Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 14.03.2013, Blaðsíða 62
14. mars 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 46 „Það er mjög gaman að vera á svæðinu og fylgjast með keppn- inni,“ segir Sigrún María Ammend- rup, skrifstofustjóri tölvunarfræði- deildar Háskólans í Reykjavík, um forritunarkeppni sem haldin er í HR komandi laugardag. Keppnin er opin öllum framhaldsskólanemum, einnig þeim sem hafa áhuga á for- ritun án þess þó að hafa lært hana. Keppnin var fyrst haldin árið 2001 og að sögn Sigrúnar Maríu hefur ásóknin aukist ár frá ári. Þegar hafa 45 lið skráð sig til keppni og er það metþátttaka. „Keppendur koma á föstudaginn og fá leiðbeiningar og boli og mæta svo aftur á laugardagsmorgni, fá morgunmat og hefja keppni,“ segir hún. Aðeins tvö lið sem skráð eru í keppnina eru skipuð stúlkum og viðurkennir Sigrún María að það hafi reynst erfitt að fá stúlkur til að taka þátt. „Við erum alltaf að hvetja stelpur til þátttöku en þær eru enn í minnihluta, sem er synd því þær hafa staðið sig mjög vel síðustu ár.“ Keppt er í þremur deildum; Kirk-deildinni, Spock-deildinni og Scotty-deildinni. Spurð út í nöfn deildanna segir Sigrún María að reynt sé að tengja þau vísindum á einhvern hátt. „Við veljum nýtt þema á hverju ári. Í fyrra hétu deildirnar til dæmis eftir pers- ónum gamanþáttanna The Big Bang Theory. Nöfnin eru oftast tengd vísindum eða öðru sem við höldum að sé vinsælt hjá þessum hópi,“ segir hún að lokum. - sm Metþátttaka í forritunarkeppni Forritunarkeppni framhaldsskólanema fer fram á laugardag. Metþátttaka í ár. METÞÁTTTAKA Í KEPPNI Sigrún María Ammendrup, skrifstofustjóri tölvu- fræðideildar HR, segir metþátttöku í forritunar keppni framhaldsskólanema í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Þetta er auðmelt tónlist og ekki týpískur blús. Það er fullt af melód- ískum og fallegum lögum á plöt- unni,“ segir lagahöfundurinn og hjartalæknirinn Helgi Júlíus Óskars son. Hann hefur sent frá sér sína fjórðu sólóplötu, Í blús. Hún fylgir eftir reggíplötunni Kominn heim sem hafði að geyma hin vinsælu lög Stöndum saman og Þú ert mín, sem Valdimar Guðmundsson söng. Valdi- mar syngur einnig á nýju plötunni, hið rólega Æviskeið. „Hann syng- ur það eins og engill,“ segir Helgi Júlíus. Aðrir söngvarar á plötunni eru Sigríður Thorlacius, KK, Magni Ásgeirsson og hinn efnilegi Elvar Örn. Textarnir eru bæði eftir Helga og konu hans, Bjarngerði Björnsdótt- ur, sem átti marga texta á annarri plötu hans, Haustlauf. Vinur hans, læknirinn Sigurður Ágústsson, á einnig texta á plötunni. Í blús var öll tekin upp lifandi, fyrir utan sönginn. Upptökustjóri var Ómar Guðjónsson. Dóttir Helga, Unnur Ýr, hannaði umslagið eins og hún hefur gert fyrir allar plötur föður síns. Spurður hvort eitthvert laganna sé líklegt til vinsælda eins og lögin af Kominn heim segist Helgi Júlíus halda það. „Það eru fjögur til fimm lög sem hafa allt til að bera til að slá í gegn en það þýðir ekki að þau geri það.“ Rás 2 hefur ákveðið að setja fyrst í spilun lagið Draumavon sem Sig- ríður syngur. „Hún er algjör undra- manneskja. Maður er bara dol- fallinn þegar maður heyrir hana syngja,“ segir Helgi Júlíus, sem er þegar byrjaður að undirbúa næstu plötu sem verður í þjóðlagastíl. - fb Ekki týpískur blús frá Helga Valdimar, Sigríður Thorlacius og KK syngja á fj órðu sólóplötu Helga Júlíusar. EKKI TÝPÍSKUR BLÚS Fjórða plata Helga Júlíusar hefur að geyma auðmelta tónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI TÓNLIST ★★★★ ★ David Bowie The Next Day ISO– SONY Stórstjarnan David Bowie kom öllum á óvart á 66 ára afmæl- inu sínu í ársbyrjun og tilkynnti að hann væri að fara að senda frá sér nýja plötu, tíu árum á