá tvö prósent af
heildarhlutafé hans ef takmarkinu
yrði náð og átti sá hlutur að mynda
stofn væntanlegs kaupaukakerfis
innan bankans.
Ekki liggur fyrir hversu mikið
hver starfsmaður fær í sinn hlut
þar sem bankinn hefur ekki kynnt
útfærslu kaupaukakerfisins.
Hluturinn átti að vera umbun
fyrir árangur starfsmanna við
hámörkun á alls átján eignum sem
mynda stofn skuldabréfsins. Ljóst
er að sú innheimta hefur gengið vel
því virði skuldabréfsins var bók-
fært á 26,5 milljarða króna í árslok
2010. Hefði það verið niðurstaðan
hefði hlutur starfsmannanna verið
0,6 prósent.
Samkvæmt ársreikningi Lands-
bankans er virði bréfsins í lok síð-
asta árs 87,5 milljarðar króna.
Þrotabúið metur það hins vegar á
92 milljarða króna og endanleg fjár-
hæð þess veltur á mati erlendra sér-
fræðinga á áðurnefndum eignum.
Eins og staðan er í dag munu
starfsmennirnir því fá 1,9 til 2,0
prósenta hlut í bankanum. Skulda-
bréfið verður gefið út í síðasta lagi
31. mars. Það verður í evrum, ber
fljótandi vexti og með lokagjald-
daga í október 2018, tíu árum eftir
fall gamla Landsbankans. Greiða
verður ársfjórðungslegar greiðslur
af því frá og með næsta ári.
thordur@frettabladid.is
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
Ávöxtunarkrafa allra markflokka
ríkisskuldabréfa hækkaði í gær
um allt að eitt prósentustig. Er
svo mikil kröfubreyting sjaldgæf
á þessum markaði en dagvelta
á markaðnum hefur aðeins einu
sinni verið hærri frá bankahruni.
Í morgunkorni greiningar
Íslandsbanka í gær segir að
hækkunina megi rekja til mats
sumra á markaði á áhrifum frum-
varps um breytingar á lögum
um gjaldeyrismál sem tekið var
til umræðu á þingi í gær. Telja
sumir frumvarpið gera aflands-
krónu eigendum óheimilt að fjár-
festa í skuldabréfum. Aðrir telja
það hins vegar oftúlkun. - mþl
Frumvarp skók markaði:
Krafa á skulda-
bréf stórjókst
MIÐLARI Dagurinn í gær var sá næst-
veltumesti á skuldabréfamarkaði frá
bankahruni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI
Hagar tvöfaldast
Hlutabréfaverð Haga hefur síðustu
daga sveiflast í kringum 27 krónur á
hlut en því verði náðu bréfin í fyrsta
sinn í síðustu viku. Þýðir það að verð
Haga hefur tvöfaldast frá því að félagið
var skráð á markað á verðinu 13,5 fyrir
einungis fimmtán mánuðum.