Fréttablaðið - 14.03.2013, Síða 56
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
Enska hljómsveitin Suede sendir frá
sér Bloodsports á mánudaginn. Þetta
er fyrsta plata sveitarinnar með
nýju efni í ellefu ár og bíða aðdáend-
ur hennar spenntir eftir útkomunni.
Alls eru 24 ár liðin síðan Suede
var stofnuð eftir að söngvarinn
Brett Anderson, þáverandi kær-
astan hans Justine Frischmann og
Mat Osman auglýstu eftir gítarleik-
ara í blaðinu NME. Bernard Butler
fékk starfið og í framhaldinu nefndi
Frischmann hljómsveitina Suede.
Tveimur árum síðar var hún rekin
úr bandinu eftir að hún hafði hætt
með Anderson og byrjað með Damon
Albarn í Blur.
Suede hefur verið nefnd sem sú
hljómsveit sem kom Britpop-bylgj-
unni af stað og hefur fyrir vikið
verið talin ein áhrifamesta enska
rokksveit tíunda áratugarins. Fyrsta
plata hennar, Suede, kom út árið
1993. Hún fór beint á topp breska
vinsældalistans og hafði fyrsta
plata hljómsveitar ekki selst jafn-
hratt í tæpan áratug. Velgengnin
hélt áfram því platan hlaut einnig
hin virtu Mercury-verðlaun, enda
voru þar flott lög á borð við Animal
Nitrate og So Young.
Næsta plata Suede, Dog Man
Star, kom út ári síðar og fékk
fínar viðtökur. Hún er af mörg-
um talin meistarastykki sveitar-
innar en brotthvarf gítarleikar-
ans Bernards Butler, rétt áður en
platan kom út, skyggði á verkið.
Nýr gítarleikari, Richard Oakes,
tók við af Butler og árið 1996 kom
út Coming Up, sem varð til þess að
vinsældir Suede jukust gífurlega
víða um heim. Fimm lög komust í
efsta sæti breska smáskífulistans
og platan varð sú söluhæsta í sögu
hljómsveitarinnar.
Sveitin gaf út tvær hljóðvers-
plötur til viðbótar, Head Music og A
New Morning, og olli sú síðarnefnda
miklum vonbrigðum. Ári síðar,
2003, var Suede öll. Í framhaldinu
stofnuðu Anderson og Butler hina
skammlífu The Tears en núna, ell-
efu árum eftir A New Morning, er
Suede mætt aftur og virðist endur-
nærð eftir þetta langa frí.
Upptökustjóri Bloodsports var
Ed Buller, sá hinn sami og stýrði
upptökum á fyrstu þremur plötum
Suede og er greinilegt að Ander-
son og félagar voru að sækjast eftir
gamla, góða hljóminum.
Breskir fjölmiðlar eru yfir sig
hrifnir af plötunni. Tímaritin Mojo
og Q gefa henni fjórar stjörnur af
fimm mögulegum. Í dómi Q segir
að Suede takist að vera nútímaleg á
sama tíma og hún haldi í fortíðina.
Uncut gefur henni 7 af 10 og Clash 8
af 10, þar sem gagnrýnandinn segir
plötuna ljósritun á upphaflegu Brit-
pop-stefnunni. Svo fær hún fullt hús,
eða fimm stjörnur, hjá The Daily
Telegraph. freyr@frettabladid.is
Snúa aft ur með stæl
Bloodsports, fyrsta plata Suede í 11 ár með nýju efni, kemur út á mánudaginn.
TÓNNINN
GEFINN
Trausti Júlíusson
Þýska „krautrokkið“ sem kom fram á áttunda áratugnum lifir góðu lífi á
meðal tónlistaráhugamanna í dag. Það má heyra áhrif frá því hjá mörgum
tónlistarmönnum af yngri kynslóðinni og frumkvöðlarnir njóta enn
mikillar virðingar. Á meðal eftirminnilegustu tónleika síðasta árs á Íslandi
voru t.d. tónleikar Damos Suzuki, fyrrum söngvara Can, í Gamla bíói og
mikil eftirvænting ríkir fyrir komu Kraftwerk á Airwaves 2013.
Kraftwerk og Damo Suzuki eiga það sameiginlegt að hafa unnið undir
upptökustjórn Connys
Plank, en hann er oft
nefndur sem einn helsti
áhrifavaldur krautrokksins.
