Fréttablaðið - 14.03.2013, Síða 36

Fréttablaðið - 14.03.2013, Síða 36
14. MARS 2013 FIMMTUDAGUR4 ● geðhjálp Við þökkum stuðninginn ■ NOTENDASTÝRÐ HEILSUGÆSLA Stjórnmálaflokkurinn Hægri grænir fagnar spurningum ykkar, stefnuskrá flokksins um málefni aldraðra einstaklinga með Alzheimerveiki og fram- tíðarsýn okkar fyrir þann hóp er skýr en ekki hafa verið haldnir sértækir fundir enn um málefni geðfatlaðra. Við tökum þó undir stefnuskrá sem byggir á einstaklingsfrelsi og einstaklings- framtaki eins og birtist svo vel í stefnuyfir- lýsingu Geðhjálpar á ágætri heimasíðu ykkar www.gedhjalp.is: ❙ Komið verði á notendastýrðri aðstoð verði valkostur í félagsþjónustu. ❙ Geðfatlaðir og aðrir sem þess óska fái tals- mann/trúnaðarmann. ❙ Að þjónusta byggi á eftirfarandi grunn- gildum: ❙ Virðing fyrir notendum, aðstandendum og viðfangsefnum velferðarkerfisins er forsenda góðrar þjónustu. ❙ Virkni er grundvöllur lífsgæða og því velferðar hvers einstaklings. ❙ Velferð einstaklingsins, andleg jafnt sem líkamleg. Hægri grænir styðja aukna áherslu á að fyrsta viðkoma í veikindum sé heilsugæslan, en til þess að af slíku megi verða verður að fjölga valkostum í rekstri slíkra stöðva. Hægri grænir eru fylgjandi því að koma á notendastýrðri heilsugæslu í þá veru að fjármagn fylgi neytendum en að rekstrar- form verði blanda af ríkisreknu og einkareknum heilsugæslustöðv- um. Til að auka þátt heilsugæslu í geðheilbrigðisþjónustu sem og annarri heilbrigðisþjónustu verður hins vegar að efla samvinnu, svipað eins og reynt er nú með samfélagsteymum. Það er stefna Hægri grænna að allir eigi að njóta grunnréttinda og ein slík réttindi eru rétturinn til að búa í viðunandi húsnæði. Hvernig húsnæðismál hvers og eins eru síðan útfærð fer eftir mismunandi þörfum ein- staklinga. Það er í sjálfu sér ekki markmið Hægri grænna að stytta biðlista eftir meðferðar þjónustu með því að útvega húsnæði en stefna okkar er að búa þeim sem glíma við fötlun möguleika sem gerir þá jafnvíga ófötluðum í þjóðfélaginu. Hægri grænir munu leitast við að efla heil- brigðisþjónustuna og gera hana skilvirkari eins fljótt og tök eru á og styðja allar tillögur þess efnis. Hægri grænir munu leitast við að hafa nána samvinnu við fulltrúa þjónustuþega í ákvörðunum sínum, en stefna okkar er að auka valkosti í heilbrigðisþjónustu. Hægri grænir telja að gera verði ráð fyrir því að veita auknu fjármagni í grunnþjónustu heil- brigðiskerfisins og munu styðja slíkar tillögur. ■ EITT AF FORGANGSMÁLUNUM 1a) Samfylkingin leggur áherslu á að mótuð verði geðheil- brigðisstefna eins og fram kemur í heilbrigðisáætlun sem vel- ferðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Velferðarráðuneytið á að bera ábyrgð á slíkri stefnumótun í samráði við sjúkrahús, heilsu- gæslustöðvar og notendasamtök. Með slíkri stefnu er geðheil- brigðisþjónusta kortlögð og hægt að tryggja að þjónusta sé veitt á réttum stigum, forvarnir verða markvissari og tryggt að nauðsynleg þjónusta sé í boði. Það er rauður þráður í stefnunni að samþætta mismunandi hluta heil- brigðiskerfisins til að bæta þjónustuna. b) Samfylkingin vill að heilsugæslan verði almennt fyrsti viðkomustaður fólks vegna heil- brigðisþjónustu. Heilsugæslan hefur verið varin þrátt fyrir mikla erfiðleika í ríkis fjármálum. Sam- fylkingin vinnur að því að heilsugæslan tryggi aðgang fólks að þverfaglegum teymum vegna m.a. geðheilbrigðisvanda. c) Geðfatlaðir eiga að fá stuðning til sjálfstæðis og virkni í samfélaginu. Sjálfstæð búseta með viðeigandi stuðningi er mikilvæg forsenda þess. Straumhvarfaverkefninu lauk árið 2010 og sveitarfélögin tóku yfir málefni fatlaðra árið 2011 og þar með búsetumálin. Ríkið og sveitarfélög þurfa að vinna náið saman að búsetumálum geðfatlaðra. Það er leiðin til að stytta biðlista og tryggja við eigandi þjónustu fyrir ein- staklingana. 2 Geðheilbrigðismálin eru eitt af forgangsmálunum í heilbrigðis- málum. Mikil umræða hefur átt sér stað að undanförnu á vegum félagasamtaka eins og Geð- hjálpar, í fjölmiðlum og á Alþingi um geðheilbrigðismál. Á LSH er mikill metnaður í þessum mála- flokki og margir leita nú þegar til heilsugæslunnar vegna geðræns vanda. Það hefur skapast góður jarðvegur fyrir umbætur í málaflokknum. Samfylkingin vill hefja nú þegar mótun geð- heilbrigðisstefnu og nýta næsta kjörtímabil til að efla heilsugæsluna með þverfaglegum teymum og vinna að fjölgun búsetuúrræða með sveitarfélögunum. 3 Metnaður okkar í Samfylkingunni er að auka fjármagn til geðheilbrigðisþjónustu eftir kostum. Aukin samvinna og þjónusta á réttu þjónustustigi leiða einnig til betri nýtingar fjármuna. Fyrstu skrefin eru að skapa samráðs- vettvang og finna sameiginlega þær lausnir sem ráðast má í strax með breyttu vinnulagi og gera síðan tímasetta framkvæmdaáætlun á grundvelli geðheilbrigðisstefnu með fjárhags- ramma. 4 Já. Samfylkingin leggur áherslu á mótun geðheilbrigðisstefnu til að bæta þjónustuna og nýta sérfræðiþekkingu og fjármuni sem best. Til að það sé mögulegt þarf samráðsvettvang. ■ FORGANGSVERKEFNI 1 Sjálfstæðisflokkurinn mun vinna að eflingu hugrænna atferlis- meðferða (HAM) í heilsugæslunni með samningum við sálfræðinga á geðsviði Landspítala. Nú njóta fimm heilsugæslustöðvar slíkrar þjónustu. Um gagnreynda með- ferð er að ræða sem hefur reynst árangursrík, hagkvæm og fallið not- endum vel í geð. Sjálfstæðisflokkur- inn vill auka framboð þjónustunnar. Að lokinni slíkri meðferð er hægt, í samráði við heilsugæslulækna, að meta hvort frekari meðferðar er þörf og hvort hún á að tengjast heilsugæslunni eða öðrum með- ferðarúrræðum. Vert er að nefna að í klínískum leiðbeiningum NICE, landlæknis og annarra stofnana er ávallt lagt til að fyrsta meðferð við geðrænum vanda skuli vera HAM og veita skuli meðferðina inni á heilsugæslustöðvum. Heilsugæslan er og verður fyrsti við- komustaður fólks með geðraskanir, um 30% þeirra sem leita þangað eiga fyrst og fremst við geðrænan vanda að stríða. Hún verður það enn frekar á næstu árum þar sem geðlæknum sem reka læknastofur hefur fækkað. Sjálfstæðisflokkurinn styður þá þróun sem orðið hefur með tilkomu VIRK, þar sem heilsu- gæslulæknar eiga auðveldara með að vísa einstaklingum í sálfræði- meðferð á vegum VIRK í tengslum við starfsendurhæfingu þeim að kostnaðarlausu. a) Sjálfstæðisflokkurinn mun vinna að eflingu hugrænna atferlismeð- ferða í heilsugæslunni með samn- ingum við sálfræðinga á geðsviði Landspítala. Nú njóta fimm heilsugæslustöðvar slíkrar þjónustu. Um gagnreynda meðferð er að ræða sem hefur reynst árangursrík, hagkvæm og fallið notendum vel í geð. Vert er að nefna að í klínískum leiðbein- ingum NICE, land- læknis og annarra stofnana er ávallt lagt til að fyrsta meðferð við geðrænum vanda skuli vera HAM og veita skuli meðferðina inni á heilsugæslustöðvum. b) Heilsugæslan er og verður fyrsti viðkomustaður fólks með geðraskanir, um 30% þeirra sem leita þangað eiga fyrst og fremst við geðrænan vanda að stríða. Hún verður það enn frekar á næstu árum þar sem geðlæknum sem reka læknastofur hefur fækkað. c) Þetta er að mati Sjálfstæðis- flokksins forgangsverkefni. Það er hvorki mannúðlegt né hagkvæmt að fólk sem búið er að meðhöndla búi á sjúkradeildum og torveldi þannig meðferð annarra. Efla þarf áfram þjónustukjarna sem sinna þeim veikustu á staðnum, en geta jafnframt sinnt öðrum í nágrenni með margs konar stuðningi eftir þörfum. 2 Á næsta kjörtímabili, komist Sjálf- stæðisflokkurinn til valda. 3 Sjálfstæðisflokkurinn vill setja geðheilbrigðismál í forgang, enda hefur verið skorið mikið niður í þeim málaflokki. Sá niðurskurður hefur gengið nærri þjónustunni t.d. á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Því er þannig farið með margþætta og sérhæfða þjónustu að það tekur mun skemmri tíma að skera hana niður en byggja hana upp á ný. Það er mikilvægt að forgangsraða, flatur niðurskurður er hættulegur. Hér er um forgangsmál að ræða. Rann- sóknir frá Bretlandi benda til þess að kostnaður sem hlýst af auknu aðgengi almennings að gagn- reyndri meðferð s.s. HAM skilar sér til baka í ríkissjóð m.a. með aukinni þátttöku á vinnumarkaði. 4 Komist Sjálfstæðisflokkurinn til valda mun hann leita til notenda og fagfólks til að kanna hvernig hægt sé að bæta þjónustuna sem mest með gagnreyndum hætti og í takt við óskir þessara aðila um forgangsröðun. Það er mismunandi hvernig skilvirkast er að standa að slíku samráði eftir atvikum og eðli þjónustu. Sjálfstæðisflokkurinn trúir ekki á einn miðlægan al- vitran samráðsvettvang, heldur fremur á skilvirkt samráð á ýmsum stigum í sem mestri nálægð bæði við notanda og við þá sem veita þjónustuna. Svarið í heild má lesa á heimasíðu Geðhjálpar, www.gedhjalp.is Bjarni Benediktsson Guðmundur Franklín Jónsson Sigríður Ingibjörg Ingadóttir SJÁLFSTÆÐIS FLOKKURINN SAMFYLKINGINHÆGRI GRÆNIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.