Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 60
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
Ég átti gott spjall nýverið við
poppstjörnu Íslands um stöðu
kynfræðslu hér á landi. Hann
spurði mig af hverju það væri
ekki til dæmis til staða fyrir
kynfræðing hjá menntamála-
ráðuneytinu eða landlækni þar
sem hægt væri að sjá til þess
að kynfræðslu væri sinnt. Þessi
aðili mundi flytja kynfræðslu í
alla grunn- og framhaldsskóla
landsins og kenna kennurum,
námsráðgjöfum eða hjúkrun-
arfræðingum í hverjum skóla
að sinna fræðslunni. Þá væri
líka hægt að tala við foreldra
og íþróttaþjálfara, leikskóla-
kennara og starfsfólk félags-
miðstöðva og alla þá sem vinna
með börnum eða gegna ákveðn-
um trúnaðarstörfum. Afbragðs-
góð hugmynd þótti mér en ég
hafði því miður ekkert svar. Ég
veit ekki af hverju kynfræðsla
er ósýnileg eða af hverju
smokkar eru ótrúlega dýrir.
Sérfræðingar á Landspítal-
anum og innan Háskóla Íslands
og félög á borð við FKB, Félag
um kynlíf og barneignir, hafa
bent á að hér þurfi að lyfta
grettistaki þegar kemur að
kynfræðslu málum. Við bönnum
ekki klám og höldum að þar með
sé vandamálið leyst. Fólk borð-
ar enn óhollan mat þó að Mc-
Donald‘s sé ekki lengur á land-
inu. Því finnst mér um ræðan
vera á villigötum. Við vitum öll
að auka þarf fræðslu; börnin,
foreldrar og kennarar kalla
eftir því en svo gerist eigin lega
ekki neitt. Ekki gera ekki neitt á
vel við hér. Kynfræðsla er hluti
af heilsuvernd, forvörn, lýð-
heilsu, heilsueflingu og öllum
þessu fínu orðum sem er búið
að veggfóðra skólana með. Því
velti ég fyrir mér af hverju kyn-
fræðsla sitji enn á hakanum? Er
þetta spurning um fjármagn,
vilja eða óþægilegheit?
Ég hef ekki svörin en mér
þykir þetta ákaflega fróðlegt
og myndi gjarnan vilja fá svör
frá einhverjum einhvers staðar
úr heimi ráðuneytanna. Kyn-
fræðsla er ferli sem hvorki
verður leyst með einum klukku-
stundar löngum fyrirlestri eða
sautján mínútna myndbandi.
Við eigum fullt af viljugu fólki
innan veggja skólanna til að
sinna henni en það fær hvorki
tíma, þjálfun né stuðning til
að gera það. Nú er 2013 og við
þurfum að taka okkur taki. Ef
við viljum ábyrgt samfélag þar
sem kynin standa jöfnum fæti
þá byrjum við á kynfræðslu,
enda okkar hjartans mál.
Kynfræðsla ætti að
vera hjartans mál
KYNFRÆÐSLA Ekki gera ekki neitt á vel við hér.
Tónlistarmyndbanda síðan
Vevo, sem var sett á fót
af tónlistarútgáfuris-
unum Sony og Univer-
sal árið 2009, hleypti á
þriðjudag í loftið nýrri
stafrænni sjónvarpsstöð
sem sýnir myndbönd og
aðra tónlistartengda dag-
skrá allan sólarhringinn.
Hægt verður að sjá stöð-
ina með tækjum sem
tengjast við internet-
sjónvarpstæki, eins
og Xbox, og einnig í
snjallsímum og spjald-
tölvum.
Vevo-stöðin verður
fyrst um sinn einungis
fáanleg í Bandaríkjun-
um og Kanada en stefnt
er að því að hefja útsend-
ingar ætlaðar Evrópu- og
Suður-Ameríkumarkaði
síðar á þessu ári.
