Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 48
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
BAKÞANKAR
Björns Þórs
Sigbjörnssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. remma, 6. í röð, 8. skjögur, 9. loga,
11. kvað, 12. ek, 14. rist, 16. í röð, 17.
stúlka, 18. bókstafur, 20. þys, 21. velta.
LÓÐRÉTT
1. afl, 3. kind, 4. eyja, 5. svelg, 7. von-
svikinn, 10. inngangur, 13. pili, 15.
yndi, 16. húðpoki, 19. nudd.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. hæsi, 6. rs, 8. rið, 9. eld,
11. ku, 12. keyri, 14. grill, 16. hi, 17.
mey, 18. enn, 20. ys, 21. snúa.
LÓÐRÉTT: 1. þrek, 3. ær, 4. sikiley, 5.
iðu, 7. sleginn, 10. dyr, 13. rim, 15. lyst,
16. hes, 19. nú.
Ronni-Rónald!
Gaman
að sjá þig!
Pétur-Óli! Er
einhver
þarna?
Við skulum hætta
við rangstöðu-
planið, strákar!
Passaðu þig,
kallinn minn. Þú
gætir rekið þetta í
augun á einhverjum!
Pik
k!
Pik
k!
Pik
k!
Hannes?
Hvað er að?
Ekkert.
En geturðu
samt gefið
mér að drekka
fyrst þú ert
hvort sem
er vöknuð?
Það var vel til fundið hjá dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna að veita
Sunnu Valgerðardóttur, blaðakonu á Frétta-
blaðinu, verðlaun fyrir fréttaskýringar
um stöðu geðsjúkra. Sagði dómnefndin að
greinaflokkur hennar væri áhrifamikill,
heildstæður og vel unninn. Það er hverju
orði sannara.
MEÐAL þess sem kom fram er að biðtími
eftir meðferðarúrræðum á geðsviði LSH er
um fjórir mánuðir. Ef bíllinn minn bilar fer
ég með hann á verkstæði á morgun en ef
ég bila þarf ég að bíða í fjóra mánuði. Það
er bilað.
ÞAÐ kom líka fram að misveikir sjúkling-
ar eru saman á deildum. Mæðrum með lítil
börn er sinnt í sama rými og árásargjörnu
fólki. Mér skilst reyndar að það standi til
bóta.
FLEIRI staðreyndir voru dregnar fram.
Því fyrr sem meðferð vegna geðsjúk-
dóma hefst, þeim mun minni líkur eru á
langvarandi örorku. Stærsti hluti sjúk-
linga á endurhæfingardeildum Klepps
situr þar fastur vegna skorts á framhalds-
úrræðum. Sumir útskrifast í algjörlega
óviðunandi úrræði, sem gerir það að
verkum að endurkomur á spítalann
eru tíðari en eðlilegt þykir. Starfs-
fólk geðsviðsins er örmagna.
Málefnum geðfatlaðra er illa
sinnt af sveitarfélögunum.
UMFJÖLLUN um mikil-
væg mál á það til að koðna niður. En Sunna
er ekki hætt. Á forsíðu Fréttablaðsins í síð-
ustu viku sagði að aðbúnaður sjúklinga á
legudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akur-
eyri væri með öllu óviðunandi. Starfsfólk
hefur áhyggjur af öryggi sjúklinga. Stjórn
geðverndarfélags bæjarins telur ástandið
jaðra við neyðarástand. Komum á geðdeild-
ina hefur fjölgað um 75 prósent á átta árum
en starfsfólki hefur ekki fjölgað.
STJÓRNMÁLAMENN hafa almennt séð
lítinn áhuga á málefnum geðsjúkra. Laus-
leg athugun leiðir í ljós að þau hafi verið
nefnd tvisvar eða þrisvar í þinginu á kjör-
tímabilinu og þá að frumkvæði Eyglóar
Harðar dóttur. Vonandi hefur leitar vélin
svikið mig en ljóst er að mála flokkurinn
hefur ekki verið fyrirferðarmikill í
pólitík inni. Þar komast mál reyndar ekki
almennilega að nema verðmiðinn sé minnst
milljarður.
ÞETTA þarf að breytast. Samfélagslega
mikilvæg mál á borð við að halda hér úti
góðu geðheilbrigðiskerfi mega ekki vera
aukasetningar í áherslum stjórnmála-
manna og -flokka. Það hlýtur að vera nokk-
urs virði að verða minnst, þegar yfir lýkur,
fyrir að hafa barist fyrir félagslegum
úrbótum. Reyndar ætti slíka gulrót ekki að
þurfa til en maðurinn er jú hégómagjarn.
FRAMBJÓÐENDUM til Alþingis í
kosningunum í lok apríl bendi ég á að
verðlauna greinar Sunnu birtust dagana 10.-
16. október 2012 og þær má finna á visir.is.
Bilað
Í KVÖLD KL. 22:05
TVEIR + SEX
ALLT SEM ÞÚ VILDIR VITA UM KYNLÍF
EN ÞORÐIR EKKI AÐ SPYRJA UM.
Nýr og spennandi þáttur um kynlíf ungs fólks.
Þáttastjórnendur ræða málin, spyrja
sérfræðinga og prófa sig áfram.
Popptíví fylgir frítt með áskrift að Stöð 2
Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA