Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 46

Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 46
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30 TÍMAMÓT „Það er margt gott að gerast í mál- efnum kvenna í samfélaginu en líka margt sjokkerandi sem kemur upp á yfir borðið,“ segir Steinunn Rögn- valdsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands, um stöðu femínismans á Íslandi. Félagið er tíu ára í dag. „Mér finnst staða kvenna hafa heil- mikið skánað á þessum tíu árum og tel okkur vera í sókn núna á mörgum svið- um,“ segir Steinunn og heldur áfram. „Það er samt þannig að þegar femín- isminn er í sókn er hann líka alltaf í mestri vörn því þegar verið er að sækja fram í nafni jafnréttis verða líka þeir sem standa á móti því trylltastir. Þannig gerist oft tvennt um leið, fram- gangurinn verður mestur og erfiðustu þröskuldarnir birtast betur.“ Í tilefni afmælisins fær Kvennasögu- safn Íslands afhenta sögu Femínista- félagsins og gögn tengd henni. Sagan var skrásett af Karen Ástu Kristjáns- dóttir og Rósu Björk Bergþórsdóttur undir handleiðslu Þorgerðar Einars- dóttur, prófessors í kynjafræði, í verk- efni sem var styrkt af Nýsköpunar- sjóði námsmanna sumarið 2012. Verkið verður afhent klukkan 17 á Kvenna- sögusafni Íslands, Landsbókasafninu í Þjóðarbókhlöðu. Í kvöld stendur svo félagið, í samstarfi við MARK, Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna við HÍ, fyrir málþingi á Háskólatorgi undir yfirskriftinni Á sömu bylgju- lengd? Það snýst um tíðaranda og sögu kvenréttindabaráttu og femínisma á Íslandi. Að því loknu verða svo tón- leikar í Stúdentakjallaranum þar sem tónlistarkonurnar Lay Low og Adda troða upp. Steinunn tekur fram að allir séu velkomnir og að hátíðahöldin séu styrkt af Hlaðvarpanum. Steinunn hefur verið talskona Femínista félagsins í eitt ár. Þegar hún tók við því embætti kveðst hún hafa búist við enn meira áreiti en raun hafi orðið á. „En hér í samfélaginu er kona nokkur sem heitir Hildur Lilliendahl sem hefur staðið eins og skjöldur fyrir framan mig, án þess að vera beðin um það. Þannig var Sóley Tómas dóttir líka á sínum tíma og aðrir femín istar stóðu í skjóli af henni,“ segir hún. „Þetta sýnir vel flatan strúktúr félags- ins, Sóley og Hildur hafa hvorug verið talskonur ráðs Femínistafélagsins en þær hafa verið öflugir máls varar femínisma. Ég er kannski talskonan sem svarar fyrirspurnum fjölmiðla en það er fjöldi talskvenna og talsmanna femínisma í samfélaginu öllu og það er framlag þeirra sem skiptir sköpum.“ Steinunn segir opna fundi og gaman- hittinga haldna á vegum Femínista- félagsins að minnsta kosti einu sinni í mánuði, en umræðuefnin séu marg- vísleg og misalvarleg eftir því hvað efst sé á baugi. Mæting á viðburði hefur verið góð í vetur að hennar sögn. „Fundargestir skipta alltaf nokkrum tugum. Það er mjög mikilvægt að hafa þennan vettvang til að skiptast á skoð- unum og svo erum við með líka öfluga Facebook-síðu.“ gun@frettabladid.is Bæði í sókn og í vörn Femínistafélagið er tíu ára í dag og fagnar því með ýmsum hætti. Steinunn Rögnvalds- dóttir er talskona félagsins og fer hér yfi r stöðuna frá sínum bæjardyrum. TALSKONA FEMÍNISTAFÉLAGSINS „Það er mjög mikilvægt að hafa þennan vettvang til að skiptast á skoðunum,“ segir Steinunn um hið tíu ára félag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐNA ALBERTS GUÐJÓNSSONAR rennismíðameistara, frá Súgandafirði. Sérstakar þakkir til hjúkrunarþjónustunnar Karitas, hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar og líknardeildarinnar í Kópavogi. Sigríður Friðrikka Jónsdóttir Rebekka G. Gundhus Anders Gundhus Anna Ólafía Guðnadóttir Viðar Böðvarsson Arnfríður Lára Guðnadóttir Sveinbjörn Lárusson Kristín Guðnadóttir Einar Vignir Sigurðsson Jóna Björk Guðnadóttir Jón Marinó Jónsson Okkar ástkæri, KARL HINRIK OLSEN lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn 25. febrúar 2013. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til starfsfólks D-deildar HSS fyrir einstaklega góða umönnun og hlýju. Jakobína Anna Olsen Jenný Emilía Olsen Gunnar Jónatansson Magdalena Olsen Valgeir Þorláksson Karl Hinrik Olsen Elísabet Olsen Rósbjörg S. K. Olsen Rafn Guðbergsson Olav Ingvald Olsen Guðrún Halldórsdóttir Jakobína Anna Olsen Tómas Guðlaugsson Sólbjört Olsen Sara K. Olsen Agnar Már Olsen börn þeirra og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vinarhug, aðstoð og stuðning í veikindum og við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur, móður, tengdamóður og ömmu, HÓLMFRÍÐAR RÓSU JÓSEPSDÓTTUR Fjarðarhorni, Hrútafirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Landspítalans, þá einkum starfs- fólk blóðmeinadeildarinnar 11G fyrir einstaka umönnun og hlýju. Sigurður Geirsson Jósep Rósinkarsson Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir Þorbjörg Helga Sigurðardóttir Helgi Pétur Magnússon Elísabeth Inga Ingimarsdóttir Andrés Smári Magnússon Rebekka María Jóhannesdóttir Kristján Magnússon Þórdís Sif Sigurðardóttir Gunnlaugur I. Gretarsson Jósep Magnússon Ragnheiður Eyþórsdóttir Þorvaldur Geir Sigurðsson Stefanía Anna Þórðardóttir og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, afi og tengdafaðir, GUÐMUNDUR KRISTINN GUÐJÓNSSON (DIDDI) kaupmaður, Fljótaseli 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum Hringbraut laugardaginn 2. mars. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þakkir til allra sem vottuðu okkur samúð við andlát og útför hins látna. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki LSH og heimahjúkrunar fyrir mjög góða umönnun. Hedwig E. Meyer (Heiða) Guðjón Karl Guðmundsson Hilmar Andri Hilmarsson Kolbrún Steinunn Hansdóttir Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og systir, BJÖRK KRISTINSDÓTTIR Þorláksgeisla 27, Reykjavík, lést sunnudaginn 10. mars á Land- spítalanum við Hringbraut. Útför hennar fer fram frá Guðríðarkirkju þriðjudaginn 19. mars kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast Bjarkar er bent á Líf styrktarfélag kvennadeildar Landspítalans. Þröstur Þorvaldsson Kristinn Andri Þrastarson Dagný Ingadóttir Sólveig Þrastardóttir Gretar Þór Sæþórsson barnabörn og systkini. Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir, afi og bróðir, ÞORVALDUR ÞORSTEINSSON myndlistarmaður og rithöfundur, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju föstudaginn 15. mars kl. 13.00. Helena Jónsdóttir Dagur Benedikt Reynisson Sigrún Jónsdóttir og fjölskylda Jóna Lísa Þorsteinsdóttir og fjölskylda Gunnar Þorsteinsson og fjölskylda Margrét Þorsteinsdóttir og fjölskylda Innilegar þakkir til alla þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, HALLDÓRS S. SIGURÐSSONAR Leynisbrún 16, Grindavík. Jóna Þorkelsdóttir Sigurður Halldórsson Laufey Þórdís Sigurðardóttir Unnur Heiða Halldórsdóttir Þorkell Halldórsson og barnabörn. Elskuleg systir okkar og frænka, JÓHANNA GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR Mýrum, Villingaholtshreppi, verður jarðsungin laugardaginn 16. mars næstkomandi kl. 11.00 frá Selfosskirkju. Jarðsett verður í Villingaholtskirkjugarði í Flóa. Kristinn Sigurðsson Sigríður Friðsemd Sigurðardóttir Margrét Sigurgeirsdóttir og frændsystkini. MERKISATBURÐIR 1828 Friðrik Sigurðsson, Agnes Magnúsdóttir og Sigríður Guð- mundsdóttir myrða Natan Ketilsson og Pétur Jónsson á Illuga- stöðum á Vatnsnesi og kveikja síðan í bænum. 1950 Steingrímur Steinþórsson verður forsætisráðherra og situr ríkisstjórn hans til september 1953. 1964 Jack Ruby er sakfelldur fyrir að myrða Lee Harvey Oswald, meintan morðingja Kennedys forseta Bandaríkjanna. 1967 Lík Kennedys Bandaríkjaforseta er flutt til frambúðar í Arlington-kirkjugarð. 1991 Sexmenningarnir frá Birmingham, sem höfðu setið í bresku fangelsi í sextán ár vegna sprengingar á krá, eru látnir lausir eftir að dómstóll kveður upp þann úrskurð að lögreglan hafi hagrætt eða búið til sannanir gegn þeim á sínum tíma.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.