Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 61

Fréttablaðið - 14.03.2013, Side 61
FIMMTUDAGUR 14. mars 2013 | MENNING | 45 - Lifið heil www.lyfja.is Komdu í kvöld Æðisleg tilboð í Lyfju á konukvöldi Smáralindar 14. mars kl. 19–23. Sérfræðingar kynna allt það nýjasta fyrir húðina og vor- og sumarförðunina. Veglegir kaupaukar. Láttu það eftir þér að dekra svolítið við þig og kauptu fermingargjöfina í leiðinni. Allir ilmir með 20% afslætti í kvöld! Saga Pro Lavera self tanning Weleda GULI MIÐINN 20% afsláttur 20% afsláttur Kynning og 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur Hættir – 40% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur Kaupauki og 20% afsláttur 20% afsláttur 20% afsláttur „Ég hef aldrei séð neinn jafn þreyttan og Eyþór Inga á þriðju- dagskvöldið, enda vorum við þá búin að vera að í yfir 20 tíma samfleytt og hann búinn að verja stórum hluta þess tíma í vatni,“ segir Guðmundur Þór Kárason, leikstjóri tónlistarmyndbands Eurovision-lagsins Ég á líf og einn eigandi framleiðslufyrirtækisins Purkur, sem annast gerð þess í samstarfi við Pipar/TBWA. Myndbandið gerist á hafi úti og ver Eyþór Ingi stórum hluta þess í vatninu sjálfu. „Við köstuðum honum út í tveggja gráða heit- an sjóinn þegar hitastigið úti var mínus fjórar gráður. Það voru þrír björgunarsveitar menn viðstaddir og tilbúnir að grípa inn í ef þess þyrfti. Þetta gekk þó allt lygilega vel,“ segir Guðmundur. Guðmundur Þór segir marga hafa lagt lóð á vogarskálarn- ar við gerð myndbandsins. „Það gáfu sig allir 200 prósent í þetta og metnaður inn var svo mikill að jafnvel þegar ég var búinn að samþykkja tökuna vildu Eyþór og Hákon tökumaður stundum taka hana aftur til að ná henni alveg fullkominni,“ segir hann. „Mér líður eins og ég hafi ekki gert neitt. Ég stóð bara þarna í dúnúlpu og sagði fólki fyrir verkum,“ bætir hann við hlæjandi. Myndbandið er að sögn Guðmund- ar angurvært og gleðilegt í bland. „Það er svolítið dramatískt en ég lagði upp með að hafa það ekki of væmið. Svo var þetta auðvitað kol- væmið þegar upp var staðið,“ segir hann og hlær. Myndbandið verður frumsýnt í hádeginu á morgun á heimasíðu Vodafone. - trs Eyþóri kastað í ískaldan sjóinn og stóð sig eins og hetja Kolvæmið, angurvært og gleðilegt myndband við Eurovision-lagið Ég á líf verður frumsýnt á heimasíðu Vodafone í hádeginu á morgun. FAGMAÐUR Eyþór Ingi þurfti að þola tveggja gráða heitan sjó í einu atriðinu og voru þrír björgunarsveita- menn tilbúnir að grípa inn í ef þess þyrfti. MYND/VALGEIR MAGNÚSSON Liam Gallagher, fyrrverandi söngvara Oasis, var tvisvar sinn- um hent út af sömu kránni í síð- ustu viku fyrir að vera of drukk- inn. Eigandi The Queens í Crouch End í London sagði The Sun að Gallagher hefði komið tvisvar á krána og verið neitað um afgreiðslu og vísað út. Þegar Gallagher spurði hvort honum væri hent út vegna þess að hann væri rokkstjarna var svarið ein- falt: „Nei, þú ert bara fullur fáviti.“ Tvisvar hent út af sömu kránni LIAM Gallagher- bróðurnum leiðist ekki sopinn. Tónleika- og skemmtistaðurinn Faktorý hefur farið af stað með nýja tónleikaröð sem kallast Grasrótin. Meginmarkmið hennar að gefa ungum og efnilegum hljómsveit- um og tónlistarmönnum kost á að koma sér á framfæri á góðum tónleikastað í góðu hljóðkerfi. Frítt verður á alla viðburði. Þeir sem hafa áhuga á að koma fram á Grasrótinni geta sent umsóknir á bokanir@faktory.is. Fyrstu tónleikarnir verða haldnir á fimmtudagskvöld þegar hljóm- sveitirnar Kajak og Dreamcast stíga á svið. Grasrót hefst KAJAK Hljómsveitin Kajak spilar á nýju tónleikaröðinni. F56120313 KAJAK

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.