Fréttablaðið - 14.03.2013, Page 52

Fréttablaðið - 14.03.2013, Page 52
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36 Mig langaði að skrifa bók fyrir lesenda- hóp sem hefur verið lítið sinnt af íslenskum höfundum. M á l þ i N g I ð MIlLiMáL Og MAtArLeIfAr „Ég fékk hugmynd að sögu, öðru- vísi sögu og ævintýralegri en ég hef áður skrifað, og stóðst ekki freistinguna og hjólaði í verkið,“ segir Stefán Máni rithöfundur. Í næstu viku kemur út hjá Forlag- inu bókin Úlfshjarta eftir hann en í henni segir frá þeim Alexander og Védísi sem eru 19 og 17 ára. „Söguhetjurnar eiga það sam- eiginlegt að vera utangarðs. Alexander er hættur í skóla, hann vinnur á kókbílnum og er dottinn út úr vinahópnum sínum. Hún er líka dálítið öðruvísi, á fáar vin- konur. Í upphafi sögu býður hann henni í bíó, þannig að byrjunin er sakleysis leg en svo fara að ger- ast mjög óvæntir hlutir. Og ég get eigin lega ekki sagt þér meira,“ segir Stefán Máni, sem að þessu sinni er ekki að skrifa fyrir alveg sama markhóp og vanalega heldur fyrir ungt fólk. „Mig langaði að skrifa bók fyrir lesendahóp sem hefur verið lítið sinnt af íslenskum höfundum. Erlendis hefur hugtakið young adult verið notað um þennan markhóp sem eru kannski les- endur um það bil eldri en 15 ára. Sem dæmi um svona bækur eru Hungur leikarnir, Harry Potter og Twilight-bækurnar sem mér finnst allar mjög góðar.“ Stefán Máni upplýsir að hann hafi sett sig í samband við ungt fólk og látið lesa yfir fyrir sig á meðan á ritunartíma sögunn- ar stóð. „Ég er í þessari bók að skrifa fyrir yngri lesendahóp en vanalega og fannst því nauðsyn- legt að koma mér í samband við góðan hóp unglinga, leyfði þeim að lesa og senda mér athugasemd- ir. Það var mjög lærdómsríkt og sannfærði mig reyndar líka um að sagan virkaði.“ Spurður hvort bókin sé gerólík hans fyrri verkum segir hann svo ekki vera. „Þetta er alveg bók eftir Stefán Mána þó að ég kannski setji tóninn aðeins niður. Hún er fjandi töff og alls ekki nein upp- eldishandbók. Ég lagði upp með að skrifa hratt og hafa gaman af því en vandaði mig auðvitað. Og bókin er vonandi bæði hröð og skemmtileg, ég held að minnsta kosti að vel hafi tekist til,“ segir Stefán að lokum. sigridur@frettabladid.is MENNING HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 14. MARS 2013 Fræðsla 17.00 Hugarafl og Geðheilsustöð Breiðholts bjóða almenningi upp á fyrirlestur þar sem fjallað verður um tilfinningalegan vanda og leiðir til jafn- vægis. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal félgsstarfs Árskóga, Árskógum 4. Haraldur Erlendsson, yfirlæknir Heilsu- stofnunar Hveragerðis, talar. Aðgangur er ókeypis. Sýningar 16.00 Sýningin Silfur...13 opnuð á Torgi Þjóðminjasafnsins. Á sýningunni er leitast við að gefa innsýn í fjölbreyti- leika starfs gull- og silfursmiða. 17.00 Sýning á fyrstu tískulínu Ólafs Helga Ólafssonar, Stariana Couture by Ólafur Helgi, verður opnuð í Menningar miðstöðinni Gerðubergi. Um er að ræða útskriftarverkefni Ólafs Helga í tísku- og textílhönnunarnámi frá Nuova Accademia di Belle Arti Milano. Upplestur 18.00 Ragnheiður Ríkharðsdóttir les 36. Passíusálminn í Grafarvogskirkju í tilefni föstunnar. Uppákomur 12.15 Fatahönnuðurinn Steinunn Sigurðardóttir velur og segir frá uppá- haldsverki sínu á sýningunni Flæði á Kjarvalsstöðum. 17.00 Haldið verður útgáfuhóf í Bóka- búð Máls og Menningar að Laugavegi 18, í tilefni af útkomu bókar Arngunnar Árnadóttur, Unglingar, sem er sú þriðja í ritröðinni Meðgönguljóð. Léttar veitingar verða í boði auk þess sem Arngunnur mun lesa úr bók sinni og árita eintök. 20.00 Haldin verður kvöldvaka á Kaffi Smala á Ytra-Lóni á Langanesi. Þar verða raktir þættir úr sögunni og fjallað um Maríu- og Péturslömb. Aðgangur er ókeypis og barinn verður opinn en eng- inn posi verður á staðnum. Leikrit 20.00 Verzlunarskóli Íslands heldur sér- staka styrktarsýningu á söngleik sínum V.Í. Will Rock You í Austurbæ. Sýningin er til styrktar rannsóknum á arfgengri heilablæðingu og er miðaverð kr. 2.500. Tónlist 21.00 Fuglabúr FTT og Rásar 2 fer fram á Café Rosenberg. Fram koma söng- konurnar Unnur Birna, Védís Hervör, Rósa Guðrún og Ósk Óskars. Aðgangs- eyrir er kr. 2.000. 21.30 Reykjavík Sex Farm heldur kvöld þar sem Death Is Not The End, DJ Ravensclaw og Queerwolf koma fram. Kvöldið verður haldið á Litlu gulu hæn- unni, Laugavegi 22, og er aðgangseyrir kr. 500. Aðeins er hægt að greiða með peningum. 21.30 Hljómsveitin Bloodgroup heldur útgáfutónleika í Iðnó í tilefni nýrrar plötu sinnar, Tracing Echoes. Hljóm- sveitin Samaris sér um upphitun. Miðaverð er kr. 1.500. 22.00 Hljómsveitirnar Kajak og Dream- cast spila á tónleikaröðinni Grasrótin á Faktorý. Aðgangur er ókeypis. 22.30 Bítladrengirnir blíðu halda tón- leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Fyrirlestrar 20.00 U3A Reykjavík stendur fyrir málstofu um undirbúning starfsloka í félagsheimilinu að Hæðargarði 31. Frummælendur nálgast viðfangsefnið út frá mismunandi sjónarhornum. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. Þetta er fj andi töff bók Stefán Máni rithöfundur fékk hugmynd að skáld- sögu í ágúst í fyrra. Afraksturinn verður gefi nn út í næstu viku, skáldsagan Úlfshjarta, en að sögn höfundarins er hún ætluð ungu fólki. STEFÁN MÁNI Skrifaði bókina Úlfshjarta hratt og hafði gaman af því. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hugtakið Young Adult Fiction er yfirleitt skilgreint þannig að það eigi við um bækur sem eru skrifaðar og markaðssettar fyrir ungt fólk, tólf til átján ára. Rannsóknir sýna þó að 55% þeirra sem kaupa bækurnar eru eldri en átján ára. Söguefnið er gjarnan með yfirnáttúrulegu ívafi eða þá í anda vísinda- skáldsagna og oftar en ekki þarf aðalpersónan að takast á við ókunn öfl til að komast til þroska. Söguhetjur eru unglingar í miklum meirihluta tilfella og miðað er við að bækurnar séu um efni sem höfðar til unglinga. Young Adult Fiction

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.