Fréttablaðið - 14.03.2013, Page 37
FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013 5geðhjálp ●
Við þökkum stuðninginn
Páll Matthíasson, geðlæknir
og framkvæmdastjóri
geðsviðs Landspítala, segir
hugmyndafræðina að baki
batamiðaðri heilbrigðisþjónustu
afar góða.
„Geðheilbrigðisþjónustan virkar ágæt-
lega og skilar miklum árangri en það
mætti vera meira af henni,“ segir Páll
og tiltekur að tuttugu prósent af þjóð-
hagslegu tapi vegna sjúkdóma tengist
geðsjúkdómum. „Hins vegar fara að-
eins átta prósent af kostnaði við heil-
brigðiskerfið í að sinna geðheilbrigðis-
málum,“ segir hann og telur þörf á úr-
bótum.
Inntur eftir því hver árangurinn af
meðferðum á geðsviði sé svarar Páll að
árangurinn megi meta á ýmsan hátt. „Á
síðustu árum er í vaxandi mæli litið til
starfshæfni, frekar en einkenna um
sjúkdóm, þegar árangur er metinn. Það
er betra að meðferð skili meiri færni
og betri líðan, frekar en bara að ein-
kenni hverfi,“ segir hann og bætir við
að í sumum tilfellum nái fólki bata. „Í
þeim skilningi að það getur lifað sjálf-
stæðu ífi og gert það sem það langar
til, þrátt fyrir að einhver einkenni geð-
sjúkdóms séu enn til staðar. Fólk er
ekki sjúkdómurinn, það er kannski
með einhvern sjúkdóm eða vandamál
en það þýðir ekki að það geti ekki gert
fullt af hlutum og lifað innihaldsríku
lífi,“ segir Páll.
En er einhver pólitískur stuðningur
við verkefnið og hugmynda fræðina
um batamiðaða þjónustu? „Bata-
hugmyndafræðin hefur svo sem ekki
mikið komið inn á borð pólitíkurinnar
en þetta er verklag sem við á Geðsviði
Land spítalans og víðar í geðheilbrigðis-
kerfinu viljum vinna eftir. Heilbrigðis-
kerfið er að mínu mati tilbúið en það er
samt best, eins og oftast þegar verið er
að breyta menningu, að fara sér hægt og
vanda sig. Við byrjum á endur hæfingu
og réttar- og öryggisgeðdeild LSH inni
á Kleppi en að auki eru ýmsar aðrar ein-
ingar hjá okkur sem vinna þegar eftir
þessari nálgun,“ svarar Páll.
Hann segir helstu hindranir bata-
miðaðrar þjónustu vera íhaldssemi
og ótta við hið nýja. „Þetta eru þættir
sem finnast í fari okkar allra, í bland
við nýjungagirni, forvitni og vilja til að
bæta hlutina.“
Hvað um framtíð batamiðaðrar
þjónustu? „Við vitum af rannsóknum í
öðrum löndum að batamiðuð þjónusta
er valdefling í verki. Hugmyndafræði
og nálgun sem leiðir til meiri ánægju
hjá notendum þjónustunnar, meira sjálf-
stæðis og betri árangurs. Jafnframt er
starfsfólk ánægðara. Minn draumur er
að aukið geðheilbrigði verði enn frek-
ar en nú er samstarfsverkefni allra sem
að málum koma; sjúklinga/notenda þjón-
ustunnar, aðstandenda, starfsfólks og
annarra sem áhuga hafa á málum.“
Valdefling í verki
„Fólk er ekki sjúkdómurinn,“ segir Páll Matthíasson, geðlæknir og
framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala. MYND/GVA
og hefur batamiðuð þjónusta verið sett
inn í heilbrigðisstefnu ýmissa landa, þar á
meðal Englandi. Við höfum horft til Eng-
lands í okkar vinnu, til samtaka sem nefn-
ast Rethink Mental Illness og til Sainsbury
Center for Mental Health, og sett okkur í
samband við fagaðila sem vinna út frá bata-
miðaðri þjónustu.“
VIRKAR BATAMIÐUÐ ÞJÓNUSTA?