Rio Caraeff, for-
stjóri Vevo, segir í
viðtali við Financial Times að
hefðbundin sjónvarpsstöð
með tónlistarefni geti enn
dregið að sér yngri áhorf-
endur, eða „stafrænu
kynslóðina“ eins og hann
orðar það. Spurður hvort
Vevo verði hið nýja MTV,
sem fór í loftið fyrir 31
ári, segir Caraeff: „Ég
vona það og stefni að því
en eðli málsins sam-
kvæmt verða stöðv-
arnar ólíkar. Við reyn-
um að framkalla vissa
nostalgíu en 70 prósent
áhorfenda okkar eru
undir 34 ára aldri.“
Vill gera Vevo að
hinu nýja MTV
Tónlistarmyndbandavefsíðan Vevo í sjónvarpið.
RIHANNA Stærstur hluti
áhorfenda Vevo-vefsíðunnar
er undir 34 ára og því
líklegt að Rihanna verði
á dagskránni á nýju sjón-
varpsstöðinni.
S ÍM I : 588 5777 3 . H ÆÐK R I N G L U N N I
14 . - 18 . MARS
M ORROW KR I NGLUN N I 3 . H ÆÐ
V ERÐD ÆMI
1 . 490
5 .990
3 .990
3 .990
f r á 6 . 990
990
1 . 490
5 . 990
f r á 6 . 990
9 . 990
Michael Bloomberg, borgarstjóri
New York, ætlar sér að áfrýja
úrskurði dómara frá því á mánu-
dag. Úrskurðurinn kemur í veg
fyrir að bann við sölu gosdrykkja
í stærri einingum en sem nemur
16 únsum, eða 437 millilítrum,
taki gildi í dag í borginni eins
og fyrirhugað var. Bannið átti
að gilda um veitingastaði, kvik-
myndahús og fleiri sölustaði.
Dómarinn sagði bannið vera
duttlungafulla geðþóttaákvörðun.
Borgarstjórinn, sem hefur lagt
mikla áherslu á að setja lög sem
hann telur stuðla að betri heilsu
New York-búa, mótmælir því og
heitir því að hann muni berjast
áfram fyrir því að reglurnar
verði settar.
Enn hægt að
kaupa risagos
GOS New York-búar mega enn kaupa
gos í stórum umbúðum.
Ný rannsókn í Danmörku stað-
festi ekki bara það að gift fólk
lifði lengur en ógift eða fráskilið
heldur kom einnig í ljós að giftir
hommar yrðu sífellt langlífari og
eru þeir nú búnir að slá út ógifta
menn og fráskilda. Telja rannsak-
endur að þar gæti spilað inn í sá
árangur sem náðst hefur í barátt-
unni við HIV og alnæmi á undan-
förnum árum.
Rannsókninni var stýrt af Dr.
Morten Frisch, prófessor við
Háskólann í Álaborg og í henni
var skoðaður dánaraldur 6,5
milljón Dana sem létust á árunum
1982 til 2011. Samkvæmt könnun-
inni er langlífasti hópurinn enn
þá gagnkynhneigð hjón, en við
skilnað hækkar dánartíðni þeirra
þó við hvert hjónaband sem fylgir
á eftir; um 27 prósent hjá konum
og 16 prósent hjá körlum.
Dánartíðni giftra lesbía hefur
þó aukist lítillega ef marka má
rannsóknina og telja rannsakend-
ur ástæðuna mega rekja til þess
að lesbíur séu 60 prósentum lík-
legri en gagnkynhneigðar konur
til að láta lífið úr krabbameini og
sex sinnum líklegri til að fremja
sjálfsmorð. Ástæður þessa eru þó
óþekktar.
Langlífi gift ra homma
Gagnkynhneigð hjón langlífust en hommar sækja á.
LIFA LENGUR Lífslíkur giftra homma
hafa aukist á undanförnum árum.