Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 58
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42
Stórmyndin Anna Karenina verð-
ur frumsýnd í kvikmyndahúsum
annað kvöld. Sagan er byggð á
stórvirki rússneska skáldsins Leo
Tolstoj og skartar Keiru Knightley
í hlutverki hinnar ógæfusömu
Önnu Kareninu.
„Allar hamingjusamar fjöl-
skyldur eru eins, en sérhver
óhamingju söm fjölskylda er
óhamingju söm á sinn einstaka
hátt.“ Á þessum fleygu orðum
hefst skáldsagan um Önnu Karen-
inu og gefur setningin tóninn
fyrir það sem koma skal. Sagan
segir frá hjónunum Önnu Karen-
inu og Alexei Karenin sem lifa í
ríkidæmi en eru samt afskaplega
óhamingjusöm. Dag einn ferðast
Anna Karenina frá hinni „bjúró-
kratísku“ Sankti Pétursborg til
hinnar frjálslyndu Moskvu í þeim
tilgangi að koma á sáttum milli
bróður síns og eiginkonu hans. Á
meðan hún dvelur í Moskvu kynn-
ist hún hinum töfrandi Alexei
Vronsky greifa og brátt eiga þau
í eldheitu ástarsambandi. Sam-
band þeirra er síðan gert opin-
bert og í kjölfarið er Anna Kar-
enina útskúfuð úr samfélagi
þeirra auðugu með hörmulegum
afleiðingum.
Leikstjóri myndarinnar er
Joe Wright og handritið skrifaði
Tom Stoppard. Wright hefur leik-
stýrt myndum á borð við Pride &
Prejudice, Atonement og Hanna.
Tvær fyrrnefndu kvikmyndirn-
ar fengu frábæra dóma og þá sér-
staklega Atonement, sem hlaut
sjö tilnefningar til Golden Globe-
verðlaunanna, sjö til nefningar
til Óskarsverðlaunanna og fjór-
tán tilnefningar til BAFTA-
verðlaunanna.
Knightley og Wright, sem
unnu fyrst saman við gerð Pride
& Prejudice, leiða hér aftur
hesta sína saman en með önnur
hlutverk fara Jude Law, Aaron
Taylor-Johnson, Alicia Vikander,
Emily Watson, Kelly MacDonald
og Bill Skarsgård, sem er yngri
bróðir Alexanders Skars gård.
Íslenska leikkonan Hera Hilmars-
dóttir fer einnig með lítið hlut-
verk í myndinni.
Anna Karenina hefur hlotið
misjafna dóma, enda erfitt að
taka svo viðamikið bókmennta-
verk og ætla að stytta það niður í
tveggja tíma kvikmynd. Myndin
hlýtur 6,7 í einkunn á kvikmynda-
síðunni Imdb.com og 64 prósent
á vefsíðunni Rotten tomatoes.
com. Gagnrýnendur ýmist hylla
myndina og leikstjórnarhæfileika
Wright eða segja myndina mis-
heppnaða og yfirborðskennda og
eiga fátt skylt við hið bókmennta-
lega stórvirki Tolstojs.
Ást og hörmungar
Anna Karenina verður frumsýnd annað kvöld. Myndin er byggð á stórvirki rúss-
neska höfundarins Leo Tolstoj og fj allar um forboðna ást og afl eiðingar hennar.
FORBOÐIN ÁST Anna Karenina fjallar um forboðna ást, útskúfun og hjartasorg. Leikkonan Keira Knightley fer með hlutverk
Önnu Kareninu.
➜ Leikstjórinn Joe Wright
er kvæntur sítarleikaranum
Anoushku Shankar, dóttur
tónlistar mannsins Ravi
Shankar sem lést í desember.
Þýskir kvikmyndadagar fara fram
í þriðja sinn í Bíó Paradís um þess-
ar mundir. Hátíðin hefst í dag og
stendur til 24. mars næstkom-
andi. Sjö kvikmyndir verða sýnd-
ar á hátíðinni í ár. Það eru Goethe-
stofnunin, Sendiráð Þýskalands,
Sjónlínan, Katla Travel og RÚV
sem standa að hátíðinni. Meðal
þeirra kvikmynda sem verða
sýndar eru kvikmynd í leikstjórn
Margarethe von Trotta um hinn
merka stjórnmálahugsuð Hannah
Arendt, Stórar stelpur og Dreptu
mig. Myndirnar eru allar á þýsku
en með enskum texta.