eftir þá síðustu; Reality. Um leið sleppti hann einu lagi í spilun, hinu ljúfsára og nostalgíska Where Are They Now? Síðan hafa Bowie- aðdáendur beðið með öndina í háls- inum og vonað að karlinn fari nú ekki að klikka á ögurstundu. Það er alveg hægt að segja það strax að The Next Day er mjög fín Bowie-plata. Mun betri en ég hefði þorað að vona. Hún er ekki full- komin og hún jafnast ekki á við hans allra bestu plötur, hvort sem við tölum um Hunky Dory, Ziggy Stardust, Low, Heroes eða Scary Monsters. Hún er samt ekkert mjög langt undan og hún er sterkasta framlag Bowies a.m.k. síðan Out- side kom út fyrir átján árum. Það eru fjórtán lög á The Next Day, sautján á sérútgáfunni. Tón- listin er fjölbreytt en heildar- svipurinn er samt góður. Það eru bæði kraftmikil rokklög á henni og svo rólegri lög þar sem raf- magnsgítarinn gegnir ekki jafn stóru hlutverki. Það er greini- legt að Bowie og samstarfs- menn hans, m.a. upptöku- stjórinn Tony Vis- conti, hafa legið yfir útsetningun- um. Það er margt vel gert. Gamla gítar hetjan Earl Slick, sem spil- aði mikið með Bowie á árum áður, sýnir fín tilþrif í rokkaðri lögunum og strengir, píanó, barítónsaxófónn o.fl. hljóðfæri njóta sín á stöku stað. Eins og fyrr segir er The Next Day ekki fullkomin. Lögin eru svo- lítið misgóð. Platan byrjar mjög vel. Átta fyrstu lögin eru öll góð. Svo dettur hún aðeins niður með lögum eins og Boss of Me og (You Will) Set the World On Fire, en hún nær sér hressilega á strik í loka lögunum tveimur You Feel So Lonely You Could Die og Heat. Platan væri sterkari ef hún væri tíu laga (eins og Heroes) eða ellefu laga (eins og Ziggy Stardust) en hún er samt mjög sterk eins og hún er. Á heildina litið er The Next Day fín Bowie-plata. Karlinn kann enn að semja lög og texta og röddin hefur haldið sér furðuvel. Umslagið er líka skemmtilegt; endurvinnsla á Heroes-umslaginu. Trausti Júlíusson NIÐURSTAÐA: Sterkasta framlag Bowies í langan tíma. Kraft mikil endurkoma THE NEXT DAY „...sterkasta framlag Bowies a.m.k. síðan Outside kom út fyrir átján árum.“ ➜ Keppt er í þremur deildum; Kirk-deildinni, Spock-deildinni og Scotty-deildinni. MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS Miða- sala: 412 7711 Hverfisgata 54 Rvík www.bioparadis.is Hluti af Europa Cinemas NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS! BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn ST. SIG: STRIGI OG FLAUEL THE HUNT (JAGTEN) (12) 17:50, 20:00, 22:10 KON-TIKI (12) 17:50, 21:30 ST. SIG: STRIGI OG FLAUEL (L) 17:45, 20:15 HVELLUR (L) 22:20 (Í SÍÐASTA SINN) FIT HOSTEL (L) 19:00 EGILSHÖLLÁLFABAKKA V I P KRINGLUNNI KEFLAVÍK AKUREYRI R.EBERT LA TIMES K.N. EMPIRE BÍÓVEFURINN/SÉÐ & HEYRT MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTABLAÐIÐ IDENTITY THIEF 8, 10.20 OZ GREAT AND POWERFUL 5, 8 VESALINGARNIR 6, 9 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D 6 H.S.K - MBL 5% ÓSKARSVERÐLAUN M.A. BESTI LEIKARI ÁRSINS DANIEL DAY-LEWIS SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS -EMPIRE IDENTITY THIEF KL. 5.40 - 8 - 10 12 21 AND OVER KL. 10.10 14 THIS IS 40 KL. 5.40 12 / JAGTEN KL. 8 16 IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 IDENTITY THIEF LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 21 AND OVER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 3D KL. 3.40 - 5.50 L ÓFL TTINN F ÁR JÖRÐU 2D KL. 3.40 L DIE HARD 5 KL. 8 - 10.20 16 DJANGO KL. 9 16 HÁKARLABEITA 2 KL. 3.40 L - H.S.S., MBL IDENTITY THIEF KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 JAGTEN (THE HUNT) KL. 5.30 - 8 - 10.30 12 THIS IS 40 KL. 8 - 10.40 12 LINCOLN KL. 6 - 9 14 LIFE OF PI 3D KL. 5.20 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.