„Fræðilega séð ætti batamiðuð þjónusta að
virka og sýna rannsóknir frá níunda ára-
tugnum að 25% til 33% þeirra sem höfðu
fengið geðrof náðu bata. Bati er þó ekki ein-
ungis bundinn við geðrofssjúkdóma. Eins og
áður hefur komið fram byggir bati á viðhorfi
þjónustuþega í garð eigin veikinda með eða
án geðrænna einkenna. Ef þjónustuþegi
upplifir aukin lífsgæði er hægt að segja að
viðkomandi sé í bata. Þar sem bati er hug-
lægur er erfitt að mæla hann en þó munum
við reyna að árangursmæla þjónustuna með
spurningalistum sem hannaðir eru út frá
batamiðaðri þjónustu. Árangurinn ætti að
sjást í auknum áhuga og aukinni virkni þjón-
ustuþega og vera mælanlegur í minnkaðri
þörf þeirra á þjónustu geðsviðs.“
HVERNIG ER GEÐDEILDIN Í STAKK BÚIN TIL AÐ
VEITA ÞESSA ÞJÓNUSTU?
„Í dag starfar fjölfaglegur samstarfshópur
undir framkvæmdastjóra geðsviðs að inn-
leiðingu batamiðaðrar þjónustu á endur-
hæfingu geðsviðs Landspítala.
Eins og áður sagði hafa margir starfs-
menn innan Landspítala unnið eftir þessari
hugmyndafræði leynt og ljóst síðastliðin ár
og því er mannskapur til staðar til að veita
þessa þjónustu ef vel er staðið að fræðslu
og kennslu. Samstarfshópurinn hefur viðað
að sér þekkingu að utan til að miðla áfram
til starfsmanna. Með mikilli fræðslu, áhuga
og vilja er kunnátta í beitingu á batamiðaðri
þjónustu auðvelduð mjög.
Varðandi fjármagnið hefur Land-
spítalinn, eins og aðrar íslenskar stofnanir,
þurft að glíma við takmörkuð fjárframlög.
Mikill vilji er þó innan geðsviðsins um að
láta þetta ganga hvernig svo sem vinnst
til með fjármögnun. Að okkar mati er bati
ábatasöm fjárfesting.“
HVERJAR ERU HELSTU HINDRANIRNAR?
„Í breytingarferli sem þessu felst ákveðin
áhætta í því að breyta starfsháttum, erfitt
getur verið að stýra þróun stofnana í þá átt
sem til er ætlast. Breytingar taka að jafnaði
nokkur ár að ná rótfestu og því má segja að
við verðum í mótunarfasa næstu árin. Mikill
kraftur er þó í yfirmönnum og starfsfólki
geðsviðs og mun það duga langt. Aðhald,
áhugi og stuðningur hagsmunasamtaka mun
án efa halda okkur við efnið og blása okkur
byr undir báða vængi. Spurningin er ekki
hvort batamiðuð þjónusta komist á þann
stall sem við vildum helst sjá heldur hve-
nær eða hversu hratt.“
BATASKÓLINN, HVAÐ ER ÞAÐ?
„Bataskólinn er byggður á enskri fyrir-
mynd þar sem kjörorðin eru von, stjórn og
tækifæri. Skólinn er til merkis um að geð-
sviðið vinni samkvæmt batamiðaðri þjón-
ustu. Honum er ætlað að vera aðsetur fyrir
starfsfólk og þjónustuþega sem vilja kynna
sér innihald hugmyndafræðinnar. Til að
byrja með verður skólinn staðsettur í aðal-
byggingunni á Kleppi. Unnið er að því að
koma upp fyrirlestraraðstöðu, bókasafni,
tölvu- og vinnuaðstöðu. Markmið skólans
er tvíþætt, að stuðla að bata þjónustuþega
og skapa fræðasamfélag um bata.
Bataskólinn mun ekki byggja á
meðferðar nálgun heldur verður leitast við
að hafa námsbrautir/námskeið sem byggja
á hugmyndum um áhugavekjandi og vald-
eflandi nám eftir getu nemenda. Hægt verð-
ur að skrá sig á námskeið innan skólans og
er þátttaka í starfi skólans byggð á áhuga
hvers og eins. Bataskóli er vinnuheiti og er
hópur að störfum við að marka skólanum
stefnu, tilgreina sérstöðu skólans og móta
námsbrautir/námskeið.“
Kynna má sér starfsemi bataskólans á
fésbókarsíðu batamiðaðrar þjónustu, Bata-
miðuð þjónusta á geðsviði Landspítala.