Þýskt í Paradís
Þýskir bíódagar fara fram í þriðja sinn í Paradís.
ÞÝSKT Í BÍÓ Þýskir bíódagar verða
haldnir í Bíó Paradís um þessar mundir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ertu að
flytja til
Noregs, Danmerkur
eða Svíþjóðar?
Halló Norðurlönd og EURES standa fyrir
upplýsinga fundum um að flytja til Noregs,
Svíþjóðar og Danmerkur.
Fundirnir eru ætlaðir öllum þeim sem hyggja á
vinnu eða nám í þessum löndum og eru ókeypis
og öllum opnir.
Farið verður yfir hagnýt atriði varðandi flutning
og atvinnuleit auk þess sem fulltrúi frá
Ríkisskattstjóra kynnir skattamál.
• Mánudaginn 18. mars kl. 18:00:
Að flytja til Noregs
• Miðvikudaginn 20. mars kl. 18:00:
Að flytja Svíþjóðar
• Miðvikudaginn 20. mars kl. 20:30:
Að flytja til Danmerkur
Námskeiðin fara fram í húsnæði
Vinnumálastofnunar, Kringlunni 1.
Skráning á netfanginu hallo@norden.is
og í síma 511 1808.
Íslandsvinirnir Russell Crowe og
Mark Wahlberg fara með aðal-
hlutverkin í myndinni Broken
City og þeim til halds og trausts
er velska fegurðardísin Cather-
ine Zeta-Jones. Þegar lögreglu-
maðurinn Billy Taggart, leikinn
af Wahlberg, er handtekinn fyrir
morð á manni, sem hafði nauðgað
og myrt sextán ára gamla systur
kærustu hans, leitar vinur hans
eftir aðstoð frá borgarstjóra New
York borgar, Nicholas Hostetler,
sem er leikinn af Crowe. Hostetler
eyðir þá öllum sönnunargögnum
gegn Taggart sem er frjáls ferða
sinna. Hann þarf þó að segja skil-
ið við lögregluna og gerist einka-
spæjari. Sjö árum síðar innkallar
Hostetler svo greiðann þegar hann
biður Taggart að elta eiginkonu
sína sem hann grunar um framhjá-
hald. Þegar Taggart leysir málið
kemur þó í ljós að ekkert er eins
og það lítur út fyrir heldur er um
að ræða svik á svik ofan. Nú þarf
Taggart því að berjast gegn sínum
fyrrum verndarengli og sanna að
hann sé enginn morðingi, heldur
aðeins lítið peð í risastórri svika-
myllu.
Danski leikstjórinn Niels Arden
Oplev er þekktastur fyrir sænsku
myndirnar Karlar sem hata konur,
en hann reynir nú við Hollywood
í fyrsta skipti með myndinni
Dead Man Down. Myndin er hans
fyrsta á ensku og skartar sjarma-
tröllinu Colin Farrell í aðalhlut-
verki. Farrell leikur þar atvinnu-
morðingjann Victor sem starfar
fyrir alræmdan glæpaforingja,
Alphonse Hoyt, í þeim eina til-
gangi að komast þar í innsta hring
og ná fram hefndum á foringjan-
um sem er ábyrgur fyrir morði á
eiginkonu Victors og dóttur. Málin
flækjast þó þegar nágrannakona
Victors skýtur upp kollinum. Sú
hefur verið að fylgjast með honum
í dágóðan tíma og á í fórum sínum
myndir af honum að fremja eitt
morðið. Hún hefur þó ekki í hyggju
að koma upp um hann, en notar
myndirnar til að þvinga hann til
að aðstoða sig við að ná fram eigin
hefndum. Eins og við er að búast
helst samband þeirra ekki einung-
is viðskiptalegs eðlis mjög lengi.
- trs
Hefndarfull frumsýningarhelgi
Hasar, svik, hefndir og fl ókin ástarsambönd einkenna myndir helgarinnar.
FLÓKIÐ HJÓNABAND Russell Crowe og Catherine Zeta-Jones leika hjón í myndinni
Broken City. Hjónabandið er þó síður en svo fullt af ást og trausti.