Fréttablaðið - 14.03.2013, Page 48

Fréttablaðið - 14.03.2013, Page 48
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32 BAKÞANKAR Björns Þórs Sigbjörnssonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman MYNDASÖGUR LÁRÉTT 2. remma, 6. í röð, 8. skjögur, 9. loga, 11. kvað, 12. ek, 14. rist, 16. í röð, 17. stúlka, 18. bókstafur, 20. þys, 21. velta. LÓÐRÉTT 1. afl, 3. kind, 4. eyja, 5. svelg, 7. von- svikinn, 10. inngangur, 13. pili, 15. yndi, 16. húðpoki, 19. nudd. LAUSN LÁRÉTT: 2. hæsi, 6. rs, 8. rið, 9. eld, 11. ku, 12. keyri, 14. grill, 16. hi, 17. mey, 18. enn, 20. ys, 21. snúa. LÓÐRÉTT: 1. þrek, 3. ær, 4. sikiley, 5. iðu, 7. sleginn, 10. dyr, 13. rim, 15. lyst, 16. hes, 19. nú. Ronni-Rónald! Gaman að sjá þig! Pétur-Óli! Er einhver þarna? Við skulum hætta við rangstöðu- planið, strákar! Passaðu þig, kallinn minn. Þú gætir rekið þetta í augun á einhverjum! Pik k! Pik k! Pik k! Hannes? Hvað er að? Ekkert. En geturðu samt gefið mér að drekka fyrst þú ert hvort sem er vöknuð? Það var vel til fundið hjá dómnefnd Blaðamannaverðlaunanna að veita Sunnu Valgerðardóttur, blaðakonu á Frétta- blaðinu, verðlaun fyrir fréttaskýringar um stöðu geðsjúkra. Sagði dómnefndin að greinaflokkur hennar væri áhrifamikill, heildstæður og vel unninn. Það er hverju orði sannara. MEÐAL þess sem kom fram er að biðtími eftir meðferðarúrræðum á geðsviði LSH er um fjórir mánuðir. Ef bíllinn minn bilar fer ég með hann á verkstæði á morgun en ef ég bila þarf ég að bíða í fjóra mánuði. Það er bilað. ÞAÐ kom líka fram að misveikir sjúkling- ar eru saman á deildum. Mæðrum með lítil börn er sinnt í sama rými og árásargjörnu fólki. Mér skilst reyndar að það standi til bóta. FLEIRI staðreyndir voru dregnar fram. Því fyrr sem meðferð vegna geðsjúk- dóma hefst, þeim mun minni líkur eru á langvarandi örorku. Stærsti hluti sjúk- linga á endurhæfingardeildum Klepps situr þar fastur vegna skorts á framhalds- úrræðum. Sumir útskrifast í algjörlega óviðunandi úrræði, sem gerir það að verkum að endurkomur á spítalann eru tíðari en eðlilegt þykir. Starfs- fólk geðsviðsins er örmagna. Málefnum geðfatlaðra er illa sinnt af sveitarfélögunum. UMFJÖLLUN um mikil- væg mál á það til að koðna niður. En Sunna er ekki hætt. Á forsíðu Fréttablaðsins í síð- ustu viku sagði að aðbúnaður sjúklinga á legudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akur- eyri væri með öllu óviðunandi. Starfsfólk hefur áhyggjur af öryggi sjúklinga. Stjórn geðverndarfélags bæjarins telur ástandið jaðra við neyðarástand. Komum á geðdeild- ina hefur fjölgað um 75 prósent á átta árum en starfsfólki hefur ekki fjölgað. STJÓRNMÁLAMENN hafa almennt séð lítinn áhuga á málefnum geðsjúkra. Laus- leg athugun leiðir í ljós að þau hafi verið nefnd tvisvar eða þrisvar í þinginu á kjör- tímabilinu og þá að frumkvæði Eyglóar Harðar dóttur. Vonandi hefur leitar vélin svikið mig en ljóst er að mála flokkurinn hefur ekki verið fyrirferðarmikill í pólitík inni. Þar komast mál reyndar ekki almennilega að nema verðmiðinn sé minnst milljarður. ÞETTA þarf að breytast. Samfélagslega mikilvæg mál á borð við að halda hér úti góðu geðheilbrigðiskerfi mega ekki vera aukasetningar í áherslum stjórnmála- manna og -flokka. Það hlýtur að vera nokk- urs virði að verða minnst, þegar yfir lýkur, fyrir að hafa barist fyrir félagslegum úrbótum. Reyndar ætti slíka gulrót ekki að þurfa til en maðurinn er jú hégómagjarn. FRAMBJÓÐENDUM til Alþingis í kosningunum í lok apríl bendi ég á að verðlauna greinar Sunnu birtust dagana 10.- 16. október 2012 og þær má finna á visir.is. Bilað Í KVÖLD KL. 22:05 TVEIR + SEX ALLT SEM ÞÚ VILDIR VITA UM KYNLÍF EN ÞORÐIR EKKI AÐ SPYRJA UM. Nýr og spennandi þáttur um kynlíf ungs fólks. Þáttastjórnendur ræða málin, spyrja sérfræðinga og prófa sig áfram. Popptíví fylgir frítt með áskrift að Stöð 2 Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is F ÍT O N / S ÍA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.