Konrad Plank var fæddur
3. maí 1940. Hann hóf
ferilinn sem hljóðmaður
hjá Marlene Dietrich en
í lok sjöunda áratugarins
byrjaði hann að vinna sem
upptökustjóri. Hann var
einn af frumkvöðlunum
í því að nota hljóðverið
á skapandi hátt. Hann
notaði möguleika fjölrása-
kerfisins til hins ýtrasta og
bjó til stemningu í tónlist-
inni með elektrónískum
hljóðmyndum.
Plank tók m.a. upp
fyrstu fjórar plötur Kraftwerk, allar plötur Neu!, plötur Cluster og DAF. Upp
úr 1980 varð hann mjög eftirsóttur og hljóðritaði þá m.a. Eurythmics,
Ultravox og Killing Joke svo nokkur dæmi séu tekin. Conny Plank lést úr
krabbameini árið 1987, 47 ára að aldri.
Fyrir mánuði kom út nýtt safn tileinkað minningu Connys Plank. Það
heitir Who‘s That Man– A Tribute To Conny Plank. Þetta eru fjórir diskar. Á
þeim tveimur fyrstu er safn laga sem Conny átti þátt í að taka upp, á þeim
þriðja eru nýjar endurgerðir og á fjórða disknum er tónleikaupptaka frá
1986 með Conny, Dieter Möbius og Arno Steffen. Þetta er vegleg og flott
útgáfa sem hægt er að mæla með.
Hver er þessi Conny?
ÁHRIFAMIKILL Upptökustjórinn Conny Plank
SUEDE Hljómsveitin Suede er skipuð þeim Brett Anderson, Neil Codling, Simon Gilbert, Richard Oakes og Mat Osman.
NORDICPHOTOS/GETTY
Útvarpsmaðurinn Ágúst Bogason hlustaði mikið á Suede þegar hún var
að byrja og vonar að nýja platan sé góð. „Fyrstu tvær
plöturnar voru alveg frábærar og í sjálfu sér sú
þriðja líka,“ segir Ágúst, sem missti dálítið
áhugann eftir að hún kom út.
„Suede er eitt af þessum mótunarböndum
mínum og ég er mjög spenntur fyrir nýju
plötunni en líka svolítið kvíðinn að heyra
hana. Lögin tvö sem ég hef heyrt lofa góðu og
ég vona að það séu ekki einu góðu lögin,“ segir
hann. „Það besta við þetta er að þeir hljóta að
fara að spila meira opinberlega og hljómsveit
eins og Suede á að vera á tónleikaferðalagi
reglulega. Þó að þessi plata verði bara til
þess að sveitin fari á tónleikaferðalag
aftur og hendi í gömlu lögin með
þessum nýju þá verður það ákveð-
inn sigur fyrir aðdáendurna.“
Bæði spenntur og kvíðinn
VILTU LÆRA
LISTINA
AÐ MUNA?
„... alveg frábær ...“
B ILL GATES, THE GATES NOTES
„... fyrst og fremst snjöll,
fyndin og yndisleg ...“
DEBORAH BLUM, NEW SCIENTIST
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/
Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is.
07.3.2013 ➜ 13.3.2013
LAGALISTINN TÓNLISTINN
Sæti Flytjandi Lag
1 Ásgeir Trausti Nýfallið regn
2 Pink / Nate Ruess Just Give Me a Reason
3 Valdimar Yfir borgina
4 Jónas Sigurðsson Fortíðarþrá
5 Ragnar Bjarnason / Lay Low Þannig týnist tíminn
6 Frank Ocean Lost
7 Rihanna / Mikky Ekko Stay
8 C2C Down the Road
9 Bruno Mars When I Was Your Man
10 Sin Fang Young Boys
Sæti Flytjandi Plata
1 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
2 Of Monsters and Men My Head Is an Animal
3 Raggi Bjarna Dúettar
4 Skálmöld Börn Loka
5 Ýmsir Söngvakeppnin 2013
6 Retro Stefson Retro Stefson
7 Ólafur Arnalds For Now I Am Winter
8 Hjaltalín Enter 4
9 Valdimar Um stund
10 Jónas Sigurðsson Þar sem himin ber við haf